Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
FRAMTÍÐIN LIGGUR
FYRIR OKKUR
EÐA ER ÞAÐ
FORTÍÐIN?
ÞAÐ ER ERFITT
AÐ SJÁ
MUNINN
HVERNIG VÆRI ÞAÐ EF VIÐ
GÆTUM SÉÐ FRAMTÍÐINA
GRETTIR?
EF VIÐ GÆTUM SÉÐ 5 ÁR FRAM Í
TÍMANN, HVAÐ VÆRUM VIÐ ÞÁ
AÐ GERA?
ÖRUGGLEGA NÁKVÆMLEGA ÞAÐ
SAMA OG VIÐ ERUM AÐ GERA NÚNA,
NEMA VONANDI MEÐ BETRA KAFFI!
ÞEIR ÆTLA AÐ BANNA MÉR
AÐ VERA Í SANDÖLUNUM
MÍNUM Í SKÓLANUM... ÞEIR
SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ BROT Á
REGLUM... HVAÐ Á ÉG
AÐ GERA KALLI?
JÆJA... ÉG... ÉG... VEIT
EKKI... ÞÚ ... ÉG .... ÉG....
TAKK
KALLI...
“KLIK”
ÆI!
KALLI ÉG
VERÐ AÐ FÁ
AÐ TALA VIÐ
EINHVERN
Lalli lánlausi
©LE LOMBARD
VIÐ LÁTUM ÞESSAR
VIÐGERÐIR EKKI TRUFLA
OKKUR OG HÖLDUM ÁFRAM
MEÐ EFNIÐ
LALLI
KOMDU!
JÆJA LALLI, HVAÐ
ER 2X2?
GOTT.
MJÖG GOTT
EN 1X5
FIMM
HELD ÉG
ÞETTA ER
ÓTRÚLEGT LALLI!
OG NÚNA
ERFIÐARA.
6X7?
SAGÐIRÐU
6X7?
LOF MÉR AÐ
HUGSA
6X7
6X7 JÆJA LALLIÆTLARÐU
AÐ KOMA
MEÐ
ÞAÐ EÐA
HVAÐ?
BÍDDU ÉG
HEYRI EKKI
ALVEG NÓGU
SKÝRT
ÉG..
BRELLAN ÞÍN VIRKAR
BARA FYRIR LÁGAR TÖLUR
ÉG TÓK
EFTIR ÞVÍ!
4
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SÆLL vertu Kristján Þór. Ekki
voru viðbrögð þín hinn 29. mars við
stuttri fyrirspurn minni í Mbl. 17.
mars s.l. merkileg og satt að segja
allmiklu snautlegri en ég átti von á.
Þú agnúast út í starf mitt og tímann
sem í það fer, svarar ekki spurning-
um sem ég lagði fyrir þig og tekst
aldeilis ágætlega að koma hvergi að
kjarna málsins.
Ég nenni ekki að fást um barnaleg
ummæli þín um „reykfyllt bakher-
bergi“. Ég býst við að allir skilji hvað
átt er við nema ef til vill þú. Og 40
greinar/fundarsamþykktir sem hafa
birst einhvers staðar eru ekki kjarni
málsins. Ég leit inn á gagnasafn
Morgunblaðsins og sýndist að á sl.
12 mánuðum hefði menningarhús
verið 7 sinnum til umræðu og þar af
er mitt opna bréf og svar þitt tvær
umfjallanir af þessum sjö! Sjálfsagt
úir og grúir af fundargerðum menn-
ingarmálanefndar og eitthvað hefur
bæjarstjórnin rætt málið.
Það sem ég er að taka til umfjöll-
unar í opnu bréfi til þín er umræðu-
leysið um svokallað menningarhús á
Akureyri. Hvorki menningarmála-
nefnd Akureyrar eða bæjarstjórn
sjá ástæðu til þess að efna til al-
menns fundar/almennra funda um
þetta málefni. Sjálfsagt hefur menn-
ingarmálanefnd haldið marga fundi
– málið hefur stundum verið til um-
fjöllunar á bæjarstjórnarfundum en
almenna umræðu vantar, Kristján!
Vilja menn almennt þetta hús eða
eitthvert hús sem þeir hafa ekkert
um að segja hvernig verður?
Það er rétt: Þú ert búinn að und-
irrita samning um þetta hús við fyrr-
verandi menntamálaráðherra, – féð
sem í þetta verkefni fæst úr ríkis-
sjóði eru 720 millj. – gert er ráð fyrir
að Akureyrrabær leggi fram 500
milljónir. En hafa Akureyraringar
verið spurðir að því hvernig þeir vilja
að þessu fé sé varið? Nei. Það eru
Akureyringar sjálfir sem greiða
hluta kostnaðarins og það er ekki
nema sjálfsagt að þeir hafi eitthvað
um málið að segja. Hvers vegna
forðast bæjarstjórnin eins og heitan
eldinn að tala við Akureyringa?
Þetta er mál okkar allra en ekki tak-
markaðs hóps.
Ég lagði fyrir þig margar spurn-
ingar. Þú svarar ekki einni einustu.
Vilja menn 500 manna tónlistarsal
og 200 manna fundarsal?
Hvað vilja menn marga sali og hve
stóra?
Er hugmyndin að leikhúsið fái inni
í þessu húsi? Er hugmyndin að þessi
500 manna salur verði einnig salur
fyrir leikhúsið?
Hvað kostar reksturinn á húsinu?
Hvað annað mætti hafa eða er
hugmyndin að hafa í þessu húsi?
Sannleikurinn er sá að almenn
umfjöllun um menningarhús er í
skötulíki. Kemur bæjaryfirvöldum
virkilega ekki í hug að leita álits Ak-
ureyringa um menningarhús þeirra?
Og svaraðu okkur nú á mannamáli.
PÉTUR JÓSEFSSON,
Heiðarlundi 6b,
Akureyri.
Hið seinna opna
bréf til bæjarstjór-
ans á Akureyri
Frá Pétri Jósefssyni:
Í MORGUNBLAÐINU 23. mars sl.
birtist bréf frá viðskiptavini Nátt-
úrulækningabúðarinnar þar sem
hann greinir frá afar óskemmtileg-
um samskiptum sínum við af-
greiðslumann sem jafnframt er
verslunareigandi.
Náttúrulækningafélag Íslands vill
að gefnu tilefni taka fram hér að fé-
lagið tengist á engan hátt þessari
verslun. Skrifstofa félagsins hefur
fengið ótal fyrirspurnir varðandi
Náttúrulækningabúðina og hefur þá
komið í ljós að margir halda að Nátt-
úrulækningafélagið reki þessa versl-
un en það skal ítrekað hér að versl-
unin er félaginu algerlega
óviðkomandi.
BJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
skrifstofustjóri NLFÍ.
Náttúrulækningafélag Íslands
ekki Náttúrulækningabúðin
Frá Björgu Stefánsdóttur:
MÉR líst vel á þau lög sem dóms-
málaráðherra er að setja í sam-
bandi við útlendinga. Þetta er ekki
gegn útlendingum heldur mjög
sjálfsagður varnagli gegn öllu
mögulegu, og það er sjálfsagt að
allir útlendingar gangist undir
læknisskoðun. Það er líka öryggi
fyrir þá. Margir koma hingað frá
pestarbælum þar sem heilsugæsla
þekkist ekki, hvað þá meðul. Nú
eru mörg ríki að bætast í Evrópu-
sambandið og full ástæða til að slá
alla mögulega varnagla gegn öllu
mögulegu, bæði í heilsugæslu og ör-
yggismálum. Ég er hissa á því fólki
sem telur sig starfa fyrir Alþjóða-
hús, það á að vita betur að allt sem
er í frumvarpi dómsmálaráðherra
er líka visst öryggi fyrir útlendinga.
Það er vissulega gott að loksins
fengum við alvöru dómsmálaráð-
herra.
VILHJÁLMUR K.
SIGURÐSSON,
Njálsgötu 48a,
101 Reykjavík.
Líst vel á lög
um útlendinga
Frá Vilhjálmi K. Sigurðssyni: