Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 11
Síðustu sætin í maí. Vinsælasti sumarleyfisstaður Ítalíu. Glæsi-
leg ströndin teygir sig kílómetrum saman eftir fallegri strand-
lengjunni og hér er að finna ótrúlega stemmningu yfir sumartím-
ann, þar sem bærinn iðar af mannlífi, jafnt daga sem nætur, af
innlendum sem erlendum ferðamönnum, sem koma hingað til að
njóta hins besta sem sumardvöl
á Ítalíu hefur að bjóða.
Rimini
20. og 27. maí
frá kr. 39.995
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Frá kr. 39.995
M.v. hjón með 2 börn, 20. maí,
Residence Riviera, vikuferð. Netverð.
Frá kr. 49.890
M.v. 2 í stúdíó, 20. maí, Residence
Riviera, vikuferð. Netverð.
Í TILEFNI af fimmtán ára afmæli Bónuss ákváðu
stjórnendur fyrirtækisins að gefa fimmtán aðilum fimm-
tán milljónir króna og renna þær til líknarmála, góðgerð-
armála og annarra mála sem stjórnendum Bónuss þykir
mikilvægt að styrkja. Jóhannes Jónsson afhenti styrkina
við athöfn í gær.
Jóhannes segir að með styrkjunum vilji Bónus þakka
fyrir þá tryggð sem viðskiptavinirnir hafi sýnt fyrirtæk-
inu. Hann segir styrkina hafa dreifst víða til margra
ólíkra aðila og til ólíkra en þarfra málefna. Spurður segir
Jóhannes að ef viðskipti Bónuss haldi áfram að vaxa eins
og verið hefur verði hann ekki í vandræðum með að gefa
20 milljónir á 20 ára afmælinu og svo koll af kolli.
„Viðskiptamenn okkar í mars í fyrra voru um 400 þús-
und en í mars í ár er þeir hátt í 500 þúsund. Við erum að
verða búin að opna 21 verslun og það hefur aldrei komið
niður á því sem fyrir er. Maður verður auðvitað að elta
eftirspurnina sem er stöðugt vaxandi,“ sagði Jóhannes í
samtali við Morgunblaðið.
Feðgarnir Jóhannes og Jón Ásgeir Jóhannesson opn-
uðu fyrstu Bónusverslunina í Skútuvogi 8. apríl árið 1989
en nú eru Bónusverslanirnar orðnar 20 og bætist sú 21.
við í maí en þá verður ný verslun opnuð í Hveragerði.
Bónus styrkir fimmtán aðila á fimmtán ára afmæli fyrirtækisins
Gefa 15 milljónir
til góðgerðarmála
Morgunblaðið/Ásdís
Hrafn Jökulsson tekur við styrk Hróksins og afhendir
Jóhannesi í Bónus tafl og taflmenn að gjöf.
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra segir að þær aðfinnslur,
sem samtök í atvinnulífinu settu
fram sl. mánudag varðandi
skattlagningu matvæla, séu ekki
nýjar frá þessum aðilum. Hann
segir að þær séu til athugunar
eins og aðrar hugmyndir sem
berast fjármálaráðuneytinu.
Fjármálaráðherra
Ekki nýjar
aðfinnslur
frá þessum
aðilum
INGA Dóra Sigfúsdóttir varði
doktorsritgerð sína í félagsfræði við
Pennsylvania State University í
Bandaríkjunum
12. desember síð-
astliðinn. Leið-
beinandi Ingu
Dóru var George
Farkas, prófessor
í félagsfræði, en
aðrir sem sátu í
doktorsnefnd
hennar voru
Wayne Osgood,
prófessor í af-
brotafræði, Eric Silver, prófessor í fé-
lagsfræði og Irwin Feller, prófessor í
hagfræði og vísindafélagsfræði.
Doktorsritgerð Ingu Dóru nefnist
„Stress in adolescentś lives: The role
of negative life events and social sup-
port in understanding distress, del-
inquency, substance use and school
performance“. Í ritgerðinni sam-
þættir Inga Dóra kenningar á sviði
geðheilsufélagsfræði og afbrotafræði
til að skýra tengsl álags og áfalla í lífi
ungs fólks við þunglyndi og reiði, frá-
vikshegðun og frammistöðu í skóla.
Hluti ritgerðar Ingu Dóru fjallar um
hvernig stuðningur úr samfélaginu
getur verið vörn gegn frávikshegðun
meðal þeirra unglinga sem búa við
mikið álag. Fyrstu niðurstöður rit-
gerðarinnar verða birtar í tímaritinu
Journal of Youth and Adolescence.
Við doktorsnám sitt naut Inga
Dóra styrkja frá Penn State háskóla,
Fulbright stofnuninni og styrkt-
arsjóði Thor Thors.
Inga Dóra lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1987, B.A. prófi í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands árið 1991 og M.A.
prófi í félagsfræði við Háskóla Ís-
lands árið 1999. Í doktorsnáminu
lagði Inga Dóra einnig stund á vís-
indafélagsfræði sem hliðargrein.
Inga Dóra fæddist í Reykjavík 13.
júlí 1967. Hún er dóttir Erlu Sigurð-
ardóttur ljósmóður og Sigfúsar Jóns-
sonar, en hann lést árið 1999. Eig-
inmaður Ingu Dóru er Símon
Sigvaldason, héraðsdómari. Þau eiga
tvær dætur, Erlu og Sonju, 8 ára.
Inga Dóra starfar við rannsóknir hjá
rannsóknarmiðstöðinni Rannsóknum
& greiningu. Um þessar mundir vinn-
ur hún að úttekt á rannsókn-
arstörfum HÍ fyrir mennta-
málaráðuneytið.
Doktor í
félagsfræði
Inga Dóra
Sigfúsdóttir
STARFSHÓPUR heilbrigðisráðu-
neytisins leggur til að komið verði á
fót miðstöð starfsendurhæfingar í því
skyni að beina fólki í viðeigandi úr-
ræði til að auka líkur á atvinnuþátt-
töku.
Frá þessu greinir á vef Trygginga-
stofnunar ríkisins, TR. Þar segir Sig-
urður Thorlacíus tryggingayfirlækn-
ir reynsluna sýna að þegar fólk hafi
verið óvinnufært lengur en nokkra
mánuði geti verið mun erfiðara að
stuðla að því að það hefji störf að nýju
heldur en ef gripið sé fljótt til að-
gerða.
Sigurður segir að jafnvel þótt sjúk-
dómseinkenni, sem ollu því að ein-
staklingur varð óvinnufær, dvíni með
tímanum sé hætta á að fólk glati
sjálfstrausti, sjálfsbjargarviðleitni og
fótfestu á vinnumarkaði. Því sé afar
brýnt að grípa fljótt inn í þennan víta-
hring og afstýra því að viðkomandi
verði öryrki fyrir lífstíð.
Starfshópurinn leggur til að rætt
verði við hagsmunaaðila um að þeir
komi að skipulagningu og fjármögn-
un sameiginlegs starfsendurhæfing-
arkerfis með miðstöð starfsendur-
hæfingar þar sem unnt verði að meta
endurhæfingarþörf og/eða vinnu-
færni og vísa í endurhæfingarúrræði.
Tillaga um
miðstöð
starfsend-
urhæfingar
ÁRLEG neysla áfengis á hvern
landsmann 15 ára og eldri jókst um
einn lítra af hreinum vínanda á milli
áranna 1998 og 2002, úr 5,56 lítrum í
6,53 lítra. Í markmiðum heilbrigð-
isáætlunar sem samþykkt var á Al-
þingi árið 2001 er gert ráð fyrir því
að neyslan verði ekki meiri en 5 lítr-
ar árið 2010.
Fyrir Alþingi liggja nú nokkur
frumvörp um áfengismál en að sögn
Önnu Bjargar Aradóttur hjúkrunar-
fræðings hjá Landlæknisembætti og
Lýðheilsustöð eru þau fæst í sam-
ræmi við þau langtímamarkmið sem
Alþingi setti með heilbrigðisáætlun-
inni. Anna Björg sagði á fræðslu-
fundi um áfengisstefnu sem samtök-
in Náum áttum héldu í gær að
frumvörp um lækkun áfengiskaupa-
aldurs niður í 18 ár og lækkun áfeng-
isgjalds ná fram að ganga verði enn
erfiðara að ná markmiðunum frá
2001.
„Það er hægt að leiða að því líkum
að ef þessi frumvörp verða sam-
þykkt þá munum við fjarlægjast enn
frekar þau markmið sem sett voru í
þessari áætlun. Mér finnst það þurfi
að endurskoða áætlunina fyrr en síð-
ar.“
Í áætlun Alþingis, sem m.a. tekur
á áfengisstefnu, segir að stefnt sé að
því að árið 2010 verði nánast engin
drykkja hjá þeim hópi sem er yngri
en 15 ára. Anna Björg segir drykkju
í þeim aldurshópi hafa farið minnk-
andi undanfarin ár en hins vegar
aukist hjá þeim sem eldri eru. „Með
samtakamætti foreldra og félaga-
samtaka hefur tekist að minnka
neysluna hjá börnum og ungling-
um.“
Að hennar mati er það óvinsælt
hjá stjórnamálamönnum að setja
hömlur á áfengisneyslu og hún telur
ólíklegt að einhugur ríki á Alþingi
um þau langtímamarkmið sem sett
voru í heilbrigðisáætluninni. Sagðist
hún telja líklegt að annað af tvennu
valda því; Alþingi hefði lítið úthald
við langtímaáætlanir eða að aðrir
hagsmunir en almannahagsmunir
væru farnir að ráða ferðinni. Nefndi
hún sérstaklega að þjónustuaðilar
væru farnir að þrýsta meira á lágt
áfengisverð.
Drekka meira og
oftar bjór og vín
Vínbúðum á Íslandi hefur fjölgað
úr 19 í 43 frá árinu 1990 og fjöldi vín-
veitingaleyfa hefur fjórfaldast á
sama tímabili. Áfengi er orðið hluti
af daglegu neyslumynstri Íslendinga
og hagsmumaaðilar í verslun og
þjónustu láta sig áfengsstefnu
stjórnvalda varða í auknum mæli.
Þetta var meðal þess sem fram kom í
erindi Hildigunnar Ólafsdóttur af-
brotafræðings hjá ReykjavíkurAka-
demíunni á fundinum.
Í máli hennar kom fram að á síð-
ustu þremur áratugum hefur þróun-
in verið í þá átt að bæði karlar og
konur hafa aukið neyslu sína á víni
og einnig bjór, eftir að hann var lög-
leiddur, en minnkað neyslu á sterku
víni. Hún sagði bæði magn og tíðni
bjór- og víndrykkju hafa aukist.
Drykkja Íslendinga er mest um
helgar en máltíðadrykkja tíðkast
ekki hér í miklum mæli. Hildigunnur
sagði að 76% drykkjunnar færu fram
í heimahúsum en um 24% á veitinga-
húsum.
Forvarnir til foreldranna
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi sagði á fundinum að forræð-
ishyggja 21. aldarinnar í áfengismál-
um væri í raun foreldrahyggja.
Forvörnum og fræðslu hefði á und-
anförum árum verið í auknum mæli
beint til foreldra. Hann sagði mik-
ilvægt að lengja þann tíma sem börn
og unglingar eru án áfengis. Það yrði
best framkvæmt með því að höfða til
ábyrgðar foreldra í forvarnastarfi.
Fundur um áhrif áfengisstefnu á drykkjusiði
Ósamræmi í áfeng-
isstefnu yfirvalda
Morgunblaðið/Jim Smart
Anna Björg Aradóttir hjá Landlæknisembætti og Lýðheilsustöð sagði
brýnt að Alþingi endurskoðaði þau markmið sem sett voru um áfeng-
isdrykkju árið 2001 ef það ætlaði sér ekki að reyna að ná þeim.