Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 56
8   5   9      '      5 7" 5  5 #      !&  ! '$    ! % ( $&  ! :     „ÉG SLÍT mig úr beltinu og það er bara eins og mér hafi verið kippt út úr bílnum. Þegar ég lendi í göt- unni og lít aftur fyrir mig, þá sé ég ljósin á bílnum hverfa niður fyrir vegkantinn. Fyrst heyrði ég sprengingu, þá hefur örugglega loftpúði verið að springa eða þá dekk undan bílnum. Svo heyrði ég bara skruðninga og læti niður dal- inn,“ sagði Vilhjálmur Árnason, sem slapp naumlega út þegar vöruflutningabifreið hans fór út af veginum á Klettshálsi í Barða- strandasýslu fyrir neðan klett sem heitir Gunnsteinn í fyrrinótt og hrapaði niður 40–50 metra háa skriðu. Mikið hvassviðri var á Kletts- hálsi þegar slysið átti sér stað og hálkublettir. Bifreiðin sem er í eigu vöruafgreiðslunnar á Pat- reksfirði var að flytja 20 tonn af rækju frá Reykjavík til Bíldudals. Vilhjálmur sagði að hann hefði lent á hálkubletti og bíllinn tekið að spóla. Hann hafi áður lent í sömu aðstæðum en þá alltaf tekist að bakka og komast á fast til að setja keðjur undir, en nú hefði ekki ráðist við neitt. Bíllinn hafi byrjað að renna út í vegrásina og hann vonast til að hann færi þangað, því það væri minni skaði. „En svo lít ég í spegilinn hægr a megin, og sé að gámurinn er kom- inn þversum. Síðan snýst bíllinn, því að þá er gámurinn byrjaður að fara fram af. Ég lít í spegilinn mín megin og sé að hjólin á vagninum eru komin fram af. Ég sá það að ég gat ekki gert meir, þannig að ég stökk bara út. Ég var í belti, sem ég er yfirleitt ekki í þegar ég fer yfir fjöllin, því að þá er ég viðbúin að stökkva út ef eitthvað kemur upp á eins og í þessu tilfelli,“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði að annar flutn- ingabílstjóri hefði verið á eftir sér, sem hefði stoppað og sett keðjur undir bíl sinn. „Á þessari stundu eru ljósin enn logandi á bílnum og ég fer niður fyrir og ætla bara að slökkva á ljósunum. Það var fyrst þá sem ég gerði mér grein fyrir því hvað bíll- inn var illa farinn og þá kom líka sjokkið. Ég fór og slökkti ljósin og tók gallann minn út úr bílnum, enda var ekkert annað að gera,“ sagði Vilhjálmur ennfremur. Hann sagðist ákveðinn í að halda áfram akstrinum. „Það er bara að drífa sig sem fyrst af stað aftur, en ég hugsa að ég taki Bald- ur svona til að byrja með. Ég bú- inn að keyra í þó nokkur ár og þetta er í fyrsta skiptið sem ég lendi í nokkru svona,“ sagði hann að lokum. „Eins og mér hafi verið kippt út“ Vilhjálmur Árnason slapp naumlega út þegar vöruflutningabifreið hans fór út af og niður 40–50 metra háa skriðu á Klettshálsi í fyrrinótt Morgunblaðið/Birna Mjöll Flutningabíllinn valt 40–50 metra niður hlíðina. Hann er ónýtur en reynt verður að bjarga farminum. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FLUTNINGASKIPIÐ Banshee frá Marshalleyju tók niðri í vesturhluta hafnarinnar í Helguvík á Reykja- nesi um hálfáttaleytið í gærkvöldi. Snör viðbrögð hafnsögumanns og skipstjóra á dráttarbát hafn- arinnar komu þó í veg fyrir alvarlegan skaða, en skipið var óðara dregið úr höfninni. Skipið var á leið út úr höfninni þegar það missti afl. „Skipið varð vélarvana um leið og það var komið í stefnu út úr höfninni og rak undan vindi í vest- urhluta hafnarinnar. Þá kom lóðsbátur hafnarinnar, setti taug í skipið að framan og dró það út úr höfn- inni,“ segir Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri í Helgu- vík. Stjórnbúnaður og skrúfa skipsins eru í lagi en kaf- arar könnuðu í gærkvöldi hvort einhverjar skemmd- ir hefðu orðið á stjórnborðssíðu skipsins. Að sögn Péturs tók um tíu mínútur í heildina að ná skipinu út úr höfninni og gekk allt vel fyrir sig. Náði skipið síðan að sigla fyrir eigin vélarafli með lóðs- bátnum út úr höfninni. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Greiðlega gekk að losa Banshee og urðu engar skemmdir á stýrisbúnaði eða skrúfu. Sementsflutningaskip tók niðri í Helguvík MÁLFLUTNINGUR í mál- verkafölsunarmálinu svokall- aða hófst í Hæstarétti í gær þar sem Bogi Nilsson ríkis- saksóknari krafðist refsi- þyngingar yfir tveimur sak- borningum málsins. Taldi hann hin meintu brot ákærðu skaðleg fyrir viðskipti á lista- verkamarkaðnum og bætti við að vegna mikils umfangs hefði háttsemin skaðað íslenska lista- og menningarsögu. Gagnrýnir ákæruvaldið Ragnar Aðalsteinsson, verjandi annars ákærða, gagnrýndi ákæruvaldið í ræðu sinni. Hefði ríkislög- reglustjóri valið þrjú kærð málverk árið 1998 og ákært fyrir þau, þrátt fyrir að vera með tugi kærðra verka í rann- sókn, í því skyni að fá leiðbein- ingar hjá Hæstarétti um hvernig skyldi haga málsókn síðar gegn ákærða. Ekki mætti hluta í sundur rýmkuð brot og prófa sig áfram gegn ákærða árum saman, heldur ætti hann rétt á réttlátri máls- merðferð og afgreiðslu sinna mála í einu lagi. Með því að velja brot og geyma önnur til síðari tíma og ákæra hvað eftir annað væri verið að brjóta á rétti ákærða og stíga stórt skref í átt til lög- regluríkis. Þyngri refsingar krafist  Segir meint/10 Málverkaföls- unarmálið EINKAVÆÐINGARNEFND í Búlgaríu hefur frestað lokafrágangi samninga um kaup Viva Ventures á 65% kjölfestuhlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC og loka- greiðslum fyrir hlutinn, sem átti að inna af hendi í gær, um tvo mánuði til 20. júní. Fé- lag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og fleiri íslenskra fjárfesta fjármagnar fjórðung kjölfestuhlutarins. Lokafrágangur einkavæðingarsamn- ingsins strandar sem fyrr á úthlutun þriðja farsímaleyfisins í Búlgaríu. Greiðslu fyrir 65% hlut í BTC frestað  Kaupum/12 ♦♦♦ TJALDURINN flaug í hópum í kringum Vík í Mýrdal í gær en einn fuglinn skar sig þó úr hópnum fyrir það hve hann var hvít- fiðraðri en aðrir. Tjaldur er almennt sagð- ur vera svartur á höfði, bringu og að ofan en hvítur að neðan. Að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglasérfræðings er þessi tjaldur albínói að hluta, líkt og þekkt sé meðal fugla sem annarra dýra. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Tjaldur albínói í Vík ♦♦♦ ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra seg- ist telja að starfsemi Íbúðalánasjóðs standist fyllilega ákvæði EES-samningsins. Hann sé því ósammála þeim niðurstöðum Rannsókn- arstofnunar í fjármálarétti við Háskólann í Reykjavík, sem unnar voru að beiðni Sam- taka banka og verðbréfafyrirtækja, SBV, og kynntar voru í gær. Í álitsgerð Rannsóknarstofnunarinnar er komist að þeirri niðurstöðu að starfsemi Íbúðalánasjóðs raski eðlilegri samkeppni á lánamarkaði hér á landi. Þá segir að Íbúða- lánasjóður uppfylli ekki skilyrði um félagsleg markmið, sem ákvæði EES-samningsins setja fyrir stuðningi hins opinbera við slíka atvinnustarfsemi, einkum vegna hinna al- mennu lána sjóðsins. SBV lögðu í gær fram formlega kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, vegna starf- semi Íbúðalánasjóðs, á grundvelli álitsgerðar Rannsóknarstofnunarinnar. „Við höfum séð það á undanförnum mán- uðum og misserum að bankarnir hafa mikinn áhuga á því að ná stærri sneið af kökunni er kemur að húsnæðislánum,“ segir Árni. „Það kemur mér því ekki á óvart að þeir skuli fara þessa leið því við höfum setið undir bæði beinum og óbeinum hótunum um að þeir kynnu að kæra rekstur húsnæðislánakerfis- ins til ESA. Það var meðal annars í því ljósi að ríkisstjórnin ákvað í nóvember að tilkynna ESA um fyrirhugðar breytingar á kerfinu.“ Ósammála niðurstöð- um SBV  Raskar/12 SBV kvarta til ESA vegna Íbúðalánasjóðs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.