Pressan - 22.08.1991, Page 15

Pressan - 22.08.1991, Page 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991 15 Úthlutunarnefnd rekstrarlána til fiskeldis FORMMUR NEFNDARINMAR ENN ISTJORN SILFURSTJBRNUNRIAR Samkvœmt upplýsingum frá Hlutafélagaskrá er Ingi- mar Jóhannsson, fiskeldis- frœöingur og sérfrœdingur hjá Byggðastofnun, enn skráður í stjórn Silfurstjörn- unnar hf. Ingimar er formaður nefndar þeirrar sem Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra skipaði til að úthiuta sérstökum rekstrarlánum til fiskeldisfyrirtækja. Nefndin var sett á stofn í júníbyrjun og úthlutunin staðfest 12. júlí. Þegar í upphafi gagnrýndu margir fiskeldismenn tengsl Ingimars við Silfurstjörnuna en hingað til hefur því verið haldið fram að hann hafi sagt sig úr stjórn fyrirtækisins þegar hann tók við for- mennsku í nefndinni. Ingi- mar situr í stjórn Silfurstjörn- unnar sem fulltrúi Byggða- stofnunar, sem hefur lánað hátt í 400 milljónir til fyrir- tækisins. Þrátt fyrir að þrír mánuðir séu liðnir hefur engin til- kynning um það borist til Hlutafélagaskrár, en þangað er skylt að tilkynna breyting- Eins og kom fram í PRESS- UNNI fyrir viku hljóp á snærið hjá Silfurstjörnunni þegar hún fékk úthlutað 28 milljónum í neyðarlán. Eftir það hefur fyr- irtækið staðið í sumarbú- staðasmíðum og ætlar nú að kaupa jörð. ar á stjórnum hlutafélaga. Þegar Björn Benediktsson, stjórnarformaður Silfur- stjörnunnar, var spurður um ástæður þess að Ingimar væri enn skráður í stjórn sagðist hann hafa sent skeyti um breytingu á stjórninni til Hlutafélagaskrár. Það skeyti virðist því ekki hafa komist til skila. „Eg bað Ingimar að taka að sér formennsku nefndarinn- ar af því ég treysti honum til þess. Þessar upplýsingar skyggja ekkert á það traust,“ sagði Halldór Blöndal land- búnaðarráðherra. Halldór sagði að ætlunin hefði verið að Ingimar færi úr stjórn Silf- urstjörnunnar og hann sagð- ist ekki vita betur en það hefði verið gert. „Þá er rétt að taka fram að Ingimar hef- ur ekki fjárhagsleg tengsl við Silfurstjörnuna. Hann var fulltrúi Byggðastofnunar í stjórninni," sagði landbúnað- arráðherra. En Ingimar tengist Silfur- stjörnunni á fleiri vegu. Fyrir- tækið Seljalax hf. var sett á stofn árið 1986 með fiskeldi sem markmið. Fyrirtækið er skráð á heimili Björns Bene- diktssonar og var 10.350.000 Fiskeldisfyrirtœkiö Silfur- stjarnan hf. í Öxarfiröi hefur falast eftir jörð í Öxarfjarðar- hreppi. Um er að rœða hluta ár jörðinni Skógum, sem Stofnlánadeild landbúnaðar- ins erskráð fyrir, en hún eign- aðist jörðina á nauðungar- uppboði fyrir nokkru. Áð sögn Leifs Jóhannsson- ar hjá Stofnlánadeildinni hef- ur ekki verið gengið frá kaup- unum ennþá, en hann stað- festi að viðræður væru í gangi. krónum safnað í hlutafé. Lét Byggðastofnun 2 milljónir inn í það fyrirtæki sem hluta- fé. Ingimar er í stjórn félags- ins sem fulltrúi Byggðastofn- unar en langt er síðan aðal- fundur hefur verið haldinn í Hér er ekki um að ræða stóra jörð, en það sem er einkum eftirsóknarvert við hana er mikill jarðhiti sem gæti væntanlega nýst seiða- eldisstöð Silfurstjörnunnar vel. Málaferli hafa reyndar verið í gangi vegna íbúðar- húss sem fylgir jörðinni, en þeim er nú lokið. Á fundi hreppsnefndar Öx- arfjarðarhrepps fyrir skömmu var ákveðið að nýta ekki forkaupsrétt hreppsins þannig að Silfurstjarnan ætti félaginu. Svo vill til að Seljalax á 35% hlut í Silfurstjörnunni en því sama fyrirtæki úthlutaði Ingimar 28 milljónum króna í sérstöku rekstrarláni til bjarg- ar fiskeldinu. að fá jörðina. Ekki hefur feng- ist staðfest hvað jörðin á að kosta, en samkvæmt heimild- um PRESSUNNAR er verðið nálægt fjórum milijónum króna. Það mun hafa komið heimamönnum á óvart að jörðin væri til sölu og sam- kvæmt heimildum PRESS- UNNAR er nokkur óánægja með að hún skuli ekki hafa verið auglýst á almennum markaði. Seljalax á 35% í Silfurstjörn- unni, en aðalfundur hefur ekki verið haldinn þar um langt skeið. „Ég mælti með Ingimari í stjórn Silfurstjörnunnar á sín- um tíma og treysti honum enn," segir Halldór Blöndal sem skipaði Ingimar Jóhanns- son formann neyðarlána- nefndarinnar í fiskeldinu. Silfunstjarnan kaupir jörð Málefni Byggðastofnunar hafa verið í brennidepli eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar um stöðu hennar. Nýlega þurfti Guðmundur Malmquist að biðja forsætisráðherra afsö'.unar á ummælum, sem höfð voru eftir honum eftir að skýrslan birtist. „Hann hefur mikið jafnaðargeð og tapar ekki ró sinni, jafnvel þó að mikið gangi á. Hann hefur sínar meiningar og er stundum að gera hluti sem eru honum ekki að skapi,“ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunar- deildar Byggðastofnunar. „Hann er hrein- skiptinn og ófeiminn við að láta skoðanir sínar í ljós. Umfram allt er hann áreiðanlegur," segir Bolli Héðinsson, efnahagsráðunautur for- sætisráðherra í tíð síðustu ríkisstjórnar. „Guðmundur er glöggur lögfræðingur og greindur maður í hvívetna. Hann er afskaplega þægilegur í öllum viðskiptum, en getur verið fastur fyrir ef því er að skipta. Hann er enginn veifiskatisegir Sverrir Hermannsson bankastjóri. „Eg hef aldrei fundið annað en Guðmundur sé vandaður og góður embættis- maður, sem stýrir sinni stofnun vel," segir Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri í forsætis- ráðuneytinu. „Hann hefur sett sig vel inn í hugsunarhátt okkar sem vinna að þróunarmál- um, þrátt fyrir að hann hafi allt annan bak- grunn," segir Sigurður Guðmundsson. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar „I sumum málum er hann ekki nógu ákveð- inn og harður, sem er kannski hin hliðin á því að hafa jafnaðargeð. Stundum finnst manni að hann ætti að vera harðari, en hann nær samt oft árangri án þess að vera með læti eða berja í borðið,“ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunardeildar Byggðastofnunar. „Kredithliðin verður að skoðast í Ijósi þeirrar stöðu sem hann gegn- ir,“ segir Bolli Héðinsson, fyrrum efnahagsráðu- nautur. „Ég hef langa reynslu af samstarfi við Guðmund og hvar sem á málið er litið er ekki annað en gott um hann að segja. Ég festi ekki fingur á neinu gagnrýnisverðu í hans fari,“ segir Sverrir Hermannsson banka- stjóri. „Ég á mjög erfitt með að benda á kred- ithliðina á honum, því sem samstarfsmann að verkefnum hefur verið sérlega gott að eiga við hann," segir Helga Jónsdóttir skrif- stofustjóri. UNDIR IÖXINNI Friörik Jóhannsson forstjóri Verðbréfamarkaðar Fjárfestingarfélagsins Þau verðbréf sem hafa borið hæstu ávöxtun; hverjir eru raunvextir af þeim bréfum síðastliðna 12 mánuði, eftir lækkun- ina? „Tekjubréfin, þar sem minnsta breyting- in verður, bera 5,5% ávöxtun umfram verð- bólgu, en vextirnir eru 2% umfram verð- bólgu þar sem breyt- ingin er mest, það er á Markbréfum og Kjara- bréfum." Hvað verður um sparifé fólks? Er þetta ekki glatað fé? „ Verðbréfasjóðirnir eru auðvitað með mikla áhættudreif- ingu. Það er mikið af bréfum i pottinum og taphætta því lítil. Gengi á verðbréfum sjóðanna sveiflast, en þau eru engu að síður langtímafjárfesting. Þegar til lengri tíma er litið er ávöxtunin af bréfunum að meðaltali 11—12% umfram verð- bólgu. Þessi leið hefur því reynst vel til sparn- aðar." Hafið þið ekki verið að gabba fólk með þvi að auglýsa verðbréf sem gulltryggða leið til sparnaðar? „Nei. Þær breyting- ar, sem nú hafa orðið á gengi bréfanna, hafa ekki áhrif þegar til lengri tíma er litið. Þau eiga eftirað hækka aft- ur þegar markaðsvext- ir lækka og sú hækkun verður meiri en hún var áður en bréfin lækkuðu." Hvenær mega eig- endur þeirra verð- bréfa, sem hafa lækk- að, fara að búast við að þau hækki á ný? „Það má búast við að það verði á næst- unni." — Gengi Kjarabréfa ogMarkbréfa Verðbréfamarkaðar Fjárfestingar- félagsins hf. hefur verið lækkað um 4,5% og gengi Tekjubréfa um 2,5%.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.