Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 55
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 55 innflytjendur eru að stunda ís- lenskunám á meðan þeir eru að vinna jafn mikið og Íslendingar, og þeir vilja einlæglega búa sér líf á Íslandi. Að sjálfsögðu eru ýmsir einnig að reyna að kalla á nánustu aðstandendur frá heimalöndum sínum en það er skiljanlegt eðli mannlífs.Við innflytjendur á Ís- landi höfum ekki valdlið neinum vandræðum hingað til. Af hverju verða íslensk stjórnvöld að setja sams konar lög hérlendis vegna mála sem eiga sér stað í Dan- mörku, og að líta á okkur aðeins sem uppsprettu vandamála? Rök- stuðningur viðkomandi frumvarps útskýrir ekkert um þetta atriði. Hann gefur í skyn tilfelli um „nauðungarhjúskap“ á Íslandi en það eru í raun engin slík dæmi hér. Lokaorð Góðir Íslendingar, ég vil ítreka að þetta mál varðar jafnt réttindi Ís- lendinga sem útlendinga. Það sjást engin rök að baki við- komandi ákvæði frumvarps um aldurstakmörkun 24 ára fyrir maka íslenskra ríkisborgara. Hins vegar eru margar manneskjur sem hafa áhyggjur vegna þessa frumvarps, og velta fyrir sér hvort þær geti búið með mökum sínum í náinni framtið. Fólk hafði þegar samband við mig í síðustu viku út af þessum ótta. Það voru ekki út- lendingar, heldur „íslenskir“ Ís- lendingar. Er rétt að troða á raunverulegum hjúskaparrétt- indum þeirra vegna vandamála sem eru ímynduð? Mig langar til að heita á stjórn- völd að endurskoða viðkomandi at- riði í frumvarpinu sem koma fram hér að ofan. Höfundur er prestur innflytjenda. MIG UNDRAR sú græðgi forkólfa hins opinbera, að hækka fasteignamat húsnæðis á sama tíma og þeir lækka brunabótamat þess. Eignaskattsvið- miðið stendur hins vegar óbreytt. Þetta þýðir að sjálfsögðu að þeir sem eiga ekkert annað en þakið yfir höfuðið – hafa kannski barist fyrir því alla æv- ina – þurfa að greiða hærri fasteignagjöld til sveitarfélagsins og þar að auki eignaskatt til ríkisins því til viðbótar, af því sem sem ekkert hefur hækkað að raun- gildi. Hreiðrið sem þú hef- ur til íveru er nákvæm- lega sama raunvirði fyr- ir þig nú sem fyrr, nema ef þú ætlar kannski að selja það og fá þér annað dýrara. Þá, já nákvæmlega þá mætti ef til vill segja að þú gætir hagnast eitthvað, en fyrr ekki. Kröfur trygginga- félaganna um brunatryggingar, fast- eignatryggingar, innbústryggingar, foktjóns- og vatnsskaðatryggingar, viðhaldskostnað, endurbætur og þess háttar aðkeyptar aðgerðir ættu að vera nógur skattur fyrir þá sem ekki hafa atvinnu. Þessi lúmski, lögbundni þjófnaður, sem er hækkun fasteignamats, eign- arskattsmyndunin samfara henni, ásamt lækkun á brunamótamatinu, eru einhverjar þær ósvífnustu aðgerðir stjórnvalda samtímans á hendur öldr- uðum, öryrkjum og þeim sem ekkert eiga nema heimili sitt og eiga erfitt með að flytja sig um set. Nú er svo komið hjá mörgum öldr- uðum að þeir geta ekki haldið heimili sínu vegna þessa ómerkilega þjófnaðar og reyna að selja eignir sínar og kaupa sér minna húsnæði, sem ávallt er þó hlutfallslega miklu dýrara, fyrir utan þá röskun, bæði andlega, líkamlega og félagslega, svo og þann mikla kostnað sem þetta skapar fyrir þá sem hafa ekki lengur tekjur til að standa undir kröfum samtímans um mannsæmandi líf. Þessi andstyggilega þróun hefur verið að gerjast undanfarin 3–4 ár. Mín beiðni og krafa til alþingis og sveitarstjórna er að þessu verði breytt nú samstundis, svo að ekki komi lengur til upp- gjafar fátækra, aldraðra og öryrkja vegna þess- ara breytinga, sem mis- vitrir, grunnhyggnir menn hafa gert á ör- skömmum tíma. Hættið stanslausum hækkunum á fast- eignagjöldunum. Hættið að leggja eignarskatt á lóða- leigu. Burt með eignarskatt aldraðra og öryrkja af húsnæði til eigin nota. Látið ekki opinbera græðgi leggja líf meðbræðra ykkar í rúst. Gerið venjulegu fólki kleift að búa í eigin húsnæði. Minnkið þar með álagið á félags- málastofnun. Hækkið eignarskattsviðmiðið eins og skot. Löggiltur þjófnaður Stefán Aðalsteinsson skrifar um græðgi samfélagsins Stefán Aðalsteinsson ’Hættið stans-lausum hækk- unum á fasteigna- gjöldunum. ‘ Höfundur er verslunarmaður. DILBERT mbl.isKynning á spennandi nýjungum frá Kanebo, Japan,í Hygeu Kringlunni í dag, föstudag og á morgun, laugardag. Sérfræðingur Kanebo mun veita faglega ráðgjöf og húðgreiningu. K H A N E B O R E I N S U N KRINGLUNNI SÍMI 533 4533 INTERNATIONAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.