Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396,
lögg. fasteignasali.
EINBÝLI Í GARÐABÆ
ÓSKAST
Mér hefur verið falið að leita eftir einbýlis-
húsi. Æskilegt að það séu að lágmarki
fjögur svefnherb. Um er að ræða fjársterka
aðila, sem eru tilbúnir að veita langan
afhendingartíma sé þess óskað. Verðhug-
mynd 24-28 millj. Áhugasamir vinsamleg-
ast hafið samband og ég mun fúslega
veita nánari upplýsingar.
Reykjavík | Réttara væri að auka
fjárframlög til strætisvagnakerfis-
ins en koma á laggirnar sporvagna-
kerfi hér á landi, þar sem kostn-
aðurinn við slíkt kerfi er svo mikill
sem raun ber vitni, að mati Kjart-
ans Magnússonar, fulltrúa Sjálf-
stæðismanna í samgöngunefnd
Reykjavíkurborgar.
Samgöngunefnd kynnti sér
sporvagna, eða léttlestir, á ferð til
Þýskalands nýlega. Kjartan segir
að hugsanlegur kostnaður við að
koma upp kerfi sporvagna hér á
landi sé á bilinu 30 til 50 milljarðar
króna. Hann telur að ekki sé rétt
að leggja út í þann kostnað eins og
málin standa í dag.
„Þetta eru bara svo miklir pen-
ingar að það er miklu nær að nota
hluta af þeim peningum til að
styrkja strætisvagnakerfið sem við
eigum fyrir og þekkjum,“ segir
Kjartan. Til dæmis mætti þá þétta
net strætisvagnanna og fjölga ferð-
unum, en flestar umkvartanir far-
þega eru vegna þessara tveggja at-
riða.
Kjartan segir það ekki rétta að-
ferðafræði að
byggja upp spor-
vagnakerfi til að
auka farþega-
fjölda, heldur
þurfi þörfin að
vera til staðar, og
þá segist hann sjá
tvennar aðstæður
sem gætu gert
sporvagnakerfi
fýsilegt „Annars
vegar vegna þess að gatnakerfið
hér í borginni sé algerlega sprung-
ið, það komist ekki fleiri bílar út á
göturnar. Hins vegar ef afkasta-
geta strætisvagnakerfisins er
sprungin þannig að við komum
ekki fleiri farþegum í vagnana. Þá
væri eðlilegt að gera þetta,“ segir
Kjartan.
Þýðir frestun á öðrum
framkvæmdum
Sú lausn að ríkið borgi mikinn
meirihluta kerfisins hefur eflaust í
för með sér frestun á mikilvægum
umferðarmannvirkjum, að mati
Kjartans, enda færi væntanlega
mikill meirihluti af því fé sem
eyrnamerkt er gatnamálum í
Reykjavík í uppbyggingu kerfisins.
Það myndi t.d. þýða að mislæg
gatnamót yrðu ekki gerð, en þau
segir Kjartan mikilvæg vegna um-
ferðaröryggissjónarmiða.
Kjartan segir ýmsa galla við
sporvagnakerfið sem séu ekki við
strætisvagnakerfið, t.d. sé yfirleitt
lengra á milli stoppistöðva. Einnig
bendir hann á að eftir að búið er að
leggja teinana er ekki hægt að
breyta leiðunum til að aðlaga kerf-
ið breyttum þörfum, nema með því
að fara út í gífurlegar fjárfestingar.
Morgunblaðið/Ómar
Ekki eru borgarfulltrúar á eitt sáttir um ágæti sporvagna.
Kjartan
Magnússon
Allt of dýr fjárfesting
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi vill frekar efla strætisvagna en lestir
ÍBÚAR á höfuðborgarsvæðinu geta gert
sér margt til dundurs sumardaginn fyrsta,
enda mun ÍTR standa fyrir fjölbreyttu tóm-
stundastarfi víða um borgina.
Meðal annars mun eftirfarandi verða í
boði:
Grafarvogur
Gufunesbær
11.00–12.30 – Kynning á klifri og golfi.
Egilshöll
11.00–12.30 – Frítt inn á svellið í boði Eg-
ilshallarinnar. Skautafélagið Björninn
leiðbeinir í íshokkí.
Íþróttamiðstöð Grafarvogs í Dalhúsum.
11.00 – Skólamót í glímu.
Rimaskóli
12.30 – Andlitsmálun
13.00 – Skátar leiða skrúðgöngu að
Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum, þar sem
haldin verður almenn fjölskylduskemmt-
un til 15:30.
Breiðholt
Miðberg
14.00 – Stutt helgistund í Fella– og Hóla-
kirkju – Skrúðganga að lokinni messu.
14.15 – Hverfishátíð í Miðbergi.
Hólmasel.
13.00 – Skrúðganga frá Þinni verslun
Seljabraut 54.
13.30 – Fjölskylduguðþjónusta í Selja-
kirkju.
14.00–16.00 – Hverfishátíð í Hólmaseli.
Borgarhluti 2
Tónabær
14.00–16.00 – Sameiginleg fjölskylduhá-
tíð Tónabæjar og Þróttheima
Grímsbær
12.30 – Skrúðganga að Bústaðakirkju
Bústaðakirkja
13.30–14.00
Víkin
14.00–15.30 – Fjölskylduskemmtun
Árbær
Selás– og Ártúnsskóli
10.00 – Skrúðganga að Árbæjarkirkju
Árbæjarkirkja
11.00–11.30 – Messa í Árbæjarkirkju
með tónlistar– og skemmtiatriðum
Ársel
11.30–14.00 – Opin skemmtidagskrá fyrir
alla fjölskylduna
Fylkishöll
11.30–14.00 – Opin skemmtidagskrá fyrir
alla fjölskylduna
Skátaheimili Árbúa
11.30–14.00 – Opin skemmtidagskrá fyrir
alla fjölskylduna
Vesturbær
Neskirkja
13.00–13.30 – Helgistund í Neskirkju –
síðan skrúðganga frá Neskirkju að
Frostaskjóli við KR-völl
Frostaskjól við KR-völl:
14.00–15.30 – Fjölskylduhátíð.
Margt í boði
sumardaginn fyrsta
Morgunblaðið/Ómar
Í skrúðgöngu í vesturbænum.
Hafnarfjörður | Starfsmenn þjón-
ustuvers Hafnarfjarðarbæjar
munu bregða sér af bæ í kynnis-
og fræðsluferð eftir hádegi í dag.
Ekki verður þjónustuverið þó lok-
að, því vösk sveit yfirmanna hjá
Hafnarfjarð-
arbæ mun
leysa þjón-
ustufulltrúa
af hólmi og
verður þar
bæjarstjóri í
broddi fylk-
ingar. Hon-
um til stuðn-
ings verður
lýðræðis- og
jafnréttisfulltrúi, upplýsinga- og
kynningarfulltrúi, sviðstjóri fjöl-
skyldusviðs og bæjarlögmaður.
Þjónustuverið verður einnig op-
ið á sumardaginn fyrsta í tilefni af
ferðaþjónustudegi höfuðborg-
arsvæðisins, en þjónustuverið hef-
ur tekið við hlutverki upplýsinga-
miðstöðvar ferðamanna í
Hafnarfirði. Opið verður kl. 13–16
og verður megináherslan lögð á
ferðaþjónustutengdar upplýs-
ingar. Í tilefni dagsins verður
Krýsuvíkurkortið gefið auk þess
sem hressing verður í boði.
Hátíðardagskrá vegna Sum-
ardagsins fyrsta verður sem svo
segir í Hafnarfirði:
10.30 – Helgistund í kaþólsku
kapellunni.
11.15 – Gengið í skrúðgöngu frá
kaþólsku kapellunni að Hraun-
byrgi.
11:45 – Kaffisala í Hraunbyrgi.
12.00 – Dagskrá Hraunbúa.
13.00 – Víðavangshlaup.
15.00 – Dagskrá lýkur
Stjórnendur
í þjónustuverinu
Fjölskylduskemmtun | Í Kópa-
vogi verða hátíðahöld á sum-
ardaginn fyrsta með hefðbundnu
sniði. Skátamessa verður í Kópa-
vogskirkju klukkan ellefu um
morguninn. Síðan verður skrúð-
ganga frá Digraneskirkju klukkan
13.30, en gengið verður að
íþróttahúsinu í Smáranum, þar
sem skemmtidagskrá fer fram.
Fánaborg skáta og Skóla-
hljómsveit Kópavogs fara fyrir
skrúðgöngunni. Dagskráin er fjöl-
þætt og ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Meðal annars munu Lilli klif-
urmús og Mikki refur koma í
heimsókn, Iðunn Gná Gísladóttir,
sigurvegari Skáta-Ædols, syngur,
Íslandsmeistarar úr Gerplu sýna
listir sínar og verðlaun verða af-
hent vegna merkis Fífunnar.
Reykjavík | Í dag eru síðustu for-
vöð á að skrá sig hjá Vinnumiðlun
ungs fólks fyrir sumarið 2004.
Þeir sem eru fæddir 1987 eða fyrr
og með lögheimili í Reykjavík
geta sótt um hjá Vinnumiðlun
ungs fólks. Í boði eru fjölbreytt
miðlunina og nýtt sér þær tölvur
sem þar eru. Starfsfólk Vinnu-
miðlunar getur einnig aðstoðað
ónetvana umsækjendur. Vinnu-
miðlunin er á fyrstu hæð Hins
hússins, í Pósthússtræti 3–5 og er
opin til kl. 21:00 í kvöld.
sumarstörf hjá stofnunum Reykja-
víkurborgar.
Einungis er hægt að sækja um
á Netinu á heimasíðu Vinnumiðl-
unarinnar, www.vuf.is. Ef um-
sækjendur hafa ekki aðgang að
Netinu geta þeir komið í Vinnu-
Lokadagur Vinnumiðlunar ungs fólks
Laugardalur| Á morgun, sumardag-
inn fyrsta, er skipulögð kvöldganga í
Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal.
Þar verða fyrstu vorblómin skoðuð í
fylgd Dóru Jakobsdóttur grasafræð-
ings, en margar plöntur eru nú þegar
farnar að blómstra.
Flest vorblóm eru lauk- eða hnýð-
isplöntur sem blómgast snemma og
gefa fyrirheit um sól og sumar. Þar
má nefna vetrargosa, vorboða, skóg-
arbláma, stjörnulauf, lyfjurtir og
geitabjöllur, að ótöldum krókusum og
hinum ýmsu afbrigðum þeirra. Ýms-
ar plantnanna koma frá fjallahéruð-
um og köldum svæðum víðs vegar að
úr heiminum og þrífast vel við svip-
aðar aðstæður hér á landi.
Þetta er fyrsta kvöldgangan sem
Garðyrkjufélag Íslands stendur að en
fleiri eru fyrirhugaðar í sumar og
mun verða hægt að fylgjast með þeim
á síðu Grasagarðsins www.gardur-
inn.is. Einnig er þetta fyrsti viðburð-
ur í sumardagskrá Grasagarðsins en
undanfarin ár hefur almenningi verið
boðið upp á dagskrá með fræðslu-
göngum, sýnikennslu, námskeiðum
auk tónleikahalds.
Kvöldgangan hefst í hvíta lystihús-
inu, sunnan við garðskálann og er að-
gangur ókeypis.
Sumarkvöldganga
í Grasagarðinum
Hlíðar | Fyrstu framkvæmdir vegna færslu Hring-
brautarinnar eru hafnar, en hafist var handa við að
rífa húsið við Miklubraut 16 í gær.
Til stendur að hin nýja Hringbraut muni liggja þar
sem húsið stendur nú. Niðurrif hússins er hluti af
undirbúningi færslu Hringbrautar og markar fyrstu
skrefin að nýrri legu götunnar undir Bústaðaveginn.
Borgin hefur keypt húsin við Miklubraut 16 og 18-
20. Húsið við Miklubraut 18-20 verður þó ekki rifið í
þessum áfanga, heldur í síðari áfanga, í tengslum við
endurbætur á Miklubrautinni og gatnamót við
Kringumýrarbraut.
Morgunblaðið/Jim Smart
Rýmt fyrir framkvæmdum