Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 23
w
w
w. l e t t o g l a ggo t t . i s
w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w
ww. l e
t tog
l a g
got
t . i s
ww
w.
l e t
t o
g l
a g
go
t t
. i s
ww
w.
le
tt
o g
la
gg
ot
t.
is
ww
w.
let
tog
lagg
ott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
VILTU
VINNA FERÐ
TIL ÍTALÍU?
Ótrúlegusta fólk hefurgetað baðað sig í heimisöngstirna um nokk-urra ára skeið með
hjálp karókí-tækninnar og nú er
komin fram á sjónarsviðið ný
tækni, sem kann að gera leynda
drauma um frægð og frama á
hvíta tjaldinu að veruleika. Menn
jafnt sem konur geta í það
minnsta upplifað sig sem Holly-
wood-stjörnur í smátíma og feng-
ið vissa útrás fyrir „leikræna“
hæfileika.
„Movieoke“ er að verða vinsælt
í skemmtana- og afþreying-
arbransanum vestanhafs og er
tæknin afsprengi karókísins, sem
reyndar er nauðsynlegur fylgi-
fiskur þessa. Öldurhús, sem
bjóða upp á „movieoke“, þurfa
auk karókísins að hafa breiðtjald
og safn af myndbandsspólum.
Þátttakandinn velur síðan sína
uppáhaldssenu úr kvikmynd sem
er varpað á risaskjáinn og á með-
an rúllar senan á minni skjá fyrir
framan gestinn ásamt texta að-
alpersónanna. Það er síðan í
verkahring viðkomandi að fara
með textann. Annaðhvort tekst
mönnum vel upp eða uppátækið
kitlar hláturtaugar annarra
gesta, sem er, að sögn þeirra sem
til þekkja, mun algengara. Það er
því ekki síður auðvelt að gera sig
að fífli í „movieoke“ en í karókí,
en það er um að gera að prófa.
Einhver gæti til að mynda hugs-
að sér að leysa Robert De Niro af
í Taxi Driver eða Ben Stiller í
Zoolander, sagði veitingamað-
urinn Anastasia Fite í samtali við
fréttavef NBC á dögunum, sem
fyrst fór að bjóða upp á þessa ný-
stárlegu afþreyingu sl. haust á
stað, sem kallast Den of Cin í
New York. Vegna mikilla vin-
sælda, munu fleiri staðir hafa
fylgt í kjölfarið.
Stjörnur á hvíta tjaldinu um stund
DÆGRADVÖL|Áhugaverð skemmtun fyrir þá sem hafa áhuga á leiklist
AP
Innlifun: Þessi áhugasami mað-
ur heldur á plasthníf þar sem
hann tekur senur úr myndinni
Evil Dead II.
Stjörnur: Í hlutverki Jennifer
Beals í myndinni Flashdance.
Íbyrjun apríl var ákveðið að banna göngu-grindur í Kanada. Að sögn Herdísar L.Storgaard, verkefnisstjóra barnaslysa-varna hjá Lýðheilsustöð, nær bannið til
bæði nýrra og notaðra göngugrinda. „Ástæðan
fyrir banninu er sú að rekja má fjölda alvarlegra
slysa á börnum til notkunar á slíkum búnaði.
Dæmi eru um að börn hafi dáið þegar þau féllu
niður stiga í göngugrindum.“
Herdís segir að vert sé að benda á að á síðasta
ári urðu tvö slæm brunaslys á litlum börnum sem
voru í göngugrind hér á landi.
„Göngugrindin gerir það að verkum að barn
nær frekar í hluti sem það myndi ekki ná til ef
það væri að skríða um.“
Herdís segir mikilvægt að öryggishlið séu sett
fyrir stigaop í húsum þar sem göngugrindur eru í
notkun.
„Það er almennur misskilningur að börn læri
að ganga fyrr í göngugrindum. Rannsóknir sýna
þvert á móti að börn eru allt að tveimur vikum á
eftir öðrum börnum ef þau nota mikið göngu-
grindur. Það er ekki æskilegt að barn noti göngu-
grind lengur en tíu mínútur í
senn þar sem þau geta
orðið þreytt í þeim og
dæmi er um að börn
hafi fengið
vöðva-
bólgur
vegna og
mikillar
notkunar.“
Göngugrind-
ur bannaðar
í Kanada
UNGBÖRN
leiðandinn ekki afgreitt meira því fötin njóta
vinsælda víðar en hér,“ segir Helga, en um
er að ræða kjóla, gallajakka og buxur á
stúlkur, frá tveggja ára til táningsaldurs.
Fötin eru framleidd í Höfðaborg í S-
Afríku, en þarlendur tískuhönnuður fékk þá
hugdettu að gaman gæti verið að nýta
krafta listakvenna, sem hefðu lítið milli
handanna en hefðu sitt helsta lífsviðurværi
af því að mála verk á torgum og ströndum
fyrir ferðamenn. Aðalheiður Karlsdóttir,
eigandi Englabarna, kynntist vörulínunni á
tískusýningu erlendis og hefur síðan gerst
umboðsaðili fatnaðarins í Skandinavíu.
Handmáluð telpnaföt
TÍSKA
Vinir Vatnaskógar fjölmennið!
Kaffisala til styrktar starfinu í Vatnaskógi
Kassabílar Vatnaskógar
Leiktæki
Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
9
4
3
•
s
ia
.i
s
Sumarhátíð Skógarmanna
Sumardaginn fyrsta 22. apríl kl. 14-18 í húsi KFUM og KFUK Holtavegi 28
Morgunblaðið/Ásdís
Handmáluð tískuföt frá Suður-Afríku hafa notið vinsælda íversluninni Englabörnum viðLaugaveg, en að sögn versl-
unarstjórans Helgu Karlsdóttur, kynnti
verslunin þessa nýju vörulínu fyrst hinn 1.
nóvember sl. þegar verslunin flutti sig um
set á Laugaveginum.
„Þessi fatnaður fékk strax afbragðs
viðtökur fyrir jólin og þegar við hugð-
umst svo panta
meira til að anna
eftirspurn, gat fram-
Nýjar rannsóknir benda nú til þess aðheimilisstörfin geti dregið úr líkumá að konur fái krabbamein. Vís-indamenn hafa komist að því að
líkamleg athafnasemi á borð við húsverk og
göngu geti minnkað hættu á legkrabbameini
um allt að þriðjung. Að sama skapi bendir
önnur rannsókn til þess að meiri hreyfing auki
líkurnar á því að lifa af brjóstakrabbamein.
Niðurstöður þessar voru kynntar nýlega á ár-
legu vísindaþingi bandarísku krabbameins-
samtakanna í Orlando.
Fram kom að eftir því sem konur vörðu
meiri tíma í húsverk og hreyfingu, reyndust
þær betur varðar gegn þeim vágesti, sem
krabbameinið er.
Heimilisstörf
heilsusamleg
HEILSA