Pressan - 29.06.1989, Page 6

Pressan - 29.06.1989, Page 6
6 Fimmtudagur 29. júní 1989 Djarfleg framganga I>að þarl' ekki að ræða lengi við Sigmund Guðbjarnason til að sannfærast um að hann gerir sér einnig fulla grein fyrir mikilvægi þessa þáttar í háskólastarfi. Reynd- ar hefur hann sjálfur getið sér rnjög gott orð fyrir vísindastörf i sinni grein, m.a. þegar hann dvaldist vestur í Bandaríkjunum á árunum 1961—70 ogeltir þaðsem prófessor i efnaverkfræði við Háskóla ís- lands. í viðkynningu kemur strax í ljós að Sigmundur er léltur í skapi, hlýr í viðmóti og víðsýnni í skoðun- um en búast mætti við um svo ann- álaðan tæknikrata. Honum er þvert um geð að einblína á háskólann sem einangrað fyrirbæri, lieldur leggur áherslu á að hann sé óað- skiljanlegur hlnti þjóðfélagsins. Mörgum hefur koniið á óvart hversu djarflega Sigmundur hefur tekið til orða um ýmis viðkvæm mál. Ákveðinni framgöngu hans í lektorsmálinti svokallaða í fyrra- sumar var viðbrugðið þar sem hann fylgdi fast eftir sjónarmiði háskóla- manna gegn stel'nu þáverandi menntamálaráðherra, Birgis ísleifs Gunnarssonar. Við brautskráningu kandídata í haust tók hann ein- dregna afstöðu í hvalamálinu og olli miklu fjaðrafoki. „Hvalveið- arnarskaða hagsmuni íslendinga," sagði hann þá og var víst þar með ekki i neinum meirihluta á meðal þjóðarinnar. í sömu ræðu bað hann samstarfsmenn sina í háskólanum að vera á verði gagnvart fjölmiðla- mönnum, sent að sönnu ynnu þarft starf, margir hverjir, en hætti þó til að herma rangt eftir, misskilja og fella út það sem viðmælandinn hefði kannski einmitt viljað koma að. Hér mælti brennt barn, því sjálfur varð Sigmundur fyrir óþæg- indum í lektorsmálinu þegar klippt- ur var út mikilvægur bútur úr við- tali sem sjónvarpið átti við hann, þannig að honum fannst útkoman verða þveröfug við það sem hann hafði í rauninni ætlað að segja. í brautskráningarræðu sinni á laugardaginn var vék Sigmundur enn að umdeildum málum: Hann rifjaði upp lektorsmálið, minntist á kjaradeilu BHMR og ríkisins og lýsti því í lokin yfir að sig undraði ekki andstaða margra gegn því að Fossvogsdalur yrði lagður undir hraðbraut. Lektorsmálið „bað á að vera grundvallarregla að vali manna í stöður kennara við Háskóla íslands ráði ekki önnur sjónarmið en l'agleg hæfni,“ segir Sigmundur þegar ég rabba við hann í skrifstofu rcktors i aðalbyggingu háskólans. „Þetta er gamalt bar- áttumál háskólans. Lektorsmálið er eitt dæmi um átök sem verða þegar andstæð sjónarmið rekast á, annars vegar fagleg og hins vegar pólitísk. Lagabreytingarnar, sem Alþingi hefur samþykkt, ættu að geta kom- ið í veg fy'rir slíkt í framtíðinni. Störf dómnefnda verða skilgreind upp á nýtt. Eftir breytingarnar velja háskóladeildirnar sjálfar hæfustu mennina úr hópi umsækjenda að fengnu hæfnismati dómnefndar. Lað er því raunverulega Háskóli íslands sem sjálfstæð stofnun sem velur kennarana. Þessi árangur náðist fyrir tilstuðlan margra manna. Þar er ekki síst að nefna Svavar Gestsson menntamálaráð- herra, sem sýndi þakkarverða fram- takssemi og skilning á kröfum há- skólans um aukið sjálfstæði." Það helsta sem lagabreytingin felur í sér er að ekki verður lengur hægt að veita stöður kennara í há- skólanum nema meirihluti deildar- l'undar mæli með umsækjanda. Menntamálaráðherra hefur neitun- arvald en beiti hann þvi verður að auglýsa stöðuna upp á nýtt. En þar sem ábyrgð háskólans hefur þannig verið aukin á kostnað ráðherra er þá ekki hætta á því að í þröngu há- skólasamfélaginu fari klíkuskapur að ráða stöðuveitingum þar sem aldrei fyrr? „Slík hætta er vissttlega fyrir hendi og ásakanir í þá veru koma l'ram af og til. I litlu samfélagi vakna iðulega efasemdir unt það hvernig staðið er að ráðstöfun á ein- stökum stöðum. En með skýrari vinnureglum og vandaðri málsmeð- ferð verður sú hætta minni," segir Sigmundur. í ræðunni á laugardaginn talaði Sigmundur um verkfall BHMR- manna og réttlætti þá ákvörðun há- skólakennara að taka ekki þátt í þvi heldur semja sjálfir um eigin kjör. „Það er mikilvægt fyrir háskólann sem sjált'stæða stofnun að leita nýrra leiða til að leysa kjaramálin. Erfiðleikarnir við verkfallsvopnið eru þeir að því er í rauninni ekki beitt gegn þeim sem verið er að semja við,“ segir Sigmundur. Hann dregur þó enga dul á að léleg launa- kjör háskólakennara og fjársvelti stofnunarinnar liafi óheillavænleg áhrifsem áendanum muni koma ís- lenska þjóðfélaginu í koll verði ekki að gerl. Annað áhyggjuefni Sigmundar er umráðaréttur háskólans yfir sjálfsaflafé sinu. Flestum fyndist víst að sá réttur ætti að vera ótví- ræður en engum þarf' þó að bregða þótt ásælni fjármálaráðuneytisins í þetta fé sé orðin meiri en góðu hófi gegnir. Sigmundur segir að það skipti höfuðmáli að stjórnvöld l'ari ekki að seilast í þetta lé og því verði ekki ráðstal'að nema í þágu upp- byggingar á aðstöðu háskólans og nýbygginga fyrir starfsemi hans. Skorinorð framganga háskóla- rektors leiðir hugann að því hvert sé valdsvið þessa embættis. Hefur rektor völd eða áhrif utan Háskóla íslands? „Það er misjafnt hversu rektorar hafa verið fúsir til að taka þátt í þeirri umræðu sem fer f'ram í þjóð- félaginu. Starf rektors lýtur l'yrst og fremst að málefnum háskólans sjálfs. En mér finnst ekki að neinn eigi að einangra sig frá því sem er á seyði utan hans nánasta umhverfis. Og við brautskráningu get ég ekki verið að hvetja kandídata til þess að leggjast á eitt um að stuðla að breyttu og bættu samfélagi án þess að setja fram neinar tillögur sjálfur. Og háskólinn á að stefna að því að bæta lífið í landinu Menntamálaráð- herra Háskólinn hefur mikil áhrif úti í þjóðfélaginu,“ bætir Sigmundur við. „Það væru mikil vonbrigði ef stofnunin gerði það ekki með mennta- og f'ræðistarfi sínu. Margt ber. að sjálfsögðu ekki sýnilegan árangur fyrr en ef'tir langan tíma. Það er eðli háskóla að starfa sam- kvænrt langtímamarkmiðum en glíma ekki við vandamál dagsins í dag; það er verkel'ni ánnarra stofn- ana.“ Hvernig þykir Sigmundi sér hafa gengið í samstarfi við fulltrúa stjórnvalda, t.d. ýmsa ráðherra menntamála? „Ég hef átt gott samstarf við alla menntamálaráðherra sem hafa set- ið síðan ég tók við rektorsstarfi fyr- ir fjórum árum, þau Ragnhildi Helgadóttur og Sverri Hermanns- son; og Birgi ísleif Gunnarsson í öllum málum nema þessu eina rnáli, Iektorsmálinu; þar var um málefna- legan ágreining að ræða.“ Um Sigmund segir Birgir ísleifur Gunnarsson: „Sigmundur er mjög góður fulltrúi háskólans og hefur reynt að gera veg hans sem mestan. Hann er í rauninni glæsilegur mál- svari Háskóla íslands. Við lentum í deilu um ákveðna stöðuveitingu en þrátt fyrir að hún væri hörð á yfir- borðinu tókst okkur Sigmundi þó alltaf að komast hjá þvi að deilan yrði persónuleg. Til marks um það hversu málefnalega hér var deilt er aö það bar engan skugga á önnur samskipti okkar á meðan verið var útkljá þetta mál.“ Birgir ísleifur segir að hann hafi alltaf haft fullan skilning á því að rektor beitti sér fyrir sannfæringarmálum sínum; það sé liður i þeirri viðleitni að tengja háskólann við umræðu um málefni líðandi stundar. Sjálfur vill Sigmundur ekki gera mikið úr þvi að hann hal'i orðið var við tilraunir til beinnar valdníðslu af hálfu neins ráðherra. „En það geta alltaf skotið upp kollinum ágreiningsmál eins og þetta marg- umrædda tilvik, sem varð svo til þess að lögunum var breytt." Er embætti rektors valdapóstur í þjóðfélaginu? „Það hefur í raun- inni alltaf verið áhrifamikið emb- ætti,“ segir Sigmundur. „Margir rektorar hafa beitt sér af krafti og það má segja að þess sé vænst að menn geri það í þessu embætti. Dæmi um áhrifamikinn rektor er Alexander Jóhannesson, sem hafði brennandi áhuga á þjóðfélagsmál- um og var frumkvöðull í uppbygg- ingu flugmála hér á landi auk þess sem hann vann háskólanum ómet- anlegt gagn.“ Sem fyrr segir eru ekki allir á einu máli um hvert eigi að vera hlutverk háskóla í samfélaginu. í heimspeki- deild, á meðal raunvísindamanna, t.d. jarðfræðinga, og innan laga- og viðskiptafræðideilda eru uppi efa- semdir um gildi þess að tengja há- skólann sem mest við atvinnuvegi landsmanna. Menn benda á að aðr- ir þættir skipti ekki minna máli, svo sem menntun kennara í íslensku og stærðfræði, sem að vísu sé ekki beinlínis hægt að flokka undir hag- nýta hluti en engu að síður nauð- synlega. Þá verði háskóli sem á að rísa undir nafni að geta skapað mönnúm aðstöðu til að stunda fræðilegar rannsóknir á sínum sviðum. Á móti Fossvogsbraut „Það er einkenni á háskóla að þar mega menn vera ósammála og rektorsstarfið krefst þess að ég er oft á öndverðum meiði við nána samstarfsmenn mina og vini,“ segir Sigmundur. Enda er það engan veg- inn svo að í Háskóla íslands séu allir menn fortakslaust jábrteður Sig- mundar Guðbjarnasonar. „Stund- um gætir þess fullmikið að Sig- mundur sé óþarflega bráðlátur,“ segir gagnrýninn lagaprófessor. „Hann er þess einatt óðfús að hefj- ast handa áður en málin hafa fengið nægilega góða umfjöllun. Núna hefur hann t.d. verið að beita sér fyrir breytingum á yfirstjórn Há- skóla íslands en ýmsar deildir hafa eindregið óskað eftir því að þeim verði frestað um sinn. Það er ein- kenni á Sigmundi að liann fylgir því fast eftir að koma ákveðnum mál- unt í gegn.“ Stefáii Ólafsson, dósent í félags- vísindadeild, er í hópi þeirra sem eru á öndverðum meiði við lagapró- fessorinn nafnlausa. „Það er höf- uðkostur á Sigmundi hvað hann er framtakssamur sem rektor, sem er það eina hlutverk sem ég þekki hann í,“ segir Stefán. „Eftir að hann settist á rektorsstól gerbreytt- ist andinn í háskólanum. Áður var eins og rikti einhver lognmolla, óánægja og vonleysi en með Sig- mundi lyftist allt upp og það fóru að blása ferskir vindar. Sigmundur hefur lagt áherslu á að menn birti skýrslur um það sem þeir eru að starfa að og komist ekki upp með það að láta lítið í sér heyra, eins og áður fyrr vildi brenna við.“ Stefán segist virða Sigmund fyrir að vera djarfur að koma fram með nýjung- ar og eins fyrir að vera óhræddur við að segja skoðanir sína opinber- lega þótt sjálfur sé hann þeim ekki alltaf sammála. „Menn verða meiri af því að hafa skoðanir," segir Stef- án Ólafsson. Eitt af þeim málum sem Sig- mundur Guðbjarnason háskóla- rektor hefur skoðun á er hvort leggja eigi hraðbraut um Fossvogs- dál eða ekki. Hann er eindregið á móti þessari fyrirhuguðu fram- kvæmd, eins og hann drap á í braut- skráningarræðunni á laugardaginn. Er þessi umhyggja hans fyrir því að Fossvogsdalur verði friðland kannski sprottin af því að hann býr sjálfur þarna við dalinn, Kópavogs- megin, ásamt konu sinni, Margréti Þorvaldsdóttur? „Reyndar hef ég notið þess á veturna,“ segir hann, „að fara þarna á gönguskiðum; og á sumrin er yndislegt að fara í gönguferðir á þessum skjólsælasta stað i höfuðborginni. Mér fyndist það ætti að breyta Fossvogsdalnum í gróðurvin, svona smækkaða út- gáfu af Enska garðinum í Múnc- hen.“ Sem við Sigmundur þekkjum mætavel báðir. „Þó sé ég friðun dalsins í stærra samhengi," bætir Sigmundur við. „Loftið í Reykjavík mengast meir frá ári til árs og það veitir ekki af því að rækta eins mik- inn gróður og unnt er í vörn gegn þessari ásókn. Þetta hefur verið gert hérna í kringum háskólann og meira stendur til. En það þarf að gerast viðar en bara hér.“

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.