Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 52
UMRÆÐAN
52 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Gleði, glens og gaman í allt sumarUpplýsingar í síma 588 8899 og á www.kfum.isNON
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
7
0
3
•
s
ia
.i
s
Gleði, glens og gaman
– í sumarbúðum KFUM og KFUK í sumar! Hólavatn
Kaldársel
Vatnaskógur
Vindáshlíð
Ölver
Skráning er hafin!
NOKKRAR umræður hafa orðið
á undanförnum vikum og mán-
uðum um ræktun á erfðabreyttum
plöntum og m.a. áform ORF Líf-
tækni hf. um að nota erfðabreytt
bygg til að framleiða
verðmæt og eftirsótt
prótein. Eins og
gengur þegar ný
tækni er kynnt til
sögunnar vill stundum
gæta misskilnings í
umfjöllun um eðli og
möguleika hennar, og
hvert notkun hennar
muni leiða okkur.
Enn og aftur skal
tekið fram að ORF
áformar ekki að fram-
leiða erfðabreytt bygg
til almennrar dreif-
ingar sem erfðabreytt matvæli eða
fóður. Þess í stað hyggst fyr-
irtækið, í samvinnu við bændur og
aðra aðila, rækta erfðabreytt bygg
á afmörkuðum svæðum til fram-
leiðslu á verðmætum próteinum úr
plöntum með tækni sem verið er
að þróa og hefur fengið nafnið
sameindaræktun. Ætlunin er að
framleiða þennan efnaflokk, pró-
tein, fyrir mismunandi markaði. Í
fyrsta lagi prótein sem innihalda
lyfjavirkni til nota fyrir lyfjaiðn-
aðinn, þá prótein fyrir rann-
sóknamarkaðinn og í þriðja lagi
prótein fyrir ýmsan iðnað.
Eðliseiginleikar próteina
Prótein eru efni sem mannveran
og lífheimurinn eru byggð á. Þau
eru á meðal flóknustu lífssameinda
sem til eru og einungis hægt að
framleiða þau í lífverum. Prótein
eru keðjur af sameindum er nefn-
ast amínósýrur sem ef til vill er
best að lýsa með samlíkingu við
perlufestar, þar sem hver perla í
perlufestinni er ein amínósýra.
Eiginleikar próteinanna fara alger-
lega eftir því úr hvaða am-
ínósýrum þau eru gerð, röð þeirra
í próteininu og hversu löng hver
keðja er. Prótein eru að grunni til
gerð úr sömu byggingareiningum
(þ.e. amínosýrum) hvort sem líf-
veran er maður, dýr, baktería,
veira eða planta. Prótein eru við-
kvæm efni, sem brotna hratt niður
í náttúrunni (t.d. við rotnun) eða í
meltingarvegi manna og dýra. Pró-
tein eru því ekki þrávirk efni sem
safnast upp í lífríkinu, þvert á
móti. Þegar talað er um erfða-
breytt bygg sem framleiðir lyf-
virkt prótein gæti verið um að
ræða prótein eins og mótefni, sem
eru varnarefni í líkama manna og
dýra. Mörg þúsund eða jafnvel
milljónir mismunandi mótefna er
að finna í líkama hvers manns eða
dýrs. Þar með eru þessi efni í þús-
unda eða milljóna tali í algengri
fæðu okkar, s.s. í kjöti, fiski eða
mjólk. Þessi efni eru viðkvæm og
brotna hratt niður í meltingarvegi
manna og dýra, og missa því
virkni sína. Séu þau hins vegar
einangruð og hreinsuð
mætti nota þau sem
lyf, sem þá þyrfti að
sprauta í æð. Afar
langsótt væri að ætla
að þessi efni geti ver-
ið hættuleg mönnum
eða dýrum, enda
þyrfti þá mataræði
okkar að breytast
verulega. Við sam-
eindaræktun á slíkum
efnum yrði engu að
síður ströngum örygg-
isreglum fylgt, m.a.
þeim öryggisreglum
sem bæði Evrópubandalagið setur
og þá ekki síst lyfjaiðnaðurinn
sjálfur.
Afmörkunareiginleikar byggs
Kjarninn í allri starfsemi ORF frá
upphafi hefur verið áherslan á að
nota plöntutegund í sameinda-
ræktun með eiginleika er hindruðu
sjálfkrafa dreifingu hennar út í
umhverfið og í aðra uppskeru, eða
kæmu í veg fyrir frjóvgun hennar
við skyldar tegundir í umhverfi og
náttúru landsins. Þar með væri
útilokað að erfðabreyttar plöntur
úr sameindaræktun rötuðu í fæðu-
keðju mannsins. Einmitt þess
vegna var byggplantan valin en
aðstæður hér á landi auka síðan
afmörkunareiginleika byggsins enn
frekar:
Bygg er sjálffrjóvga og frjóvgun
hefur átt sér stað áður en blómin
opna sig. Sama á við um allt annað
bygg sem er í ræktun í öðrum til-
gangi. Það er hreinlega ekki í eðli
byggs að víxlfrjóvgast.
Byggið lifir auk þess ekki af ut-
an ræktunarreita, hvað þá að það
dreifi sér út í íslenska náttúru þótt
það hafi haft tækifæri til þess frá
landnámsöld.
Ennfremur má nefna að engar
plöntur í flóru Íslands eru nægi-
lega skyldar bygginu til þess að
víxlfrjóvgun við þær eigi sér stað.
Einmitt út frá umhverfis- og ör-
yggissjónarmiðum er byggið alveg
kjörið í sameindaræktun fyrir t.d.
lyfvirk prótein. Ræktun á vegum
ORF er því ekki slepping í þeirri
merkingu að hún sé óafturkræf;
hún er bundin ræktunarreit og
ræktunartíma og hægt að ljúka
henni hvenær sem er.
Vinnulag við sameindaræktun
Spurt hefur verið um það hvernig
fyrirtækið hyggst standa að sam-
eindaræktuninni. Því er til að
svara að fyrirtækið mun að sjálf-
sögðu fara eftir lögum og reglum
um starfsemina. Um ræktun erfða-
breyttra lífvera (þ.m.t. plantna)
gilda lög og reglugerðir og byggj-
ast þær á tilskipunum frá Evrópu-
bandalaginu. Fyrir hvert lífefni
(prótein) sem fyrirtækið hyggst
framleiða, þarf að sækja um sér-
stakt leyfi til Umhverfisstofnunar.
Áður en Umhverfisstofnun úr-
skurðar um hvort veita skuli við-
komandi leyfi eður ei leitar stofn-
unin álits hjá til þess bærum
aðilum, s.s. hjá sérstakri ráðgjaf-
arnefnd um erfðabreyttar lífverur
og hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands. Verði leyfi veitt getur Um-
hverfisstofnun sett ákveðin skil-
yrði um það hvernig standa skuli
að viðkomandi ræktun og stofn-
unin hefur eftirlit með starfsem-
inni.
Auk þeirra laga og reglugerða,
sem gilda um starfsemina vinnur
ORF Líftækni að gerð vinnulags-
reglna um sameindaræktunina í
samstarfi við bændur og aðra að-
ila. Vinna við mótun vinnulags-
reglnanna hefur til þessa verið
gerð í samráði við forsvarsmenn
Bændasamtaka Íslands og Lands-
sambands kornbænda og reiknað
er með að hafa samráð við aðra
aðila eftir þörfum. Unnið er að
upplýsingasöfnun og tilraunum í
samstarfi við Rannsóknastofnun
landbúnaðarins, Landgræðslu rík-
isins og fleiri aðila til stuðnings við
mótun vinnulagsreglnanna.
Áformað er að ljúka gerð þess-
ara vinnulagsreglna innan eins árs
og verður þá hægt að upplýsa
hverjar þær verða. Ekki er áform-
að að sækja um leyfi fyrir útirækt-
un á nýjum erfðabreyttum bygg-
yrkjum sumarið 2004.
Sameindaræktun með ábyrgum
hætti er nýsköpun sem skapar
spennandi tækifæri til verðmæta-
sköpunar og atvinnuþróunar hér á
landi. Grípum tækifærin, glötum
þeim ekki. Nánari upplýsingar:
www.orf.is.
Öryggi í framleiðslu
lífefna í erfðabreyttu byggi
Júlíus B. Kristinsson skrifar
um erfðabreytt matvæli ’Sameindaræktun meðábyrgum hætti er ný-
sköpun sem skapar
spennandi tækifæri til
verðmætasköpunar og
atvinnuþróunar hér á
landi.‘
Júlíus B. Kristinsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
ORF Líftækni hf.
Í SÍÐUSTU viku voru samþykkt
lög frá Alþingi sem kveða á um stór-
fellda lækkun á erfðafjárskatti og
mikla einföldun á öll-
um lagareglum um
hann. Þessi lög tóku
gildi 1. apríl sl. og
taka til þeirra, sem
andast þann dag eða
síðar.
Lög um erfða-
fjárskatt hafa verið
mjög flókin. Erf-
ingjum hefur verið
skipt í 4 flokka og alls
hafa verið 19 mismun-
andi skattprósentur!
Allt frá 0% fyrir líkn-
arfélög og maka, 5%
til 10% fyrir börn og
aðra niðja, 15% til
25% fyrir foreldra og
systkini og upp í 30%
til 45% fyrir aðra. Svo
var arfi hvers og eins
skipt í allt að 6 flokka!
Nýju lögin eru hins
vegar afskaplega ein-
föld: Skatturinn er 5%
fyrir alla. Þó greiða
makar ekki erfða-
fjárskatt og fyrsta milljónin í dán-
arbúi er skattfrjáls.
Hlutafé
Hlutabréf hafa verið metin á nafn-
virði við mat til erfðafjárskatts enda
var nafnverð hlutabréfa ágætur
mælikvarði á verðmæti hlutafélags í
eina tíð. Það hefur gjörbreyst. Nú
eru þau seld á margföldu nafnverði.
Jafnvel hundraðföldu. Þannig hafa
myndast möguleikar til að komast
hjá því að greiða erfðafjárskatt með
því að kaupa hlutabréf á mjög háu
gengi og taka jafnvel lán til þess.
Dæmi: Maður sem á hreina eign
upp á 100 mkr. kaupir hlutabréf í
KB banka fyrir þá upphæð á geng-
inu 300 og tekur til þess lán. Við það
lækkar eign til erfðafjárskatts úr
100 mkr. í 300 þkr. sem er nafnverð
hlutabréfanna!! Einnig má stofna
einkahlutafélag um eignina með
sömu áhrifum. Ég hef mörgum
sinnum bent á þetta undanfarinn
áratug og sagt að þeir greiði erfða-
fjárskatt sem nenna því!
Þessar reglur er nú aflagðar,
þessu skattaskjóli lokað, og miðað
er við markaðsverð hlutabréfa eða
eigið fé hlutafélags við mat á verð-
mæti arfs. Er það sanngjarnt og í
samræmi við mat á öðrum eignum,
fasteignum, bílum og innbúi.
Fréttaflutningur
Morgunblaðsins
Hann er skrýtinn fréttaflutningur
Morgunblaðsins af þessari laga-
setningu. Á forsíðu 24. mars sl. er
frétt með fyrirsögninni: „Dæmi um
milljóna hækkun.“ Í fréttinni er
tekið dæmi um mann, sem erfir
hlutabréf að nafnvirði 5 mkr. í
Össuri en gengið í því góða
hlutafélagi er um 51
falt nafnverð.
Aumingja erfinginn
þarf að greiða 12,7
mkr. samkvæmt nýju
lögunum í stað 370 þkr.
samkvæmt eldri lögum.
Vitnar Morgunblaðið
til lögfræðinga hjá
Deloitte.
Þær eru undarlegar
forsendur lögfræðing-
anna. Þeir gefa sér að
hinn látni hafi ein-
göngu átt hlutabréf í
Össuri að verðmæti 255
milljónir kr. en búið í
leiguíbúð og hvorki átt
bíl né innbú. Þessi
hlutabréf getur erfing-
inn selt hvenær sem er
og svarar verðmæti
þeirra til 10 einbýlis-
húsa, skuldlausra eða
ca 100 árslauna verka-
manns!
Er eðlilegt að erfingi
greiði sama skatt af
auðæfum upp á 255 mkr. og sá sem
erfir íbúðargrey eftir móður sína
upp á 10 mkr. með 5 mkr. skuldum?
Hvernig getur Morgunblaðið komið
með svona neikvæða frétt og
neikvæða fyrirsögn þegar skattur á
íbúðarerfingjann er lækkaður úr
370 þkr. í 200 þkr. og vandfundin
verði raunveruleg dæmi um
erfingja sem greiða ekki minni
skatt samkvæmt nýju lögunum.
Morgunblaðið sér þó að sér daginn
eftir og segir í leiðara að þetta sé nú
réttlát og sanngjörn lækkun á
erfðafjárskatti en eftir situr frétt á
forsíðu um að þessi lagabreyting
þýði stórfellda skattahækkun.
Það hefði mátt búast við að fréttir
af þessari lagasetningu hefðu
undirstrikað þá miklu lækkun á
erfðafjárskatti fyrir almenning og
alveg sérstaklega þá einföldun sem í
henni felst. Nefnd hefðu verið raun-
hæf eðlileg dæmi hjá venjulegu
fólki sem er að erfa ættingja sína og
vini. Það hefði líka t.d. mátt nefna
að sá sem erfir aldarvin sinn greiðir
með nýju lögunum 200 þkr. í
erfðafjárskatt fyrir ofangreinda 5
mkr. íbúð í stað 1,9 mkr. samkvæmt
eldri lögum. Svo hefði sérstaklega
mátt búast við að því hefði verið
fagnað að lokað er skattaglufu og
allir greiði sama skatt af jafn-
verðmætum arfi.
Ný lög um
erfðafjárskatt
Pétur H. Blöndal skrifar
um skattamál
Pétur H. Blöndal
’Erfingjum hef-ur verið skipt í 4
flokka og alls
hafa verið 19
mismunandi
skattprósent-
ur!‘
Höfundur er
alþingismaður.