Pressan - 01.08.1991, Síða 27
... fær Þorvaldur Þor-
steinsson fyrir vasa-
leikhúsiö sitt á rás-2.
AÐUR UTI NUNA INNI
Levis 501. Þad er reyndar
nokkuð síðan Levis fékk
uppreisn æru, eins og margt
af klassískum amerískum
klæðnaði. En Levis er smátt
og smátt að verða að trúar-
brögðum. Og þeim sem eiga
eftir að koma sér upp Levis
skal bent á eftirfarandi: Þar
sem þeir eru um ári of seint
á ferðinni verða þeir að
kaupa sér notaðar Levis.
Annars eru þeir gangandi
auglýsing um hversu lengi
þeir eru að kveikja á per-
unni. Best er kaupa þær í Se-
cond Hand-búðum í New
York og heist af öllu buxur
sem alvörur kúrekar hafa til-
keyrt. Þær þekkjast á því að
annan vasann vantar. Hinar
villtu Suðurríkjastúlkur
merkja sér nefnilega stegg-
ina með því að rífa af þeim
annan rassvasann á dans-
húsunum þar syðra.
ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI
Okei, ókei og hvað með það?
Hvern hefur ekki iangað til
aö hrópa þetta að þeim 138
þúsund Islendingum sem
halda því fram að þeir séu
góðir kokkar. Það var hægt
að fyrirgefa þessu fólki fyrir
nokkrum árum, þegar þjóðin
var að uppgvötva að til voru
fleiri réttir en þeir sautján
sem eru framlag Islendinga
til matargerðarlistarinnar.
En nú vita allir að það er
ekki list þótt eldað sé úr ein-
hverju öðru en kjötfarsi. Og
auk þess; hvernig er hægt að
trúa þessu fólki? Það eru
ekki nema sjö eða átta góðir
kokkar á veitingahúsunum.
7
T
A
POPPIÐ_________
Nú geta menn farið og ,,átt“ heil-
an skemmtistað um helgina
(verða ekki allir hinir í Húna-
veri?). En það er hægt að lofa
fjöri á Púlsinum. Þar verður
Tregasveitin með þrenna tón-
leika, fimmtudag til laugardags.
Þeir feðgar Pétur Tyrfingsson
og Guðmundur Pétursson eru
stórkostlegir, hvor á sinn hátt, og
tónlistin er tilfinningarík. Við
þangað.
FIMMTUDAGUR PRESSAN l.ÁGÚ^
Tveir vinir ætla ekki i Húna-
ver um helgina. Þar verður hins
vegar hljómsveitin Sprakk, sem
m.a. hefur innanborðs Sigur-
geir Sigmundsson (dótturson
samnefnds fv. biskups) og Karl
Orvarsson, ballöðusöngvarann
geðþekka. Sprakk verður á
föstudags- og laugardagskvöld.
A sunnudaginn verður spútn-
íkgrúppan Infernó 5 með tón-
leika (og ball). Þeim til upphitun-
ar verður RMS, eða Árni Valur
öðru nafni. Árni Valur? Hann er
að norðan og kemur alla leið frá
Akureyri til þess að flytja borgar-
búum ,,síkvenserað'(?!) tölvu-
popp. Jamm það held ég.
NEÐANHOPP!
Nú.er komið að því! Þú getur
orðið fræg(ur)! Kannski bara
eina kvöldstund en það er líka al-
veg nóg. Á fimmtudagskvöldið
1. ágúst verður „opinn nemi" i
Rauðu myllunni. Þangað getur
hver sem er komið og sungið,
dansað, leikið, trallað, ljóðað,
strippað, hljóðað. . . Og fyrir
ykkur sem viljið horfa og hlusta:
Aðgangur ókeypis.
NÆTURLIFIÐ
Það er kannski óðs manns æði
að vísa fólki á Berlín við Austur-
stræti: þar er yfirleitt tuttugu
metra biðröð um helgar og þann-
ig hefur það verið síðan Werner
Rassmusson keypti staðinn. Allt
Z'
sem hann snertir verður greini-
lega að gulli. En það er tilraunar-
innar virði að troða sér inn á
staðinn sem er mest „inni". Upp-
haflega stóð til að skapa þarna
andrúmsloft frá fyrri hluta aldar-
innar. Það fer nú kannski fyrir of-
an garð og neðan, enda er Berlín
hreinræktað diskótek. Ef menn
skella sér um helgina ættu þeir
að sleppa inn — verða ekki allir
í Húnaveri?
OG ÞA ER ÞAÐ VERSLUNARMANNAHELGIN! Það er hægt fara til Eyja (6.500
kr.), í Galtalæk (5.000 kr.), Húnaver (5.900 kr.), Atlavík (5.000 kr.) eða til Sigló
(ókeypis), á Nýaldarmót á Hellnum Snæfellsnesi (3.000 kr.) eða á fjölskylduhá-
tíð í Vík í Mýrdal (ókeypis). Svo er líka hægt að tjalda hvar sem er og njóta nátt-
úrunnar — eða bara útí garði og njóta þess að allir eru i Húnaveri eða Eyjum
eða...
kÉÉr
35 ™
3Ö-----------------------
23 45 ■B46-
I3T
sr
r ) ö lö
t ■
i
u
h
mm
P 1
B JV
■ 33
\ 47
; ■
*
m
KROSSGATAN
LÁRÉTT: 1 hest 6 hæða II drykkjurút 12 hnoð 13 skapinu 15 jarð-
yrkja 17 tímgunarfruma 18 beltisstrengur 20 ullarkassi 21 sigaði 23
þrek 24 kvísl 25 vandláta 27 stólpi 28 geðflækjuna 29 bæjarnafn 32
ofsögur 36 skarð 37 mild 39 hljóma 40 þjálfað 41 fá 43 bók 44 skjátur
46 lálaegastra 48 kjáni 49 dynur 50 sáran 51 peningana.
LOÐRÉTT: 1 skipið 2 óslétt 3 eyði 4 störfuðu 5 barðir 6 kvoða 7 mið-
ur 8 nokkur 9 hjákona 10 hrellir 14 baun 16 tóku 19 blekkjandi 22
væn 24 krafts 26 eðja 27 vendi 29 frægðar 30 melrakka 31 sárar 33
tyggja 34 eirir 35 fíflin 37 lendingarstaðurinn 38 heigull 41 romsa 42
sytru 45 kvabb 47 gylta.
SJONVARPIÐ
Á föstudagskvöld kl. 20.50. er
þriðji þátturinn frá minningar-
tónleikunum um Karl J. Sig-
hvatsson. Að þessu sinni koma
fram Trúbrot og Mannakorn
ásamt Pálma Gunnarssyni og
Ellen Kristjánsdóttur. Missum
ekki af þessu. Og meira rokk á
föstudagskvöldi: I Úrvalsdeild-
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
1. Navy Seals
2. Narrow Margin
3. Havana
4. My Blue Heaven
5. Presumed Innocent
6. Kill me Again
7. Don’t tell her it's me
8. Paradísarbíóiö
9. The Big Man
10. Almost an Angel
inni koma m.a. fram Jerry Lee
Lewis, Tina Turner, The Doors
og Cream.
STÖÐ2_______________________
Eltum refinn After the Fox á
föstudagskvöldið kl. 21.35. Pet-
er Sellers er hér á ferð í mynd
frá 1966. Pétur var bestur á sjö-
unda áratugnum en dalaði mjög
á þeim áttunda. Svo dó hann.
VEITINGAHUSIN_____________
Café Opera við Lækjargötu er
auðvitað í dýrari kantinum en
vel þess virði fyrir þá sem vilja
góða þjónustu og góðan mat í
góðu umhverfi. Matseðillinn er
hæfilega blandaður, m.a. með
rammíslenskum réttum svoköll-
uðum. En þeir sem fúlsa við ís-
lenska eldhúsinu hafa úr nógu
öðru að velja. Stemmningin er
ósköp notaleg og passar bæði
fyrir kærustupar í tilhugalífi og
bissnissmenn að útkljá samn-
inga. Svo eru stólarnir þægilegir,
lýsingin mild — og smjörið er
ekki frosið. Við kunnum að meta
slíkt.
vin
Brut
Imperia’‘
Þótt „Brut" þýöi í aöalat-
riðum þurrt er þetta
frekar sætt af „Brut" aö
vera. Þetta er kampavín
búiö til úr blöndu þriggja
berjategunda, Chard-
onnay, Pinot Noir og
Pinot Meunier. Venju-
lega er ein berjategund
ekki meira áberandi en
önnur, en síðast þegar
smakkari PRESSUNN-
AR bragðaöi Brut Im-
perial var Chardonnay
mest áberandi og vínið
hið ágætasta í heildina.
Flaskan kostar 2.360
krénur og fæst í flestum
verslunum ÁTVR.
FORTIÐIN
I Árbæjarsafni stendur nú yfir
sýning á Ijósmyndum Vigfúsar
Sigurgeirssonar og Ralphs
Hannam. Myndirnar eru flestar
frá miðbiki aldarinnar, forvitni-
leg heimild um tíma sem gerist æ
fjarlægari í öllum skilningi. Vig-
fús var dæmigerður skrásetjari
en hjá Hannam bregður fyrir
snörpum, listrænum töktum.
Skemmtileg sýning. Enginn að-
gangseyrir.
MYNDLISTIN
Það er tilvalið að nota þessa
helgi þegar allir eru í Húnaveri
eða sumarbústaðnum að skoða
nú loksins sýningarnar sem hef-
ur staðið til að fara á lengi.
Dæmi: Upplagt að byrja á yfir-
'TOM PETTY & THE
HEARTBREAKERS—
INTO THE GREAT WIDE
OPEN
Fyrir 5 árum var ferill TP
& kó i sjálfheldu eftir
plötuna Let me up en
siðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Þeir léku
með Dylan i u.þ.b. ár; síð-
an var Petty i Traveling
Wilburys, gerðu sóló-
plötu sem sló i gegn. Það
kom því á óvart að hér er
þeirra besta plata, hvað
varðar texta, lög og flutn-
ing. Ein af þremur bestu
plötum ársins til þessa!
Og við gefum henni
hvorki meira né minna en
9 af 10.
litssýningu Þorvaldar Skúla-
sonar í Norræna húsinu, fara
þaðan á Kjarvalsstaði að skoða
japanska nútímalist og enda
svo í Perlunni
OPNUNIN______________________
Á föstudaginn kl. 20 opnar Aðal-
steinn Svanur Sigfússon sýn-
ingu í Nýlistasafninu. Viðfangs-
efnið er oftasl nær landslag,
einkum sérstakir staðir sem hafa
með tímanum öðlast sjálfstæða
merkingu og jafnvel sjálfstætt lif:
Og listamaðurinn sýnir okkur
þessa staði í nýju Ijósi.
HÚSRÁÐ____________________
Eg er á þeim aldri að nú er
margt af því fólki sem ég var
með í menntó, eða þekkti í
gamla daga, að skríða heim
úr námi. Undanfarið hef ég
ekki getað farið á bar eða
veitingahús án þess að rek-
ast á þetta fólk. I flestum til-
fellum er það indælt, en
stundum get ég næstum
sturlast úr leiðindum. Verst
þykir mér að rekast á fólk
sem er nýkomið frá New
York, Kaliforníu eða París,
líklega vegna þess að fólk
virðist verða svo yfirmáta
ástfangið af þessum stöðum
að þegar það kemur heim
talar það ekki um annað. Og
þegar nám í kvikmyndum
eða eitthvað ámóta bætist
við getur maður þurft að
hiusta kiukkutímum saman á
yfirlætislegt hjal án þess að
koma upp orði. Hvernig get
ég hrist þetta fólk af mér svo
ég geti haldið áfram að
skemmta mér?
Mér hefur reynst best að
stama. Og ef þú rekst á ein-
hvern sem er að koma frá
New York skaltu segjast hafa
verið þar líka; „ÉÉEÉg hehe-
hef líka veveveverið ííí
NewNewNew YoYoYoYork."
Viðkomandi sér þá fram á
langt samtal við þig um
helstu staðina ■ borginni og
lætur sig hverfa í flýti.
VIÐ MÆLUM MEÐ
Ættfræði
fólki finnst það stækka og
það verður einhvern veginn í
nánari tengsium við söguna
og annað fólk ef því er kunn-
ugt um að það spratt ekki
upp af engu
Hrukku- og fegrunarmeðferð
Heiðars snyrtis Jónssonar
að borða hollan mat, hreyfa
sig og vera sjaldnar ■ fýlu
Lefi
■ hófi. Ekki vegna þess að
ieti sé neitt til að mæla með
umfram annað, heldur vegna
þess að það er hægt að
mæla með öllu — í hófi.
Það er skiljanlegt að Bretar
skuli vera uppnumdastir allra
þjóöa af sjöunda áratugnum.
Bæði fyrir hann og eftir hafa
Bretar engu máli skipt í
heimi tískunnar en á meöan
á honum stóð voru þeir upp-
haf og endir alls. Og þeir
teygja sig langt til að reyna
að endurvekja stemmning-
una frá þessu heimstísku-
veldi sínu. Á rnyndinni má
sjá fjóra gesti í afmælisveislu
eins og þær gerast nú í
London: Frá vinstri; Lupus
von Maltzahn barón, Nat-
haniel Rothschild, Stefan
Metternich prins og Candida
Allfrey. Svona klæðir með-
aljóninn sig í Englandi þessa
dagana.
BÍÓIN
NEW JACK CITY BÍÓHÖLLINNI
Hörkuþriller. Sexý og smart.
Á VALDI ÓTTANS Desperate Hours BiÓBORGINNI
Það er sérkennileg kúnst að geta teymt áhorfendur óaðfinnanlega í gegnum
myndina en skiliðþá eftirán nokkurra tilfinninga gagnvart persónunum. Góð
skemmtun fyrir sálarlausa eða þá sem vilja ekki sjá þá, sem þeim er vel við,
verða fyrir hnjaski.