Pressan - 01.08.1991, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAlM 1. ÁGÚST 1991
Z3!rif
£)q v ^ Ni ght
S&iá&cvwí'i ýiá óf
Kvikmyndagerðarmenn á
íslandi eru á skjálftavaktinni
vegna strákanna frá Oz, sem
hafa slegið í gegn með nýstár-
legum auglýsingum og
myndböndum. Strákarnir eru
ungir og hörkuduglegir og
heita Aron, Guðjón Már, Ein-
ar Snorri og Eiður Snorri.
Þeir hafa meðal annars gert
auglýsingar fyrir Stjörnuna,
Cosmo og Fálkann og tölvu-
'■VLfia Út
ttf/íiza i/ftt
/< - /tjt M.iot' / Áa potmt
> /pexsajK
1/er-aidarte.tSuM
Þær eru strax ráðnar sem
aðalstjörnurnar í dans-,,sjói"
á næturklúbbnum Pacha á
Ibiza. Þær leika indverskar
prinsessur eða Flower Pow-
er-hippa og sápukúludrottn-
ingar.
Hildur Hafstein og Bryndis Einarsdóttir ásamt öörum
dönsurum.
grafíkina i Visa-sport. Þeir
eiga eina 3D-Paint Boxið á
landinu.
íVóra mczíir með
CAFÉ SPLITT
v/ Klapparstlg.
Besta kaffiö í öllum bœnum
ásamt heimabökuöum
kökum.
FÖLSK AUGNHÁR!
Besta úrvaliö í
Clörv-búðunum.
ÓDÝRUSTU
KÁBOJSTÍGVÉLIN
Fást t útsölumarkaðnum í
kjallara verslunarinnar 17
v/Laugaveg.
l^ara
íslenskf
súpermódef
Það skiptir ekki máli hvort
þú opnar enskt, ítalskt, þýskt
eða amerískt tímarit. I þeim
öllum eru ein, tvær, þrjár,
fjórar ef ekki fimm myndir af
Bertu Maríu Waagfjörð, en
hún er ein af tuttugu eftirsótt-
ustu fyrirsætum í heiminum í
dag. Hún er á samningi hjá
lcelandic Models á Islandi og
Premier í London og starfar
meðal annars í LA, New York,
Paris og vítt og breitt um Evr-
ópu. Kvikmyndatilboðum
hefur rignt yfir Bertu og þeim
á örugglega eftir að fjölga eft-
ir að hún birtist á forsíðu
þýska Playboy-tímaritsins
næstkomandi september.
Er eitthvað að
bókhaldinu hjá ykkur,
Gunnar?
„Nei, langt því frá."
Samkvæmt álagningarskrá
Skattstofunnar í Reykjavik
greiðir IBM hæstu heildargjöld
í Reykjavík. Gunnar M. Hans-
son er forstjóri IBM.
LÍTILRÆÐI
af andvana rauöátu
Rannsókninni er lokið.
Niðurstöður hafa verið
gerðar heyrinkunnar.
Það var ekki svartolía úr
dularfullu rússnesku tank-
skipi, ekki hráolía úr rússn-
esku draugaherskipi, né
heldur plútóníum úr rússn-
eskum kafbáti.
Og ekki var tilgáta
kvennasamtakanna í land-
inu — höfð eftir Guðbergi
Bergssyni — rétt; að af ein-
skærri karlrembu væri búið
að útrýma öllum kvendýr-
um af hvalastofni og þess-
vegna hafi það sem rak á
land á Ströndum verið
hvalabrundur.
Allir mætustu sérfræðing-
ar í málefnum lífríkisins hafa
komist að þeirri niðurstöðu
að þeir viti eiginlega ekki
hvað þetta var, en hallast
helst að því að þetta hafi ver-
ið „grútarmengun" af fram-
liðinni rauðátu, sem enginn
veit hversvegna dó.
Og þó var þetta auðvitað
ekki grútur, því aliir vita að
rauðáta er ekki grútur, þó
blaðamenn, fiskifræðingar
og ríkisstjórnir haldi þaö
kannski. Dauð rauðáta er
ekki grútur.
En það vita líklega ekki líí-
rikisvísindamenn og ráðu-
neytisfólk, heldur bara þeir
sem þekkja grút af eigin
raun.
I Blöndalsorðabókinni er
grútur lýsisdreggjar eöa
grotti.
Rauðáta getur aldrei verið
lýsisdreggjar eða grotti, jafn-
vel ekki sjálfdauð rauðáta.
Látum nú vera þó fulltrúar
Geislavarna ríkisins, um-
hverfisráðuneytisins, Haf-
rannsóknastofnunar, Nátt-
úrufræðistofnunar og Sigl-
ingamálastofnunar, allir líf-
fræðingar, fiska- og fugla-
fræðingar plús blaðamenn
haldi að rauðáta verði grút-
ur við það að týna lífinu. En
jafn glöggur og veraldarvan-
ur maður einsog Eiður hefði
átt að sjá í hendi sér, að í doll-
unni, sem hann tók sýnið í
fyrir okkur sjónvarpsáhorf-
endur, var ekki grútur.
Og allan tímann hefur
þetta verið kallað mengun,
þó allir, nema sérfræðingar,
viti að sjálfdauð rauðáta er
ekki mengun.
Mér er nær að halda að
mengun sé ekki mengun
nema hún sé af mannavöld-
um. En mengun fyrirfinnst
ekki í Blöndal svo ég gæti
svosem haft á röngu að
standa.
Þó er ég klár á þvi að þetta
hefði verið mengun ef það
hefði stafað af venjulegum
rússneskum ótuktarskap.
En sjálfdauð rauðáta er
ekki mengun.
Það fær mig enginn til að
trúa því að rauðátan í sjón-
um geti orðið mengun við
það eitt að kvefast og deyja.
Að rannsókninni lokinni
hefur semsagt komið í Ijós
að það sem rak á land á
Ströndum var hvorki grútur
né mengun og enginn veit
hvað drap rauðátuna sem
dó, ef það var þá rauðáta
sem dó.
En til að fyrirbyggja að
svonalagað endurtaki sig
hefur umhverfisráðherra nú
tilkynnt að hann muni skipa
sérstaka „aðgerðanefnd"
sem á að koma saman —
„þegar um mengunaróhöpp
er að ræða eða þegar hætta
er talin á slíku".
Hlutverk nefndarinnar
verdur að meta mengun-
arhættu, skipuleggja
rannsóknir á lífríki, leið-
beina um viðbrögð og
samræma aðgerðir ein-
stakra stofnana. Einnig á
nefndin að meta árangur
þeirra aðgerða sem grip-
ið er til hverju sinni og
gera tillögur um úrbætur.
Nefndin verður skipuð
fulltrúa umhverfismála-
ráðuneytisins auk full-
trúa Geislavarna ríkisins,
Hafrannsóknastofnunar,
Náttúrufræðistofnunar
og Siglingamálastofnun-
ar.
Þetta lítur að vorum dómi
prýðilega út nema ef til vill
mætti bæta því við að æski-
legt væri að nefndarmenn
vissu hvað væri mengun,
hvað grútur og hvað fjölda-
útför andvana rauðátu.
Flosi Olafsson