Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 12
12
GULA PRESSAN
Föstudagur 27. desember 1991
Kona á Akureyri
VILL FÁ AÐ
GIFTAST
F RA mlh ÐN-
IJ ’M ] VLAh ÍNI
Akureyri, 26. desember_______
Ung kona á Akureyri,
Regína Sveinsdóttir, hefur
snúið sér til kirkjuyfir-
valda og dómsmálaráðu-
neytis með það fyrir aug-
um að fá leyfi til að giftast
framliðnum manni, Eyjólfi
Sveinssyni vinnumanni,
en hann andaðist árið
1763.
Forsaga málsins er sú að
þau Regína og Eyjólfur hitt-
ust á miðilsfundi snemma í
vor. Síðan hefur Regína
margsinnis komist í samband
við Eyjólf og þau fellt hugi
saman.
En það eru mörg ljón í veg-
inum. Yfirmenn kirkjunnar
og dómsmálaráðuneytið hafa
tekið dræmt í málið og bera
fyrir sig að þau óttist fordæm-
isgildið ef leyfið verður veitt.
Eyjólfur mun ekki liafa ver-
ið gæfumaður meðan hann
dvaldi í heimi lifenda. Hann
ólst upp í sárri fátækt, einn
fjórtán systkina, og var
vinnumaður á Urðum í Svarf-
aðardal allt sitt líf þangað til
hann andaðist eftir viðburða-
snauða ævi, 68 ára gamall.
Húsbændur Eyjólfs, Björn
bóndi Ögmundsson á Urðum
og kona hans Aðalbjörg, hafa
sett sig í samband við miðla á
Akureyri og lýst sig algjör-
lega mótfallin ráðahagnum.
Þau telja að Eyjólfur hafi eng-
in efnaleg ráð á að ganga í
hjónaband, hann sé vinnuhjú
og geti ekki boðið konu sinni
upp á neitt fjárhagslegt ör-
yggi. Mun Eyjólfi standa
nokkur stuggur af þeim hjón-
um, Birni og Aðalbjörgu, sem
hafa jafnvel haft í hótunum
um að neita að aflétta vista-
bandinu af Eyjólfi.
Regína situr hins vegar fast
við sinn keip:
„Við erum ástfangin og þar
með er málið útrætt," sagði
hún í samtali við GUEU
PRESSUNA.
Við erum ástfangin og þar með er málið útrætt, - segir Regína Sveinsdóttir, sem vill giftast
framliðnum manni.
Bíll iðnaðarráðherra eftir að hann var sprautaður samkvæmt fyrirmælum frá Osta- og
smjörsölunni.
Endanleg gerð fjárlaganna afgreidd
AUGLÝSINGAR
VERÐA SELDAR Á
RÁÐHERRABÍLANA
Osta- og smjörsalan keypti auglýsingu á bíl iðnaðar-
ráðherra og málaði hann gulan
Reykjavík, 27. desember
„Þetta er ekki skemmti-
legt en þetta var eina leid-
in til að loka dærninu,"
sagði Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra þegar
hann kynnti endanlega
gerð fjárlaga fyrir árið
1992 í morgun. I henni er
gert ráð fyrir að auglýs-
ingar verði seldar á ráð-
herrabílana auk annarra
nýrra tekjuöflunarleiða.
,,Um leið og við kynntum
þetta mál kom í Ijós að það er
mikil eftirspurn eftir svona
auglýsingum," sagði Friðrik.
„Osta- og smjörsalan hefur til
dæmis þegar keypt upp allt
auglýsingapláss á bíl iðnaðar-
ráðherra. Fyrirtækið ætlar að
mála hann gulan og hafa göt
á honum, eins og það hefur
gert við einn af vögnum
Strætisvagna Reykjavíkur."
Meðal annarra nýjunga í
frumvarpinu má nefna kost-
un á þingræðum i utandag-
skrárumræðum.
„Við töldum rétt að binda
þetta við utandagskrárum-
ræður til að byrja með. Ræð-
um í slíkri umræðu er frekar
útvarpað og sjónvarpað, svo
það er von á meiri peningum
með því að selja kostun á þær
en til dæmis umræður um
skattalagabreytingar." sagði
Friðrik Sophusson.
Ólafur fékk ekkert jólakort frá
Davíð Oddssyni. „Ég veit af
því að hann sendi Birni Bjarna-
syni kort," segir Ólafur.
Ég skil fyrr
en skellur í
tönnum
segir Ólafur G. Einars-
son, sem fékk ekki jóla-
kort frá Davíð
Garðabæ, 25. desember
„Auðvitað er þetta sárt.
Ég hefði kosið að hann
segði hug sinn með öðrum
hætti en ég skil fyrr en
skellur í tönnum,“ sagði
Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra í
samtali við GULU PRESS-
UNA. Hann segist ekkert
jólakort hafa fengið frá
Davíð Oddssyni fyrir þessi
jól.
„Davíð hefur alltaf sent
kort. Hann er formaður
flokksins míns og forsætis-
ráðherra í ríkisstjórn sem ég
á sæti í. Maður skvldi ætla að
það væri ekki ofverk að
senda manni kveðju um há-
tíðarnar." sagði Ólafur.
„Mig grunar reyndar að
þarna búi vmislegt að baki.
Það er orðið langt síðan hann
hefur tekið undir nokkuð af
því sem ég hef lagt til í ríkis-
stjórninni." bætti Ólafur við.
Fékk afurða-
lán út á hund
ég bað ekki um þetta, það bara kom, -segir
Sigríður Pálsdóttir, húsmóðir í Stykkishólmi
Stykkishólmi, 27. desember
„Auðvitað var gaman að
fá þessa peninga en ég bað
aldrei um þá,“ sagði Sig-
ríður Pálsdóttir, húsmóðir
í Stykkishólmi, í samtali
vlð GULU PRESSUNA, en
hún fékk ávísun upp á 3
milljónir og 400 þúsund
frá Landsbankanum inn
um lúguna nú rétt fyrir jól-
in. lMeð ávísuninni fylgdi
bréf þar sem Sigríði var
tjáð að hún hefði fengið af-
urðalán út á hundinn
Frísk.
„Ég er bara venjuleg mann-
eskja og veit ekki hvernig
þetta virkar í bankanum,"
sagði Sigríður. Hún sagði að
lánið hefði komið í góðar
þarfir fyrir jólin. „Frískur
fékk ekki mikið. Ég keypti þó
handa honum nýtt bein að
naga."
Forsvarsmenn Landsbank-
ans vildu lítið tjá sig um þetta
mál þegar GULA PRESSAN
leitaði upplýsinga þar.
„Við getum ekki stjórnað
þvi hvaða dýr fólk kaupir sér.
Ef það vill hund þá kaupir
það hund. Ef það vill lax þá
kaupir það lax," sagði Sverrir
Hermannsson bankastjóri.
Hundurinn Frískur. Landsbankinn veitti eigandanum 3,4
milljóna króna afurðalán.