Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Wani Cell, Ophelia og Ice Bird. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag fer Hanseduo frá Straumsvík. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa s. 551 4349, fax. 552 5277, mataraðstoð kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 13 postulín, kl. 13.30 Leshringur í fund- arsalnum. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 10.30–11.30 heilsu- gæsla, kl. 13–16.30 smíðar og handavinna, kl. 13 spil. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 12.30 bað, kl. 9–12 gler- list, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 13–16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við bað, kl. 10 leik- fimi, kl. 14.30 bankinn, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 bankinn, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Postulíns- málun og leirmótun kl. 9–16.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 10.30 guðsþjónusta. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kvenna- leikfimi kl. 9.30, 10.20 og 11.15, handa- vinnuhorn kl. 13, bridge í Garðabergi kl. 13–17, tálgunarnám- skeið kl. 15. Skráning stendur yfir í kínverska leikfimi. Félag eldri borgara Kópavogi. Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10– 11.30, viðtalstími í Gjá- bakka kl. 15–16. Kl. 9– 17 myndlistarsýning. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9, myndment kl. 10–16, línudans kl. 11, glerskurður og billj- ard kl. 13, pílukast kl. 13.30. Dansleikur í dag, síðasta vetrardag, kl. 20.30. Cabrí Tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Söngfélag FEB, kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Gerðuberg, félagsstarf. Sími 575-7720. Kl. 10– 16.30 vinnustofur opn- ar, kl. 10.30 gamlir leik- ir og dansar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10–17 handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30 og kl. 13 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hring- dansar, kl. 16.15 tré- skurður, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 11 handa- vinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður og banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 10.30 samverustund, kl. 15–18 myndlist. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun fimmtudag Keila í Mjódd kl. 10. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 vinnustofa, kl. 14 félagsvist. Vesturgata 7. Kl. 10 sund, kl. 10–11.30 ganga, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15– 14.30 verslunarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 8.45 smiðja, kl. 10 búta- saumur, bókband, kl. 13 föndur og kóræfing, kl. 12.30 verslunarferð. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13– 16 keramik, taumálun, föndur, kl. 15 bókabíll- inn. Hafnargönguhóp- urinn. Kvöldganga kl. 20 miðvikudaga. Lagt af stað frá horni Hafn- arhúsins. Sjálfsbjörg, Hátúni 12, 19.30 félagsvist. ITC Fífa, fundur í kvöld kl. 20.15 í Safn- aðarheimili Hjalla- kirkju, Álfaheiði 17, Kópavogi. www.sim- net.is/itc/fifa Netf. itc- fifa@isl.is, Sími: 698 0144 Minningarkort Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Í dag er miðvikudagur 21. apríl, 112. dagur ársins 2004. Síðasti vetrardagur. Orð dagsins: Ég hefi elskað yður, eins og fað- irinn hefur elskað mig. Verið stöðugir í elsku minni. (Jh.. 15, 9.)     Þorvarður Tjörvi Ólafs-son segir í grein á Sellunni að rannsóknir sýni að stór hópur at- vinnulausra í Danmörku fái afar takmarkaðan ábata eða tapi jafnvel beinlínis á því að vinna í stað þess að þiggja at- vinnuleysisbætur. „Meg- inskýringin á þessu er samverkandi áhrif at- vinnuleysistrygginga, skatta og velferðarkerf- isins,“ segir Þorvarður Tjörvi.     Rekur hann fyrir-komulag atvinnuleys- isbóta í Danmörku. „Um 80% launafólks eru með- limir í atvinnuleysistrygg- ingarsjóðum, svoköll- uðum a-kössum, sem tryggja fólki um 90% fyrri launa í dagpeninga í allt að fjögur ár verði fólk at- vinnulaust. Þeir sem eru ekki meðlimir í a-kassa geta fengið félagslega að- stoð (kontanthjælp) frá sveitarfélaginu sem sam- svarar 80% af hámarks- dagpeningum, oftast um 110 þúsund ísl. kr. At- vinnuleysisbætur eru því mjög myndarlegar í Dan- mörku samanborið við önnur lönd. Ýmiss konar greiðslur frá hinu op- inbera eru tekjutengdar í Danmörku. Atvinnuleys- ingjar (og námsmenn eins og Íslendingar þekkja) fá mun hærri húsaleigu- og barnabætur og verulega lækkun á dagvist- unargjöldum samanborið við þá sem eru í vinnu. Þá eru skattar háir og þrepa- skiptir í Danmörku sem eykur enn á jaðarskatt- laginguna. Loks skiptir einnig máli að bætur skerðast við auknar tekjur maka þannig að maki í hjónabandi, þar sem báðir aðilar eru á kontanthjælp, þarf að fá verulega há laun til að það borgi sig að þiggja þau. Sumar rannsóknir benda til að byrjunarlaun þurfi að vera um 300 þúsund ísl. kr. til að vega upp skerð- ingu bóta. Slík byrj- unarlaun er ekki að finna á hverju strái í Dan- mörku, hvað þá fyrir lág- menntaða einstaklinga sem tala kannski misgóða dönsku. Þessir samverk- andi þættir letja fólk til að leita að vinnu og læsa suma í atvinnuleysisgildru til langs tíma.“     Þorvarður Tjörvi segirum að ræða grund- vallarvanda í dönsku þjóð- félagi. „Jaðarskattlagning hefur gengið út í öfgar og haft veruleg vinnuletjandi áhrif á stóran hóp fólks. Danskir stjórnmálamenn hafa hins vegar ekki dug í sér til að ráðast í upp- skurð á öllu kerfinu og nú- verandi valdamenn hafa kosið að láta hnífinn bíta á innflytjendum. Vandinn verður hins vegar ekki leystur nema með því að lækka skattlagningu á vinnuafl og draga úr tekjutengingunni í bóta- kerfinu. Listin er hins vegar að gera þetta án þess að kasta markmiðinu um sanngjarnan jöfnuð í þjóðfélaginu fyrir borð í leiðinni.“ STAKSTEINAR Atvinnuleysisgildra í Danmörku? Víkverji skrifar... Kunningi Víkverja háir hetjulegabaráttu við tóbaksfíknina. Hann tók upp á því fyrir nokkru að nota Nicotinell-tyggjó til að sefa sárustu löngunina. Kunningjanum finnst þó heldur dýrt að kaupa 84 töflur á liðlega 1600 krónur og náði ekki upp í nef sér fyrir hneykslan þegar skammturinn var hækkaður um 200 krónur fyrir skemmstu. Miðað við gengisþróun undanfarið ætti tyggjóið að lækka í verði. Þegar hann spurðist fyrir um ástæðuna í apótekinu sem hann versl- ar við var honum svarað að innflytj- andinn hefði hækkað verðið, en fram undir mánaðamótin væri boðinn 15 prósenta afsláttur. Kunninginn er sannfærður um að svona við- skiptahættir þrífist í skjóli fákeppni enda eru það fáir aðilar sem skipta á milli sín innlenda lyfjamarkaðinum. x x x Víkverji fór í nokkrar ferming-arveislur fyrir og um páskana og allar voru þær með misjöfnum hætti eins og vera ber en börnin yfir sig ánægð og sæl. Hann heyrði líka sögur af ýmsum sem stóðu í þessu stússi og jafnvel nokkrar sem hljóðuðu upp á að allt húsið væri tekið í gegn fyrir veisluhöldin eða að fólk væri að ganga fram af sér við undirbúning og hafa áhyggjur af þessum degi allt að ári fyrirfram. Þá kemur að rúsínunni í pylsuend- anum. Góð vinkona Víkverja var að láta ferma barnið sitt um daginn og viku fyrir stóra daginn barst talið að því að nú þyrfti hún að fara að huga að undirbúningi. Víkverji var stein- hissa og orðlaus um stund. Minnugur allra frásagnanna af fólkinu sem var að undirbúa þetta mánuðum saman sagði hann: Hvað með hárgreiðsluna, fötin, sálmabókina, árituðu servíett- urnar, kertin, blómin, matinn og hús- næðið. Var hún ekki að fara yfir um af áhyggjum? Nei, hún sagðist hafa heila viku til að undirbúa allt saman og veislan yrði heima. Til að gera langa sögu stutta þá mætti Víkverji í veisluna og viti menn: Hann hefur aldrei farið í huggulegri ferming- arveislu. x x x Víkverji keypti skötusel á dögunumog á ekki orð til að lýsa hrifningu sinni á hráefninu. Fiskurinn var glæ- nýr og í huganum dásamaði Víkverji að búa svo nálægt sjónum. Hann var hins vegar hálffúll yfir háu verði, þurfti að borga um 1.500 krónur fyrir kíló, og frágangur í mat- vöruversluninni var ekki í takt við verðið sem borgað var. Halinn var skorinn í klunnalegar sneiðar og þær ekkert snyrtar til. Víkverji veltir fyrir sér hvers vegna ekki er lagt meira upp úr góðri þjónustu í matvöruverslunum sem gera út á það að bjóða t.d. gott kjöt- og fiskborð. Associated Press Víkverji á kunningja sem er að berjast við tóbaksfíkn en er hneykslaður á verði nikótíntyggjós. Óþarfa rukkanir ÞAR sem ég stend alltaf í skilum við Orkuveitu Reykjavíkur þá var ég nokkuð hissa þegar ég fékk rukkun frá þeim senda út 13. apríl 2004. En þar sem ég greiddi minn reikning 14. apríl spyr ég: Hvað skyldi það kosta glerbáknið á Bæjarhálsi 1 að senda svona óþarfa rukkanir? Líklega þurfa þeir ekki að spara á þeim bæ. Eða hver skyldi borga þegar upp er staðið? Guðrún Magnúsdóttir, Kleppsvegi 40. Upplýsingar um sólarvörn ÉG hringdi upp á húð- og kynsjúkdómadeild til að spyrja hvort þeir hefðu ráð handa mér um sólarvörn fyrir smábarn sem væri á leið til sólarlanda. Það er sí- fellt verið að vara fólk við húðkrabbameini og maður vill þess vegna fá að vita hvernig á að meðhöndla ungbarnahúð. Hvort þeir ráðlegðu eina tegund um- fram aðra. Mér fannst ég ekki fá neinar markvissar upplýsingar eða aðstoð þarna. Ég vil fá að vita hvaða stuðul af sólarvörn ég eigi að kaupa. Finnst mér að gefa eigi út bæklinga með öllum upplýsingum sem hægt sé að nálgast um hvernig nota eigi sólar- varnarefni, klæðnað og annað svo fólk viti hvað gera eigi þegar farið er til útlanda. Guðrún. Konur og leikhús ÉG fylgist mjög vel með leikhúsmálum og finnst gaman að fara í leikhús. Undanfarið hefur verið mikið stangast á og æsing- ur vegna stöðu leikhús- stjóra sem er að losna, sér- staklega í Kastljósi. Þar hafa komið fram konur sem finnst gengið fram hjá kon- um við ráðningar í leikhús- um. Finnst mér að konur sem taka þátt í svona um- ræðum mættu vera prúðari en þær eru. En við eigum eina konu, Þórhildi Þor- leifsdóttur, sem er leik- stjóri sem mér finnst að ætti að koma til greina í leikhússtjórastöðuna hjá Þjóðleikhúsinu. Leikhúsunnandi. Tapað/fundið Budda týndist RAUÐBRÚN budda, smellt saman, týndist mið- vikudaginn 14. apríl sl. lík- lega við Álfheima eða ná- grenni. Í buddunni eru bíllykill og húslyklar. Upp- lýsingar í síma 820 7749. Armband í óskilum GULLARMBAND fannst á Ásvallagötu. Upplýsingar í síma 551 3938. Leðurjakki seldur í misgripum 17. APRÍL sl. var Kvenna- kórinn Léttsveitin með bás í Kolaportinu. Það óhapp gerðist að leð- urjakki eins kórfélaga var seldur – eða tekinn í mis- gripum. Jakkinn var næst- um nýr, dökkbrúnn með hettu, fóðraður með renni- lás og hnepptur. Sá sem er með jakkann hafi samband við eiganda í síma 565 7226 eða 865 2562. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 hvítleitur, 4 greind, 7 garm, 8 kjánar, 9 hagn- að, 11 forar, 13 espa, 14 þorpari, 15 dett hálf- vegis, 17 bára, 20 óhreinka, 22 skyldmenn- ið, 23 víðar, 24 snaga, 25 fjármunir. LÓÐRÉTT 1 hraka, 2 hrósar, 3 væskill, 4 brytjað kjöt, 5 máttug, 6 hressa við, 10 rödd, 12 kolefnisduft, 13 borða, 15 snjór, 16 úði, 18 máttvana, 19 ræktuð lönd, 20 svara, 21 nabbi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 merfolald, 8 fljót, 9 næðið, 10 ugg, 11 rýrir, 13 arður, 15 svell, 18 listi, 21 iða, 22 kotið, 23 nakin, 24 ranglátir. Lóðrétt: 2 erjur, 3 fætur, 4 langa, 5 láðið, 6 æfir, 7 æður, 12 ill, 14 rói, 15 sókn, 16 eitla, 17 liðug, 18 Langá, 19 sekki, 20 inna. Krossgáta  1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.