Morgunblaðið - 21.04.2004, Síða 22
DAGLEGT LÍF
22 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skólaárið 2001–2002 tóku að-eins fjórir nemendur áBifröst þátt í nem-endaskiptum og stunduðu
hluta af náminu erlendis. Næsta
skólaár sóttu tæplega 40 nemendur
um að stunda nám við samstarfs-
skóla úti um allan heim. Þetta eru
allt nemendur á þriðja ári, en þeir
einir eiga rétt á að taka þátt í nem-
endaskiptum. Sigrún Hjart-
ardóttir, alþjóðafulltrúi á Bifröst,
segir að viðskiptaháskólinn hafi
gert samninga við skóla í Japan,
Kína, Bandaríkjunum, Kanada,
Finnlandi, Þýskalandi, Hollandi,
Frakklandi, Spáni og Grikklandi.
„Við gerum samninga við skóla
sem kenna á ensku, með þeirri
undantekningu að ekki er kennt á
ensku við háskólann á Spáni. Við
vildum þó hafa hann með í dæminu
því alltaf er eitthvað um að
spænskumælandi nemendur vilji
stunda þar nám. Hér á Bifröst fara
um 70% kennslunnar á 3. ári fram
á ensku sem gefur okkur tækifæri
til að taka við nemendum frá sam-
starfsskólunum. Í vetur hafa verið
hér 17 erlendir nemendur.“
Ánægð með víðsýna nemendur
Sigrún segir að oftast séu nem-
endur erlendis eina önn. Japan er
þó undantekning því þar skiptist
skólaárið öðruvísi og þeir sem fara
þangað eru oftast í eitt ár. Sama er
að segja um nemendur sem koma
frá Japan.
„Fyrir næsta ár hafa borist um-
sóknir í alla skólana sem í boði eru
og ég er ánægð með hvað nemend-
urnir eru víðsýnir. Þeir gera sér
grein fyrir því að með því að
stunda nám úti í heimi eru þeir að
afla sér verðmætrar þekkingar
sem í framtíðinni verður eftirsókn-
arvert að hafa á starfsfer-
ilsskránni,“ segir Sigrún. „Reyndar
höfum við takmörkuð pláss við
þessa skóla en samt hafa þeir verið
sveigjanlegir og leyft okkur að
senda fleiri ef svo ber undir. Við
höfum því getað uppfyllt óskir
allra.“
Núna eru 10 nemendur frá Bif-
röst í Sjanghæ í Kína. Sigrún
fylgdi þeim út í byrjun mars og
hafa þeir verið í stöðugu sambandi
heim. „Þau eru himinlifandi með
allt, bæði aðstöðuna og námið
sjálft. Þessir nemendur verða í
Kína fram í miðjan maí.
Skemmtilegt að dvelja erlendis
Undantekningalaust þykir nem-
endunum skemmtilegt að dvelja
um tíma við erlenda háskóla.
Reyndar höfum við verið ánægð
með að þegar þau lýsa yfir ánægju
sinni með dvölina erlendis bæta
þau alltaf við að allt sé svo gott
hér. Bifröst kemur því vel út úr
samanburðinum.“ Sigrún segir að
umsagnir nemenda um skólana hafi
mikið að segja. Þeir eru duglegir
að hafa samband heim með tölvu-
pósti og einnig skrifa þeir dag-
bækur á netinu. Þetta á líka við um
þá erlendu nemendurna sem
stunda nám á Bifröst.
MENNTUN |Nemendaskipti eru mjög algeng hjá þeim sem eru á þriðja ári við Viðskiptaháskólann á Bifröst
Verðmæt þekking
með námi erlendis
Um helmingur þriðja
árs nema við Viðskipta-
háskólann á Bifröst
stundar hluta af námi
sínu við erlenda há-
skóla. Ásdís Haralds-
dóttir heimsótti Sig-
rúnu Hjartardóttur
alþjóðafulltrúa og
nokkra nemendur sem
hafa reynslu af nem-
endaskiptum.
Morgunblaðið/Ásdís Haralds
Alþjóðafulltrúinn: Sigrún Hjartardóttir. Madoka Hirao hefurstundað nám við Við-
skiptaháskólann á Bifröst frá
því í haust. Góð vinkona henn-
ar úr Háskólanum í Hokkaido
dvaldi hér á síðasta skólaári
og sagði henni mikið frá skól-
anum. „Mig langaði að vera í
skóla þar sem ekki eru margir
Japanar og hefur fundist
mjög gaman að vera á Bifröst.
Þetta er sérstakur skóli að
mörgu leyti. Til dæmis hef ég
ekki áður vanist því að nota
fartölvur svona mikið við
námið. Einnig er skólinn mjög
sérstakur að því leyti að hann
er úti í náttúrunni. Hér er líka
óvenju mikið um fjölskyldufólk og mörg börn sem maður sér úti að leika sér.“
Madoka segist hafa reynt að læra íslensku. „Ég get lesið svolítið en mér
finnst íslenskan erfitt tungumál.“ Þegar hún er spurð í lokin hvers hún eigi
helst eftir að sakna héðan segir hún að það verði að geta ekki fengið sér ís-
lenska pylsu.
Mikil fartölvunotk-
un kom á óvart
MADOKA HIRAO
Japan: Madoka Hirao.
Sebastian Noack fráÞýskalandi las bæk-
urnar um Nonna og Manna
þegar hann var lítill strákur
og vissi heilmikið um Ísland
áður en hann ákvað að koma
hingað. Hann hafði einnig
hitt aðra nemendur úr Há-
skólanum í Lüneborg sem
höfðu verið á Bifröst, en þar
dvelur hann aðeins eina önn.
„Ég hef verið á Englandi og
Spáni og langaði ekki aftur
þangað. Það var því mín
fyrsta ósk, þegar ég ákvað að
taka hluta af náminu við er-
lendan háskóla, að fara til Ís-
lands. Ég hlakkaði til því þeir
sem höfðu verið á Bifröst á undan mér töluðu vel um staðinn.
Mér finnst skólinn vera mjög nútímalegur, ekki síst vegna þess hversu
mikið fartölvur eru notaðar í kennslunni. Í skólanum mínum er þetta ekki
svona og reyndar held ég að best væri að fara einhvers konar milliveg. Ég sé
nemendur oft vera að spjalla á Netinu á meðan á fyrirlestrum stendur.“
Sebastian sagði að honum hefði gengið vel að kynnast fólki í heita pott-
inum og reyndi hann að fara í pottinn flesta daga. Hann fer af landinu í vor og
sagðist eiga eftir að sakna þagnarinnar þegar hann færi.
„Þegar maður hefur alltaf búið í stórborg er mjög sérstakt að upplifa þessa
þögn sem ríkir hér.“
Mun sakna þagn-
arinnar hérna
SEBASTIAN NOACK
Þýskaland: Sebastian Noack.
Jón Svan Sverrisson eyðir þriðja námsári sínu við Við-skiptaháskólann á Bifröst í Japan. Hann fór þangað í
haust en var nýlega í fríi hér heima. „Félagi minn manaði
mig eiginlega til að fara til Japans og ég sló til,“ sagði
hann. Jón Svan er í Háskólanum í Hokkaido og líkar
mjög vel. „Þetta er mikil upplifun en ég held að það sé
sama hvað þú talar við marga sem hafa verið þarna, það
er í raun ekkert sem getur búið þig undir að koma í
svona ólíka menningu. Breytingin var mun meiri en ég
bjóst við. En stærsti kostur við það að dvelja í Japan er
að maður kynnist öðrum áherslum í náminu og ég er
sannfærður um að það verður gott að hafa kynnst þess-
um sérstöku viðskiptaháttum sem eru við lýði þar í landi.
Þar á ég sérstaklega við hversu öll þjónusta er persónu-
leg. Ef maður kemur inn í verslun kemur afgreiðslumað-
ur og hneigir sig fyrir þér. Síðan einbeitir hann sér al-
gerlega að þér og maður upplifir sig eins og eina
viðskiptavininn í versluninni. Þessi þjónustulund er líka
innan háskólans. Þegar ég kom úthlutaði skólinn mér
nemanda sem hjálpaði mér að aðlagast og sækja um alla
þjónustu sem maður þarf á að halda, svo sem banka-
reikning, síma og fleira. Þennan nemanda get ég hringt í
hvenær sem er og hann hjálpar mér meira að segja að
læra. Þetta er manni að kostnaðarlausu og erlendu nem-
endurnir ráða hvort þeir þiggja þessa þjónustu og
hversu mikla. Öll fög eru kennd á ensku í þessum skóla
nema japanskan.“
Jón Svan segir að sér gangi sæmilega að læra jap-
önsku, hljóðin séu ekki svo erfið, en hann segir að sig
vanti orðaforða.
„Félagslífið er gott. Aðallega vegna þess að þarna er
góður hópur frekar en að fólk fari mikið út á lífið, enda
þykir mörgum erlendum nemendum verðlagið hátt,“
sagði Jón Svan.
Í raun ekkert sem býr mann
undir svona ólíka menningu
JÓN SVAN SVERRISSON
Ísland: Jón Svan Sverrisson.
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Mjög vel staðsett 6 herbergja sérhæð, um 160 fm, auk bílskúrs.
Íbúðin er á neðri hæð í tvíbýlishúsi rétt við Sjómannaskólann og
er næst innsta hús í rólegri botnlangagötu. Eignin er mjög vel
umgengin og í góðu ásigkomulagi. Fallegur garður og hitalagnir í
stéttum. Laus 1. ágúst 2004. Verð 24,5 millj. 6163
SKIPTU VIÐ FAGMENN – ÞAÐ BORGAR SIG!
SÉRHÆÐ VIÐ VATNSHOLT