Vísir - 11.07.1981, Síða 6
6
VISIR
Laugardagur 11.‘ júli 1981
Biskupskjörið:
Ólafur Skúlason
fékk flest atkvædi
— kosið milli þriggja efstu manna aftur
Nú þegar ljóst er að enginn
hefur hlotiö tilskilinn atkvæða-
fjölda i fyrri umferð biskups-
kosninganna til að má lögmætu
kjöri er ekki úr vegi að reifa
litillega hvert framhald kosn-
inganna verður.
Kærufrestur vegna úrslita
kosninganna, sem birtust i
gær, rennur út eftir eina viku.
bá verða sendir út nýir kjör-
seðlar til þeirra 148 aðila, sem
kjörgengi hafa, og þeir munu
kjósa á milli þeirra þriggja
manna, sem flest atkvæði fengu
i fyrri umferð, það er þeirra
Ólafs Skúlasonar, Péturs Sigur-
geirssonar og Arngrims Jóns-
sonar. Skilafrestur fyrir siðari
umferðina mun renna út um
miðjan ágústmánuð eða fjórum
vikum siðar. Kjörseðlarnir
verða þá að hafa boristdóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, sem
hefur veg og vanda af biskups-
kj«-i. Talning atkvæða úr seinni
umferðinni fer væntanlega fram
i kringum 20. ágúst og þá ætti að
verða ljóst hver hinna þriggja
„kandidata” verður næsti
biskup Islands.
Formleg biskupsskipti eru
siðan fyrirhuguð 1. október en
um það bil hálfum mánuði fyrr
verður hinn nýi biskup vigður
eða hann settur inn i embættið
af fyrrennara sinum, hr. Sigur-
birni Einarssyni,. Þann dag
verða mikil hátiðahöld, sem
hefjast munu með hátiðar-
messu i Dómkirkjunni. Flestir
prestar landsins verða þar við-
staddir, svo og erlendir kirkju-
höfðingjar.
■
Pétur Sigurgeirsson
,,Bjóst viö aö
fá fleiri atkvæói”
— segir Pétur Sigurgeirsson
,,Ég bjóst reyndar við að fá
fleiri atkvæði, en tölurnar tala
og maður tekur þessari niður-
stöðu og sættir sig við hana.
Annars langar mig að þakka
öllum sem hafa stutt mig. Sá
Hver veröur næsti biskup
Islands? Við þvi mun ekki fást
svar fyrr en i ágústlok, er önnur
umferð biskupskjörsins hefur
fariðfram. Samkvæmt úrslitum
talningarinnar i gær og eins og
lög mæla fyrir um verða þeir
þrir er flest atkvæöi fengu i
kjöri þá þeir sérá Ólafur Skúla-
son, séra Pétur Sigurgeirsson
og séra Arngrimur Jónsson, þar
sem enginn fékk hreinan meiri-
hluta nú.
Þátttaka i kósningunum var
rúm 90 prósent, af 148 á kjör-
skrá greiddu 142 atkvæði, en
tveir skiluðu auðu. Atkvæði féllu
þannig að séra Ólafur Skúlason
dómprófastur i Bústaðasókn
hlaut 62 atkvæði, vantaði aðeins
10 til aö fá hreinan meirihluta,
séra Pétur Sigurgeirsson
vigslubiskup á Akureyri 36 at-
kvæði, séra Arngrimur Jónsson
prestur i Háteigskirkju 23
átkvæði, Heimir Steinsson
rektor i Skálholtsskóla 10 at-
velvilji, er ég hef mætt alls
staðar hefur verið okkur hjón-
unum mikils virði,” sagði séra
Pétur Sigurgeirsson i samtali
við Visi.
— Nú verður kosið aftur eftir
kvæði, Jónas Gislason dósent 6
atkvæði og Bernharður
Guðmundsson, fréttafulltrúi,
séra Halldór Gröndal i
Grensássókn og Þórir Kr.
Þórðarson prófessor eitt at-
kvæði hver.
Það er þvi ljóst, hvaða þrir
koma til greina, en getur ein-
hver þeirra þriggja, sem nú
verða i kjöri dregið sig til baka
úr þvi sem komið er?
Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri i dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu, sagði og vitnaöi
þar i lög um kjör biskups að ef
enginn fengi hreinan meirihluta
i fyrstu umferð, bæri að setja þá
þrjá, er efstir yrðu, á kjörseðil
annarrar umferðar. Þeir gætu
ekki fengið sig út af kjörseðl-
inum, en auðvitað, væri
hverjum og einum frjálst að
lýsa þvi yfir, að hann óskaði
ekki eftir aö menn merktu við
hann.
—KÞ
um það bil fimm vikur, ætlar þú
að eyða þeim tima i einhvers
konar kosningabaráttu?
,,Nei, mér finnst það ekki rétt
að heyja ko'sningabaráttu i
þessu skyni. Það er min skoðun,
að hver og einn eigi að gera það
upp við sig persónulega hvern
hann vilji sem biskup eftir þvi
sem samviskan býður og þeim
dómi á maður að lúta. A þessum
vettvangi finnst mér ekki
sæmandi að vera að bitast um
embætti. Við höfum kynnt
okkur, eins og við getum, og það
finnst mér nóg."
— Hvernig hefur dagurinn
liðið hjá þér?
,,Ég hef nú verið að sinna
minum embættisskyldum, var
að jarðsetja góðan vin.”
— Hvaöa álit hefur þú á kosn-
ingafyrirkomulaginu?
,,Ég er nokkuð ánægður með
það. Mér finnst rétt stefna að
leikmenn fái að taka þátt i
biskupskjöri, eins og tiðkast
viöa annars staðar samt held ég
að réttast sé að fara ekki frekar
út i þátttöku þeirra, heldur en
þessi lög segja fyrir um. Annars
verð ég að segja, að þessar
kosningar taka nokkuð langan
tima og biðin hefur verið og
verður býsna erfið. Þvi væri
æskilegra, að hún væri
skemmri.”
—KÞ
Texti: Kristín
Þorsteinsdóttir
Hvaö ger-
ist næst?
Ólafur
,,Mjög ánægður
og þakklátur”
— segir Olaf ur Skúlason
„Maður hlýtur að vera mjög
þakklátur. Ég er þarna einn
með fleiri atkvæði en þeir tveir
sem næstir koma til samans. Ég
hlýt þvi að lýsa yfir þvi, að ég
kann mjög vel að meta það
traust, sem svona stór hluti
prestastéttarinnar sýnir mér,
annað væri hreint vanþakk-
læti,” sagði séra Ólafur Skúla-
son, er blaðamaður Visis náði
tali af honum á sömu minútunni
og honum voru tilkynnt úrslitin.
— Attir þú von á þessari
niðurstöðu?
„Já, þetta er mjög nærri þvi,
sem ég hafði reiknað með.”
— Þú hefur þá ekki átt von á
að fá hreinan meirihluta?
„Ja, maður veit aldrei, þetta
er leynileg kosning. Menn hafa
talað vinsamlega við mig, en ég
hef aldrei spurt neinn, ætlarðu
að kjósa eða hvern ætlarðu að
kjósa.”
— Það hefur þá ekkert komið
þér á óvart?
„Jú, ég get ekki neitað þvi, að
það kom mér á óvart, að ekki
skyldu kjósa nema 142. Ég átti
von á meiri þátttöku.
— Hvernig hefur þessi dagur
liðið hjá þér?
„Þessi dagur hefur liðið, eins
og hver annar, ég vaknaði seint,
fór i sund eins og ég er vanur,
fór upp i kirkju og var þar til
hádegis. Siðan hef ég verið hér
heima með fjölskyldunni og að
visu beðið úrslitanna.”
— Hvað tekur við hjá þér
núna.
„Nú liða fimm vikur þar til
kosið verður i siðari umferð og
ég ætla að fara að áforma mitt
sumarfri.”
— Ætlar þú eitthvað að nota
timann til að kynna þér hug
annarra presta?
„Ég á von á þvi, að eitthvað
verði talað saman, en ég ætla
ekki að vera með neina
kosningaherferð, mér dettur
ekki i hug að fara að ferðast um
landið eða neitt slikt með það i
huga. Menn hafa rætt þetta i
fjórtán mánuði, svo þeir hljóta
að hafa gert þetta upp við sig.
Það var vitað i upphafi, að kosið
yrði milli okkar þriggja, svo ég
held þetta liggi alveg ljóst
fyrir.”
— Hvað finnst þér um
kosningafyrirkomulagið?
„Þetta var samþykkt sem lög
frá Alþingi i fyrra og þeim
verður ekki breytt, hins vegar
verðég að segja, að ég er ekkert
hrifinn af þessum nýju lögum.”
kþ
,,Atti von á aö at-
kvæði féllu svona”
segir Arngrimur Jónsson
„Ég er mjög þakklátur fyrir
þá vinsemd og traust, sem mér
er sýnt af þeim, er veitt hafa
mér sitt atkvæði,” sagði séra
Arngrimur Jónsson, i samtali
við Visi, „annars átti ég von á
að atkvæði féllu eitthvað i þessa
veru.”
— Hvað tekur við hjá þér
núna?
„Það get ég ekki sagt.”
— En þú munt búa þig undir
næstu lotu?
„Ég get ekki svarað þvi, en
eftir þvi sem kosningalögin
segja til um, þá er kosið milli
þessara þriggja efstu, fyrst eng-
inn fékk hreinan meirihluta.”
— Hvernig hefur dagurinn
liðið hjá þér?
„Agætlega, bara i mestu
rósemd.”
— Hvað finnst þér um kosn-
ingafyrirkomulagið?
„Ég hef ekkert við það að at-
huga.”
— Ert þú ánægöur með þessa
niðurstöðu?
„Já, já, ég læt mér hana
ágætlega lika,” sagði séra Arn-
grimur Jónsson.
KÞ
Arngrimur Jónsson