Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 30
tónlistaráhuginn sé sprottinn, eru
svörin af ýmsum toga. „Ætli manni
hafi ekki bara verið att út í þetta.
Allavega byrjaði ég sex ára gamall í
forskóla Tónmenntaskóla Reykja-
víkur og er því búinn að vera í þessu
í heil fimmtán ár,“ svarar Ívar. „Það
er þó alltaf eilífðarspurning hvað
maður ætlar að verða þegar maður
verður stór. Ég stefni á verk-
fræðinám við HÍ í haust, en fram-
haldsnám í músíkinni er sko alls
ekkert útilokað.“
Sigurdór segist hafa verið „sein-
þroska“ og farið fyrst í einkatíma
fyrir tólf árum , þá 18 ára gamall, sé
blokkflautunám í sex ára bekk und-
anskilið. „Við Sigurður tókum kenn-
aradeildina líka og höfum verið að
kenna með, ég við Tónskóla Reykja-
nesbæjar og hann við Gítarskóla Ís-
lands. Annars er framtíðin mín al-
veg galopin og engin
hernaðaráform í gangi,“ segir Sig-
urdór.
„Ég hef verið að læra, bæði skipu-
lega og óskipulega, frá tíu ára aldri,
en þá byrjaði ég fyrst að læra á gít-
ar,“ svarar Sigurður, sem átti sér
sjö árum eldri bróður sem spilaði á
gítar og var mikil fyrirmynd. „Ég
byrjaði hins vegar í tónlistarnámi í
FÍH um leið og ég fór í menntaskóla
og þegar stúdentsprófinu var lokið,
ákvað ég að hella mér af dálitlum
krafti út í músíkina. Upphaflega
planið var að gefa þessu eitt ár, en
eftir að af stað var farið varð ekkert
aftur snúið. Ég hef hugsað mér að
taka frí frá námi í eitt ár og halda
áfram kennslu, en svo stefni ég von-
andi á framhaldsnám í tónlistinni í
útlöndum eftir það.“
Þremenningarnir eru sammála
um að líf tónlistarmanna, líkt og líf-
ið almennt, sé hálfgert lotterí, en
þeir eru sannfærðir um að mögu-
leikar tónlistarmanna á Íslandi auk-
ist með aukinni menntun. „Hæfi-
leikar einir og sér eru góðir og
gildir, en það gerist ekkert án
vinnu. Möguleikarnir fara að opn-
ast, hafi menn víðan grunn að
byggja á.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Tónlistarmenn: Ívar Guðmundsson trompettleikari, Sigurdór Guðmunds-
son bassaleikari og Sigurður Rögnvaldsson gítarleikari.
join@mbl.is
NÁM| Útskrifast úr djassdeild FÍH
Spila áfram með
Angurgöpum
Leiðir þeirra félaga lágu sam-an í Tónlistarskóla FÍH þarsem þeir hafa verið við tón-
listarnám undanfarin fimm til sex
ár. Þeir eru þessa dagana að und-
irbúa sig fyrir burtfarartónleika, en
allir ljúka þeir burtfararprófi frá
djassdeild skólans á næstu dögum.
Þrátt fyrir að deila þá ekki sama
skóla lengur, eru þeir ekkert
hræddir um að tengslin rofni og
leiðir skilji því saman mynda þeir
djasshljómsveitina Angurgapa, sem
flytur einungis frumsamið efni, var í
fyrstu tríó, en telst nú vera orðið
tvöfalt tríó, þar sem hljómsveit-
armeðlimum hefur fjölgað um helm-
ing frá stofnun.
Auk þremenninganna, sem nú eru
að útskrifast, þeirra Sigurðar Rögn-
valdssonar gítarleikara, Sigurdórs
Guðmundssonar bassaleikara og Ív-
ars Guðmundssonar trompetleik-
ara, skipa hljómsveitina þeir Krist-
mundur Guðmundsson trommari,
Finnur Ragnarsson básúnuleikari
og Egill Antonsson hljómborðsleik-
ari.
„Bandið varð til í skólanum fyrir
um tveimur árum og hefur verið að
spila á tónleikum í framhaldsskólum
og á ýmsum reykmettuðum öld-
urhúsum. Við erum allir orðnir
mjög góðir vinir og eigum örugg-
lega eftir að hittast oft og spila sam-
an, þó ekki væri nema fyrir okkur
sjálfa að hittast og hafa gaman af,“
segir Sigurður Rögnvaldsson,
spurður um tilvist hljómsveit-
arinnar Angurgapa, sem í reynd
þýðir annars vegar galgopi og hins
vegar forn galdrarún. Burtfar-
artónleikar Sigurðar verða 17. apr-
íl, Ívars 19. apríl og Sigurdórs 8.
maí.
Galopin framtíð
Þegar þeir eru spurðir hvaðan
DAGLEGT LÍF
30 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vísindamenn eru óþreytandiað rannsaka heilann og önn-ur líffæri mannslíkamans, til
að komast að einhverju sem getur
hjálpað í baráttunni við að halda
góðri heilsu. Samkvæmt vefmiðli
BBC hefur nú verið gerð rannsókn
í Kaliforníu á heilabúi fólks, sem
vekur vonir um nýjar leiðir til að
hjálpa fólki úr klóm Bakkusar.
Alkóhól hefur áhrif á efnafræði
heilans á þann hátt að ákveðin boð-
efni (CRF) fara af stað og fram-
kalla vellíðan þegar áfengar veigar
eru teygaðar. Með niðurstöðum
fyrrnefndra rannsókna segja vís-
indamennirnir jafnvel mögulegt að
meðhöndla þá sem eru háðir víni
með því að loka fyrir þessi boð í
heilanum og draga þannig úr löng-
un þeirra til drykkju.
En ekki eru allir allskostar sáttir
við þessa leið og þær raddir hafa
heyrst að meðhöndlun á efnafræði-
legum áhrifum áfengis leystu ekki
margskonar undirliggjandi vanda.
Hefur verið bent á að í mörgum til-
fellum drekki fólk ótæpilega til að
draga úr vanlíðan eða gleyma ein-
hverju sem þjakar sálina og til að
leysa úr þeim vanda stoði lítt að
loka fyrir efnaboð í heilanum.
HEILSA
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Ný von í baráttunni
við áfengissýki?
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
NOA
NOA UNDRAILMURINN
• Með Noa 50 ml ilmi fylgir body lotion 50 ml
og flott taska úr gallaefni (sjá mynd)
• Með Noa Fleur 30 ml ilmi fylgir falleg
snyrtibudda úr gallaefni
• Með Gloria 50 ml ilmi fylgir Body Mist 40 ml
og flott taska úr gallaefni
Útsölustaðir cacharel um allt land.
Glæsileg tilboð á þessum vinsælu ilmum: