Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 45
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 45
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert stundvís og nákvæm/
ur og leggur mikið upp úr
því að gera hlutina vel.
Leggðu hart að þér á þessu
ári því þú munt uppskera á
því næsta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur til óvenjumikillar
hlýju í garð fólksins í kring-
um þig í dag. Þetta má rekja
til sérstakra áhrifa frá
Neptúnusi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur unun af fallegum
hlutum og í dag langar þig til
að kaupa þér eitthvað fallegt.
Þér er sem betur fer gefið að
leggja raunhæft mat á gildi
fegurðarinnar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú lætur þig dreyma glæsta
framtíðardrauma. Ferðalög
til fjarlægra landa höfða sér-
staklega til þín þessa dagana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú finnur til samkenndar
með þeim sem minna mega
sín í dag. Leitaðu tækifæra til
að láta gott af þér leiða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinur þinn er tilbúinn að að-
stoða þig í dag. Þú gætir
einnig komið vini þínum til
hjálpar. Á hvorn veginn sem
það er þá muntu sjá sanna
vináttu í verki.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert tilbúin/n að hjálpa
vinnufélaga þínum í dag. Þú
sért að árangur hans/hennar
mun koma sér vel fyrir heild-
ina enda getur keðjan aldrei
orðið sterkari en veikasti
hlekkurinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það sækja á þig dagdraumar
í dag. Á sama tíma er sköp-
unarhæfni þín með besta
móti. Reyndu að nýta þér
þetta sem best.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fólk er óvenju örlátt og gef-
andi í dag. Þú gætir því feng-
ið gjöf eða einhvers konar
fyrirgreiðslu í dag. Láttu
ekki stoltið aftra þér frá því
að þiggja góða gjöf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður dagur til að
leysa gömul deilumál. Fólk er
óvenju sveigjanlegt og tilbúið
að mætast á miðri leið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert óvenju listræn/n í dag
og gæðir verkefni dagsins
listrænum blæ. Mundu að oft
felst fegurðin í smáatrið-
unum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir upplifað ást við
fyrstu sýn í dag. Ástin liggur
í loftinu og því er mikið um
daður þó það sé auðvitað mis-
mikil alvara á bak við það.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki vanmeta mikilvægi fjöl-
skyldunnar og ekki láta tæki-
færi til að hjálpa einhverjum í
fjölskyldunni framhjá þér
fara.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SOGIÐ
Við Sogið sat ég í vindi,
sækaldri norðanátt,
og þótti þurrleg seta.
Þar var af lifandi fátt.
En sólin reis in sæla,
sveipaði skýjum frá.
Upp komu allar skepnur
að una lífinu þá.
Og svo er margt af mýi,
– mökk fyrir sólu ber –
að Þórður sortnaði sjálfur
og sópaði framan úr sér.
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21.
apríl, er sjötugur Torben
Friðriksson, fyrrverandi
ríkisbókari. Hann er að
heiman á afmælisdaginn og
fagnar afmælinu með fjöl-
skyldu og vinum á Hotel
Admiral í Kaupmannahöfn
föstudagskvöldið 23. apríl.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21.
apríl, er sjötugur Héðinn
Skarphéðinsson húsa-
smíðameistari, Langholti 2,
Reykjanesbæ. Kona hans er
Bergþóra G. Bergsteins-
dóttir. Þau dvelja um þessar
mundir á Spáni.
VIÐFANGSEFNI dagsins
er að spila sex tígla í suður.
Við fyrstu skoðun fær maður
á tilfinninguna að hægt sé að
finna skothelda vinningsleið,
en það er erfitt að höndla þá
leið – hún rennur manni úr
greipum eins og sápa á
sunnudagsmorgni.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ÁG9654
♥K3
♦53
♣954
Suður
♠K3
♥Á
♦ÁKDG108
♣ÁG107
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 lauf *
Pass 2 spaðar Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
hjartagosa. Hvernig á að
spila?
Spaðinn og laufið – allt
snýst um að samnýta þá
möguleika sem svörtu litirnir
bjóða upp á. Á einhverjum
tímapunkti er sennilega rétt
að toppa spaðann og treysta
á laufið ef spaðadrottningin
kemur ekki. Fyrst er þó allt-
af rétt að taka trompin (sem
liggja 3–2). En svo er að
mörgu að hyggja.
Til að byrja með skulum
við slá niður þann möguleika
að spila laufgosa að heiman
áður en spaðinn er prófaður.
Ef austur drepur og spilar
aftur laufi, verður að taka
með ás og þá nýtist laufið
ekki í framhaldinu, því sam-
gangur fyrir þvingun er eng-
inn.
Annar kostur og betri er
að toppa spaðann, henda
laufi í hjartakóng og spilar
laufi á gosa. Þá vinnst
slemman ef austur á KD í
laufi eða háspil annað.
Norður
♠ÁG9654
♥K3
♦53
♣954
Vestur Austur
♠87 ♠D102
♥G108762 ♥D954
♦972 ♦64
♣D8 ♣K632
Suður
♠K3
♥Á
♦ÁKDG108
♣ÁG107
Sem dugir ekki í þessari
legu. En þriðja leiðin er
sennilega sú besta: Hún felst
í því að taka þrisvar tromp,
spila kóng og ás í spaða og
síðan litlu laufi á gosa. Skilja
sem sagt hjartakóng eftir í
blindum. Hér lendir austur
inni og gerir best í því að
spila laufáttu um hæl. Sagn-
hafi stingur upp níu blinds og
vinnur sitt spil, hvað sem
austur gerir.
Tilgangurinn með því að
skilja hjartakónginn eftir er
að neyða vestur til að spila
laufi (eða hjarta og gefa inn-
komu) ef hann á ekki spaða-
drottningu. Þetta er auðvitað
ekki örugg leið, en vafalítið
sú besta.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 e5 5. Rb5 d6
6. a4 Rf6 7. R1c3 h6 8. Bc4
a6 9. Ra3 Be7 10. 0-0 0-0
11. He1 Rb4 12. Bb3 Bd7
13. Rc4 Be6 14. Be3 Rd7
15. He2 Dc7 16. Rxd6 Bxd6
17. Bxe6 fxe6 18. Hd2 Rf6
19. Hxd6 Rxc2 20.
Bb6 De7 21. Hc1
Rd4 22. Bc5 Dc7 23.
Ba3 Hf7 24. b3 Db8
25. Hb6 Hd7 26.
De1 Dd8 27. Bc5
Hc8 28. b4 a5 29.
Rb5
Staðan kom upp í
frönsku deilda-
keppninni sem lauk
fyrir skömmu. Alm-
ira Skripchenko
(2.456) hafði svart
gegn Delphine Gras
(1.917). 29. – Dxb6!
30. Rxd4 svartur
hefði einnig unnið eftir 30.
Bxb6 Hxc1 31. Dxc1 Re2+.
30. – Dd8 31. Rxe6 De8 32.
Rf8 Hdc7 og hvítur gafst
upp. Til að auka veg
kvennaskákar er hvert liði í
frönsku deildakeppninni
skyldað til að hafa eina
konu í sínu liði. Sama fyr-
irkomulag er á Englandi og
mættu eyjaskeggjar hér á
landi gaumgæfa þessa hug-
mynd.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Færðu þig aðeins meira til vinstri!
Sveit Sparisjóðsins vann
sveitakeppnina hjá Munin
Aðalsveitakeppni félagsins er ný-
lokið með sigri sveitar Sparisjóðsins
í Keflavík. Að þessu sinni var mesta
baráttan um þriðja sætið en sveitir
Gunnars Guðbjörnssonar og Jó-
hanns Benediktssonar bitust um það
sæti. Sveitirnar mættust í lokaum-
ferðinni og þurfti sveit Gunnars að
vinna 24-6 en það gekk eftir og loka-
staðan varð þessi:
Sparisjóðurinn í Keflavík 107
Úlfar og félagar 94
Gunnar Guðbjörnsson 75
Jóhann Benediktsson 75
Sveit Úlfars Kristinssonar fór
lögulega í gegnum mótið og tapaði
engum leik en með Úlfari spiluðu
Vignir Sigursveinsson, Þorgeir Ver
Halldórsson og Garðar Þór Garðars-
son.
Hafinn er þriggja kvölda Lands-
bankatvímenningur og er staðan
þessi eftir fyrsta kvöldið:
Arnór Ragnarsson – Guðjón Jensen 136
Randver Ragnarss. – Gunnar Guðbjss. 117
Þorgeir Halldórss. – Garðar Garðarss. 116
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði Glæsibæ mánud. 29. mars sl.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Oliver Kristóf. – Sæmundur Björnss. 268
Geir Guðmundss. – Ægir Ferdinandss. 266
Hannes Ingibergsson – Sigurður Pálss. 263
Árangur A-V:
Oddur Halldórsson – Lilja Kristjánsd. 247
Magnús Oddsson – Ragnar Björnsson 238
Alda Hansen – Jón Lárusson 231
Tvímenningskeppni var spiluð
fimmtud. 1. apríl. Spilað var á 10
borðum.
Árangur N-S:
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 255
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 252
Oliver Kristóf. – Sæmundur Björnss. 248
Árangur A-V:
Björn E. Péturss. – Friðrik Hermannss. 258
Guðbjörn Axelsson – Gunnar Jónsson 251
Elín Jónsdóttir – Jón Hallgrímsson 245
Tvímenningur í
Síðumúla 7 í kvöld
Monrad barómeter með ferða-
vinningum miðvikudaginn 21. apríl
klukkan 19.30. Spilastaður er Ármúli
7, bakhús. María og Harpa Fold
sigruðu síðast. Hver fær næstu ferð?
Nánari upplýsingar í síma 551
0009.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 15 borðum mánu-
daginn 19. apríl. Meðalskor 264. Efst
voru:
Steindór Árnason – Tómas Sigurðsson 315
Þórhallur Árnas. – Stefán Friðbjarnar 307
Karl Gunnarsson – Ernst Backman 307
Jóna Kristinsd – Sveinn Jensson 293
AV
Kristinn Guðm. – Guðmundur Magnúss 312
Sigurpáll Árnason – Sigurður Gunnl. 303
Elís Kristjánsson – Ruth Pálsdóttir 301
Valdimar Lárusson – Einar Elíasson 293
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Frummælendur:
Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður.
Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor.
Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, laganemi.
Fundarstjóri: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
námssálfræðingur.
Vörður-fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Allir velkomnir!
Jafnrétti í fókus -
markmið, leiðir, árangur
Umræðufundur Varðar
miðvikudaginn 21. apríl
kl. 17.00 í Valhöll
Árlegur vordansleikur
Harmonikufélags Rangæinga
verður í Kanslaranum Hellu
síðasta vetrardag kl. 22-02
Gestaspilarar verða Suðurnesjamenn.
Aldurstakmark 18 ár.