Pressan - 22.08.1991, Side 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22.ÁGÚST1991
7
ÍSAKLDHml
BMKARKRINGLMNI
VEGIHA VEBSETNINGA
Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Borgarkringlunnar, segir þetta alrangt og neitar
að fyrirtœkið hafi ekki staðið í skilum með sinn hluta kaupsamningsins
Borgarkringlan hefur ekki, samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR, getað staðið við kaupsamninga sem
gerðir voru þegar fyrirtækið keypti eignirnar númer
fjögur og sex við Kringluna. Mikið ósætti hefur verið
milli nýrra eigenda og þeirra gömlu. Dæmi þar um er að
Leó E. Löve í ísafold og Víglundur Þorsteinsson í BM
Vallá ræðast ekki lengur við.
PRESSAN hefur heimildir fyrir því að Leó hefur hótað
að kæra Víglund og félaga til rannsóknarlögreglunnar
vegna vafasamra veðsetninga á tveimur hæðum í Kringl-
unni 6. Hæðirnar eru þinglýstar sem eign ísafoldar, en
eigi að síður hafa þær verið veðsettar vegna skulda Borg-
arkringlunnar. Borgarkringlan hefur forkaupsrétt að
hæðunum, sem og öðrum hlutum hússins.
Víglundur Þorsteinsson sagði
þetta alrangt, þegar PRESSAN leit-
aði til hans vegna málsins. Leó Löve
vildi sem minnst um þetta ræða en
sagði að verið væri að aflétta lánun-
um og hann treysti á að stjórnendur
Borgarkringlunnar gerðu það innan
skamms.
VÍGLUNDUR BER SIG VEL
Vígiundur Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Borgarkringlunnar, sagði
alrangt að fyrirtækið væri illa statt
fjárhagslega. Hann sagði að nú væri
búið að selja hlutafé fyrir 525 millj-
ónir króna og samþykkt hefði verið
að auka hlutaféð í 575 milljónir.
Hann sagði að þegar því lyki yrði
Borgarkringlan með mikið eigið fé.
Heimildir PRESSUNNAR segja að
Borgarkringlan sé langt á eftir með
greiðslur samkvæmt kaupsamning-
um. Það hefur orðið til þess að ekki
hefur gengið eins og til stóð að af-
létta lánum sem fyrri eigendur létu
fylgja með í sölunni. Meðal annars
hefur sá dráttur sem á hefur orðið
leitt til þess að fyrirtæki Leós, Isa-
foldarprentsmiðja, hefur ekki feng-
ið þá fyrirgreiðslu sem treyst var á.
STÖÐVAR LÁN FRÁ
IÐNÞRÓUNARSJÓÐI
Sem dæmi má nefna að á Borgar-
kringlunni er lán við Iðnþróunar-
sjóð upp á 27 milljónir króna, greið-
andi lánsins er ísafold. í kaupsamn-
ingi var gert ráð fyrir að væntanlegt
lán frá Iðnþróunarsjóði og Iðnlána-
sjóði til Borgarkringlunnar hf. yrði
notað að hluta til að gera upp lánið
sem ísafold er greiðandi að. Þegar
því á að vera lokið hefur ísafold
góða möguleika á að fá 20 milljónir
króna að láni hjá Iðnþróunarsjóði.
Lánið á að nota til að fjármagna
vinnu við Dansk-íslenska orðabók.
En þar sem Borgarkringlan hefur
ekki enn getað uppfyllt skilyrði
sjóðanna er nýja lánið til ísafoldar
óafgreitt.
Borgarkringlan tók um átta
hundruð milljónir króna að láni
þegar ráðist var í húsakaupin og til
að standa straum af lokafram-
kvæmdum við Borgarkringluna.
Auk þess yfirtók þetta nýja fyrirtæki
umtalsverðar fjárskuldbindingar frá
seljendunum. Heimildir PRESS-
UNNAR segja að ekki hafi verið
staðið við greiðslur á öllum þeim
lánum sem voru yfirtekin við kaup-
in.
Lánardrottnar Borgarkringlunnar
eru margir, þar á meðal öll stærstu
fjármálafyrirtæki landsins. Þar á
meðal eru allir bankarnir; Lands-
banki, Búnaðarbanki og íslands-
Leó E. Löve í ísafold var aöaleigandi
hússins númer 6 viö Kringluna. Hann
hótaöi aö kæra Víglund og félaga fyr-
ir veösvik. Leó segist bjartsýnn á aö
máliö leysist í góðu. Leó talar ekki viö
Víglund Þorsteinsson.
banki. Þá skuldar Borgarkringlan
Fjárfestingarfélaginu og Kaupþingi
og auk þess segir Víglundur Þor-
steinsson að fyrirtækið skuldi Iðn-
lánasjóði og Iðnþróunarsjóði pen-
inga.
ÁKVEÐIÐ AÐ AUKA HLUTAFÉÐ
„Hlutaféð er 325 milljónir króna í
dag og allt greitt. BM Vallá er stærsti
hluthafinn með 120 milljónir
króna,“ sagði Víglundur Þorsteins-
sor.. Hann sagði að búið væri að
ákveða að auka hlutaféð um 50
milljónir króna. Eftir þá aukniwgu
yrði hlutaféð 375 milljónir króna.
Víglundur sagði að ekki stæði til að
nýir hluthafar bættust í hópinn,
heldur væru þeir sem fyrir eru að
auka sinn hlut.
ísafoldarprentsmiðja var aðaleig-
andi hússins númer 6 við Kringluna,
áður en Borgarkringlan keypti hús-
ið. ísafold á talsverðan hlut í Borgar-
Víglundur Þorsteinsson er stjórnar-
formaður Borgarkringlunnar. Hann
segir rangt að ekki hafi verið staðið
við samninga. Fyrirtæki Víglundar,
BM Vallá, er stærsti hluthafinn í
Borgarkringlunni. Víglundur talar
ekki við Leó Löve.
myndatext:
kringlunni, eða yfir 40 milljónir
króna. Eins og áður sagði er BM
Vallá stærsti hluthafinn, með 120
milljóna króna hlut. Þar af voru tæp-
ar 50 milljónir króna greiddar með
steypu, sem er uppgjör vegna
skulda frá byggingu hússins.
„Allir þeir sem fjármagna Borgar-
kringluna; Iðnlánasjóður, Iðnþróun-
arsjóður, Islandsbanki, Landsbanki,
Búnaðarbanki og síðan Fjárfesting-
arfélagið og Kaupþing í skuldbreyt-
ingum á eldri lánum til fyrri eig-
enda, hafa staðið við sitt. Það eru
ekki til nein vandamál í þessu. Það
hafa allir þessir aðilar gengið frá
sínu og engin vandamál."
Víglundur sagði ekkert til i því að
Borgarkringlan hefði veðsett eign-
arhluta sem ekki væru eign fyrir-
tækisins. Heimildir PRESSUNNAR
herma hins vegar að vegna veðsetn-
inga hafi gengið á með bréfaskrift-
um og hótunum.
LEIÐTOGARNIR TALAST
EKKI VIÐ
Einn viðmælenda PRESSUNNAR,
sem þekkir vel til málsins, sagði að
eflaust mætti finna að framkvæmd
samninga um þessi miklu kaup.
Hann sagði ekki vera hægt að gagn-
rýna eingöngu Víglund og félaga,
Leó Löve og hans félagar yrðu einn-
ig að taka á sig gagnrýni, þar sem
þeir hefðu ekki alltaf staðið við allt
sitt. „Það er nú einu sinni þannig, að
þegar kaup eru gerð þurfa bæði
kaupendur og seljendur að uppfylla
ýmis skilyrði. Ég veit að báðir þessir
aðilar hafa ekki alltaf náð að standa
við sitt á réttum tíma. Hitt er öllu
verra að leiðtogar hópanna, það er
Víglundur og Leó, eru hættir að
ræðast við. Það eitt hlýtur að verða
til þess að samskiptin geta ekki orð-
ið eins og þau eiga að vera,“ sagði
viðmælandi PRESSUNNAR.
EINN OG HÁLFUR MILUARÐUR
Borgarkringlan, í núverandi
mynd, kostar um einn og hálfan
milljarð króna. Heimildamenn
PRESSUNNAR segja ekki óeðlilegt
að erfitt geti verið að standa straum
af öllum þeim kostnaði sem hlýst af
þessari miklu fjárfestingu.
„Það er ekki heiðarlegt af seljend-
unum að láta illa. Ef kaupendurnir
hefðu ekki komið til hefði þetta allt
tapast. Þeir voru komnir í þrot. Það
er eina von fyrri eigenda að Borgar-
kringlan gangi. Ef ekki þá fer ekki
bara ilia fyrir Víglundi og félögum,
Leó og hans vinir tapa þá líka,“ sagði
einn viðmælenda PRESSUNNAR.
Leó Löve sagði í samtali við
PRESSUNA að málið væri á við-
kvæmu stigi og hvað yrði kæmi í
ljós á næstu vikum.
PRESSAN hefur heimildir fyrir því
að óuppgert sé við iðnaðarmenn
sem unnu að lokafrágangi við Borg-
arkringluna. Þeir munu hinsvegar
vera rólegir og treysta aðstandend-
um hússins fullkomlega.
Sigurjón Magnús Egilsson