Pressan - 01.08.1991, Side 31
mmmmmmst
FIMMTUDAGUR PRESSAN l.ÁGÚST 1991
31
Athugasemd frá
ritstjóra Fiskifrétta
í smáfrétt í síðustu PRESSU var
meðal annars sagt að Fiskifréttir
hefðu á tímabili komið út einu sinni í
viku. I sömu skrifum var því haldið
fram að Fiskifréttir og Sjávarfréttir
hefðu fundið fyrir harðnandi sam-
keppni á markaðnum vegna til-
komu sjávarútvegsblaðs Morgun-
blaðsins. Vegna þessa vill Guðjón
Einarsson, ritstjóri Fiskifrétta og
Sjávarfrétta, taka fram, að Fiskifrétt-
ir hafa komið út vikulega allt frá því
blaðið var stofnað fyrir tæpum átta
árum, að undanskildu tveggja vikna
hléi á sumrin vegna sumarleyfis í
prentsmiðju. Engin breyting er fyr-
irhuguð á útgáfutíðni blaðsins, segir
Guðjón. Ennfremur vill hann taka
fram að „fylgirit Moggans hefur
engin áhrif haft á tekjur eða út-
breiðslu Fiskifrétta og Sjávarfrétta".
Jón Óskar og Víd-
ir sverja af sér
stuðning við KR
og Fram
Jón Óskar Sólnes fréttamaður
sendi PRESSUNNI ítarlega athuga-
semd þar sem hann sver af sér
stuðning við KR, en í grein í blaðinu
í síðustu viku um áhangendur knatt-
spyrnuliðanna í Reykjavík var Jón
Oskar talinn upp meðal stuðnings-
manna KR. í athugasemdinni segir
meðal annars:
,,Að vísu skal hér játað, að fyrir
margt löngu fór ég á eina æfingu í
KR-heimili, innanhúss í 6. flokki að
mig minnir, en síðan ekki söguna
meir. Ef átt er við þennan atburð,
þegar fullyrt er að undirritaður sé
KR-ingur „samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR", þá skal upplýst hér
og nú að æfingin markaði ekki svo
djúp spor, að ég geti talist KR-ingur
upp frá því. Miklu nær væri að raða
mér í dálk annars staðar í greininni.
Um leið og ég vona að þessari
leiðréttingu verði góðfúslega komið
á framfæri vil ég taka skýrt fram að
mér er afar hlýtt til KR-inga, enda
hafa margir vinir mínir, sem nefndir
eru til sögunnar í sérstökum KR-
dálki, grátið á öxl mér í lok keppnis-
tímabils undanfarin ár.
Heldur þótti mér PRESSAN hins
vegar hæversk hvað varðar innan-
búðarmenn, en sem kunnugt er
fylgir Gunnar Smári Egilsson rit-
stjóri KR-ingum fastar að máli en
margur annar.“
Eins og fram kemur í athugasemd
Jóns Óskars er hann svolítið veikur
fyrir KR, þótt hann kjósi að halla sér
að öðru Reykjavíkurfélagi, sem
hann einhverra hluta vegna þorir
ekki að nefna á nafn. Það er ástæðu-
laust fyrir Jón Óskar að fara leynt
með stuðning sinn við Val, þótt ekki
gangi vel á þeim bæ um þessar
.mundir.
Annar kunnur íþróttafréttamað-
ur, Víðir Sigurðsson á DV, kom að
máli við blaðið vegna sömu greinar.
Þar var tekið fram að Víðir væri
fyrst og fremst ÍK-maður, enda lék
hann með Kópavogsliðinu um ára-
bil. Þetta er rétt segir Víðir, en hins
vegar segist hann algjörlega hlut-
laus varðandi fyrstudeildarfélögin
,og því of djúpt í árinni tekið að segja
hann hliðhollan Fram. Til fróðleiks
fyrir lesendur er rétt að taka fram að
. Víðir hóf feril sinn hjá Leikni á Fá-
skrúðsfirði og lék með liðinu í öllum
yngri flokkum upp í meistaraflokk.
Ritstj.
Greibslukjör:
Ekkert út, 1. grei&sla í sept.
og eftirstöðvar á þremur árum.
ÆGIR
Eyjaslób 7 • Reykjavík • s. 62 1 780
Þ E K K I N G
R E Y N S L A
Þ J O N U S T A
7 8 A R
5.-8.
Haustferð Albvðuflokksins er að þessu sinni til Edinboraar.
Gist verður þrjár nætur á glæsilegu Mount Royal-hótelinu í hjarta Edinborgar.
Flogið verður til Glasgow og þaðan ekið í rútu til Edinborgar.
Innifalið í verði: Flug Keflavík-Glasgow-Keflavík, ferðir til og frá fíugvelli og skoskuT
morgunverður og gisting. Sérstakur passi sem meðal annars veitir aðgang að
heildverslunum og leiðsögn frá ferðaskrifstofunni allan tímann.
Verð með ferðaskrifstofunni ATLANTIK: 28.967,- kr. auk flugvallarskatts.
Fararstjórar: Bryndís og Jón Baldvin.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Alþýðuflokksins. dtKMtHCTfKmt