Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 40

Pressan - 27.12.1991, Blaðsíða 40
40 GULA PRESSAN Föstudagur 27. desember 1991 þá /4 tél ö aukafund til að ráðstafa hagnaðinum. Einhver minntist á þilplötuverksmiðju og annar sá framtíð í að selja vatn frá Patreksfirði. Kvennalistinn vildi róa á hefðbundnari mið og taldi ekki fullreynt með íslensku ullina. Austfirðingar réðu til sín ferðamála- fulltrúa og atvinnumálanefndir spruttu upp á ótrúleg- ustu stöðum. Húsvíkingar voru ekki alveg búnir að gefa buxnaverksmiðjuna upp á bátinn. Stofnað var félag til að selja útlendingum íslenska heilbrigðis- þjónustu, eða það sem yrði eftir af henni. Þótt engir vinningar kæmu á þessu ári héldum við því áfram að trúa á þann stóra. jóðleikhús Það er ekki tekið út með sældinni að halda úti ytri táknum menningarinnar. Ef íslendingar hafa ekki átt- að sig á því fyrr þá rann það örugglega upp fyrir þeim árið 1991. Þá gildir einu hvort menn telja Benedikt Árnason til ytri tákna menningarinnar eða Þjóðleikhúsið sjálft. Hvort um sig reyndist þjóð- inni dýrt á árinu. Nýr þjóðleikhússtjóri reyndi að reka Benedikt en komst ekki upp með það. Bene- dikt mun því verða áfram á launaskrá Þjóðleikhúss- ins. Það eina sem breytist er að nýi leikhússtjórinn mun ekki undir neinum kringumstæðum geta verið þekktur fyrir að notast við hann. Hann mun því fá laun án vinnuframlags. Húsið sjálft reyndist þjóðinni líka dýrt. Það hefur þegar kostað hundruð milljóna að gera við það og mun kosta þúsundir milljóna að klára verkið. Þegar þetta tvennt er talið saman — kostnaðurinn við viðgerðina og allir starfs- mennirnir sem þiggja laun en vinna ekki — þá er þjóðin búin að klára það sem hún tímir að leggja til leiklistarinnar. Hún á hús en fær enga leiklist. Hún hefur starfsmenn en fær enga vinnu. visögur Ævisögur og endurminningabækur tóku hörmu- lega stefnu á árinu. Brottreknir forstjórar og afdank- aðir stjórnarformenn ruddust fram á ritvöllinn, skrifuðu um eigin afrek og reyndu að koma höggi á eftirmenn sína. Kannski er þetta ekki forstjórunum að kenna. Kannski er sökin hjá þeim sem ráku þá eða reyndu að taka af þeim forstjórabílana. En eftir sem áður þurfa stjórnarmenn í fyrirtækjum héðan í frá að reikna með því, þegar þeir sparka forstjóran- um, að þurfa að lesa um það næstu jól hvurslags kúkalabbar þeir eru og hversu litlir vinir vina sinna þeir reyndust. Miðað við árangur íslenskra for- stjóra og 60 milljarða tapið mun þetta þó varla koma í veg fyrir brottrekstra. Það er hins vegar spurning hvort bókaútgefendur muni láta hafa sig út í útgáfu á miklu fleiri svona bókum. Það kom nefnilega í ljós í jólabókaflóðinu að tapið fylgir for- stjórunum eins og skugginn. Allt sem þeir snerta verður að uppsöfnuðu skattalegu tapi. Ölvun við akstur varð ekki sérstakt vandamál fyrr en lögreglunni áskotnaðist nýtt tæki til að mæla hana með. Þá mynduðust umferðarhnútar við gatna- mót á meðan ökumennirnir þurftu að blása í tækið til að komast yfir. Ölvun í miðbænum var heldur ekki sérstakt vandamál fyrr en Markús Örn varð borgarstjóri. Það kom líka í Ijós að hún var fyrst og fremst sálrænt vandamál sem síðan læknaðist af sjálfu sér þegar hann fékk áhuga á einhverju öðru. Ölvun varð fyrst vandamál þegar Davíð Oddsson mætti í Leifsstöð til að taka á móti heimsmeisturun- um í brids. Ávinningurinn af sigrinum, landkynningin og stoltið, fauk út í veður og vind. Alveg eins og ræðan hans Davíðs. Þjóðin spurði sig hvort það væri hægt að skipstjórinn á skútunni væri fullur. Hann sagðist bara hafa drukkið tvö kampavínsglös og þjóð- in stimplaði hann sem hænuhaus. Síðan hefur þetta þvælst á milli þjóðarinnar og Davíðs. Þjóðin er hætt að heyra hvað hann segir en pælir þeim mun meira í því hvort hann sé timbraður. ÞAÐ SEM HVARF Á ÁRINU og það sem missti marks en hvarf samt ekki Þetta ár einkenndist af upp- rifjunum og endurfæðingum. Rúnar Júlíusson kom aftur. Platform-skórnir komu aftur. Bíladellan varð lögleg. Sig- urður Guðmundsson kom í Listasafnið. Haukur Mort- hens kom aftur. Og allt það. Ekkert var svo aumt í fortíð- inni að ekki þætti við hæfi að rifja það upp og prufa upp á nýtt. Samt sem áður lentu fáein atriði á sorphaugum sögunn- ar á þessu ári. Mál sem eng- inn nennti að ræða lengur, hugmyndir sem urðu púkó, menn sem allir voru orðnir leiðir á, hlutir sem urðu gagnslausir og grýlur sem enginn var lengur hræddur við. 0 Innanflokksátökin í Al- þýðubandalaginu Þau hurfu á árinu. Sjálfsagt vegna þess að enginn nennti að hlusta lengur. Það gerðist áður en þátttakendurnir misstu áhugann. • Ólína Þorvarðardóttir Hún hvarf á árinu. Sjálfsagt líka vegna þess að enginn nennti að hlusta. • Hækkun persónuafslátt- ar Einkennilegt mál. Fyrir kosn- ingar voru allir flokkar sam- mála um að ekki yrði hjá því komist að hækka persónuaf- sláttinn. Menn deildu um hversu mikið ætti að hækka hann. Frá miðnætti á kosn- inganótt hefur hins vegar ekkert heyrst af þessu máli. Það hvarf. 9 Geir Gunnarsson Maðurinn sem hvarf endan- lega á árinu. Geir sat á þingi í þrjátíu ár og var talinn gáf- aður af því hann gaspraði ekki og kunni að reikna en var samt sem áður í Alþýðu- bandalaginu. Hann byggði upp virðingu með því að gera sem minnst. Síðast spurðist til Geirs í kartöflugarði. • Nýöidin Hún varð púkó á árinu. Vendipunkturinn var þegar Mannlíf setti hana á forsíð- una. Sigurður Gísli Pálmason í jóga-stellingum uppi á stjórnarborðinu í Hagkaup var einfaldlega meira en fólk gat kyngt. Nýöldin fjaraði síð- an út á ljósvakanum. Miðl- arnir og stjörnuspekingarnir misstu hlustun. Eiríkur Jóns- son vann á. Fólk vildi smá- hörku í mýktina. Nýöldin var of vemmileg. • Júlíus Sólnes Hvarf sporlaust á árinu. Frétt- ist af honum í Japan og Kaup- mannahöfn. Eiður Guðnason seldi meira að segja umhverf- is-jeppann. Þar með hvarf það mark sem Júlíus hafði sett á pólitíkina. • Franska eldhúsið Eftir tíu ára hungurtíð hvarf franska eldhúsið loks. Listin flutti aftur í listasöfnin og maturinn og lystin í eldhúsið. Skammtarnir stækkuðu, bragðið varð kröftugra og meira að segja íslenska moð- eldhúsið komst í tísku. Rauð- kálið var á mörkunum að slá í gegn. • Valgeir Guðjónsson Hann byrjaði að hverfa á síð- asta ári. Um mitt þetta ár var hann gersamlega horfinn. Hann reyndi endurkomu á árinu og gaf út plötu um Gaiu. Þá missti þjóðin áhugann á víkingaskipinu, Leifi heppna og Ameríku. • Það sem missti marks á árinu en hvarf ekki Nokkur atriði misstu marks á árinu en hurfu ekki. Þau héldu áfram að vera til en fólk var búið að missa áhug- ann. Jón Sigurðsson. (Hann missti marks.) Opnun Austurstrætis. (Þegar til kom var öllum hjartanlega sama.) Handboltalandsliðið. (Það hélt áfram að keppa en fólk var hætt að búast við nokkru.) Einar Oddur Kristjánsson. (Fólk hætti að trúa heimsend- israusinu.) Rósa Ingóifsdóttir. (Flestir voru búnir að fá nóg.) Byggðastofnun. (Hún missti fjárráðin. Eftir það var til- gangsleysið algjört.) Jóhannes Jónsson Enginn einn maður hafði jafnmikil áhrif á landsmenn á árinu og Jóhannes í Bónus. Sumir hafa kannski komið meiri tilfinningaróti á fólk, aðrir hafi verið hávaðasam- ari og enn aðrir verið ofar í huga okkar — en enginn þeirra seldi okkur paprikuna á fjórar krónur. Slíkt hafði verið óhugsandi áður en Jó- hannes kom, nema í himna- ríki hins seinþreytta íslenska neytanda. Jóhannes gerði fólki kleift að borða á árinu. Án hans hefði kreppan orðið dýpri, sorgin þyngri og land- flóttinn meiri. Hann er mað- ur ársins. Magurt ár í heimsfrægðinni Magurt ár, nei, hroðalegt ár fyrir heimsfrægð íslendinga. Álmenn heimsfrægð okkar hefur minnkað á árinu ef eitt- hvað er, sú sérstaka reyndar líka, sú sem er stærst og býr í hjörtum okkar. Ljóshærðar stúlkur reyndu að vísu hvað þær gátu til að halda nafni okkar á lofti. Mar- ía Ellingsen og Yohanna Yon- as léku skandinavíska skipti- nema í amerískum sápuóper- um og vöktu athygli. Japani langaði að líkjast öllum ljós- hærðu íslensku stúlkunum sem sýna föt þar austurfrá, en Linda Pélursdóttir fannst þeim of stór biti að kyngja. Enn ein Ijóshærð stúlka, Berta María Waagfjörd, varð fyrsta íslenska konan til að láta taka myndir af sér í Play- boy. Við erum ennþá að bíða eftir því að þær birtist. Þar fyrir utan var drjúgur hluti af heimsfrægð okkar líkt og að gróa saman við varamannabekkinn. Þar voru Sykurmolarnir og bekk- inn vermdi lika sægur af ljós- hærðum íslenskum fótbolta- strákum. Sú litla heimsfrægð sem með einhverju móti ávannst var öll í hálfgerðu skötulíki: Hilmar Örn Hilmarsson mús- íkant varð heimsfrægur á kvikmyndahátíð í Berlín; sú frægð stóð ekki nema kortér og flestir hér heima voru eig- inlega sammála um að þarna hefði verið tekinn feill og vit- laus maður orðið heimsfræg- ur. Enginn hefur hins vegar ef- ast um að Leifur Eiríksson sé réttborinn til heimsfrægðar, enda deildu Norðmenn og ís- lendingar hart á árinu um hvorir ættu bróðurpartinn í Leifi eða hann allan. Hæng- urinn var bara sá að þegar öllu var á botninn hvolft hafði enginn áhuga á að heyra eitt eða neitt af Leifi. Það höfum við fengið að heyra á þessu ári að öll sú heimsfrægð sem við höfum áunnið okkur fyrr og síðar sé í hættu vegna handboltans, enginn muni framar taka mark á íslendingum eða líta þá réttu auga ef við svíkjumst um að halda heimsmeistara- keppni í handbolta. Það kann náttúrlega að vera rétt, og ef svo er duga afrek okkar í briddsinu vart til mótvægis. Eftir að sá titill var í höfn skaut Ferðamálaráð á skyndi- fundi til að hugleiða hvernig mætti nýta hann sem hraðast og best í landkynningar- skyni; sjálfsagt var þar margt nýtilegt rætt en milljónir út- lendra bridspílagríma hafa hins vegar ekki meldað til sig landsins ennþá. Kannski urðum við heims- fræg fyrir vitlausa íþrótt?

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.