Pressan - 20.08.1992, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. ÁGÚST 1992
11
Hönnunargallar koma í ljós í Herjólfi
GÆTIK0S1A6 HÁLFAN
MILLJARB AÐ GERA
SKIPIÐ ÖRUGGT í
VETRARVEBRUM
Alvarlegir hönnunargallar hafa komið í ljós í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi. Skipið lemur og heggur ef
gerir einhverja öldu þannig að allt leikur á reiðiskjálfi. Framundan er vetur á einni erfiðustu ferjusiglingaleið heims og í kjölfar
þess hafa komið upp efasemdir um öryggi skipsins. Ákveðnar
hafa verið prófanir á skipinu sem verða í höndum hönnuða þess.
Alvarlegir gallar hafa nú komið
fram í hönnun Vestmannaeyja-
ferjunnar Heijólfs, sem tekin var í
notkun í sumar. Um síðustu helgi
kom í íyrsta skipti veður þar sem
reyndi á skipið. Margir eru á því
að það hafi í raun fallið á prófinu.
Aður en ákvörðun um smíði
þessarar tegundar af skipi var tek-
in kom fram margvísleg gagnrýni
á hönnun skipsins. Margt af þess-
ari gagnrýni er nú að koma á dag-
inn. Um leið vakna spurningar
um öryggi skipsins, því framund-
an er fyrsti vetur þess. Spurningin
er: Verður því treyst óbreyttu til
að stunda áætlunarsiglingar á
einni erfiðustu ferjuleið í heimi
eða þarf að gera miklar og dýrar
breytingar? Dugar það yfirleitt til
að leiðrétta grundvallarmistök í
hönnun skipsins?
SKIPSTJ ÓRINN
GAGNRÝNIR SKIPIÐ
f Vestmannaeyjum eru þungar
áhyggjur af framtíð skipsins. Hef-
ur skipstjórinn, Jón Eyjólfsson,
lýst yfir áhyggjum sínum. Jón
sagði að þetta væri í raun í annað
sinn sem slíkir hnökrar á siglinga-
hæfni skipsins kæmu í ljós. Þegar
siglt var í kringum landið í upp-
hafi kom fram að það hjó mjög iÚa
í öldu.
„Það er mitt persónulega álit að
skipið sé of breitt miðað við lengd
og þá um leið of flatbotna,“ sagði
Jón. Hann sagði að skip með 16
metra breiðan skrokk væru yfir-
leitt um 100 metra löng en Herj-
ólfur er 70,5 metrar. Hann væri
því vantrúaður á að lenging dygði.
Jón sagðist alltaf hafa verið á
móti því að stytta skipið því þá
hefði legið ljóst fyrir að það yrði
verra sjóskip. Nú liggur fyrir að
skipið „heggur" illa í öldu, sem fer
mjög illa með það. Hættur á
skemmdum á skipinu aukast
vegna álags frá höggunum og þá
fer þetta illa með tækjakost. Þá
verður að reiða sig mjög á jafn-
vægisugga skipsins. Ef þeir bila
verður það eins og korktappi á
sjónum.
Og hugmyndir frá hönnuðum
skipsins um að breyta um sigl-
ingaleið telur Jón út í hött. „Bárð-
ur Hafsteinsson hefur látið hafa
eftir sér að það þurfi að fara að
finna nýja leið hér á milli, sem er
alveg fáránlegt. Það er bara um
tvær leiðir að ræða; annars vegar
beint á milli Vestmannaeyja og
Þorlákshafnar og svo hins vegar
að fara meðfram ströndinni í
norðaustanátt. Um aðrar leiðir er
ekki að ræða.“
EFASEMDIR UM
ÖRYGGISKIPSINS
En Jón hefúr áhyggjur af vetrar-
veðrunum sem eru framundan.
„Þetta um helgina var bara aust-
an-bræluskítur þar sem var rifinn
upp vindbárusjór, svona þrír/fjór-
ir metrar. Eftir að vindur var dott-
Sigurður Ingvason skipahönn-
uður: Segist hafa efasemdir um
öryggi skipsins.
inn niður kom sléttur sjór. Síðan
er bara allt annar hlutur sem við
tölum um, sem er suðvestanáttin.
Hafaldan sem kemur upp að
landinu úr lægðunum suður í höf-
um nær sér upp á mildnn hraða
með langri öldu. Það er óskrifað
blað,“ sagði Jón. Bæði hann og
Sigurður Ingvason skipahönnuð-
ur ræddu sérstaldega um það þeg-
ar ölduhæð kemst upp í 15 til 20
metra, sem hefur mælst þama við
suðurströndina og er nánast ein-
stæð í heiminum. Það er þetta
sem gerir siglingaleiðina sérlega
hættulega.
Hlutur Sigurðar í þessum mál-
um er sérstakur, þar sem hann
hefur unnið sem skipahönnuður
víða um heim í áratugi. Hann var
ráðgjafi við eitt af tilboðunum
sem gerð vom í smíði Herjólfs og í
framhaldi af þvi' spunnust miklar
deilur á milli hans og forráða-
manna Skipatækni hf., sem hönn-
uðu skipið og höfðu alla umsjón
með smíði þess. Sakaði Sigurður
þá um stuld á einkaleyfishug-
Steingrímur J. Sigfússon, fyrr-
verandi samgönguráðherra: Sú
ákvörðun hans að minnka Herj-
ólf kann að reynast dýrkeypt.
myndum og fyrir vikið reka
Skipatæknimenn nú meiðyrða-
mál gegn honum.
En Sigurður sagði á sínum tíma
að skipið væri hættulegt og í sam-
tali við hann, þar sem hann var
staddur í Svíþjóð, kom fram að
hann er enn sama sinnis.
ÓNÓGAR PRÓFANIR
ÁSKIPINU
„Ég hef séð ummæli skipstjór-
ans og það er augljóst að margt er
að við skipið. Þá er ljóst að það
hefur engan veginn verið nóg að
framkvæma prófanir á því á sín-
um tfrna miðað við 6 metra öldu-
hæð. Á siglingaleiðinni getur
ölduhæðin orðið um 20 metrar,
en þetta er að mörgu leyti einstak-
ur staður í heiminum hvað þetta
varðar. Eftir þær breytingar sem
gerðar voru á skipinu sitja menn
uppi með stutt og breitt skip, nán-
ast kubb, sem lætur illa í sjó,“
sagði Sigurður. En telur hann það
hættulegt?
„Þetta veður sem var um helg-
ina var ekki vetrarveður — þetta
var bara fyrsta golan. Það er ekki
enn kominn vetur. Ég mundi að
minnsta kosti hafa góða veðurspá
áður en ég sigldi með skipinu,“
sagði Sigurður. Skipstjórinn var
spurður að því sama.
- Hvað gerir þú þegar fer að
vetra og öryggi skipsins er í þín-
um höndum? Heldurðu að þú eig-
ir eftir að liggja meira fyrir en með
gamla Herjólf?
„Ég skal ekkert segja til um það,
en ég verð að viðurkenna að í
þessum barningi sem kemur í
brælu þá er viss beygur í manni
gagnvart haföldunni."
- Hvað áttu við með „beygur“?
„Spurningin er: Hvernig lætur
þetta skip í sjó ef ekki er hægt að
keyra það áfram í stóra öldu? Það
er með rnikinn stöðugleika,
þ.e.a.s. þyngdarpunkturinn er
neðarlega í því, og ef uggarnir eru
settir inn þá veltur það ógurlega.
Ef ekki er hægt að keyra það virka
ekki uggarnir, en þeir þurfa að
hafa 7 til 8 mílna ferð til að virka.“
- Hvað þýðir þetta ef það gerir
mikið veður? Hafið þið þá hvorki
tök á að liggja fyrir né keyra
áffarn?
„Ef maður lendir í sunnan/suð-
vestanveðri og maður ætlar ekki
að hafa það þá er ekkert annað að
gera en snúa við.“
HÖNNUÐIRNIR EIGA AÐ
ATHUGA EIGIÐ VERK
Þarna er komið inn á notagildi
hins nýja skips og það er að sjálf-
sögðu það sem Vestmanneyingar
hafa mestar áhyggur af, næst á eft-
ir öryggismálum. Tryggvi Jónas-
son, stjórnarmaður í Herjólfi, hef-
ur áður gagnrýnt hönnun skipsins
en hann telur að það hafi verið
mistök að hafa það ekki 79 metra
eins og stóð til í upphafi; þá hefðu
þeir fengið á sama verði betra sjó-
skip sem eyddi ekld eins miklu. í
samtali við PRESSUNA sagði
hann að veðrið um helgina hefði
komið illa við menn, en enginn
fundur hefði verið boðaður í
stjórn Hetjólfs. Hluti smíðanefnd-
arinnar hefði þó komið saman og
ætlunin væri að ffamkvæma próf-
anir á skipinu.
Tryggvi sagði að sú ákvörðun
að stytta skipið hefði ekki verið
Vestmanneyinga. Ákvörðunin var
pólitísk og tekin af þáverandi
samgönguráðherra, Steingrími J.
Sigfússyni. Það var gert til að gera
Slippstöðinni á Akureyri kleift að
bjóða í verkið. Tilboð hennar var
hins vegar upp á 1,8 milljarða
króna og því allt of hátt.
Samkvæmt upplýsingum frá
samgönguráðuneytinu hyggst
ráðuneytið ekkert aðhafast að svo
stöddu. I sama streng tók Páll
Hjartarson hjá Siglingamálastofn-
un. Hann sagði að stofnunin
rnundi fylgjast með þróun mála
en ekki stæði til að aðhafast neitt
að svo stöddu.
Nú er ætlunin að framkvæma
athuganir þar sem borin verður
saman sigling skipsins og módel-
prófanir ffá Danmörku. Athugun-
in verður í höndum hönnuða
skipsins, Skipatækni hf,_____
Sigurður MárJónsson