Pressan - 18.07.1991, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. JÚLÍ 1991
IBNUÍNASJÖBUR
SAMÞYKKTI
ABLENGJAUÍN
OSSIÍT Á FAISKA
HLIIIAFJÁRAUKNIIIIG
Viðskiptaráduneytið hefur nú óskað eftir gögnum frá
Ósi hf.-húseiningum vegna tilkynningar um 70 milljóna
króna hlutafjáraukningu sem Olafur S. Björnsson, eig-
andi fyrirtækisins, sendi til hlutafélagaskrár í janúar síð-
astliðnum. Ástæðan er að í ljós kom að þótt tilkynningin
hefði verið send inn til hlutafélagaskrár og gefið út vott-
orð um hana kom síðar í ljós að hlutaféð var aldrei greitt.
Eftir að forsvarsmenn Óss hf. fengu vottorðið um hluta-
fjáraukninguna í hendur samþykkti stærsti lánardrottinn
jieirra, Iðnlánasjóður, mikil skuldbreytingarlán til fyrir-
tækisins, en sjóðurinn hafði sett það sem skilyrði fyrir
slíkum lánum að hlutaféð yrði aukið. Stjórnendur sjóðs-
ins virðast síðan hafa samþykkt þessa skuldbreytingu á
grunni falska vottorðsins um hlutafjáraukningu.
Mál þetta var tekið til meðferðar
hjá viðskiptaráðuneytinu á þriðju-
dag, en hlutafélagaskrá er í raun
deild í ráðuneytinu. Að sögn Jóns
Ogmundar Þormóössonar skrif-
stofustjóra mun ráðuneytið óska eft-
ir öllum gögnum, bæði þeim er
varða tilkynninguna frá því í janúar
og eins nýrri tilkynningu sem barst
til hlutafélagaskrár í upphafi þessa
mánaðar. í henni kemur fram að
hlutafélagið Háteigur, eign systur
Ólafs S. Björnssonar og barna hans,
greiddi inn 27 milljónir af 70 millj-
óna króna hlutafjáraukningunni.
Ráðuneytið virðist því telja
ástæðu til að kanna réttmæti nýju
tilkynningarinnar og hvernig Há-
teigur hf. stóð að greiðslu á þessum
27 milljónum.
IÐNLÁNASJÓÐUR SETTI
HLUTAFJÁRAUKNINGU SEM
SKILYRÐI
Eins og fram hefur komið í PRESS-
UNNI skipti Ós hf. um nafn í nóv-
ember árið 1989. Þá tók fyrirtækið
Ós hf.-húseiningar við rekstri
steypustöðvar Byggingarfélagsins
Óss og megninu af eignum félags-
ins. Um 200 milljónir af lausaskuld-
um urðu hins vegar eftir hjá gamla
fyrirtækinu, sem fór síðan í gjald-
þrot í upphafi þessa árs. Bæði fyrir-
tækin voru eign sömu aðila, það er
Ólafs S. Björnssonar og fjölskyldu.
Þótt miklum skuldum hafi verið
létt af rekstrinum með þessum hætti
voru áhvílandi veðskuldir á steypu-
verksmiðjunni mjög miklar, enda
var hún veðsett að fullu. Ólafur S.
Björnsson leitaði því eftir skuld-
breytingu hjá Iðnlánasjóði, sem er
langstærsti lánardrottinn Óss.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR setti sjóðurinn það sem skil-
yrði fyrir skuldbreytingarlánum að
hlutafé í fyrirtækinu yrði aukið. Eig-
endur þess munu hafa leitað til ým-
issa aðila, en ekki tekist að fá nýtt fé
Ólafur S. Björnsson í Ósi fékk hjá
hlutafélagaskrá vottorð um hlutafjár-
aukningu sem ekki hafði átt sér stað.
inn í fyrirtækið.
í janúar síðastliðnum sendi Ólafur
S. Björnsson hins vegar inn tilkynn-
ingu um 70 milljóna króna hlutafjár-
aukningu til hlutafélagaskrár. Og í
byrjun þessa árs veitti Iðnlánasjóður
loforð fyrir skuldbreytingu. Þetta
staðfesti Ólafur S. Björnsson í sam-
tali við PRESSUNA, en vildi ekki tjá
sig frekar um málið.
Skuldbreytingin og lenging lána
munu ekki enn hafa verið fram-
kvæmdar, þótt loforð sjóðsins liggi
fyrir.
HLUTAFÉLAGASKRÁ
HUGSANLEGA BÓTASKYLD
Nokkrum vikum eftir að tilkynn-
ingin barst hlutafélagaskrá í janúar
síðastliðnum áttuðu starfsmenn
Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlána-
sjóðs. Sjóðurinn setti það sem skil-
yrði fyrir skuldbreytingarlánum að
hlutafé Óss yrði aukið.
hennar sig á því að ekki var allt með
felldu. Samkvæmt hlutafélagalög-
um má ekki skrá hlutafjáraukningu
nema fjórðungur hlutafjárins hafi
verið greiddur og hlutafjárloforð
liggi fyrir um afganginn. Allar upp-
lýsingar um slíkt vantaði í tilkynn-
ingu Ólafs S. Björnssonar frá því í
janúar.
Starfsmenn hlutafélagaskrár leit-
uðu símleiðis eftir skýringum hjá
forsvarsmönnum Óss á þessu, en
þegar það bar ekki árangur aftur-
kölluðu þeir skráningu á auknu
hlutafé í Ósi. Þar með var tilkynn-
ingin frá því í janúar ógild. Starfs-
menn hlutafélagaskrár sendu síðan
formlegt bréf til Óss þann 16. april
þar sem þeir kröfðust skýringa.
Þar sem nokkur tími leið frá því
upphaflega tilkynningin var send
inn til hlutafélagaskrár, og þar til í
ljós kom að hún var í raun jnnstæðu-
laus, gátu forráðamenn Óss í raun
notað vottorð um hlutafjáraukningu
í viðskiptum sínum án þess að nokk-
uð lægi að baki henni.
í þessu sambandi má benda á að
nokkrir þeirra sem töpuðu fjármun-
um á gjaldþroti Ávöxtunar og verð-
bréfasjóða þess fyrirtækis hafa
ákveðið að höfða mál á hendur
bankaeftirliti Seðlabankans fyrir að
hafa ekki sinnt eftirlitsskyldum sín-
um. Á sama hátt gæti sá sem skað-
ast í viðskiptum vegna rangra upp-
lýsinga frá hlutafélagaskrá hugsan-
lega höfðað skaðabótamál á hendur
stofnuninni.
Það er meðal annars sökum þessa
sem viðskiptaráðuneytið hefur
ákveðið að taka málið föstum tök-
um og krefja forráðamenn Óss tæm-
andi skýringa á þessari hlutafjár-
aukningu.
TILKYNNINGIN SEND LÖNGU
ÁÐUR EN GREIÐSLUR BÁRUST
Eins og áður sagði sendi hlutafé-
lagaskrá forráðamönnum Óss bréf í
apríl síðastliðnum og krafði þá skýr-
inga á þessari hlutafjáraukningu.
Svar barst síðan í upphafi þessa
mánaðar, 2. júlí. í því kemur fram að
hlutafélagið Háteigur hafi þegar
greitt 27 milljónir af 70 milljóna
króna hlutafjáraukningu.
Hlutafélagið Háteigur er eign
barna Ólafs S. Björnssonar og systur
hans, Jóhönnu Björnsdóttur. Jó-
hanna er eiginkona Einars Vil-
hjálmssonar, framkvæmdastjóra
Oss.
Samkvæmt bréfinu frá Ósi greiddi