Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 66

Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 66
ÍÞRÓTTIR 66 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ BJARNI Þór Viðarsson, drengjalands- liðsmaður í knattspyrnu úr FH, er á för- um til reynslu hjá tveimur þekktum knattspyrnufélögum, Everton í Eng- landi og Anderlecht í Belgíu. Hann fer til Anderlecht á sunnudaginn og dvelur þar fram á miðvikudag og heldur þá yfir til Englands þar sem hann verður í eina viku. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðs- manns, sáu fulltrúar frá Everton og Anderlecht til Bjarna með drengjalands- liðinu í Englandi í síðustu viku. Hann lék alla þrjá leiki þess þar og hefur samtals spilað 9 landsleiki í þeim aldursflokki. Bjarni, sem er bróðir Arnars Þórs hjá Lokeren og Davíðs Þórs hjá Lilleström, er 16 ára og er áfram gjaldgengur með drengjalandsliðinu á komandi tímabili. Bjarni Þór til EvertonÍSMEISTARARurðu í vikunni Ís- landsmeistarar í krullu, eða curl- ing, eftir bráða- bana við Fálka, en þessi lið urðu efst og jöfn eftir deildarkeppnina. Ísmeistarar lögðu Fálka 14:6 í bráðabananum. Lið meistaranna skipa – frá vinstri Hallgrímur Ing- ólfsson, Sveinn Björnsson, Aud- rey Freyja Clarke, Sigurgeir Haraldsson og Björn Sigmunds- son. Ísmeistarar höfðu betur Ljósmynd/Ágúst Ágústsson SKÍÐI Skíðamót Íslands Keppni í svigi karla og kvenna fer fram á Siglufirði. Keppni í 10 km göngu í flokki karla 17–19 ára og 20 ára og eldri, og 5 km ganga kvenna 17 ára og eldri fer fram á Ísafirði í dag kl. 13. HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, RE/MAX-deildin, 8-liða úrslit, fyrri leikur: Vestmannaeyjar: ÍBV – KA/Þór..........19.15 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni Efri deild karla, A-riðill: Fífan: Haukar – Þór...................................21 Neðri deild karla, B-riðill: Reykjaneshöllin: Selfoss – Reynir S. .......20 Efri deild kvenna: Egilshöll KR – Valur.............................18.30 Neðri deild kvenna: Boginn: Þór/KA/KS – Þróttur R..........21.15 BADMINTON Íslandsmeistaramótið hefst í TBR-húsinu í kvöld kl. 19. KÖRFUKNATTLEIKUR Snæfell - Keflavík 80:76 Stykkishólmur, úrvalsdeild karla, Inter- sportdeildin, úrslit, fyrsti leikur, fimmtu- dagur 1. apríl 2004. Gangur leiksins: 3:9., 8:13, 10:17, 14:20, 18:23, 24:23, 31:25, 31:32, 37:34, 39:36, 41:38, 43:42, 47:42, 51:42, 56:42, 58:47, 61:56, 64:58, 67:58, 67:62, 79:74, 80:76. Stig Snæfells: Corey Dickerson 33, Edw- ard Dotson 12, Hlynur Bæringsson 12, Sigurður Þorvaldsson 9, Dondrell Wit- hmore 9, Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Andr- és Heiðarsson 2. Fráköst: 26 í vörn - 18 í sókn. Stig Keflavíkur: Derrick Allen 29, Nick Bradford 20, Gunnar Einarsson 13, Sverr- ir Þór Sverrisson 5, Arnar F. Jónsson 5, Jón N. Hafsteinsson 2, Magnús Gunnars- son 2. Fráköst: 22 í vörn - 12 í sókn. Villur: Snæfell 16 - Keflavík 20. Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson, komust vel frá erfiðum leik. Áhorfendur: Um 690.  Næsti leikur liðanna fer fram á laug- ardag í Keflavík. NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Portland - Boston................................105:98 Indiana - Milwaukee...........................111:78 Chicago - Orlando ...............................109:91 Golden State - Toronto.........................85:78 New Jersey - Washington..................103:99  Eftir framlengdan leik. Miami - Atlanta ...................................100:97 Detroit - LA Clippers.........................108:99 Minnesota - Seattle...............................90:83 San Antonio - Sacramento .................107:89 Utah - New Orleans..............................89:76 HANDKNATTLEIKUR Haukar - FH 19:28 Ásvellir, 1. deild kvenna, RE/MAX-deildin, 8 liða úrslit, fyrsti leikur, fimmtudagur 1. apríl 2004. Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 4:3, 5:5, 6:7, 6:11, 7:13, 8:14, 11:14, 12:17, 14:19, 14:25, 16:27, 19:28. Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 6/3, Anna G. Halldórsdóttir 5, Tinna Halldórs- dóttir 4, Inga Karlsdóttir 1, Erna Þráins- dóttir 1, Áslaug Þorgeirsdóttir 1, Martha Hermannsdóttir 1. Varin skot: Berglind Hafliðadóttir 9 (þar af fóru 5 aftur til mótherja), Bryndís Jóns- dóttir 7/1 (þar af fóru 4 aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mín. Mörk FH: Dröfn Sæmundsdóttir 5, Guð- rún Hólmgeirsdóttir 5, Gunnur Sveins- dóttir 5, Björk Ægisdóttir 5/1, Sigrún Gils- dóttir 4, Þórdís Brynjólfsdóttir 3/1, Jóna K. Heimisdóttir 1. Varin skot: Jolanta Slapikiene 22 (þar af fóru 11 aftur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur F. Sverrisson. Áhorfendur: 93. Valur - Víkingur 29:22 Hlíðarendi: Gangur leiksins: 0:1, 3:2, 5:3, 7:5, 8:8, 10:10, 12:12, 14:12, 15:15, 18:15, 19:18, 26:18, 28:20, 29:22. Mörk Vals: Díana Guðjónsdóttir 7/4, Haf- rún Kristjánsdóttir 7, Kolbrún Franklín 5, Ágústa Edda Björnsdóttir 4, Árný Ísberg 2, Anna María Guðmundsdóttir 1, Arna Grímsdóttir 1, Elfa Björk Hreggviðsdóttir 1, Sigurlaug Rúnarsdóttir 1. Varin skot: Berglind Hansdóttir 18/1 (Þaraf fóru tvö skot aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Víkings: Natasa Damljanovic 12/5, Margrét Egilsdóttir 5, Ásta Agnarsdóttir 1, Eygló Jónsdóttir 1, Linda Hilmarsdóttir 1, Guðmunda Kristjánsdóttir 1, Valgerður Árnadóttir 1. Varin skot: Natasa Lovic 12 (Þaraf fóru tvö skot aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mín. Dómarar: Helgi Hallsson og Hilmar Guð- laugsson, voru slakir. Áhorfendur: Um 150. Stjarnan - Grótta/KR 23:18 Ásgarður: Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 4:4, 6:6, 7:9, 11:11 11:13, 11:14, 18:14, 20:16, 23:17, 23:18. Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragn- arsdóttir 7/3, Hekla Daðadóttir 4, Kristín Clausen 3, Ásdís Sigurðardóttir 3, Hind Hannesdóttir 3, Sólveig Lára Kærnested 2, Elísabet Gunnarsdóttir 1. Utan vallar: 4 mínútur. Varin skot: Jelena Jovanvic 19/2 (þar af 3 aftur til mótherja). Mörk Gróttu/KR: Aiga Stefanie 4, Eva B. Hlöðversdóttir 4/1, Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir 3, Eva M. Kristinsdóttir 3/1, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Arndís M. Er- lingsdóttir 1, Ragna Karen Sigurðardóttir 1. Varin skot: Hildur Gísladóttir 16 (þar af 4 sem fóru aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Svavar Pétursson og Arnar Sig- urjónsson, gerðu sín mistök en sluppu þó prýðilega frá nokkuð erfiðum leik. Áhorfendur: Um 227. Spánn sBikarkeppnin, 8 liða úrslit: Portland San Antonio - BM Altea.......27:25 BM Cantabria - S.D. Teucro ENCE..27:30 Caja España Ademar - Barcelona ......26:30 Ciudad Real - BM. Valladolid..............32:29  Ciudad mætir Portland í undanúrslitum á morgun. KNATTSPYRNA Undankeppni HM Suður-Ameríka Uruguay - Venesúela................................0:3 Paraguay - Brasilía...................................0:0 Perú - Kólumbía........................................0:2 Staðan: Argentína 5 3 2 0 10:3 11 Paraguay 5 3 1 1 8:6 10 Brasilía 5 2 3 0 7:5 9 Venesúela 5 3 0 2 6:6 9 Chile 5 2 1 2 7:6 7 Uruguay 5 2 1 2 11:11 7 Perú 5 1 2 2 6:6 5 Ekvador 5 1 1 3 3:4 4 Kólumbía 5 1 1 3 4:8 4 Bólivía 5 1 0 4 5:12 3  Fjórar efstu þjóðirnar komast á HM í Þýskalandi 2006, fimmta lið fer í aukaleiki um HM-sæti við þjóð frá Eyjaálfu. Deildabikarkeppni KSÍ Neðri deild karla, C-riðill: Afturelding - HK ......................................0:1 Gísli Freyr Ólafsson 76. Staðan: HK 2 2 0 0 5:2 6 Víkingur Ó 2 1 1 0 4:2 4 Skallagr. 3 1 1 1 4:4 4 Afturelding 2 1 0 1 1:1 3 Huginn 0 0 0 0 0:0 0 KS 3 0 0 3 3:8 0 SKÍÐI Skíðamót Íslands Göngukeppni á Ísafirði: 15 km ganga karla 20 ára og eldri, hefð- bundin aðferð: Ólafur Th. Árnason, Ísafirði ................47.02 Jakob Einar Jakobsson, Ísaf. ..............51.36 Ólafur H. Björnsson, Akureyri ...........51.47 Gísli Einar Árnason, Ísafirði ...............53.25 Einar Ágúst Yngvason, Ísafirði ..........53.30  Norðmaðurinn Thomas Alsgaard keppti sem gestur og kom hann fyrstur í mark á 45.07 mín. 10 km ganga karla 17–19 ára, hefðbundin aðferð: Markús Þór Björnsson, Ísafirði ..........31.13 Andri Steindórsson, Akureyri .............32.11 Arnar Björgvinsson, Ísafirði ...............33.36 5 km ganga kvenna 17 ára og eldri, hefð- bundin aðferð: Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsf. ..........16.20 Auður Yngvadóttir, Ísafirði .................23.35 Hulda María Harðardóttir, Ólafsf. .....23.29 Guðbjörg Helga Andrésd., Ólafsf. ......24.03  Elsa og Markhús fengu sinn annan gull- pening, þar sem þau urðu sigurvegarar í sprettgöngunni á miðvikudag.  Ísfirðingar hafa fengið 3 gull, 4 silfur og 3 brons í göngukeppninni.  Ólafsfirðingar hafa fengið tvö gull og eitt brons.  Akureyringar hafa fengið eitt silfur og eitt brons. Stigamót í svigi Alþjóðlegt mót, Icelandair Cup, FIS-mót, á Siglufirði: Konur: Helga B. Árnadóttir...........................1.38,88 Hrefna Dagbjartsdóttir.....................1.39,54 Leah McLaughry, Bandar. ...............1.40.14 Aldís Axelsdóttir ................................1.41,09 Agla G. Björnsdóttir ..........................1.42,45 Karlar: Andreas Nilsen, Noregi ....................1.39,13 Björgvin Björgvinsson ......................1.39,39 Kjetil Jansrud, Noregi ......................1.39,75 Christian Kaas, Noregi .....................1.41.39 Kim Yngland, Noregi ........................1.41,85 Sindri M. Pálsson...............................1.43,08  Það verður einnig keppt í dag í svigi, sem er liður á Skíðamóti Íslands og um leið alþjóðlegt stigamót. Í DAG ÚRSLIT Jafnræði var með liðunum lengstaf fyrri hálfleiks og jafnt á öllum tölum. Gestirnir úr Gróttu/KR höfðu þó jafnan frumkvæð- ið og náðu tveggja marka forskoti þeg- ar liðin fóru inn til leikhlés. Bæði lið fóru varlega í byrjun, léku afturliggj- andi 6/0 vörn og voru ekki að flýta sér um of í sóknarleiknum. Í sókninni var fjölbreytninni þó ekki fyrir að fara og markverðir liðanna, Jelena Jovanovic í Stjörnunni og Hildur Gísladóttir í Gróttu/KR þurftu ekki að hafa sérlega mikið fyrir því að verja þessi 10 skot sem hvor þeirra um sig varði í fyrri hálfleiknum. Það var ekki útlit fyrir annað í byrjun seinni hálfleiks en að Grótta/ KR myndi bæta enn í forskotið, þær skoruðu úr fyrstu sókn sinni og náðu þriggja marka forskoti í fyrsta og eina skiptið í leiknum. Eftir það varð algjört hrun í leik gestanna. Þegar síðari hálfleikurinn var ríf- lega hálfnaður hafði Stjarnan náð fjögurra marka forskoti, 18:14. Ótrú- leg byrjun hjá liði Gróttu/KR og þjálfarar liðsins, Alfreð Örn Finns- son og Ágúst Jóhannsson, vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Þeir tóku þó loks leikhlé en Garða- bæjarliðið herti sig enn og höfðu sig- ur, 23:18. Þessi umskipti í leik liðanna urðu fyrst og fremst vegna miklu öflugri varnar Stjörnunnar en í fyrri hálf- leiknum. Með þessari breytingu fóru líka hraðaupphlaup Stjörnunnar að ganga og skoruðu þær 5 af 12 mörk- um sínum í hálfleiknum úr hraðaupp- hlaupum. Leikur liðsins í heildina tekið var þó ekki til að hrópa húrra fyrir og með sama leik og þær sýndu í gærkvöldi munu þær án nokkurs efa eiga í miklum erfiðleikum gegn Gróttu/KR í næsta leik liðanna á Sel- tjarnarnesi á laugardag. Jóna Mar- grét Ragnarsdóttir og Jelena Jov- anovic markvörður léku best í liði Stjörnunnar. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hildur Gísladóttir markvörður stóðu sig þokkalega í liði Gróttu/KR. Aðrir leikmenn geta gert miklu betur og munu sjálfsagt sýna það á laugardag í öðrum leik þessara liða í úrslita- keppni RE/MAX-deildar kvenna. Hrun hjá Gróttu/KR STJARNAN sigraði Gróttu/KR í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslit- um í handknattleik kvenna, en liðin mættust í Ásgarði í Garðabæ í gærkvöldi. Algjört hrun varð í liði Gróttu/KR í síðari hálfleik þar sem liðið skoraði aðeins 5 mörk gegn 12 mörkum Stjörnunnar sem fagn- aði sigri 23:18. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Það var gríðarleg stemningklukkustund áður en leikurinn hófst og voru þá þegar rúmlega 400 manns mættir á svæðið en á endan- um voru 700 áhorf- endur á leiknum og skemmtu sér vel. Leikurinn bauð upp á mörg góð tilþrif, þó að varnarleikurinn hafi verið í fyrirrúmi hjá báðum liðum. Snæfelli tókst mjög vel með sinni frægu berserkjavörn á köflum gegn liði gestanna, enda er það ekki á hverjum degi sem Keflavík skorar aðeins þrjár þriggja stiga körfur í leik og alls 76 stig. Það var ekki að sjá á liði gestanna að hvíld þeirra hefði ekki varað nema í 48 klukkustundir frá því að hafa lagt Grindavík í undanúrslitum, þeir hófu leikinn af miklum krafti og höfðu frumkvæðið. Svæðisvörn Keflvíkinga kom heimamönnum á óvart og héldu þeir sama varnarfyr- irkomulaginu út fyrsta leikhluta. Heimamönnum gekk illa að finna leiðir að körfunni í upphafi. Í öðrum leikhluta léku Keflvíkingar maður á mann vörn og virkaði sú vörn ekki eins vel þar sem Hólmarar skoruðu 13 stig gegn 2. Á þessum kafla var vörn Snæfells mjög góð og gestirnir komust lítt áleiðis. Það gat enn allt gerst í síðari hálf- leik þrátt fyrir að Snæfell hefði for- skot, 41:38. Fannar Ólafsson fékk sína 4. villu í upphafi síðari hálfleiks og Jón Norðdal sína þriðju. Keflavík átti erfitt uppdráttar í kjölfarið und- ir körfunni og heimamenn skoruðu 13 stig í röð og náðu 14 stiga for- skoti. Það sama var uppi á teningn- um hjá heimamönnum þar sem Ed- mund Dotson fékk 4 villuna í þriðja fjórðungi og gestirnir náðu að nýta sér það er Dotson fór af velli og minnkuðu muninn í 61:56 fyrir síð- asta leikhlutann. Í fjórða leikhluta höfðu Snæfell- ingar ávallt yfirhöndina og Keflvík- ingar voru í því hlutverki að saxa á forskotið en töpuðu rimmunni í þeim eltingarleik. Ekki var að sjá að breiddin í liði Keflavíkur væri meiri en hjá heima- mönnum eins og svo margir hafa bent á. Af þeim sökum er ómögulegt að spá um framhaldið – sem verður þó væntanlega spennandi og áhuga- vert. Berserkurinn Hlynur Bæringsson átti enn einn stórleikinn í liði Snæ- fells, skoraði 12 stig og tók 20 frá- köst. Hann lék vörnina vel gegn Fannari Ólafssyni sem skoraði ekki stig og tók aðeins fjögur fráköst. Corey Dickerson átti einnig fínan leik, skoraði 33 stig og var fínn í vörninni. Edward Dotson er liðinu gríðarlega mikilvægur í vörninni og hann stöðvaði ófáar sóknir gestana með því einu að vera til staðar. Að auki skemmti hann áhorfendum með glæsilegum troðslum og varði skot með tilþrifum. Aðrir leikmenn liðs- ins komust einnig vel frá leiknum en alls notaði Bárður Eyþórsson þjálf- ari liðsins átta leikmenn í leiknum. Derrick Allen var langatkvæða- mestur í liði Keflavíkur og vann jafnt og þétt í vörn sem sókn frá upphafi til enda. Nick Bradford var nokkuð sprækur í fyrri hálfleik en lét lítið að sér kveða í síðari hálfleik. Gunnar Einarsson vaknaði til lífsins í síðari hálfleik og Arnar Freyr Jónsson og Sverrir Sverrisson léku ágætlega þrátt fyrir að skora lítið. Magnús Gunnarsson náði ekki að ógna fyrir utan með landsþekktum langskotum sínum og Fannar og Jón Nordal Hafsteinsson náðu sér ekki á strik gegn sterkri vörn heima- manna. Meistararnir lentu á vegg Deildarmeistaralið Snæfells sýndi hvað í því býr í gær er liðið tók á móti Íslandsmeistaraliði Keflavíkur í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Leikurinn var gríðarlega spenn- andi og höfðu heimamenn betur, 80:76, en staðan í hálfleik var 41:38. Þetta er sjötti leikurinn í röð sem Snæfell vinnur í úr- slitakeppninni og getur liðið jafnað met Keflvíkinga á þessu sviði er liðin eigast við að nýju á laugardag í Keflavík. Ríkharður Hrafnkelsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.