Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 65

Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 65
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 65 ÁGÚST Jóhannsson og Gunnar Magnússon, þjálfarar kvenna- landsliðs Íslands í handknattleik, sem skipað er leikmönnum 19 ára og yngri, hafa valið 16 manna hóp sem tekur þátt í undankeppni Evr- ópumeistaramótsins, en leikirnir í riðli Íslands fara fram hér á landi um páskana. Danmörk, Slóvakía og Úkraína leika í riðli með Ís- landi en spilað verður í íþrótta- húsinu á Seltjarnarnesi 9.–11. þessa mánaðar. Landsliðshópur þeirra Ágústs og Gunnars er skipaður eftirtöldum leikmönnum: markverðir, Helga Vala Jónsdóttir, Fram, Bryndís Jónsdóttir, Haukum, Elísabet Arn- ardóttir, KA. Aðrir leikmenn, Anna María Halldórsdóttir, Gróttu, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Gróttu, Arna Gunnarsdóttir, Stjörnunni, Björk Gunnarsdóttir, Stjörnunni, Eva Margrét Kristinsdóttir, Gróttu, Gerður Rún Einarsdóttir, Gróttu, Ingibjörg Karlsdóttir, Haukum, Íris Ásta Pétursdóttir, Gróttu, Katrín Andrésdóttir, KA, Rakel D. Braga- dóttir, Stjörnunni, Soffía Rut Gísla- dóttir, Víkingi, Sólveig Kjærnested, Stjörnunni, Stella Björk Ósk- arsdóttir, sem leikur með norsku félagsliði. Ísland leikur við Úkraínu 9. apríl, daginn eftir við Slóvakíu og hinn 11. apríl mætast Íslendingar og Danir. Tvær þjóðir komast áfram úr riðlinum. Sextán stúlkur valdar til að leika í undankeppni EM Leikið verður nær linnulaust framá miðjan dag á sunnudag þegar úrslitin liggja fyrir. Allt sterkasta badmintonfólk landsins tekur þátt í mótinu, 91 í karlaflokki og 58 í kvennaflokki, en keppt verður bæði í A og B-flokki. Ásta segir að kepp- endur séu ívið færri en á síðasta ári þrátt fyrir að skráðir iðkendur í badmintoníþróttinni hafa sjaldan verið fleiri en um þessar mundir. Meginástæðan fyrir færri keppend- um nú en í fyrra er að sögn Ástu sú að mikið er um fermingar þessa helgi og þar af leiðandi séu margir fullorðnir uppteknir við það og hafi því ekki tök á að keppa á mótinu. Í einliðaleik kvenna er fastlega búist við því að keppnin um gullið standi á milli Söru Jónsdóttur og Rögnu Ingólfsdóttur, en þær eru fremstu badmintonkonur landsins um þessar mundir og eiga í harðri keppni um að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Aþenu. Ragna varð Íslandsmeistari í einliðaleik í fyrra en Sara hampaði titlinum fyrir tveimur árum. Á alþjóðlegum mótum leika þær stöllur saman í tvíliðaleik en á Ís- landsmótinu gera þær það ekki. Sara leikur með Drífu Harðardóttur og meðherji Rögnu verður Katrín Atladóttir, en þetta eru þeir sam- herjar sem þær Sara og Ragna léku með áður en þær settu stefnuna á ólympíuleikana. Ljóst er að Sara og Drífa geta ekki leikið við Rögnu og Katrínu í úrslitum á sunnudag því eins og mótinu er raða upp má reikna með að þær berjist í átta manna úrslitum við að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Ragna og Katrín unnu tvíliðaleikinn á síðasta ári er þær unnu Söru og Drífu í hörkuleik. Í einliðaleik karla er búist við að fimm menn berjist um sigurlaunin og má vart á milli sjá að sögn Ástu hver er sterkastur um þessar mund- ir. Þetta eru þeir Helgi Jóhannes- son, Magnús Ingi Helgason, Njörð- ur Lúðvíksson, Tryggvi Nielsen og Sveinn Sölvason, en allir koma þeir úr TBR. Sveinn er núverandi Ís- landsmeistari, vann í fyrsta sinn í fyrra eftir yfirburðaleik gegn Tóm- asi Viborg, sem ekki er með að þessu sinni. Vinnur Broddi í 42. sinn? Landsliðþjálfarinn Broddi Krist- jánsson lætur sér nægja að taka þátt í tvíliðaleik að þessu sinni enda hefur hann titil að verja í þeim flokk ásamt félaga sínum Helga Jóhann- essyni. Þeir lögðu Tryggva og Svein í úrslitaleik í fyrra en nú er útilok- aður sá möguleiki að þeir mætist á ný í úrslitum þetta árið því gangi allt að óskum hjá báðum pörum þá mæt- ast þau í undanúrslitum. Broddi er sigursælasti badmintonmaður landsins, hefur orðið 41 sinni Ís- landsmeistari á síðustu 26 árum. Sveinn Sölvason og Drífa Harð- ardóttir eiga síðan titil að verja í tvenndarleik. Stefnir í jafna keppni á Íslandsmeistaramótinu í badminton sem hefst í kvöld Ómögulegt að spá til um úrslit „ÞAÐ stefnir allt í jafnt og þar af leiðandi skemmtilegt mót að þessu sinni. Ástæðan er sú að það er útilokað að fullyrða hverjir standa uppi sem sigurvegarar. Stundum hefur verið hægt að benda á ein- hvern einn sigurvegara en nú er það útilokað því margir koma til greina eins og til dæmis í karlaflokki í einliðaleik þar sem fimm jafn- ir menn virðast eiga nokkuð jafna möguleika,“ segir Ása Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Badmintonsambands Íslands, en flautað verður til leiks á Íslandsmeistaramótinu í badminton klukkan sjö í kvöld í TBR-húsinu. Morgunblaðið/ALNA photo Bræðurnir Bjarni, Jóhannes Karl og Þórður Guðjónssynir voru í byrjunarliði Íslands gegn Albaníu í Tirana í fyrrakvöld en slíkt hefur ekki gerst frá árinu 1963 er Bjarni, Hörður og Gunnar Felixsynir léku gegn áhugamannalandsliði Englands. Þórður lék jafnframt 50. landsleik sinn og var fyrirliði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.