Pressan - 27.12.1991, Qupperneq 17
Föstudagur 27. desember 1991
GULA PRESSAN
17
Nýútkomin bók veldur miklu fjaðrafoki á Bretlandi
HINN LEYN
ÞRAÐUR
SOGUNNA
Island í sviðsljósi heimsfréttanna, höfundarnir horfnir og taldir vera hér á landi.
New York 6. maí 1937 Loftskipiö Hindenburg eyöileggst í eldi. Viðstaddir eiga fótum fjör að launa.
Tima hinna miklu loftskipa var lokið.
heimi nokkra stund, skildu
fæst sem sagt var en höfðu þó
gaman af látbragði ýmissa
þingmanna. Þá var það að dr.
Willhelm rýkur upp til handa
og fóta, hrópandi á þýsku og
baðandi út öilum örmum;
hann hafði allt í einu séð
hann, falinn bak við hlaða af
skjölum, hinn dularfulla
hlekk sem þeir höfðu leitað
um árabil, hið dularfulla
lausnarorð, lykilinn að gát-
unni, rauða þráðinn sem
spinnur sig í gegnum sögu
mannkyns allt frá forsöguleg-
um tíma, fyrirboðann sem
virðist í lófa lagið að birtast
hvenær í sögunni sem hon-
um þóknast, sérstaklega þó
þegar stefnir í óefni, eitthvað
fer aflaga, úrskeiðis.
Peim prófessor Nott og dr.
Willhelm rann kalt vatn milli
skinns og hörunds.
Þannig segja þeir prófessor
Nott og dr. Willhelm frá þess-
um örlagaríka degi í bók
sinni. Eins og endranær hafa
óvægnir gagnrýnendur á
Bretlandi reynt að finna bók-
inni allt til foráttu. Þeim hefur
þó orðið lítið ágengt gegn
þeirri ofgnótt sannana og
röksemda sem prófessor Nott
og dr. Willhelm hafa safnað í
bók sína. Meðal þess sem vís-
indamennirnir hafa verið
ásakaðir fyrir er að sagan um
íslandsförina sé uppspuni frá
rótum, heldur hljóti þeir að
hafa notið aðstoðar íslenskra
manna við samningu bókar-
innar. Hins vegar hafa þessar
ásakanir hingað til verið lítið
meira en dylgjur og útúr-
snúningar í blöðum sem
njóta litils álits.
Einn þeirra sem bresk blöð
hafa reynt að bendla við ritun
bókarinnar er Jakob Magnús-
Egyptaland, 1205 f.Kr. Grimtes II faraó ásamt drottningu sinni.
Faeinum árum síðar gerði Móses Egyptum marga skráveifuna.
sökunar (Neue Rheinische
Zeitung, 16. mars 1991).
Engum lesanda getur dulist
sú mikla og þrotlausa vinna
sem hinir frábæru vísinda-
menn lögðu í samningu þessa
mikla verks sem hefur alla
burði til að marka tímamót í
rannsóknum á sögu mann-
kyns. Margir mundu ef til vill
freistast til að líkja starfi
þeirra tvímenninganna við
starf leynilögreglumanns ef
hin ósmekklega rógsherferð
gegn dr. Willhelm væri
mönnum ekki enn í fersku
minni.
Þeir prófessor Nott og dr.
Willhelm lögðu á sig ómælt
erfiði til að viða að sér efni í
bókina. Þeir létu sér ekki
nægja að sitja árum saman á
skjalasöfnum, heldur ferðuð-
ust þeir út um allan heim, oft
utan alfaraleiðar, um Evrópu,
Bandaríkin, Norður-Afríku,
Síberíu og Indland þvert og
endilangt. Stundum virtist
þeim starfið eftirsókn eftir
vindi og voru komnir á
fremsta hlunn með að gefast
upp, eins og til dæmis þegar
varð að grafa þá úr snjó-
skriðu eftir árangurslausar
rannsóknir í Tíbet.
En að lokum uppskáru þeir
ríkulega. Það gerðist þó ekki
fyrr en leit þeirra félaga barst
til litla íslands. Og eins og
flestar stórar uppgötvanir í
heimi vísindanna varð þessi
uppgötvun fyrir einskæra til-
viljun, hendingu á augnabliki
sem allt eins hefði getað liðið
hjá án þess að neitt gerðist.
í stuttu máli: Prófessor Nott
og dr. Willhelm voru staddir í
miðbæ Reykjavíkur að aflok-
inni máltið sem þeim fannst
hafa verið nokkuð dýr. Þeim
varð gengið framhjá Alþingi
íslendinga og ákváðu að
ganga upp á þingpalla, enda
fór ekki hjá því að starf elsta
þjóðþings í heimi kitlaði for-
vitni slíkra fræðimanna. Þeir
fylgdust grannt með þing-
Little Big Horn 1876 Öbreyttir
hermenn í liði Custers hers-
höfðingja eru sigurvissir áður
en þeir leggja til orrustu við
Sioux-indíána undir forystu
höfðingjanna Sitjandi tarfs og
Óða hests.
Pompei 79 e.kr. Mósaíkmynd
af Avarus Olavi, skattstjóra í
Pompei. Varðveist hefur bréf
frá honum til Avidus, ríkis-
skattstjóra í Róm, þar sem
hann hvetur til þess að stór-
auknar álögur verði lagðar á
þegna heimsveldisins. Eld-
fjallið Vesúvíus kom í veg fyrir
að þær ráðagerðir næðu fram
að ganga.
Lundúnum/Reykjovík 27. desember
„Harbinger — The Hidd-
en Thread,“ er heitið á
nýrri bók sem kom út hjá
Hodder & Stoughton-for-
laginu í Lundúnum fyrr í
þessari viku. Bókin hefur
valdið þvíliku fjaðrafoki
að breskir fjölmiðlar þykj-
ast ekki muna annað eins
og sagði bókmenntagagn-
rýnandi The Independent
að látunum vegna útkomu
Satanssálma Salmans
Rusdies mætti líkja við
storm í tebolla í saman-
burði við fárið vegna út-
komu þessarar óvenjulegu
bókar.
Það þarf varla að taka fram
að bókin er löngu uppseld hjá
bóksölum og forlagið hefur
ekki undan að prenta ný upp-
lög sem eru rifin út samstund-
is. GULU PRESSUNNI hefur
þó tekist að verða sér úti um
eintak af bókinni með hjálp
íslenska sendiráðsins í Lund-
únum og gefur lesendum sín-
um innsýn í furðuheim henn-
ar, fyrst íslenskra fjölmiðla.
Á íslensku útleggst titill
bókarinnar „Fyrirboðinn —
hinn leyndi þráður". Höfund-
ar hennar eru tveir þekktir
og virtir vísindamenn, breski
fornleifafræðingurinn próf-
essor C.S. Nott og þýski sagn-
fræðingurinn dr. Richard
Willhelm. Nott hefur starfað
við ýmsa þekktustu háskóla í
vesturheimi, Brandeis-há-
skóla í Boston, háskólann í
Bologna á Ítalíu og háskól-
ann í Durham á Englandi og
hlotnast margvíslegur heiður
fyrir vísindastörf. Dr. Will-
helm var lengi rektor háskól-
ans í Halle í Austur-Þýska-
landi, en var vikið frá störfum
vegna ásakana um að hann
hefði njósnað um stúdenta
fyrir leynilögregluna Stasi.
Síðan þá hefur nafn dr. Will-
heims verið hreinsað af öll-
um grún'Og öfundarmenn
hans beðist opinberlega af-