Vísir - 29.06.1981, Qupperneq 13
Mánudagur 29. júnf 1981
VISIR
vaxandi úlflulningur á bonningum frá Odda á Akureyrl:
Margföld söluaukning
lll útflutnings í ár
Vélsmiðjan Oddrsendi frá sér i
siðustu viku 149 bobbinga, sem
fara íil Kanada og Noregs. Hefur
Oddi þar með sclt bobbinga og
millibobbinga tii útflutnings fyrir
rúmlega eina milljón króna það
sem af er árinu, en allt árið áður
nam þessi útflutningur 150 þús.
króna.
Mestur hluti af framleiöslunni
hefur farið til Nýfundnalands, en
þar eru þrjú stór fyrirtæki með
togaraútgerð. Tvö þeirra eru við-
skiptavinir Odda. 1 byrjun ársins
kom Noregur siðan einnig inn i
myndina og hafa pantanir þaðan
verið tiðar, að sögn Torfa Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Odda.
Hann upplýsti ennfremur, aö
gjaldeyristekjur af þessum út-
flutningi i ár, þegar búið er að
draga verð á innfluttu hraefni frá,
væru tæplega 650 þúsund kr., sem
færi til Odda og islenskra skipafé-
laga. Þetta þýddi um 93 þúsund
kr. á hvern starfsmann sem vinn-
ur að þessari framleiðslu. Gæti
verðmætasköpun hvers þeirra þvi
farið i a.m.k. 150 þúsund kr. á ár-
inu. Er það vel af sér vikið þegar
litið er til þess, að útflutningurinn
er ekki nema um 35% af heildar-
framleiðslunni, en65% fara á inn-
anlandsmarkað. Þessi útflutning-
ur er vaxandi þáttur i starfsemi
Odda. Sagðist Torfi reikna með
að hann næmi nær 10% af heildar-
veltunni i ár.
Bobbinga framleiðsla er þó
ekki ný af nálinni hjá Odda, en
nýlega hefur framleiðslan flutt i
nýtt húsnæði og framleiðslukeðj-
an var endurbyggð. Samhliða var
framleiðslan kynnt á sýningum
erlendis, auk þess sem farið var i
söluferðir. Árangurinn er nú að
skila sér.
„Framleiðsla okkar hefur likað
vel. Ég get nefnt sem dæmi, að
upphaflega vorum við einungis
með eitt útgerðarfyrirtæki i Kan-
ada i viðskiptum. Annað fyrirtæki
pantaði siðan hjá okkur milli-
bobbinga til reynslu. Niðurstaða
þeirra varð sú, að skipta alger-
lega yfir og setja okkar bobbinga
i öll sin skip. Þó kostuðu þeir
bobbingar, sem þeir voru með
fyrir, ekki nema 17 dollara, en
okkar 59 dollara. En þeir töldu
gæði okkar framleiðslu það mikil,
að það réttlætti verðmismuninn”,
sagði Torfi Guömundsson i lok
samtalsins
GS/Akureyri
Pólýfónkórinn fcr i söngför til
Spánar næsta sumar, en ekki i
sumar eins og ráð hafði veriö fyr-
ir gert. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi, sem kórstjórnin
boðaði til nýlega. Áætlað er að
heimsækja sex borgir i ferðinni,
en um þessar mundir eru 20 kór-
félagar á ferð þar ytra til að und-
irbúa söngförina.
A næsta ári á kórinn 25 ára af-
mæli. Siðustu tvö ár hefur kórinn
verið mikið endurnýjaður og er
unnið að markvissri uppbyggingu
hans með markvissri þjálfun,
þótt litið hafi ræst úr málefnum
hans.hvað opinbera fyrirgreiðslu
snertir, upplýsti Ingólfur Guð-
brandsson söngstjóri. Fræg söng-
kona, Eugenia Ratti, þjálfaöi kiór-
inn i byrjun starfsárs i fyrra og er
væntanleg sömu erinda i október.
Framundan eru mörg stór
verkefni. Mattheusarpassia
Bachs verður flutt á 25 ára af-
mælinu, en kórinn flutti hana áð-
ur 1972. Þá hefur verið leitað til
kórsins um að frumflytja eina
stærstu tónsmið, sem vitað er til
að Islendingur hafi samið, á
Listahátið. Kórstjórnin vildi ekki
Pólýfónkórinn h efur starfað f hart nær 25 ár.
segja nánar frá þvi verki, taldi
það frekar vera verkefni stjórnar
Listahátiðar. Þetta verður i
fyrsta sinn, sem kórinn kemur
fram á Listahátið.
A siðustu tónleikum sungu 140
manns i kórnum, en stærð hans
hefur verið breytilegfrá 120 til 150
söngvarar. Vegna þeirra stóru
verkefna, sem framundan eru
getur kórinn bætt við sig góðum
söngröddum. SV
Póiýiónkórinn 25 ára á næsla árl:
STÚR VERKEFNI FRAMUNDAN
OPID:
Fimmtudag kl. 9-22
Föstudaga kl. 9-19
Lokað lawgardaga
jii
Jón Loftsson hf.
'A A A A A A »■
-JDUEIlJTÍ
JUUU3J j ;
Hringbraut 121. Simar 10600 og 28603.
Og bjóðum ekki aðeins lágt verð/ heldur einnig ótrúlega hagstæða greiðsluskil-
mála- allt niður í 20% útborgun og lánstíma allt að9 mánuðum.
Vegna mjög
hagkvæmra innkaupa bjóðum
við næstu daga nokkrar nýjar gerðir
af gólfteppum á ÓTRÚLEGA hagstæðu verði.
Verð f rá kr. 75 á ferm.
Þú færð
permanentið
hjá okkur
Hárgreiðslustofan
Óðinsgötu 2 — Sími 22138
í sumarhúsið,
tjaldvagninn og
hjólhýsið
Dynur eftir mali
svefnsófar frá kr. 2.000
svefnstólar frá kr. 650
hornsófar frá kr. 5.300
kojur furu frá kr. 2 860 með dvnum
einstaklinqsrúm fura kr. 1.675
sængur kr. 275
koddar kr. 31.20
svefnpokar kr. 339
sængurver kr. 285
meðdýnum
Sendum í póstkröfu
Eigum snið af
Combi Camp
og
Camp turist
Dugguvogi 8-10. Sími 84655.