Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Dub
lin
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótel
í nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði,
flugvallarskattar og ísl. fararstjórn.
37.700 kr.
Netver› á mann frá
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
FJÖLDATAKMARKANIR
Háskólinn á Akureyri hefur sam-
þykkt reglur um takmörkun á fjölda
nýnema við skólann og er þetta í
fyrsta sinn sem slíkar reglur eru
settar fyrir allar deildir. Samkvæmt
reglunum verða 569 nýnemar innrit-
aðir í haust en þeir voru ríflega 760
talsins á sl. hausti.
Blair boðar þjóðaratkvæði
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær að haldin
yrði þjóðaratkvæðagreiðsla í landinu
um stjórnarskrársáttmála Evrópu-
sambandsins, sem stefnt er að því að
verði frágenginn í sumar. Um er að
ræða kúvendingu á afstöðu brezka
Verkamannaflokksins í þessum efn-
um og þykir Blair tefla djarft með
þessari ákvörðun.
Slapp naumlega
Ökumaður vöruflutningabíls slapp
naumlega þegar bíllinn fór út af og
niður háa skriðu á Klettshálsi í fyrri-
nótt. Ökumaðurinn, Vilhjálmur
Árnason, segir þetta hafa verið líkt
og að sér hafi verið kippt út úr bíln-
um rétt áður en hann sá á eftir hon-
um niður skriðuna. Bíllinn er ónýtur
eftir velturnar.
Norðlingaalda tilbúin 2009?
Skrifað var undir samninga í gær
milli flutningssviðs Landsvirkjunar
annars vegar og Orkuveitu Reykja-
víkur og Hitaveitu Suðurnesja hins
vegar um flutning raforku til stækk-
unar Norðuráls á Grundartanga.
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, segir að þegar til frekari
stækkunar álversins komi eftir 5–6
ár sé vonast til þess að Norð-
lingaölduveita verði þá komin í höfn.
Hryðjuverki afstýrt?
Brezka lögreglan yfirheyrði í gær
10 manns, sem handteknir voru í
fyrradag í Mið- og Norður-Eng-
landi. Hinir handteknu eru grunaðir
um að hafa lagt á ráðin um hryðju-
verk og síðdegisblaðið Sun fullyrti
að þeir hefðu ætlað að fyrirkoma
þúsundum manna í sjálfsmorðs-
sprengjuárás á leik Manchester
United og Liverpool á laugardag.
Talsmenn lögreglunnar staðfestu
ekki þessa frásögn.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/13 Minningar 32/37
Úr verinu 13 Bréf 40
Erlent 14/16 Myndasögur 40
Minn staður 17 Kirkjustarf 42/43
Höfuðborgin 18 Dagbók 44/45
Akureyri 19 Staksteinar 44
Suðurnes 20 Brids 45
Landið 21 Íþróttir 46/47
Daglegt líf 22/23 Leikhús 48
Listir 24/25 Fólk 48/53
Umræðan 26/27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Þjónusta 31 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvenær
skýrsla starfshóps menntamálaráðherra um
eignarhald á fjölmiðlum verður gerð opinber,
en hún er til meðferðar hjá ríkisstjórninni. Þor-
gerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
kynnti skýrsluna formlega á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun. Hún sagði eftir fundinn að sam-
ráðherrar sínir myndu taka sér tíma fram að
næsta ríkisstjórnarfundi, sem væntanlega verð-
ur á föstudag, til að fara yfir skýrsluna. „Þetta
er stórt og mikið mál sem skiptir allt sam-
félagið mjög miklu máli. Það er því eðlilegt að
mínir samráðherrar fái tækifæri til að lesa yfir
skýrsluna. Málið er því enn til meðferðar hjá
ríkisstjórninni og því ekki tímabært að fjalla
um hana á opinberum vettvangi,“ sagði ráð-
herra og bætti því við að skýrslan væri mjög
vel unnin.
Beiðni um umræðu á Alþingi
Nefndin sem vann að skýrslunni var skipuð
rétt fyrir jól til að kanna hvort tilefni væri til
að setja sérstök lög um eignarhald á fjöl-
miðlum. Hóf hún störf í janúar sl.
Stjórn þingflokks Samfylkingarinnar er ekki
sátt við að innihaldi skýrslunnar sé haldið
leyndu og hefur krafist þess að skýrslan verði
gerð opinber hið fyrsta. „Samfylkingin telur
óeðlilegt og óviðeigandi að menntamálaráð-
herra haldi skýrslunni leyndri. Efni hennar er
þar með haldið frá lýðræðislegri umræðu í
landinu. Hvorki starfsfólki fjölmiðla né stjórn-
endum fjölmiðlafyrirtækja gefst tækifæri til að
leggja dóm á skýrsluna og fjalla um efni henn-
ar frá sínum sjónarhóli,“ segir í yfirlýsingu frá
þingflokknum. „Þingflokkur Samfylkingarinnar
hefur nú lagt fram ósk um að skýrsla nefndar
menntamálaráðherra verði tekin til sérstakrar
umræðu á Alþingi hið fyrsta og lýsi mennta-
málaráðherra þar afstöðu sinni og ríkisstjórn-
arinnar til efnis hennar. Þingflokkurinn krefst
þess að skýrslan verði strax gerð opinber.“
Fjölmiðlaskýrslan enn til
meðferðar hjá ríkisstjórn
Samfylkingin vill að
skýrslan verði gerð
opinber hið fyrsta
VARNARLIÐIÐ hefur sagt upp
rúmum tug starfsmanna sem vinna
við þjónustustörf og taka uppsagnirn-
ar gildi um næstu mánaðamót. Upp-
sagnarfrestur er frá einum mánuði og
upp í sex mánuði, en þessar uppsagn-
ir koma til viðbótar uppsögnum fyrr í
vetur. Um 800 manns eru í starfi hjá
varnarliðinu.
„Þetta eru skelfilegar fréttir og
koma ofan í aðrar uppsagnir sem hafa
verið að taka gildi fram eftir öllu
vori,“ sagði Kristján Gunnarsson, for-
maður Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur.
Hann sagði að mikið atvinnuleysi
væri á Suðurnesjum, sem losaði um
4% af mannafla á vinnumarkaði, auk
þess sem fram kæmi að jafnvel væri
von á frekari uppsögnum.
Kallað eftir mótvægisaðgerðum
Kristján sagði að þessar uppsagnir
væru bein afleiðing þess að fækkað
hefði í varnarliðinu. „Við erum sífellt
að kalla eftir mótvægisaðgerðum hér
inn á svæðið. Við þurfum ný störf til
að mæta þessu. Annars sjáum við
fram á mjög erfiða tíma,“ sagði Krist-
ján.
Hann sagði að sl. þrjú ár hefði at-
vinnuleysi verið mest á Suðurnesjum,
sem væri eitthvert það ömurlegasta
Íslandsmet sem þeir hefðu átt.
Varnarliðið segir upp
fleiri starfsmönnum
FRÖNSK herskip hafa viðdvöl í
Reykjavík um þessar mundir og
liggja í Sundahöfn. Eru það
þyrluskipið Jóhanna af Örk og
freigáturnar Georges Leygues og
Primauget og er meginhlutverk
skipanna þjálfun liðsforingjaefna.
Marc de Briancon, kapteinn Jó-
hönnu af Örk, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sjóliðsfor-
ingjaskóli franska hersins hefði
verið stofnsettur 1864 og nú væri
hann um borð í Jóhönnu af Örk
og freigátunni Georges Leygues.
Liðsforingjaefnin væru nú langt
komin með 169 daga þjálfun sína
sem fram hefði farið á Atlants-
hafinu og myndi enda í Eystra-
saltinu á næstunni. Eftir dvölina
hér er ferðinni heitið til Péturs-
borgar.
Kapteinninn sagði þjálfunina
ganga út á að leysa margs konar
verkefni og væri hópurinn alls
166 manns, þar af 25 konur. Hluti
þjálfunarinnar væri og að heim-
sækja önnur lönd og kynnast
þeim. Þannig væru líka um borð
liðsforingjaefni frá öðrum lönd-
um sem tækju þátt í verkefnum.
Hlutverk skipanna sagði hann að
öðru leyti að vera til aðstoðar á
átakasvæðum og voru skipin
þannig reiðubúin sem sjúkrahús
þegar átökin á Haiti stóðu yfir í
vetur. Einnig tækju skipin þátt í
baráttu við hryðjuverkamenn og
fíkniefnasölu og kæmu einnig til
liðs þegar hungursneyð eða þró-
unarhjálparverkefni væru annars
vegar. Hann sagði liðsfor-
ingjaefnin því fá fjölbreytta þjálf-
un og ekki væri skortur á nýlið-
um.
Jóhanna af Örk var tekin í
notkun árið 1964 en smíði skips-
ins hófst í Brest 1959. Er það 12
þúsund tonn að þyngd og 182 m
langt. Um borð eru að jafnaði
fjórar þyrlur og ýmis vopnabún-
aður.
Jóhanna af Örk verður til sýnis
almenningi á morgun, föstudag
og laugardag frá kl. 14 og er
nauðsynlegt að gestir sýni skil-
ríki til að fá aðgang.
Frönsk herskip í Sundahöfn
Morgunblaðið/Sverrir
Frönsku herskipin tvö liggja við festar í Sundahöfn. Almenningi gefst kostur á að skoða skipin næstu daga.
Kapteinarnir Marc de Briancon (t.v.) og Vincent Liot de Nortbecourts.
GASKÚTUR sprakk í húsi við
Garðsenda þegar verið var að
grilla þar um sexleytið í gær.
Engin slys urðu á fólki, en
skemmdir á glugga og vegg-
klæðningu af völdum spreng-
ingarinnar. Eldur hljóp í kútinn
þegar verið var að grilla.
Venjulega koma öryggisventlar
á kútunum í veg fyrir að eld-
urinn hlaupi ofan í kútinn, en í
þessu tilviki hélt öryggisvent-
illinn ekki og eldurinn náði því
ofan í kútinn með þeim afleið-
ingum að hann sprakk.
Gaskútur
sprakk