Vísir - 29.06.1981, Blaðsíða 22

Vísir - 29.06.1981, Blaðsíða 22
22 vtsm Mánudagur 29. júni 1981 Erfdaprinsinn máttí þola tap Norski erf&aprinsinn Hákon Magnús er nú að byrja aö búa sig undir lífið með skólagöngu og öðru sem þvi fylgir að „læra” að verða fuiiorðinn. Eins og aðrir strákar á hans aldri hefur hann gaman af knattspyrnu, eins og meðfylgjandi myndir sýna, sem Hér er erfðaprinsinn kominn á fulla ferð með knöttinn. nýiega birtust i norsku timariti. Hákon Magnús æfir með knatt- spyrnuliðinu Askers og leikur I þeim aldursflokki sem samsvar- ar 6. flokki hér á landi. Myndirnar eru úr leik Askers og Bærum og urðu prinsinn og félagar hans að þola ósigur þar sem Bærum- strákarnir sigruðu með einu marki gegn engu. Haraldur krón- prins, faðir Hákons, var i hópi áhorfenda og hvatti Askers óspart, en allt kom fyrir ekki, þótt Hákon hafi lagt sig allan fram eins og sést á myndunum. Aö sögn þjálfara Askers, Jóhn Dale, nýtur prinsinn engra for- réttinda i liöinu og verður þvi að leggja sig allan fram til að halda sæti sinu þvi að 85 strákar sækja æfingar i þessum aldursflokki og hart barist um hvert sæti. Hákon Magnús var hinn íþróttamannslcgasti að leik loknum þrátt fyrir tapið og hér þakkar hann einum mótherjanum fyrir góðan ieik. Áhuginn leynir sér ekki i svip Hákons Magnússonar i leiknum gegn Bærum. Bubbi á markad í júli Hvcr var maðurinn? í fréttabréfi frá hljómplötuút- gáfunni „Steinar h.f.” er frá þvi greint aö sólóplata Bubba Morth- ens, „Plágan”, sem koma átti út 17. júni s.l. verði ekki gefin út fyrr en þann 17. júli n.k. Pressumót plötunnar reyndust smávægilega gölluð og kom eall- inn ekki i ljós fyrr en á „elleftu stundu” eins og það er orðað. A plötunni „Plágan” eru átta lög eftir Bubba við eigin texta og annarra og er hún mjög ólik fyrstu sólóplötu hans „Isbjarnar- blús”, sem út kom fyrir réttu ári. 1 fréttapistli útgáfunnar er það sérstaklega tekið fram, að mjög hafi verið vandað til allrar vinnu við hljóðritun, umslagagerð og annars er tengist útgáfu plötunn- Þegar skilnaðurinn milli Benny og Annifrid í ABBA var um garð genginn tók Frida sér fri, ein sins liðs, og hélt fyrst til Sviss en siðan til Bahama- eyja. En þótt hún færi leynt með ferðir sínar tókst sænsk- um blaðamönnum að hafa upp a henni og var hún þá i fylgd með óþekktum Ijóshærðum manni um fertugt, — og nú getur sænska þjóðin ekki á heilli sér tekið af forvitni og spurningin brennur á vörum manna: Hver var maður- inn....? i Bubbi Morthens: Nýja sólóplatan „Plágan” kemur út um miðjan júll.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.