Pressan - 15.06.1989, Blaðsíða 21

Pressan - 15.06.1989, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 15. júní 1989 21 Þessir bílar eru tilvalin lausn á flutningaþörf flestra fyrirtækja og einstaklinga. MAZDA „E“ bílarnir hafa undanfarin ár verið vinsælustu bílar sinnar gerðar hérlendis. Þeir eru sérlega rúmgóðir, þýðir og léttir í akstri og fást nú í 3 mismunandi gerðum: Lokaðir sendibílar, sendibílar með gluggum og sætum fyrir 6 manns og pallbílar með sætum fyrir 3. Hægt er að velja milli bensín- eða dieselvéla, sendibílarnir eru nú allir með vökvastýri og fást einnig með aldrifi. Við eigum nú til afgreiðslu strax nokkra af þessum frábæru bílum á mjög hagstæðu verði, eóa frá kr. 846.000 Hafið samband vió sölumenn okkar, sem veita fúslega allar nánari upplýsingar. |^Ú HÖLDUM VID í SUÐUR Nú höldum við í suður 1. Lagt af stað frá B.S.Í. kl. 9.30. 2. Kratar í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði bætast í hópinn. 3. Helstu áfangastaðir: Kleifarvatn, Krísuvík, Herdís- arvík, þarmun Gunnar Eyjólfsson leikari segjaokk- ur frá skáldinu Einari Benediktssyni og flytja Ijóð (slóðir Einars Benediktssonar), Strandarkirkja, nesti snætt í Selvoginum, Fiskeldisstöö í Þorláks- höfn, Eyrarbakki (sjóminjasafn, álpönnuverk- smiðja), rjúmabúið á Baugsstöðum, Stokkseyri (fjöruferð), Hveragerði (Garðyrkjuskóli ríkisins, sund ef gott veður verður). 4. Skíðaskálinn i Hveradölum tók frábærlega á móti okkur í síðustu ferð og er tilbúinn að gera það aftur. Þar verðurærleg grillveisla með öllu tilheyrandi og haldið uppi stanslausu fjöri til kl. 22.30. 5. Komið í bæinn um það bil kl. 23.00. Miðaverð er kr. 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir börn (matur í skíðaskálanum innifalinn). Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Alþýöuflokksins í síma 29244. Alþýðuflokkurinn

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.