Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚUM Suðurnesja sem hafa verið atvinnulausir í langan tíma býðst að sækja þriggja vikna stuðningsnám- skeið þar sem m.a. er fjallað um at- vinnuleit, styttri námsmöguleika og áhrif atvinnuleysis á sálarlífið. Til- gangur námskeiðsins er að hvetja, hlusta, fræða, byggja upp og opna fólki sýn á nýja möguleika, bæði varð- andi nám og störf. „Við eigum þetta ógeðfellda Íslands- met, að vera með mesta atvinnuleysi hér á landi í lengstan tíma. Núna höfum við verið í meira en þrjú ár alltaf með hæstu mælingarnar á atvinnuleysi,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur (VSFK), sem stendur að nám- skeiðinu í samvinnu við fleiri aðila sem láta sig málefnið varða, m.a. Reykja- nesbæ, Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja og önnur verkalýðsfélög. Atvinnuleysi á Suðurnesjum mælist nú 4,3%. Fyrsta námskeiðið hófst í þessari viku og það síðara verður í byrjun maímánaðar. Kristján segir nám- skeiðið af því tagi að hann voni að brottfall verði mikið, þó aðeins hafi fólkið fengið atvinnu. Fá gefins kort í líkamsrækt og sund Sr. Björn Sveinn Björnsson, trún- aðarráðgjafi VSFK og verkefnisstjóri fyrir námskeiðið, segir að mikil sálu- hjálp felist í námskeiði af þessu tagi. „Annars vegar með því að rjúfa ein- angrunina, en einnig með því að opna fólki sýn á nýja möguleika í lífinu. Það gerum við með t.d. sjálfstyrkinga- námskeiði og starfskynningu sem við bjóðum upp á og námskynningu. Hvatningin er stór hluti sálgæslunnar og að koma reglu á lífsmunstrið, sem fer auðvitað mikið úr skorðum þegar fólk verður atvinnulaust,“ segir hann. Björn segir að á námskeiðinu sé höfðað til huga, sálar og líkama. Fólk borði saman morgunmat og síðan komi fulltrúar úr atvinnulífinu, stjórnmálamenn, sálfræðingur og fleiri til að ræða við fólkið. „Eitt sem hefur verið áhyggjuefni hjá okkur hérna á Suðurnesjum er hvað mennt- unarstigið hefur verið lágt. Það er mikilvægt að sýna fólki að menntun opnar margar dyr,“ segir hann, en á námskeiðinu verður tollvarðanám og félagsliða- og stuðningsfulltrúanám kynnt, auk þess sem fjallað verður um fleiri námsmöguleika á Suðurnesjum. Kennt er til hádegis fjóra daga í viku meðan á námskeiðinu stendur. Í lok hvers dags er síðan boðið upp á heilsurækt og næringarráðgjöf. Reykjanesbær gefur þátttakendum námskeiðsins tveggja mánaða sund- kort og líkamsræktarstöðin Lífstíll gefur líkamsræktarkort sem gildir í einn mánuð. Á námskeiðinu eru kraftar aðila sem láta sig atvinnuleysi varða sam- einaðir. Kristján segir að það hafi tíðkast of mikið að menn kallist á en vinni ekki saman. „Við höfum verið að kallast á, bæjarstjórinn og ég og fleiri, með ályktunum og slíku. En nú förum við úr orðum vonandi til fram- kvæmda og efnda. Einu mennirrnir sem fá atvinnu af því að kallast á eru ég og bæjarstjórinn!“ Telja Suðurnes hafa verið afskipt „Þetta er ákveðið ákall til stjórn- valda. Það er náttúrulega löngu kom- ið að okkur, það þurfa ekki öll at- vinnutækifæri að streyma norður í land og austur á firði með iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Það er fyrir löngu komið að Suðurnesjunum í atvinnu- pólitík stjórnvalda, sérstaklega nú þegar Varnarliðið hyggst draga sam- an,“ segir Kristján. Hann segir mikilvægt að hafið verði átak í því að bætta samgöngur á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum. „Það skýtur skökku við að þegar við erum búin að vera í þessu mesta at- vinnuleysi landsins í langan tíma að þá er samt töluverður innflutningur á erlendu vinnuafli hingað. [...] Á meðan ekki er boðið upp á notendavænar samgöngur á Suðurnesjum, getur fólk ekki þegið það að fá vinnu t.d. í fiski úti í Garði, því það er þeim lífsins ómögulegt að komast til og frá vinnu ef það hefur ekki bíl og eftir langvar- andi atvinnuleysi er bíllinn eitt af því fyrsta sem fýkur,“ segir hann. Stuðningsnámskeið fyrir Suðurnesjabúa sem hafa verið án atvinnu í langan tíma Rýfur einangrun og opnar nýja möguleika Morgunblaðið/Nína Björk Kristján Gunnarsson og sr. Björn Sveinn Björnsson vonast til að brottfall af námskeiðinu verði mikið, þannig að þátttakendur hafi fundið sér atvinnu. KVENNAKÓR Suðurnesja heldur sína árlegu vortónleika á sumardag- inn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl kl. 20.30, í Ytri-Njarðvíkurkirkju og þriðjudaginn 27. apríl kl. 20.30 í Safnaðarheimili Sandgerðis. Stjórn- andi er Krisztina Kalló Szklenárné, undirleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir og á bassa Þór- ólfur Þórsson. Á efnisskrá er m.a.: klassík gömlu meistaranna, íslensk og ungversk þjóðlög, létt dægurlög og gospel. Þá mun kórinn verða með sameig- inlega tónleika með Kvennakór Garðabæjar í Ytri-Njarðvíkurkirkju 12. maí nk. Kórinn undirbýr nú ferð til Ung- verjalands í september, þar sem ráð- gerðir eru tónleikar, m.a. ásamt ung- verskum kvennakór, auk þess sem kórinn mun syngja við ýmis tækifæri þar í landi. Þess má geta að stjórn- andi kórsins er frá Ungverjalandi. Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja „MÉR líst mjög vel á þetta nám- skeið, maður lærir mikið upp- byggjandi um sjálfstraust og fleira, eins og hvernig maður á að koma sér áfram,“ segir Kolbrún Lind Karlsdóttir, sem hefur verið á at- vinnuleysisbótum í tæp tvö ár, en hún hefur 50% starf og hefur verið að leita að öðru starfi á móti. Hafþór Guðbjartsson, sem hefur verið í atvinnuleit í um ár, er sam- mála þessu. „Ég tel þetta efla sjálfsmyndina og sjálfstraustið og lít á þetta sem góðan undirbúning fyrir atvinnuleit og til að efla mann í mannlegum samskiptum,“ segir hann. Hafþór segir gott að hitta fólk í sömu sporum. „Það er góður félagsskapur í þessum hópi. Hér er fólk saman í hóp sem er að fást við það sama og það er mikið atriði.“ Gott að hitta aðra í sömu sporum ELDRI borgarar lýstu áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga á þjónustuhlutverki D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í ályktun sem samþykkt var á aðal- fundi Félags eldri borgara á Suð- urnesjum, sem haldin var í Reykja- nesbæ á laugardag og um hundrað manns sóttu. Í ályktun fundarins segir að D- álman hafi upphaflega verið byggð og ætluð sem hjúkrunardeild fyrir sjúka aldraða Suðurnesjabúa. Sögðu þeir mikilvægt að hafist verði handa nú þegar við að byggja nýtt hjúkrunarheimili í Reykja- nesbæ „til að mæta þörf þeirra mörgu einstaklinga sem ekki geta lengur búið í eigin húsnæði“, eins og sagði í ályktuninni. Gestir fundarins voru Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmda- stjóri Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja, og Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar. Sigríð- ur talaði um stefnumótun til fram- tíðar í heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og sýndi Böðvar mynd- ir af fyrirhuguðu þjónustusvæði fyrir aldraða, þar sem gert er ráð fyrir húsnæði af ýmsu tagi sem tengjast mun þjónustukjarna og hjúkrunarheimili. Aðalfundur Félags eldri borgara Áhyggjur af breyttu hlutverki D-álmu Heil- brigðisstofnunarinnar SÖNGLEIKURINN „Uppgjör“ var frumsýndur í Samkomuhúsinu í Garði í gær, en 25 krakkar í 7.–10. bekk í Gerðaskóla taka þátt í upp- setningunni sem félagsmiðstöðin „Trufluð tilvera“ ber hitann og þung- ann af. Söngleikurinn er eftir Álfhildi Sigurjónsdóttur, stuðningsfulltrúa í skólanum, sem einnig leikstýrir krökkunum. Guðbjörg Björgvinsdóttir í 7. bekk og Skarphéðinn Guðmundsson í 10. bekk fara bæði með hlutverk í leikrit- inu. Þau eiga eina setningu hvort. Guðbjörg segir: „Ég sagði mínum for- eldrum mína meiningu um síðustu helgi“ og Skarphéðinn segir: „Harpa Sjöfn hættu að bögga hana, líttu bara á sjálfa þig og þessa andlitsmálningu“. Þá syngur Guðbjörg einsöng í lagi með textanum „Stelpan er komin í stuð“. Skarphéðinn syngur rödd Kens í „Baby-girl“ laginu, þar sem hann er að biðja stelpu um að koma með sér á djammið og spilar auk þess á hljóm- borð. Morgunblaðið hitti krakkana og höfund verksins í Gerðaskóla í gær og sögðust þau ekki stressuð fyrir frumsýninguna. Að minnsta kosti tvær sýningar eru áætlaðar. Söng- leikurinn fjallar um krakka sem eru að skipuleggja árshátíð og tekur m.a. á útskúfun og einelti, að sögn höfundarins. Aðspurð hvernig stóð að því að hún samdi leikrit fyrir krakkana segir Álfhildur að það hafi „bara gerst“, en henni finnist mjög gaman að vinna með krökkunum. „Það eru ótrúlega margir sem vilja vera með í þessu. Ein mamman sér um alla málningu og kennir þeim það. Önnur er með á öllum æfingum að hjálpa mér. Það er mjög gaman hvað margir hafa áhuga á að vera með.“ Álfhildur segir að öllum sem vildu vera með í uppfærslunni hafi verið fundið hlutverk. Krakkarnir hafi í fyrstu verið svolítið feimnir að stíga upp á svið og syngja. „Þau voru neydd í það á fyrstu æfingu og nú eru þau öll að sjóast,“ segir Álfhild- ur, sem segir að alltaf séu að upp- götvast nýir söngvarar og að mikið hæfileikafólk búi í Garðinum. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Alls taka 25 krakkar í 7.–10. bekk þátt í Uppgjörinu. Morgunblaðið/Nína Björk Jónsdóttir Álfhildur, Guðbjörg og Skarphéðinn í „Truflaðri tilveru“. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Álfhildur segir að í ljós hafi komið að mikið af hæfileikaríkum krökk- um búi í Garðinum. Uppgjör í Garðinum Sandgerði | Fulltrúar meirihlutans í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar hafa ákveðið að láta gera nýja starfslýs- ingu fyrir íþrótta- og tómstunda- fulltrúa í kjölfar þess að Ólafur Þór Ólafsson sagði starfi sínu lausu. Ólafur mun að eigin ósk láta af störfum 11. maí næstkomandi. Ágreiningur hefur verið í bæj- arstjórn Sandgerðisbæjar, þar sem Ólafur situr í minnihluta, og sagðist hann ekki geta gegnt starfinu eftir tiltekna bókun meirihlutans. Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku voru lagðir fram undirskriftarlistar þar sem farið var fram á það að meirihlutinn bæði Ólaf Þór afsök- unar og hann drægi uppsögn sína til baka. Þá gagnrýndu fulltrúar Framsóknarflokksins málsmeðferð meirihlutans. Fulltrúar meirihlut- ans tóku fram af þessu tilefni að þeim þætti ekki ástæða til að biðjast afsökunar á umræddum ummælum og gagnrýndu málatilbúnað minni- hlutans. Samþykkt var samhljóða að þakka Ólafi fyrir störf hans sem íþrótta- og tómstundafulltrúi.    Breyta starfi íþrótta- og tóm- stundafulltrúa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.