Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 19 Einstæð lífssýn Ný bók eftir Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu „Þetta er í raun mjög einfalt. Ef þú eyðileggur mig þá eyðileggur þú þig um leið. Ekki satt?" Hún þegir. „Er þá ekki betra að við lifum saman?" Hún lítur til mín og kinkar kolli. Anna Pálína greindist með krabba- mein fyrir 5 árum. Hér segir hún frá reynslu sinni. Þetta er saga um lífsgleði og sigra, saga um djúpa örvæntingu jafnt og hamingjustundir og um einstæða lífssýn. Sögð af ævintýralegri frásagnargleði og einlægni. Bók sem á erindi við okkur öll. salkaforlag.is sími: 552 1122 Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga svf. verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju miðvikudaginn 28. apríl kl. 20.30. Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt samþykktum félagsins. Á aðalfundinum verður tekin til afgreiðslu tillaga stjórnar að samþykktarbreytingum sem fylgja mun fundarboði til aðalfundarfulltrúa - auk þess sem tillagan er til kynningar á heimasíðunni http://www.kea.is. Einnig verður lögð fram stefnumótun stjórnar KEA, að því er varðar hlutverk félagsins og undirbúning fjárfestinga og annarra byggðafestuverkefna. Allir félagsmenn KEA hafa rétt til að sitja aðalfundinn með málfrelsi og tillögurétti - en einungis kjörnir fulltrúar félagsdeilda hafa atkvæðisrétt á fundinum. Í tengslum við aðalfundinn efnir KEA til málþings í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju 28. apríl kl. 18-20 með yfirskriftinni „Vaxtarsamningur fyrir Eyjafjarðarsvæðið - aðild KEA að nánari úrvinnslu og aðgerðum.“ Framsöguerindi á fundinum flytur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Að því loknu verða pallborðsumræður þar sem auk ráðherra verða: Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri FSA, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurmjólkur og stjórnarformaður Matvælaseturs HA, Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, og Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA. Samantekt í lok pallborðs: Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA. Stjórnandi pallborðsumræðna: Birgir Guðmundsson, blaðamaður og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Fundurinn er öllum opinn og er fólk hvatt til þess að fylgjast með og taka þátt í áhugaverðum umræðum. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga svf. Aðalfundur KEA 2004 REGLUR um takmörkun á fjölda nemenda við innritun í Háskólann á Akureyri voru samþykktar á fundi Háskólaráðs í gær með þremur atkvæðum gegn einu, en einn ráðsmaður var fjarverandi. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar reglur eru settar fyrir allar deildir háskólans, en áður hefur verið beitt fjöldatakmörkunum í heildbrigðisdeild. Reglurnar gera ráð fyrir að heildarfjöldi innrit- aðra nýnema verði 590 á haustmisseri 2004 en inn- ritaðir nýnemar á liðnu hausti, 2003 voru ríflega 760. Áætlanir gera ráð fyrir að 1.482 nemendur stundi nám við háskólann á árinu 2004 en þeir voru 1.175 á síðastliðnu ári. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Ak- ureyri, sagði að ástæður þess að gripið er til fjöldatakmarkana nú í fyrsta sinn í nær 17 ára sögu háskólans sé m.a. vaxandi aðsókn að námi við háskólann á undanförnum árum og að fjárveit- ingar til hans útiloki að fleiri nemendur verði inn- ritaðir. „Aðsóknin hefur vaxið mjög en fjárveit- ingar til háskólans gera ekki kleift að taka við fleiri nemendum. Það er auðvitað jákvætt að að- sóknin er mikil, að fólki vilji stunda nám hér, en við teljum okkur því miður ekki geta tekið við öll- um þessum fjölda miðað við þær fjárveitingar sem við höfum,“ sagði Þorsteinn. Hann nefndi að hús- næðismál háskólans væru einnig að einhverju leyti ástæða þess að grípa þarf til þessara ráðstaf- ana nú sem og þyrftu menn að horfa til gæða námsins. Hægt sígandi fjölgun væri betri en hol- skefla. Um nokkurra ára skeið hefur fjöldatakmörk- unum verið beitt í heilbrigðisdeild, teknir hafa verið inn 36 nýnemar í hjúkrunarfræði á ári og 18 í iðjuþjálfun. Svo verður áfram. Fjöldi nýrra nem- enda í auðlindadeild á fyrsta námsári takmarkast við 75. Sæki fleiri um en unnt er að taka við mun val á nemendum m.a. byggjast á undirbúningi í stærðfræði og raungreinum, meðaleinkunn á stúdentsprófi og viðtölum ef þurfa þykir. Hvað fé- lagsvísinda- og lagadeild varðar verður miðað við 120 nýnema á fyrsta ári og 140 nýnemar verða teknir inn í kennaradeild næsta haust. Mið verður einnig tekið af undirbúningi í m.a. íslensku, ensku og stærðfræði hvað þessar greinar varðar við val á nemendum komi til þess. Þá verða 70 nýnemar teknir inn í rekstrar- og viðskiptadeild næsta haust, en sæki fleiri um sem uppfylla almenn inn- tökuskilyrði verður undirbúningur í stærðfræði og hagfræðigreinum metinn sem og meðaleinkunn á stúdentsprófi. Í upplýsingatæknideild verða tekn- ir inn 35 nýnemar árlega. Undirbúningur í stærð- fræði, greinandi hugsun og ensku verður hafður til hliðsjónar við val á nemendum sæki fleiri um sem uppfylla almenn skilyrði. Fulltrúar kennara og nemenda lýsa yfir áhyggjum vegna takmarkana Fulltrúar kennara og nemenda á fundi háskóla- ráðs bókuðu á fundinum þar sem reglurnar voru samþykktar að þeir hörmuðu að þurfa nú í fyrsta sinn í sögu háskólans þann atburð að setja þurfi reglur sem miða að takmörkun inntöku í allar deildir. Þeir segja nám við Háskólann á Akureyri eftirsótt og aðsókn vaxandi. „Nú bregður svo við að stjórnvöld hafa gert skólanum að takmarka fjölda nemenda við deildir Háskólans á komandi hausti 2004,“ segja fulltrúar kennara og nemenda og að þeir harmi þessa stefnumörkun í mennta- málum „og lýsum yfir áhyggjum okkar vegna fyr- irsjáanlegra afleiðinga m.t.t. þróunar Háskólans á Akureyri og háskólamenntunar í landinu.“ Fyrstu reglur um takmörkun á fjölda nýnema við Háskólann á Akureyri 590 nýnemar teknir inn árlega Dönsk listakona sýnir | Danska myndlistarkonan Heidrun Sörensen sem dvalið hefur í gestavinnustofu Gilfélagsins undanfarna tvo mánuði opnar myndlistarsýningu í Deigl- unni, Listagili, Akureyri á morgun, fimmtudaginn 22. apríl kl. 14. Á sýningunni eru verk sem hún hefur unnið meðan á dvöl hennar hefur staðið á Íslandi og eru byggð á til- finningu listamannsins fyrir náttúru landsins. Einnig sýnir hún myndverk frá Danmörku sem hún kallar „Hunde- dage – Dogdays“ eða hundadaga, sem er lýsing listamannsins á þeirri skelfilegu lífsreynslu að vera bitinn af grimmum hundi. Heidrun verður svo með erindi í kvöld, miðvikudagskvöldið 21. apríl kl. 20.30, í Deiglunni þar sem hún fjallar um verk sín, en hún málar og vinnur í leir.    ANDRÉSAR Andar leikarnir á skíðum verða settir við hátíðlega athöfn í Íþrótta- höllinni á Akureyri í kvöld kl. 20.30. Um 660 keppendur víðs vegar af landinu eru skráðir til leiks og munu þeir ásamt fylgdarliði ganga fylktu liði frá KA-heimilinu að Íþróttahöllinni kl. 20. Keppni hefst svo í Hlíðarfjalli á morgun, sumardaginn fyrsta, og stendur fram á laugardag. Keppt verður í alpagreinum og göngu og eru keppendur á aldrinu 6–13 ára. Eins og fram hefur komið þurfti að aflýsa Andrésar Andar leikunum í fyrra vegna snjóleysis en að þessu sinni eru ágætar að- stæður í Hlíðarfjalli, þótt vissulega mætti vera þar meiri snjór. Leikarnir hafa til þessa verið haldnir í kringum sumardaginn fyrsta en ákveðið hefur verið að flýta þeim á næsta ári og halda þá í kringum 20. mars. Þátttaka á leikunum nú er mun meiri en aðstandendur þeirra höfðu þorað að vona. Með þessum mikla fjölda keppenda koma þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og systkini og það verður því mikill fjöldi gesta í bæn- um næstu daga. Andrésar Andar leikarn- ir settir í kvöld Feminískar aðferðir | Silja Bára Ómarsdóttir flytur fyrirlestur á fé- lagsvísindatorgi í dag, miðvikudaginn 21. apríl, kl. 16.30 í Þingvallastræti 23, stofu 14. Hann nefnist „Fem- inískar aðferðir í alþjóðastjórn- málum“. „Að fórna lífi sínu fyrir föðurlandið hefur hingað til verið talið hæsta stig föðurlandsástarinnar. Slík breytni hefur konum lengst af virst fyr- irmunuð. Í erindi sínu ætlar Silja Bára Ómarsdóttir að leita svara við spurningunni: „Hvernig er hægt að samræma kvenlæg gildi og al- þjóðastjórnmál? “ segir í frétt um fyr- irlesturinn. Silja Bára Ómarsdóttir hefur MA-gráðu í alþjóðastjórn- málum og starfar tímabundið sem verkefnisstjóri hjá Jafnréttisstofu. Söngtónleikar | Auðrún Að- alsteinsdóttir söngnemandi heldur söngtónleika á morgun, sumardaginn fyrsta, í Freyvangi kl. 15. Um er að ræða 8. stigs tón- leika á vegum Tón- listarskóla Akureyr- ar. Auðrún flytur þar fjölbreytta efn- isskrá við undirleik Dórotheu D. Tóm- asdóttur, Þórdísar Karlsdóttur og Reynis Schiöt. Með Auðrúnu syngja Anna Aðalsteins- dóttir, Árni Friðriksson, Jóhannes Gíslason og söngkennari hennar og móðir, Þuríður Baldursdóttir. Ókeyp- is aðgangur er að tónleikunum.    Auðrún Aðalsteinsdóttir BÆNDUR í Eyjafirði eru farnir að huga að vor- verkunum, þótt enn sé miður apríl. Veðrið hefur verið þeim hagstætt að undanförnu, þótt heldur hafi kólnað í veðri. Róbert Fanndal, kúabóndi í Litla Dunhaga í Hörgárbyggð, var að sækja áburð til Ak- ureyrar í vikunni og hann sagði að útlitið fyrir vor- ið væri gott, enda kæmu tún kæmu vel undan vetri. Hann sagði ekki alveg komið að því að bera á en í það yrði ráðist fljótlega enda lítill klaki í jörð. Ró- bert sagðist eiga eftir um helminginn af heyinu frá síðasta sumri og hann greip því til þess ráðs að fjölga nautgripum um helming. Hann er nú með um 60 nautgripi og 26 kýr. Róbert hefur einnig stundað kornrækt með nágranna sínum Árna Arnsteinssyni í Stóra Dunhaga og eru þeir félagar farnir að huga að því að undirbúa jarðveginn fyrir sáningu. Morgunblaðið/Kristján Bændur huga að vorverkunum Vortónleikar | Árlegir vortónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis verða haldnir í dag, miðvikudaginn 21. apríl og á föstudag, 23. apríl í Gler- árkirkju. Þeir hefjast bæði kvöldin kl. 20.30. Dagskráin er bæði glæsileg og fjölbreytt að vanda. Hljómsveit leikur undir í hluta dagskrárinnar undir stjórn Snorra Guðvarðs-sonar kórfélaga. Einsöngvarar eru þeir Ari Jó- hann Sigurðsson tenór og Jóhannes Gíslason bassi. Söngstjóri er Erla Þór- ólfsdóttir og píanóleikari Dórótea Dagný Tómastdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.