Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT samningi flutnings- sviðs Landsvirkjunar við Orku- veitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, sem skrifað var undir í gær, munu fyrirtækin greiða Landsvirkjun alls rúma 10 millj- arða króna næstu 20 árin, að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS. Þar af eru um 8 milljarðar í flutn- ingsgjöld, um 1½ milljarður vegna tapa í kerfinu og 500–1.000 millj- ónir fyrir aðra þjónustu flutnings- kerfisins. Samkvæmt flutnings- gjaldskrá stórnotenda munu fyrirtækin greiða flutningssviði LV um 39 aura á hverja kílóvatt- stund. Hitaveitan þarf að ráðast í um 800 milljóna króna framkvæmd við spennuvirki og 14 km línulögn frá Reykjanesvirkjun að Svartsengi og þaðan í flutningskerfi Lands- virkjunar. Þessi lína hefur farið í gegnum umhverfismat en bygging hennar er miðuð við 220 kV spennu þó að hún verði rekin í fyrstu á 132 kV. Sambærilegur tengikostnaður Orkuveitunnar er óverulegur, að sögn Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra OR, þar sem Búrfellslína 1 fer hjá fyrirhugaðri Hellisheið- arvirkjun. Landsvirkjun þarf að reisa nýtt tengivirki við Kolvið- arhól. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær þarf flutningssvið Landsvirkjunar að ráðast í fjár- festingu í auknu flutningskerfi fyr- ir 6,6 milljarða króna. Langdýrust er þar lagning Sultartangalínu 3 frá tengivirki við Sultartanga að Brennimel í Hvalfirði, skammt frá Grundartanga. Á því verki að vera lokið í febrúar árið 2006. Ekki hægt að nota orðið „sáttur“ Guðmundur Þóroddsson segir samninginn loks líta dagsins ljós eftir nokkurn ágreining fyrirtækja á milli um hvort þau ættu að leggja línurnar sjálf eða skipta kostnaðinum við flutning rafork- unnar til Norðuráls. Samkomulag hafi náðst og samningurinn sé eins góður og hægt sé að vonast eftir, hann sé sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Þetta hafi kallað á nýja hugsun og ný úrræði. Guð- mundur segir flutningsverðið, um 39 aura á kílóvattstund, vera við- unandi en það geti þó átt eftir að breytast. Forstjóri HS segist ekki geta notað orðið „sáttur“ um samning- inn við Landsvirkjun. Í raun sé um litla samninga að ræða heldur skil- mála sem Hitaveitunni séu settir. Til að ná samningum við Norðurál hafi verið nauðsynlegt að ganga frá þessum hluta verksins. Júlíus segir útreikninga á sínum tíma hafa sýnt að ódýrara hafi verið fyrir HS að leggja eigin raflínu að Grundartanga en að fara þá leið sem fara þurfti. Júlíus bendir á að Sultartanga- lína 3 verði með 400 kV spennu og allt að 1.600 MW flutningsgetu. Stækkunin nú á Grundartanga kalli á 150 MW afl. Fjárfesting vegna frekari stækkunar Norður- áls úr 180 í 300 þúsund tonn, ef af verður, verði því lítil vegna flutn- ingsmannvirkja. Færri línur með meiri orku Þórður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri flutningssviðs Landsvirkjunar, segir að vegna óska frá sveitarfélögum, ferða- þjónustunni og fleiri hagsmunaað- ilum hafi legu Sultartangalínu 3 verið breytt frá því sem fara átti í fyrstu, og á nokkrum stöðum sveigi hún frá línu 1, m.a. af um- hverfissjónarmiðum þannig að hún falli betur að umhverfinu. Mat á umhverfisáhrifum línunnar hefur þegar farið fram og umhverfisráð- herra staðfest úrskurð Skipulags- stofnunar. „Línan er hönnuð sem framtíðarlína í flutningskerfinu og með möguleika á að hækka spennuna síðar meir, sem lið í að mæta umhverfiskröfum. Við sjáum fyrir okkur að raflínum muni fækka í framtíðinni og við munum því byggja færri línur sem flytja meiri raforku,“ segir Þórður. Nokkru eftir undirskrift samn- ingsins í gær, og þegar mynda- tökumenn fjölmiðla höfðu yfirgefið stjórnstöð Landsvirkjunar við Bú- staðaveg, dró Júlíus fram nýjan samfesting, merktan Hitaveitu Suðurnesja, og afhenti Þórði. Áföst gallanum voru belti og axla- bönd og sagði Júlíus þetta vera tákn þess og áminning að allt yrði þrítryggt hjá flutningssviðinu en áhættan yrði öll framleiðendanna. Flutningssamningur OR og HS við Landsvirkjun Tíu milljarðar króna fyrir flutninginn Morgunblaðið/RAX Þórður Guðmundsson og Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður OR, tók- ust í hendur að lokinni undirskrift og með þeim (f.v.) voru þeir Júlíus Jóns- son, Ellert J. Eiríksson, stjórnarformaður HS, og Guðmundur Þóroddsson.                                      ! " #     ! !        $               !  "    #$% "     %    !  " # " #                 ! & '      (      !"#$$% '  (  '(   )    (      * + ,(  (   '" + " FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, var viðstaddur undirritun samningsins í gær. Hann sagði við Morgunblaðið að þetta hefðu verið ánægjuleg tímamót. Það væri merkilegur áfangi að Orkuveita Reykjavíkur og Hita- veita Suðurnesja væru að selja raf- orku beint til stóriðju. Óska mætti fyrirtækjunum til hamingju með þetta. Sem kunnugt er gat Lands- virkjun ekki útvegað Norðuráli um- beðna orku þar sem sem fram- kvæmdum við Norðlindaölduveitu var slegið á frest. Friðrik sagði fyr- irtækið hins vegar geta útvegað orku fyrir frekari stækkun á Grundartanga, eftir fimm til sex ár. „Við erum að vonast til þess að þá verði Norðlingaölduveitan komin í höfn,“ sagði Friðrik, en viðræður hafa staðið yfir í vetur við hrepps- nefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps um lónhæð veitunnar og samhliða framkvæmdir. Nú lægi það fyrir, eftir að niðurstöður nýrra hæð- arútreikninga urðu ljósar, að um- hverfisáhrif veitunnar væru mun minni en talið var í fyrstu og við- unandi að mati Landsvirkjunar þegar lónið yrði utan friðlandsins í Þjórsárverum og gróðureyðing yrði engin. Framkvæmdirnar gætu vonandi farið fljótlega í skipulags- vinnu innan hreppsins, en meiri- hluti hreppsnefndar hefur verið andvígur áformum Landsvirkj- unar. Sagðist Friðrik finna fyrir meiri vilja en áður meðal nefnd- armanna að ganga til samninga við Landsvirkjun en þetta mál myndi væntanlega ekki skýrast fyrr en síðar á þessu ári. Norðlingaölduveita til- búin fyrir næstu stækkun ALPER Mehmet, nýr sendi- herra Bretlands hér á landi, af- henti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands trúnaðarbréf sitt í gær. Mehmet er fyrsti innflytjand- inn sem tekur við stöðu sendi- herra fyrir hönd Bretlands. Hann er 55 ára gamall og fædd- ur á tyrkneska hluta Kýpur, en fjölskylda hans fluttist til Bret- lands fyrir nær fimmtíu árum árið 1956. Alper Mehmet starfaði við breska sendiráðið hér á landi fyrir rúmum áratug og byrjaði þá að læra íslensku og hefur að undanförnu bætt við þá þekk- ingu sína, en breska utanrík- isþjónustan hvetur sendiherra sína sem hingað koma til að læra íslensku. Morgunblaðið/Jim Smart Sendiherra Breta af- henti trúnaðarbréf sitt ÆTLA má að heildarkostnaður samfélagsins vegna campylobac- ter-tilfella hafi að meðaltali numið tæpum 108 milljónum kr. á ári á sl. sex árum. Kostnaður vegna salm- onellutilfella nam að meðaltali 65 milljónum kr. á ári á tímabilinu 1998–2003. Árlegur kostnaður samfélagsins vegna matarsjúk- dóma var því að meðaltali nálægt 173 milljónir kr. að því er lesa má út úr skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla íslands um eftirlitsiðnað- inn á Íslandi, sem birt var á mánu- dag. Talið að 10% tilfella mat- arsjúkdóma séu tilkynnt Kostnaður vegna þessara sýk- inga náði hámarki á árunum 1999 og 2000 en á árinu 2000 nam kostnaður vegna salmonellutilfella tæpum 317 milljónum kr. skv. mati stofnunarinnar og kostnaður vegna campylobacter-tilfella nam 276 milljónum á árinu 1999 skv. mati skýrsluhöfunda. Þessir útreikning- ar byggjast m.a. á þeirri forsendu að flest tilfelli matarsjúkdóma séu ekki tilkynnt og megi ætla að að- eins um 10% séu tilkynnt og skráð sem matarsjúkdómar. Vísað er til erlendrar rannnsóknar sem leiddi í ljós að kostnaður vegna matar- sjúkdóma í Bandaríkjunum var við það miðaður að aðeins um 7% til- fella væru skráð. Út frá þessari forsendu megi áætla raunveruleg tilfelli matarsjúkdóma á Íslandi síðustu ár. Benda skýrsluhöfundar á að ef gert sé ráð fyrir að hægt hefði ver- ið að koma í veg fyrir 10% tilfella matarsjúkdóma með því að sam- eina matvælaeftirlit á Íslandi, líkt og stefnt er að í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi, hefði sparn- aður eða ábati numið um 103 millj- ónum kr. á umræddu sex ára tíma- bili. Hundraða milljóna kostnaður vegna matarsjúkdóma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.