Pressan - 23.07.1992, Blaðsíða 38
38
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. IÚLI 1992
Poppið
Júpíters sú vinsæla
stórhljómsveit, verður á
Púlsinum í kvöld. Og
^jBreyndar líka á Bylgjunni
þvi þessu verður víst öllu útvarpað á
íslensku tónlistarsumri í goði Boða
(stafavíxl er trend í dag). Júpiters eru
stórfínir og hafa gert matarmikil
myndbönd við einhver laga sinna.
Sönsum dömbu.
• Bárujárn. Þetta er ekki svona Byko
bárujárn heldur er þetta bárujárn-
rokksveit ein ógurleg, sem ætlar að
koma sér fýrir í Grjótinu í kvöld. Einu
sinni var til hljómsveit sem hét Þjófar
og svo er til maður sem heitir Sigur-
jón Skæringsson. Og í stað þess að
Sigurjón gerðist þjófur var nafninu
breytt í Bárujárn. Þannig er nú sú
saga.
• Tori Amos er orðin pínulítið fræg í
útlöndum og á víst eftir að verða
ennþá frægari segja poppspekúlant-
ar. Hún erá Borginni.
• The fabulous Blues Babies er
hljómsveit sem virðist hafa sjálfs-
traustið í lagi — að minnsta kosti ef
marka má nafngiftina. Nú nú, þetta
band stígur á stokk á Gauknum í
kvöld og töfrar auðvitað eitthvað
ómótstæðilegt fram. Við getum svo
sem alveg trúað því að þetta verði
skemmtilegt og sveitin standi undir
nafni.
• Guðmundur Rúnar, vespuhjóla-
kappi með miklu meiru, höndlar gít-
arinn sinn á Café Amsterdam í kvöld.
Og hann spilar bara vel strákurinn og
nær upp stemmningu.
FÖSTUDAGUR
• Lizt. Þessa hljómsveit þekkjum við
ekki. Að vísu munum við eftir einum
Lizt en hann er löngu dauður og
myndi örugglega ekki trekkja á Gauk-
inn í kvöld væri hann á lífi karlinn. En
þessi Lizt spilar víst tónlist sem fólk
ætti að fíla og því leggja ugglaust
einhverjir leið sína á Gaukinn í kvöld
til að hlusta og dansa. Og drekka
náttúrlega, sumum finnst það alltaf
skemmtilegast. O jæja.
• Fjórir fjórðu skemmta gestum
Nillabars í Hafnarfirði. Nilli er víst
orðinn þriggja ára, það er barinn
hans, og það kemur dönsk stelpa til
að hátt sig. Sumir fá líka grænan
Tuborg ókeypis.
• Tori Amos. Orðin obbulítið fræg-
ari en í gær og er aftur á Borginni.
• Bogomil Font og hans ríka slekti
allt saman verður á Púlsinum í kvöld.
Bogomil Font er fínt í stafavíxl, Fog-
omil Bont hljómar alveg jafn vel. Það
á víst að gera myndband með Bog-
omil fyrir MTV. Flott að fara og dansa
fyrir framan myndavélarnar, kaupa
sér síðan gervihnattardisk og bíða
spenntur.
• Bárujárn. Nú eru strákarnir hættir
að stilla upp og djamma smá. Og
keyra á fullt og rokka mikið.
• Tveir logar verða á Rauða Ijóninu.
Þetta eru öllu færri logar en voru í
Ingólfscafé um daginn. En munurinn
er sá að þessir logar þykja meinlaus-
ari og verða því varla slökktir með
froðu. Nema þá bjórfroðu ef þeir
verða ofsalega leiðinlegir.
• Óskar Einarson er trúbador. Hann
ætlar að leika á gítarinn sinn á Café
Amsterdam. Spilar bara allt mögulegt
og kann alla helstu slagarana. Til eru
fræ.
• Gildran. Þá ágætu sveit ænu allir
að vera farnir að þekkja enda eru
strákarnir búnir að vera að í áratugi.
Gildran er svona hljómsveit sem
menn ýmist elska eða hata. Samt eru
þetta voðalega elskulegir menn og
gasalega flinkir spilarar - - það vantar
ekki. Og þeir verða á Tveimur vinum í
kvöld.
það er satt best að segja bara giska
gaman að hlusta á þá. Og það er líka
svona garður sem heitir einhverju
ógurlega flottu nafni'sem við erum
búniraðgleyma.
• Óskar Einarsson er búinn að vera
á Café Amsterdam síðan í gær og
ætlarað vera lengur.
• Kredit á Gauknum. Ekki þannig að
menn fái skrifað á barnum. Ertu frá
þér. Þetta er sko hljómsveit. Mér ligg-
ur við að segja því miður því ég hefði
alveg þegið að fá skrifað á barnum.
Snökt. En kætumst öll og hlustum á
Kredit og borgum með Vísa. Koma
dagar, koma ráð.
• Bogomil Font elsku karlinn er enn
á Púlsinum þannig að þeir sem í gær
voru á skallanum ra annan sjéns.
SUNNUDAGUR
• Cadensa er bæði nafn á hljóm-
sveit og tónlistarsérfræðingar segja
þetta líka eitthvert tækniorð úr tón-
list. Hljómsveitin verður á Café Amst-
erdam í kvöld. Þeir eru tveir. Einn er
breskur en hinn íslenskur og þeir
spila allan fjandann barasta.
Barir
• Café au Lait í Hafn-
arstræti er raunar
frekar kaffihús en
bar, en samt sem áður má fá
þar áfengi af ýmsum gerðum,
sér í lagi þess háttar, sem Ijúf-
legast rennur niður með kaffi,
það er að segja koníök og lí-
kjöra ýmsa. Café au Lait er tví-
mælalaust eitt besta kaffihús
landsins: kaffið þar er æðis-
legt, það er hæfilega lítið og
intímt, þar er hægt að fletta
blöðunum í ró og næði, og
þrátt fyrir að innréttingin sé
fremur spartönsk er stemmn-
ingin þægileg, jafnvel heimil-
isleg. Þjónustan er líka lipur
og persónuleg. Öfugt við önn-
ur kaffihús, sem opna vín-
skápinn er líður á daginn,
breytir Café au Lait ekki um-
svifalaust um svip, sem gerir
það kannski að skemmtilegri
bar fyrir vikið. Reyndar er það
nú svo að allt of fáar tegundir
af kaffi-áfengi fást hér á landi
og það takmarkar úrvalið
nokkuð. (Á góðum kaffihús-
um á Italíu eru 20 tegundir á
absintu-listanum einum!) Hins
vegar má ekki gleyma því að
flestar áfengistegundir, sem
drukknar eru með kaffi, eru í
dýrari kantinum, svo það er
enginn vandi að súpa fyrir
fimmþúsundkall á tveimur
tímum. Gestirnir eru flestir
undir þrítugu og tala gáfulega
og verða æ skemmtilegri eftir
því sem þeir drekka fleiri es-
presso og Remy. ★★★★
Sveitaböll
FÖSTUDAGUR
hans
LAUGARDAGUR
> Siglufjörður. Sálin
IJóns míns.
• Hnífsdalur. Síðan :
sól og Lipstick Lovers.
i Víkurröst, Dalvík. Skriðjöklar.
• Ýdalir Aðaldal. Sálin hans Jóns
míns.
• ísafjörður. Síðan skein sól.
•Valhöll, Eskifirði. Skriðjöklar.
LAUGARDAGUR
• Sambandið. Ekki samt blanka
Sambandið sem stundum er
(fréttum. Þetta er hljómsveitin Sam-
bandið. Hún er nýbúin að senda frá
sér geislaplötu (nú tölum við um
plötur en ekki diska, muna það) sem
heitir Ný spor. f þessu Sambandi eru
Bjarni Helgason, Reynir Guðmunds-
son, Þröstur Þorbjörnsson, Albert
Pálsson og Gunnar Guðjónsson. Og í
kvöld ætla þeir að halda útgáfutón-
leika í Súlnasal Hótel Sögu. Ekki vitum
við hvernig múslk þeir spila en við
veðjum á svona vandað foreldra-
popp.
• Bárujárn. Ennþá allt í byigjum (
Grjótinu.
• Völuspá verður I Firðinum I kvöld
og er ekki nema gott eitt um það að
segja. ( Völuspá eru gamalreyndir
popparar sem engu hafa gleymt og
Sýninqar
• Það var svo geggjað.
Árbæjarsafn er löngu
hætt að snúast bara um
moldarkofa og gömul
hús, heldur líka um fólk,
sumt í ekki alltof fjarlægri fortíð. Til
dæmis hippasýningin sem ber með
sér andblæ áranna 1968 til 1972,
þegar herbergi unglinga önguðu af
reykelsi, allir gengu í útvíðum buxum
og karlmenn voru hæstánægðir með
að skvetta á sig Old Spice- rakspíra.
Opiðkl. 10-18.
• Húsavernd á ístandi. Aðalstræti
er sorglegt dæmi um þegar menn
vilja hvort tveggja halda og sleppa,
vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar
eru á hinn bóginn fagurt dæmi um
skynsamlega húsavernd. í Bogasal
Þjóðminjasafns stendur yfir sýning
þar sem er rakin saga húsaverndar á
Islandi. Opiðkl. 11-16.
Gatan mín er
EINAR THORODDSEN læknir og vinsmakkari „átti
heima í tvö ár á Fjölnisveginum, i bleiku húsi". Ég
held að þar hafi mér liðið hvað best, því ég var það
lítill að ég var aðalstjarnan á heimilinu. Eftir það
fór sól mín lækkandi og ég tapaði dálítið völdum.“
Einar segist hafa lært að hjóla á Fjölnisveginum.
„Tveir strákar, Alli og Ásgeir (Hannes Eiríksson),
buðust til að kenna mér að hjóla með því að
hrinda mér niður Mimisveg, en ég þorði ekki."
Hann lærði samt að hjóla og lika aS þekkja
hvað var vinstra megin á götunni. „Maður var
vinstra megin á götunni vestan megin. Svo hjólaði
maður vinstra megin út á horn og til baka sömu
megin og það taldist vera vinstra megin líka."
Helstu leikfélagarnir voru Gunna og Lóa og vinsælt
leiksvæði voru grunnar og byggingar á Landspít-
alalóðinni. Alli og Ásgeir voru stærri en Einar og
alltafað etja honum út i hluti sem hann var tregur
til að gera. Síðan bjó amma á Laufásveginum og
þangað var stutt að fara. „Ég gæti vel hugsað mér
að búa aftur við Fjölnisveginn. Þar eru rólegheit og
stórir garðar. Hátt til lofts og vítt til veggja ígörð-
unum" segir Einar Thoroddsen.
FJÓLNISVECUR
Þeir sem á annað borð velta fyrir
sér tísku og flottheitum í öllum
birtingarformum þekkja Guð-
mund Karl vel. Hann var lengi
áberandi en svo hvarf hann.
„Ég hef verið í myndlistar-
námi í Vancouver í Kanada
og var að klára núna í vor“
segir Guðmundur Karl. í
náminu einbeitti hann sér að
skúlptúr en í heildina var
þetta almennt myndlistarnám
með hefðbundnum fögum auk
þess sem eitthvað var fiktað við
ljósmyndun og tölvur — eða „bara
það sem þurfti í það og það skiptið".
Á að nota þetta? „Já, vonandi get-
ur maður notað þetta og námið
hefur kennt manni að hugsa og sjá
hlutina í nýju ljósi. Þegar maður er
í vinnu frá 10-6 er enginn tími til
að hugsa um póstmódernisma
og þess háttar, en þetta kemur
manni alltaf til góða í fram-
tíðinni."
Systur Guðmundar eru í
listinni líka, önnur er ljós-
myndari en hin er að
koma heim sem leikhús-
fræðingur. „Við erum svo
listhneigð systkinin! Ætli
við leggjum ekki bara
undir okkur menning-
arlífíð.. .neeiiii.“
Var í Kanada að læra myndlist.
Hvar rígnir minnst um
verslunarma maheigina ?
Kaldár melar
(þróttahátíð með
Júpíters, Sólinni,
Nýjum dönskum
og KK og reifi fyrir
5.900 krónur.
= , ,' ■
|10
1 L
Heimild: Veöurstofa Isltmds
12C,C Galtalækjarskógur
r~ 1(JÍ Bindindismót með
Sléttuúlfunum, Sverri
9 ^ Stormskeri, Greifunum og
8Í Sororicde fyrir 5.000 kall.
Hitamælirinn sýnir meðalhita
íjúlíogágúst 1981-1990
Regnhlífamarsýna meðalúrkomu á sama
tíma ogjafngildirhverregnhlíf 10 mm.
Sólirnar prjár sýna aftur hlutfall
sólskinsstunda íjúlí og ágúst 1961-1980.
Þjóðhátíð í Vestmannae yjum
Sálin,Todmobile, Geiri Sæm,Eyvi
og Lúðrasveit Vestmannaeyja
fyrir 6.500 krónur
«
PRESSANAM
mmc;
FÁNNST PéiZ
emí
móifsmé
UH SÍÐUSIU
HEbQD
Sissaljósmyndari
„Mér fannst gott að fá
loksins að njóta þess að
fara í útilegu. Það gat ég
að sjálfsögðu bara af því
að Ingólfscafé brann.“
Höddi verslunarstjóri í
Tangó
„Mér fannst það í sjálfu
sér í góðu lagi en ef ég
hefði farið eitthvert hefði
ég auðvitað farið
þangað."
Hrefria í Topptískunni
„Ég vinn þar og því var
ágættaðfáffíogég
skemmti mér vel í stað-
inn.“
Glúmur Baldvinsson
„Þetta sýndi mér ff am á
að lífið hefur upp á eitt-
hvað annað og meira að
bjóða en viðbrennd dans-
hús, og sumarið er heitast
undir berum himni þegar
sólin skín að kvöldlagi.“