Pressan - 29.06.1989, Side 7

Pressan - 29.06.1989, Side 7
Fimmtudagur 29. júní 1989 7 PRESSU Bslenskur áhugaleikhópur leggur land undir fót síðari hluta júlimán- aðar. Það er Leiksmiðjan ísland sem þá heldur á alþjóðlega leiklist- arhátíð áhugahópa í Japan. Þar í landi mun hópurinn sýna verkið Þessi... þessi maður, en verkið var frumsýnt hér á landi vorið 1988 og vakti þá nokkra athygli. Verkið er samið af leikhópnum í samvinnu við leikstjórann, Kára Halldór. Þessi alþjóðlega leiklistarhátíð fer fram í borginni Toyama og er stór í sniðum, alls sýna þarna 26 leikfélög frá 25 löndum, og eftir þeim upp- lýsingum sem íslensku þátttakend- urnir hafa aflað sér er borgin öll undirlögð þegar hátíðin fer fram. Verkið er reyndar flutt að hluta tii af segulbandi og hefur leikhópurinn ákveðið að sá hluti verði fluttur á japönsku en meginhluti verksins verður hinsvegar fluttur á islensku og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt verk er flutt í Japan, og að sjálf- sögðu fyrsta sinn sem leikið er þar á rslensku. Þess niá og geta að Léík- smiðjan ísland hefur fengið styrki til ferðarinnar frá menntamála- ráðuneyti og einnig sjávarútvegs- ráðuneyti, sent greinilega telur sér hag í kynningu á íslenskri menn- ingu í Japan... íeðal krata gætir tals- verðrar óánægju með Jón Baldvin þessa dagana. Ástáeðan er sú að hann þykir ganga helst til langt i að verja gjörðir Olafs Ragnars Gríms- sonar i skattabaráttu hans. Þykir þeim það ekki til ávinnings fyrir flokkinn að Jón Baldvin skuli birt- ast eins og blaðafulltrúi fjármála- ráðherra í fjölmiðlum. Aðrir benda þó á að Jón Baldvin hafi lagt grunninn að kerfisbreytingum í skattkerfinu í fjármálaráðherratíð sinni og í raun aldrei getað sætt sig fyllilega við að þurfa að hverfa frá því verki við síðustu stjórnar- myndun... ft er talað um að ýmsir hæfi- leikar gangi í ættir og algengt er að börn feti í fótspor foreldra sinna eða systkini velji sér sömu hluti til lífsviðurværis. Ungur maður vakti um árið mikla athygli er hann lék í auglýsingu fyrir Iðnaðarbankann og þótti þar Iíkjast bróður sínum sem löngum hefur skemmt landan- um, og reyndar fleirum, með leik, söng og danskúnstum. Þessi ungi maður heitir Hinrik Ólafsson og mun vera bróðir stuðmannsins geð- þekka Egils Ólafssonar. Hinrik lék einnig lítið hlutverk í „Sildin kem- ur, síldin fer“, og hefur ekki hugsað ?ér að segja skllið við leiklistina að sinni, því hann mun hefja nám við Leiklistarskóla íslands i haust... I Fjárlaga- og hagsýslustofnun er sögð hafa átt sér stað nokkur fækk- un starfsmanna að undanförnu. Stofnunin, sem heyrir undir fjár- málaráðuneytið, á m.a. að gera til- lögur unr almennar umbætur í ríkisrekstri ög annast undirbúning fjárlagagerðar og því þykir nokkuð kyndugt að fækka þar starfsmönn- um á sama tima og átak til að bæta ríkisreksturinn og ná niður t'yrirsjá- anlegunr fjárlagahalla stendur yl'ir. Nema þá að starfsmenn þar hal'i tekið hagræðingarhlutverk sitt svo alvarlega að þeir hafi bvrjað á sjálf- unr sér... ^5agt er að talsvert sé um upp- sagnir áskriftar að Sföð 2 þessa dagana og að þær séu öllu meiri en búist var við yfir sumarmánuðina. Hafa menn þó komið auga á að áskriftaruppsagnirnar virðast ein- skorðast við höfuðborgarsvæðiöen úti á landsbyggðinni uni áhorfend- ur stöðvarinnar sælir og glaðir við sitt og greiði áskriftargjöldin á tíma. Á þessu kunna menn hins vegar engar skýringar... I vikunni tók nýr maður við starfi skólastjóra Bankaskólans. Sá sem hlaut stöðuna heitir Páll Helgi Hannesson og er menntaður félags- fræðingur. Páll hefur getið sér gott orð í blaðamennsku á undanförn- um árum. Var á Helgarpóslinum sáluga og nú síðast blaðamaður á Þjóóviljanum... Athugasemd Vegna fréttar í Pressunni 15. júni sl., sem virðist byggð á mis- skilningi, en þar segir m.a. að Tónlistarbandalag íslands hafi fest kaup á I. og 2. hæð á Vitastíg ?(þarsém Félagsheimili tónlistar- manna hefur aðsetur) með það í huga að konta upp tónlistarbar og veitingastað, er rétt að fram komi að Tónlistarbandalag íslands á hlut í Félagsheimili tónlistar- manna á 3. hæð en tengist ekki á neinn hátt fyrirhugaðri starfsemi á 1. og 2. hæð. Með þökk fyrir birtjnyuna Tónlistarbandalag Íslands. ÚTSALAN hefst á morgun 40%afsláttur ECflY Laugavegi 45 sími 621950 Veitum 10% aukaafslátt af öllum vörum okkar í dag, föstucfag og laugardag. KJÖTSTÖÐIN, Glæsibæ sími 685168

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.