Pressan - 01.08.1991, Blaðsíða 29

Pressan - 01.08.1991, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 1. ÁGÚST 1991 29 & verstu wirtl/V ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, for- maöur Alþýðubandalagsins, varð langneðstur þótt hann fengi eina plúseinkunn: „Hann hefur óskýran framburð og gerir tilraunir til harðmælgi á vitlausum stöðum. Hann hefur dálæti á líkingum og myndum en veldur því ekki. Það er eins og Ólafur sé ekki vel heima í sögu málsins. Tilvísanir og líkingar eru oftast teknar frá út- löndum.“ „Það sem ég punktaði hjá mér um málfar Ólafs er tæpast prenthæft." „Slengir saman orð- tökum eins og hann sé í ákvæðis- vinnu. Virðist stundum hafa há- skólapróf í flatneskju og málaleng- ingum.“ „Hann lýgur svo fallega að það er skemmtilegt að hlusta á hann.“ JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR félagsmálaráðherra lenti í öðru til þriðja sæti á „tossalistanum": „Hún notar oft klaufalegt málfar." „Jóhanna þarf að læra djúpönd- un.“ „Hefur takmarkaðan orða- forða og lítið vald á ísiensku. Orðaforði hennar er nánast allur úr félagslega orðasafninu." „Hún notar stofnanamál þótt hún sé fyrst og fremst tilfinningapólitíkus. framkvæmdastjóri VSÍ, varð jafn sjávarútvegsráðherra: „Hefur út- geislun á við haltu-kjafti-kara- mellu!" „Framsögnin er þvinguð og orðaforðinn einkennist af stofn- anamáli." „Maður hefur á tilfinn- ingunni að hann hafi talað sam- fleytt frá því hann var síðast í fréttaviðtali. Handhægt væri fyrir fréttamenn að eiga hann á „lúppu" (tæknimannaslangur: seg- ulband sem gengur endalaust, tengt í hring). Þórarinn fékk einn plús í kladdann: „Hann er í þeirri tegund af starfi sem yfirleitt hefur framleitt málsóða en hann er oft litríkur í tali og skreytir einatt mál sitt skemmtilega." um og ekki lesa minna en þrjú ljóð á dag!“ „Hefur tekið miklum framförum síðan hann gerðist við- mælandi alþjóðar. Framsögnin er ekki nógu góð en hann hefur áhuga á því sem hann gerir — og það skilar sér. Á hinn bóginn hættir honum til að festast í ákveðnum frösum og orðatiltækj- HALLDÓR ÁSGRÍMSSON sjávarút- vegsráðherra lenti í fjórða til fimmta sæti og fékk verstu ein- kunn hjá einum úr dómnefndinni: „Hann er fulltrúi hinnar full- komnu flatneskju. Notar það sem 'kalla má þuoglu- og þumbaraslíl. Það er eins og hann líti á texta og talað orð sem andstæðinga sína." „Yfirleitt reynir hann að flækja mál eða hafna þeim. Málfar hans er eins og múr sem hann hleður í kringum sig.“ „Málfar hans er mjög fátæklegt og lítil breidd i orðavali." ÞÓRARINN V. ÞÓRARINSSON, V E R S T I R /. Ótafavi 2. fitáeituuz ScýccicUvidótt&i 3. ‘Sjcvutc 'peliXMut 5. ‘ÞónevUtut *V. PónevUtui&M, 6. 'pttutcvt ^Ct^ÓÍfóótM 7. StecttynítHcci *i¥ent*uzctcuiA<xct 2. ScyAuatccn ‘Siónyvcct&Xöct Hún beitir ekki tilfinningum í mál- inu og er þar að auki mjög ein- tóna í framsögn." BJARNI FELIXSON íþróttafrétta- maður varð jafn félagsmálaráð- herra í öðru til þriðja sæti: „Hann er ómælandi og kann ekki nema þrjú orðatiltæki." „Hann ætti að fara á námskeið í skapandi skrif- FINNUR INGÓLFSSON alþingis- maður lenti í sjötta sæti: „Hann talar oftast eins og einhver hafi verið að gera honum óleik." „Finnur notar áherslur sem kenndar eru við framsóknarmenn; leggur áherslu á annað atkvæði í orði.“ „Höggvandi í stílnum." „Ei- lítið tilgerðarlegur." STEINGRÍMUR HERMANNSSON, formaður Framsóknarflokksins, varð í sjöunda til áttunda sæti: „Hann þarf að lesa orðtakasafnið betur. Það er afleitt þegar maður heyrir formann Framsóknarflokks- ins nota orðið búhnykkur í nei- kvæðri merkingu." „Steingrími hefur farið fram. Hann hafði mjög kvenlegan seimdrátt sem hann hefur yfirunnið. Honum hættir til stofnanamáls. Hann nær hins veg- ar að eyða áhrifunum af því að mestu með alþýðlegu málfari; svo alþýðulegu raunar að hann grípur stundum til barnamáls." „Hann talar ekki litríkt mál og lætur myndir og líkingar að mestu eiga sig.“ „Hugsaðu þér ef öll þjóðin talaði eins og Steingrímur Hermanns- son!" Steingrímur fékk góda ein- kunn hjá einum úr dómnefndinni: „Hann er ævinlega að segja manni allt sem hann veit!“ SIGHVATUR BJÖRGVINSSON heil- brigðisráðherra varð jafn Stein- grími í sjöunda til áttunda sæti og hlaut verstu einkunn hjá einum úr dómnefndinni: „Sighvatur er sein- heppinn og sjálfumglaður." „Hann ber nú ekki mikinn glæsileika með sér, hvorki í framkomu né málflutningi." „Alltaf eins og hon- um sé óeðlilega mikið niðri fyrir. Það er erfitt að treysta slíkum mönnum." „Talar hraðar en hann hugsar." F JL-í inn þeirra sem nú hafa sóst eft- ir útvarpsstjórastólnum er auglýs- ingamaðurinn Ólafur Stephen- sen, en hann reyndi einnig við hann þeg- ar Markús Orn Antonsson hreppti hnossið. Ólafur er dyggur íhaldsmaður og þar að auki ágæt- iskunningi Ólafs G. Einarssonar menntamálaráð- herra. Meðal þeirra sem Ólafur þarf að glíma við eru Pétur Guðfinns- son framkvæmdastjóri, Inga Jóna Þórðardóttir og Kjartan Gunnars- son, formaður útvarpsréttarnefnd- ar. . . morgun verður formlega gengið frá því að Hewlett-Packard á Islandi verði íslenskt fyrirtæki. Hingað til hefur þetta alþjóðlega fyr- irtæki rekið skrif- stofu hér á landi samkvæmt sérstöku leyfi. Nú hafa starfs- menn þess á íslandi hins vegar ákveðið að koma inn í fyrirtækið og verða þeir meirihlutaeigendur ásamt HP. Með þessu móti telja Frosti Bergs- son framkvæmdastjóri og hans menn fyrirtækið betur í stakk búið fyrir vaxandi samkeppni, þar sem öll ákvarðanataka verði mun ein- faldari og skilvirkari. . . MT rátt fyrir að frestur til að ganga frá leikmannaskiptum í handboltan- um sé nú útrunninn er enn margt ófrágengið. í mörgum tilvikum eiga liðin enn eftir að ganga frá samning- um sín í milli og ef ekki semst getur jafnvel svo farið að nokkrir leik- menn byrji ekki að leika fyrr en á miðju tímabili, eða 15. janúar. Mun svo hátta til með Halidór Ingólfs- son, sem skipti úr Gróttu í Hauka, Stefán Kristjánsson, sem skipti úr FH í KA, Einar Þorvaröarson, sem skipti úr Val í Selfoss, Sigtrygg Albertsson, sem skipti úr Gróttu í Fram, Davíd Gíslason, sem skipti úr Gróttu í Fram, og Guðmund Hrafnkelsson, sem skipti úr FH í Val. Svo getur farið að einhverjir þessara leikmanna verði ekki með í upphafi móts vegna þess að liðin hafa ekki komið sér saman um verð á þeim... T M. il að ná sáttum á milli Jóns Baldvins Hannibalssonar og Þorsteins Pálssonar um skipan ------------ formanns sjávarút- um ríkisstjórnarinn- ar varð úr að skipa varaformannskand- formenn, þá Þröst ------------ Ólafsson, aðstoðar- mann utanríkisráðherra, og Magn- ús Gunnarsson, framkvæmda- stjóra SÍF. Formannsefnin Vilhjálm- ur Egilsson fyrir Þorstein og Þor- kell Helgason fyrir Jón Baldvin verða að sitja hjá í þetta skipti. . .

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.