Pressan - 20.08.1992, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 20. ÁGÚST 1992
7
F
-l—/kki eru allir jafnánægðir með kvik-
myndina Veggfóður og Júlíus Kemp og
Jóhann Sigmarsson, aðstandendur
hennar. í myndinni er
atriði þar sem söng-
konur eru prófaðar,
lagið sem þær eru látn-
ar spreyta sig á heitir
Valur og jarðarbefja-
maukið og kom fyrst út
á Mávastelli Grýlanna.
Þar eru Grýiumar skráðar fyrir laginu, en
það rétta er að Kristján Edelstein og
Ævar Rafnsson, sem lácu saman í hljóm-
sveitinni Chaplin, sömdu bæði lag og
texta, á Mávastellinu eru þeir eingöngu
skráðir textahöfundar. Nú er lagið komið
út í annað sinn ásamt annarri tónlist úr
Veggfóðri en ekki var leitað leyfis hjá
þeim félögum fýrir notkun þess í mynd-
inni eða útgáfu á geislaplötu. Þeir Ævar og
Kristján hefðu vafalaust veitt þetta leyfi,
en sjálfsögð kurteisi þykir að tala við þá
sem höfundarrétt eiga á tónlist áður en af-
urðþeirra ergefin út...
V,
insælasta dægurlag á íslandi í dag
er gamli Kris Kristofferson-slagarinn
Help me make it through the Night í
piflutningi Rutar Regin-
! alds. Af einhverjum
ástæðum virðist þessi
gamalkunni slagari
hitta fólk beint í hjarta-
stað um þessar mundir
|og hefur orðið til þess
■ að koma Rut aftur í hóp
vinsælustu söngkvenna landsins. Hún
hefur verið viðloðandi Evróvisjón um
margra ára skeið, án þess að auðnast að
vinna, en þess á milli hefur frekar lítið
borið á henni...
J—/ins og ffam hefur komið gerði Sæv-
ar Jónsson, knattspymukappi og eigandi
úra- og skartgripaverslunarinnar Leon-
ards í Borgarkringl-
unni, kauptilboð í
verslunarhúsnæði
Vogue í Kringlunni en
tilboði hans var hafnað.
Þeir sem eru fyrir í
Kringlunni hafa for-
Hkaupsrétt að plássi sem
þar losnar og þann forkaupsrétt nýtti Jens
Guðjónsson gullsmiður ásamt tveimur
öðrum aðilum, sem eru að berjast um
sama markað og Sævar, og Jóni Ólafssyni
í Skífunni. Eigendur úra- og skartgripa-
verslana í Kringlunni vom ekki hrifitir af
þeirri tilhugsun að fá Sævar í húsið og
mynduðu því einskonar hræðslubanda-
lag, með fulltingi Jóns, til að koma í veg
fýrir að Sævar færi inn. Jón er einmitt
maðurinn sem hagnast á kaupunum.
Vogue var við hliðina á plötubúð Skíf-
unnar í Kringlunni og hann hefur nú leigt
húsnæðið af kaupendunum (sjálfum sér,
meðal annars). í næsta mánuði verður því
opnuð ný og glæsileg plötuverslun í sam-
einuðu plássi Skífunnar og Vogue og úra-
kaupmenn í Kringlunni draga andann
léttar...
M argir sumarhúsaeigendur við Ell-
iðavatn eru afar gramir vegna byggingar-
framkvæmda Helmuts K. Kreidlers
sjónglerjafræðings við sumarbústað sinn
þar. Helmut, sem rekur þekkta gler-
augnaverslun við Laugaveginn og á land
að vatninu, hefur gert sér lítið fyrir og
hlaðið voldugan grjótgarð nokkuð út í
vatnið og að auki strengt vírgirðingu eftir
honum endilöngum. Vegna mannvirkis
þessa er ómögulegt að ganga hringinn í
lcringum vatnið eftir bakkanum og verða
göngumenn því annaðhvort að taka á sig
nokkurn krók upp fyrir landareign
Helmuts eða vaða langt út í vatnið til að
geta haldið för sinni áfram. Sennilega ætti
fólki á heilsubótargöngu ekki að gremjast
að þurfa að bæta dálítilli vegalengd við
túrinn, nema hugsanlega vegna þess, að
lögum samkvæmt er bannað að girða út í
vötn hér á landi. Sumir sem þama hafa
rekið sig á fýrirstöðu hafa spurt sig hvort
þetta sé það sem koma skal ef við göngum
í EB og útlendingar fara að setjast hér að í
meira mæli en áður...
JL\.nattspyrnusamband íslands og
Visa fsland hafa útnefnt prúðustu lið og
leikmenn í fýrstu deild karla og kvenna.
Miðað er við tólf umferðir. Prúðasta liðið í
fyrstu deild kvenna er Höttur frá Egils-
stöðum og prúðasti leikmaðurinn Sigrún
S. Óskarsdóttir. f fýrstu deild karla var
Bjami Sveinbjömsson hjá Þór prúðasti
leikmaðurinn og prúðasta liðið er skipað
Hafnfirðingunum í FH. Knattspymusam-
bandið vonar að þessar viðurkenningar
verði til þess að leikmenn, þjálfarar og
forráðamenn hemji skap sitt í leikjum, en
í sumar hefur borið óvenjumikið á því að
liðsmenn láti skapið hlaupa með sig í
gönur, bæði innan vallar og utan...
T>
-LJorgarráð hefur samþykkt beiðni Ól-
afs S. Bjömssonar, eiganda Steypustöðv-
arinnar Óss hf„ um að fá að byggja á homi
Borgartúns og Kringlumýrarbrautar. Þar
em nú brunarústir Klúbbsins, en Ólafur
gerir ráð fýrir að rífa þær og byggja nýtt
fimm hæða verslunar- og skrifstofuhús-
næði. Það er í sjálfu sér athyglisvert ef Ól-
afur fær leyfið, því eftir síðustu byggingar-
framkvæmdir í Reykjavík var hann svipt-
ur byggingarleyfi. Það vom ffamkvæmdir
við Hamarshúsið, en þar var talið að Ólaf-
ur hefði brotið velflestar byggingarsam-
þykktirsemtilvom...
upp á fiölbrentta «»a3
-3i ÁfiW
v/\ o
pA o
<?/\ U o j( o
O o
i®©©'®a
<7/\ O
e/\ o
o u
Flokkask*»Ptin3
ís\andsmót*» er
eftirfarandn
-43-15 ára
-46-19 ára
20-39 ára
Nánari upplýsingar um tilhögun Islandsmótsins eru veittar í helstu reiðhjólaverlsunum og hjá forsvarsmönnum ÍFHK
Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar veitir Ólafur Árnason á Dalvík í síma 96-61619.