Vísir - 29.06.1981, Page 3
Mánudagur 29. júní 1981
Húsvíkíngar auka straum
ferðamanna til sín
„Hðfum ýmis-
legt í poka-
horninu”
- segir Bjarni flðalgeirsson. bæjarsijóri
á Húsavlk, sem telur ðfært að Akureyri
skuli njóta farpega sem ætla til Mývatns
Bæjarstjórn Húsavikur hefur
ákveöiö að taka þátt i kostnaði við
auglýsingaherferö, sem Flug-
leiðir standa að til kynningar á
nokkrum ferðamannastöðum á
landinu, þar sem athyglinni
veröur aðaliega beint að Húsavik.
Var óskað eftir þvi að Húsvík-
ingar greiddu 30.000 af um 150.000
kr. heildarkostnaði, en bæjarráð
samþykkti að leggja fram 10.000
kr.
„Það er mikiil áhugi fyrir þvi
hér, að auka hingað feröamanna-
strauminn með einhverjum
hætti”, sagði Bjarni Aöalgeirs-
son, bæjarstjóri á Húsavik, i sam-
tali viö Visi. „Viö erum hér með
„klassa” hótel, sem hefur verið
okkur þungt fjárhagslega.
Reksturinn gerir ekki betur en
standa undir sér, þannig að eng-
inn afgangur er til að standa
undir fjármagnskostnaði. Það
hefur þvi lent á eigendunum að
standa skil á vöxtum og afborg-
unum af lánum hótelsins”.
Hlutafélag stendur á bak viö
reksturinn á Hótel Húsavik.
Stærstu eigendur eru Húsavikur-
kaupstaður, Kaupfélag Þingey-
inga og Flugleiðir. Nýtingin á
hótelinu á ári hefur ekki verið
nema um 30% þannig að rekstur-
inn hefur verið erfiður.
„Við erum með ýmislegt i
pokahorninu til að laða ferða-
menn að. Húsavik er mjög vel
staðsett til ferðamannaþjónustu i
Þingeyjarsýslum. Mér þætti til að
mynda eðlilegra, aö koma hingað
með Mývatnssveitarfarþega i
stað þess aö lenda með þá á Akur-
eyri og skondrast með þá þaðan
rútum fram og til baka 4 tima
akstur. Héðan liggur hins vegar
mjög vel við að fara dagsferðir,
til að mynda i Mývatnssveit, um
Jökulsárgljúfur og i Asbyrgi”,
sagði Bjarni.
Ein af þeim nýjungum sem
Húsvikingar hafa bryddað upp á
fyrir ferðamenn er sjóstanga-
veiði. Er fariö á trillum og rennt
fyrir ýsu, sem er gráðug á þess-
um slóðum, að sögn Bjarna.
G.S./Akureyri.
VÍSIR
Flnnskir Fálkariddarar
Tveir Finnar voru sæmdir riddarakrossi Fálkaorðunnar þann 17. júní s.l., þeir Lars Strömsten, ræöis-
maður i Hangö, og Holger Strandberg, vararæöismaöur i Vaasa. 1 umboði forseta islands afhenti Kurt
Juuranto aðalræðismaður f Helsinki orðurnar og er myndin frá þeirri athöfn. Strömsten er lengst til
hægri, siðan Strandberg en Juuranto lengst til vinstri. Með þeim þremenningum eru konur þeirra.
SÁA BÝÐUR UPP A KAFFI
Um þessar mundir er S.A.A. að
flytja fræöslu- og leiðbeiningar-
stöð sina, sem starfrækt hefur
verið i Lágmúla 9, ásamt skrif-
stofu S.A.A. i eigið húsnæði í Siöu-
múla 3—5. Þar starfar einnig i
samvinnu við S.A.A. Afengis-
varnardeild ReykjavUkurborgar.
A þessum timamótum býður
S.A.A. til kaffidrykkju að Siöu-
múla 3—5, mánudaginn 29. júni
n.k. kl. 17.00 til 20.00.
Hestamenn á Suð-
urlandi halda
fjórðungsmðt
Við gerum tilboð -
og þú græðir!
A fjóðra hundrað hross koma
fram á sýningum og i keppni á
fjórðungsmóti sunnlenskra hesta-
manna, sem verður haldið á
Rangárbökkum við Hellu 2.—5.
júli.
Fimmtán hestamannafélög á
svæðinu frá Hvalfjaröarbotni að
Lómagnúp standa að mótinu.
Keppnisgreinar eru gæðinga-
keppni, unglingakeppni og tölt-
keppni, þar sem samtals koma
fram um 80 hross, og kappreiðar
með þátttöku liðlega hundrað
hrossa.
I sýningu kynbótahrossa verða
um 80 hross og auk þess gefst
hrossaræktarbúum á svæðinu
færi á að halda sjálfstæða sýn-
ingu. Fimm bú munu notfæra sér
þann möguleika og sýna samtals
um 50 hross.
1 sambandi við mótið hefur
verið komið á fót getraun um
sigurvegara i tveim greinum
kappreiða. Getraunin er gerð i
fjáröflunarskyni og jafnframt
gefur hún þeim getspökustu
möguleika á p>eningavinningi.
Dagskrá mótsins og fyrirkomu-
lag er mótaö til að vera fjöl-
skylduskemmtun, þeir sem vilja
vera i ró og næði eiga að geta orð-
ið þess aönjótandi og fyrir unga
fólkið eru haldnir dansleikir að
Hvolsvelli. Cl,
Byggðasjóður lánar
ekkl fé til
Þingeyrartogarans
Kaupfélag Dýrfiröinga á Þing-
eyri hefur samið við Slippstöðina
h.f. á Akureyri um smiði skuttog-
ara, eins og þekkt er af fyrri frétt-
um. KD eða dótturfyrirtæki þess,
á fyrir einn skuttogara og einn
rúmlega hundrað tonna bát. Afli
þessara skipa hefur nægt til að
skapa heimamönnum stöðuga at-
vinnu og mestan hluta ársins hef-
ur þurft að fá aðkomufólk til að
anna vinnslunni. Jafnan eru
nokkrir útlendingar við fisk-
vinnslu á Þingeyri.
Fiskveiðasjóður samþykkti á
sinum tima aö lána fé til smiði
þessa nýja skips en aftur á móti
hatnaði Byggðasjóður lánsum-
sókn frá KD á stjórnarfundi á
þriðjudaginn var.
Samkvæmt lögum ber stjórn
Byggðasjóðs að taka sjálfstæða
afstöðu til hverrar lánsumsóknar
og ljóst er þvi að stjórnin telur
ekki ástæðu til að styrkja þessa
smiöi meö láni.
Ákvörðun þessi vekur allmikla
athygli, einkum þegar haft er i j
huga að rikisstjórnin samþykkti i i
veturaö ábyrgjast sérstakt lán til
Byggðasjóðs, sem skyldi varið til
styrktar innlendum skipa- i
smiöum.
Við gerðum HUSQVARNA
verksmiðjunum tilboð
í magn a f ísskápum og
sömdum um 2000
fTVÖÞÚSUND)
KR. VERÐLÆKKUN!!!
• Rétt verð 8.721.-
• Tilboðsverð 6.721.- „
Þú hagnast um 2.000.-
Tæknilýsing: 260 lítrar
kæli- og frystiskápur.
Kælihólf með 4 hillum,
2 grænmetisskúffum og
3 hillum í hurð.
Frystihólf er með
3 aðskildum skúffum
og klakahólfi.
Alsjálfvirk
afþíðing í ísskáp.
HRINGDU EÐA KOMDU,
OG LÁTTU TAKA SKÁP
FRÁ FYR/R ÞIG!!!
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Sími 9135200
SV