Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 46
MINNINGAR
46 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Oddrún IngaPálsdóttir fædd-
ist í Lunansholti í
Landsveit í Rangár-
vallasýslu hinn 22.
ágúst 1922. Hún and-
aðist á Landakots-
spítala 22. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Páll
Þórarinn Jónsson,
bóndi í Hjallanesi, f.
1. september 1893, d.
2. febrúar 1951, og
Halldóra Oddsdóttir,
húsfreyja, f. 29. jan-
úar 1891, d. 10. júlí
1971. Systkini Oddrúnar eru: Elsa
Dóróthea, f . 19. ágúst 1924, hús-
freyja í Hjallanesi, Ingólfur, f. 1.
september 1925, d. 29. október
1984, húsgagnasmiður, Jón Her-
mann, f. 27. nóvember 1926, veg-
hefilsstjóri og bóndi í Lunansholti,
Auðbjörg Fjóla, f. 25. maí 1928,
húsfreyja í Reykjavík, og Oddur
Ármann, f. 28. desember 1932, flug-
virki í Kópavogi.
Oddrún giftist 20. apríl 1946 Sig-
urði Þóri Ágústssyni, flugvirkja-
meistara, f. 7. desember 1922, d. 2.
maí 1975. Foreldrar hans voru Sig-
rún Jónsdóttir og Ágúst Úlfarsson,
trésmiður í Vestmannaeyjum. Odd-
Roodbergen, f. 16. nóvember 1962,
sjúkraþjálfa. Þau búa í Garðabæ og
eiga börnin Stefaníu, f. 1. júlí 1990,
Ólaf, f. 16. apríl 1992, og Örnu, f.
20. nóvember 1994. 5) Sigurður
Hreinn Sigurðsson, f. 20. október
1962, kvikmyndagerðarmaður,
kvæntur Elviru Méndez Pinedo, f.
18. desember 1966, dr. í evrópskum
lögum.
Oddrún ólst upp hjá foreldrum
sínum í Hjallanesi í Landsveit.
Fram til 16 ára aldurs vann hún við
bústörfin heima, en var eftir það í
vist á Árbæ, Fellsmúla og Stórólfs-
hvoli. Oddrún fékk skólavist í ný-
stofnuðum Húsmæðraskóla Suður-
lands á Laugarvatni og útskrifaðist
þaðan með fyrsta árgangi skólans
árið 1943.
Eftir að hafa komið upp börnum
sínum hóf Oddrún störf í Breiða-
gerðisskóla þar sem hún var um-
sjónarmaður Athvarfsins, dag-
deildar skólans í Reykjavík. Einnig
var hún matráðskona, m.a. hjá SÍS
og Hitaveitu Reykjavíkur. Hún
stundaði silfursmíðar um árabil og
hélt nokkrar sýningar á verkum
sínum.
Oddrún starfaði mikið að fé-
lagsmálum, var gjaldkeri fyrir
Kvenfélag Bústaðasóknar og sinnti
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
sóknina. Sat einnig í stjórn FÍFA.
Oddrún verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30. Jarðsett
verður í Skarðskirkjugarði í Land-
sveit síðdegis.
rún og Sigurður eign-
uðust fimm börn. Þau
eru: 1) Ágúst Úlfar
Sigurðsson, f. 18. sept-
ember 1946, tölvunar-
fræðingur, kvæntur
Erlu Þórðar, f. 19. apr-
íl 1947, meinatækni.
Þau búa í Reykjavík og
eiga dæturnar Helgu,
f. 21. febrúar 1978,
teiknara, og Ingu, f. 1.
ágúst 1979, nema. 2)
Halldóra Sunna Sig-
urðardóttir, f. 27. mars
1949, dr. í líffræði, gift
Ólafi Pétri Jakobssyni,
f. 30. apríl 1950, dr. í lýtalækning-
um. Þau búa í Svíþjóð og eiga dæt-
urnar Sigrúnu Sóleyju, f. 22. júlí
1975, tölvunarfræðing, Ingu Lísu, f.
20. desember 1978, nema, og Ingi-
björgu Ylfu, f. 8. maí 1980, nema. 3)
Sigrún Lóa Sigurðardóttir, f. 3.
ágúst 1951, arkitekt, gift Jóni
Gunnari Jörgensen, f. 29. apríl
1953, prófessor í norrænum fræð-
um. Þau búa í Ósló og eiga dæt-
urnar Unu Kristínu, f. 17. sept.
1980, nema, Eddu Jóhönnu, f. 1.
mars 1984, nema, og Oddrúnu
Lilju, f. 5. mars 1992. 4) Páll Ragnar
Sigurðsson, f. 29. janúar 1954, véla-
verkfræðingur, kvæntur Marjolein
Hvítt hús með grænu þaki …
gróskumikill garður með fullt af
blómum og rifsberjarunnum …
steintröppur liggja upp að húsinu …
amma í eldhúsinu … setubekkur við
eldhúsborðið … amma stekkur til,
hellir upp á kaffi og tekur til allt sem
hún á … amma segir sögur úr lífi
sínu … þegar hún leitaði út um allt
og fann loksins spes skóáburð fyrir
Halldór Laxness … þegar hún fór til
Parísar og pantaði afmælistertu fyr-
ir vinkonu sína án þess að tala orð í
frönsku og ég hlusta og vona að ég
hafi einhvern tíma jafnmikið að
segja barnabörnunum … ég hugsa
um allar góðu minningarnar sem
tengjast ömmu minni … gera pipar-
kökuhús með systur minni fyrir jól-
in … fara með ömmu upp í Breiða-
gerðisskóla … búa til dýrindis
skartgripi úr smelti og mest af öllu
að sitja í eldhúsinu hjá henni þar sem
er alltaf hlýtt …
Elsku amma, takk fyrir allt.
Þín
Inga.
Elsku amma Oddrún. Þetta verð-
ur svona aukakveðja þar sem þú
tókst þig til núna í vetur og kvaddir
mig með virktum, gafst mér heilræði
fyrir lífið og tilkynntir mér að nú
ættir þú ekki mikið eftir. Þetta uppá-
tæki þitt kom mér í töluvert uppnám
þennan kalda dag í janúar en ég skil
núna hvað þér gekk til. Ég á eftir að
muna þessa kveðju allt mitt líf.
Þennan vetrardag aðspurð um
gestagang svaraðirðu mér að bæði
Páll faðir þinn og Ingólfur bróðir
hefðu litið við, nóg af gestum sagð-
irðu síðan með glott á vör og skiptir
um umræðuefni eins og þér einni var
lagið. Í dag verður líkami þinn jarð-
settur þar sem jarðneskar leifar
þeirra hvíla uppi í Landsveit. Ég er
þess fullviss að þér líður ekki bara
vel núna, heldur ertu líka í góðum fé-
lagsskap. Þú kunnir svo sannarlega
að segja sögur og þreyttist seint á að
segja frá hinu og þessu sem á daga
þína hafði drifið. Þú hvattir mig alla
tíð til að teikna og nota þá listrænu
hæfileika sem mér voru gefnir. Sú
hvatning er mér mikils virði og
hjálpaði mér mikið þegar að því kom
að ég þurfti að taka stórar ákvarð-
anir.
Ég minnist þín sem ömmu á Soga-
veginum sem átti alltaf nóg af boll-
um, pönnukökum og frábærum sög-
um til að bjóða upp á. Takk fyrir
gestrisnina og allar góðu stundirnar.
Helga Ágústsdóttir.
Þú skilur eftir auðlegð þá
sem enginn tekið fær.
Ást í hjarta, blik á brá
og brosin silfur tær.
Mesta auðinn eignast sá
er öllum reynist kær.
(G. Ö.)
Óðum safnast samferðafólkið til
feðra sinna. Misjafnt er hvað þetta
snertir mann djúpt, þar kemur ým-
islegt til. Sumir sigla gegnum lífið
seglum þöndum, láta mikið til sín
heyra og oft sjá sig.
Aðrir stíga hljóðlega til jarðar, en
eru til staðar þegar á þarf að halda,
gera verkin án hávaða, gefa góð ráð
þegar eftir þeim er leitað, trana sér
ekki fram.
Ein slík er kvödd hér í dag – í
þeirri kirkju sem hún átti sinn stóra
þátt í að varð að veruleika. Þegar við
nokkrar konur í nýstofnaðri Bú-
staðasókn mynduðum með okkur fé-
lagsskap fyrir rúmum 50 árum, var
Oddrún með þeim fyrstu sem gengu
í félagið og starfaði með því allar göt-
ur síðan.
Hún var fljótlega kosin í stjórn fé-
lagsins og var gjaldkeri þess til
margra ára. Þar var rétt kona á rétt-
um stað. Hún vildi hag félagsins sem
mestan og bestan, sat flesta fundi
með kvittanaheftið tilbúið, kallaði
ekki eftir félagsgjöldum, en þau
komu samt.
Eins og fleiri, eða flestir í þessari
sókn, stóðu þau hjón í húsbyggingu
og barnauppeldi og til þess uppeldis
hefur ekki verið kastað höndunum,
því þessi börn vöktu athygli fyrir
prúðmennsku og afburða námshæfi-
leika.
Oddrún missti mann sinn langt
fyrir aldur fram og varð hún sjálf að
fara út á vinnumarkaðinn, sem ekki
var orðið svo algengt á þeim árum.
Hún gerðist matráðskona í athvarfi
Breiðagerðisskóla. Ég hefi sannfrétt
það, að þar hugsaði hún ekki ein-
göngu um matseld, því áður en við
var litið, var hún orðin vinur og leið-
beinandi barnanna sem þar dvöldu.
Ég er alveg viss um að hún hefur
ekki alltaf verið að líta á klukkuna,
þó vinnuskyldan væri búin.
Oddrún var listræn, vel að sér í
bókmenntum og sílesandi. Hún
stundaði ekki mikið heimsóknir eða
húsaflakk, en tók sjálf vel á móti
fólki, umvafði það hlýju og notaleg
heitum.
Á fyrstu árum kvenfélags Bú-
staðasóknar starfaði innan þess
saumaklúbbur, til nánari kynna fé-
lagskvenna og til fjáröflunar. Odd-
rún var einn af meðlimum hans og
átti hugmyndina að nafni hans, „Blá-
þræði“, en því miður urðu það örlög
hans að slitna allt of fljótt. Og margt
bendir til þess að félagið sjálft sé á
sömu leið.
Þeim fækkar nú óðum frumkvöðl-
um að stofnun þessa félags, það
verður ekki umflúið. Ég veit að ég
mæli fyrir munn margra fé-
lagskvenna, er ég að lokum þessara
fátæklegu orða sendi börnum henn-
ar og afkomendum öllum hlýjar sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning Oddrúnar
Pálsdóttur.
Rósa Sveinbjarnardóttir.
Við Oddrún vorum nágrannar í 43
ár í Sogamýrinni og á samskipti okk-
ar bar aldrei skugga. Sogamýrin var
eins konar sveitaþorp, þegar við
fluttum þangað báðar með barna-
hópana okkar og höfðum ekki mik-
inn tíma til að rækta kunningsskap-
inn. Samskipti okkar á
frumbyggjaárunum snerust aðallega
í kringum uppeldi og börn, enda var
töluverður samgangur með krökk-
unum okkar meðan þau voru að vaxa
úr grasi.
Á síðari árum, þegar við vorum
tvær einar eftir, breyttust dagarnir.
Við fylgdumst hvor með annarri.
Pikarkökuhúsin hennar Oddrúnar
urðu árviss viðburður fyrir jólin og
vöktu mikla lukku í minni fjölskyldu.
Jólakortin hennar heimagerðu voru
ODDRÚN INGA
PÁLSDÓTTIR
Bróðir okkar, mágur og frændi,
ÓLAFUR PÁLSSON,
Mýrarbraut 7,
Blönduósi,
áður Ytri-Björgum,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. mars sl.
Jarðarförin fer fram frá Hofskirkju laugar-
daginn 3. aprí kl. 14.00.
Sigurður Pálsson, Alda Friðgeirsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir, Óli J. Björnsson
og frændfólk.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KARL RÓSINBERGSSON,
Ránarbraut 1,
Skagaströnd,
lést á heimili sínu mánudaginn 29. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Steinunn Steinþórsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Kær frændi og vinur,
KRISTINN RAFN RAGNARSSON,
Garðsenda 5,
lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn
9. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Erla K. Valdimarsdóttir, Guðmundur Stefánsson,
Guðmundur Guðnason, Helga Torfadóttir.
Eiginmaður minn,
EGGERT THORBERG BJÖRNSSON
skipstjóri
frá Arney,
Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítala Stykkishólmi þriðju-
daginn 30. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Unnur Lára Jónasdóttir og börn.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar,
systur, mágkonu, barnabarns og tengdadóttur,
ÁSTU SYLVÍU BJÖRNSDÓTTUR,
Eskihlíð 35,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Friðbirni Sigurðs-
syni, lækni, læknum og starsfólki 11E Land-
spítala, líknardeild Landspítalans í Kópavogi og DI Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki fyrir einstaka umönnun og alúð. Skagfirsku söngsveitinni,
starfsfólki röntgendeilda Landspítala og öllum þeim, sem glöddu hana og
studdu í erfiðum veikindum, þökkum við af alhug.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Örn Jóhannesson,
Oddný Finnbogadóttir, Björn Friðrik Björnsson,
Emma Sigríður Björnsdóttir, Iain D. Richardson,
Alma Emilía Björnsdóttir,
Emma Hansen,
Friðrik J. Friðriksson,
Þóra Kristjánsdóttir.
Elskulegir foreldrar okkar og móðir mín,
MARGRÉT GUÐBRANDSDÓTTIR
og
GUÐMUNDUR EINAR SVEINSSON,
Furugrund 42,
Akranesi,
létust af slysförum þriðjudaginn 30. mars sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Edda Guðmundsdóttir,
Einar Guðmundsson,
Dröfn Guðmundsdóttir,
Ægir Guðmundsson,
Bragi Antonsson.