Pressan - 20.08.1992, Síða 35

Pressan - 20.08.1992, Síða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20.ÁGÚST 1992 35 Dökkt og hrátt skal það vera og mótor- hjólastígvélin og - skórnir nauðsynleg með. DÖKKT 06 HRÁTT LEVI'5 Frá því íslendingar meðtóku aftur Levi's-gallabuxurnar fyrir um það bil þremur árum hafa þær dökknað til muna. í fyrstu voru það eingöngu Ijósar sem giltu en í vetur verða það hráar, dökkar Levi's og ekkert ann- að. Gallabuxurnar sem hér um ræðir eru að vísu þvegnar, ólíkt Levi's-tískunni sem kom upp á tímabili í fyrravetur þegar buxurnar voru það hráar að fólk þurfti að kaupa þær tveimur númerum of stórar og fara svo í bað í buxunum til að þær aðlöguðust vexti hvers og eins. Mikið hefur verið gert grín að íslendingum vegna þessarar brjálæðislegu Levi's-tísku sem ríkt hefur hjá landanum, ekki síst í verslunarferðunum til Edinborgar og Glasgow þar sem íslendingarnir hafa bók- staflega hamstrað Levi's 501. Norðmenn og Svíar eru miklir Levi's-aðdáendur en íslendingar enn meiri af þessu að dæma. Það hlýtur því að fara að styttast í ís- lensku heimsmetahöfðatöluna frægu með þessu áframhaldi. En það er fleira mat- ur en feitt ket, þvítil eru fleiri týpur en Levi's 501.510-gerðin mun vera að sækja nokkuð í sig veðrið en þær eru kvenlegri í sniði, hærri upp og víðari yfir mjaðm- irnar. Gallajakkarnir í vetur eru styttri og þrengri óg mótorhjólastígvélin og skórnir punkturinn yfir i-ið. KOLROS5U KRÓKRÍÐANDI 06 JÚPÍTER5 HAMPAD í MELODY MAKER „Söngkonan Helena bræddi íslensku jöklana,“ segir gagn- rýnandinn. Dave Jennings á hinu virta tón- listartímariti Melody Maker og sá sem heimsótti Eldborg ’92 á Kald- ármelum heldur ekki vatni yfir ís- lensku ungkvennasveitinni Kolrössu krókríðandi. Hann fer afar fögrum orðum um hljóm- sveitina og er einnig hrifinn af stórsveitinni Júpíters. „Ef eitthvert réttlæti er til mun ekki líða á löngu þar til ungu hipparnir í heiminum heyra eitthvað frá hljómsveitinni Kolrössu krókríðandi,“ segir Jennings stórorður í gagnrýni sinni. Jennings var sérstaklega hrifinn af söngkonu sveitarinnar, Helenu, og telur hana ákaflega kraftmikia og heita söngkonu sem gæti brætt jafnvel íslensku jöklana. Aðrir meðlimir Kolrössu krókríðandi fá einnig afar góða dóma sem kraft- miklir tónlistarmenn. Jennings gengur svo langt að iíkja söngkonunni við bresku stjörnuna Ritu Lynch sem hefur rödd fúlla af hættulegri ástríðu. Jennings fer einnig fögrum orð- um um gleðisveitina Júpíters og segir það hafa verið hina bestu skemmtun að hlusta á þrettán meðlimi sveitarinnar leika tilgerð- arlega tónlist af fingrum fram. Þeir hafi haft sérstaklega gaman af því sem þeir voru að gera. Júpíters er á leið til Bretlands og það er einnig hljómsveitin Síðan Gagnrýnandinn á Melody Ma- ker hlakkar til að fá gleðisveit- ina Júpíters í heimsókn til Bret- lands eftir að hann heyrði þá leika af fingrum fram á Kaldár- melum um verslunarmanna- helgina. skein sól, sem Jennings fannst öllu misjafnari en hinar tvær sveitirn- ar. Þess verður kannski ekki langt að bíða að nýir Sykurmolar hefji heimsreisu. Lílgörsþyrstir íandsmenn Það hefur líkast til ekki farið framhjá þeim sem reglulega sækja öldurhús bæjarins, að líkjörsdrykkja er nú iðkuð hér á Iandi í stórum stfl og hefur reynd- ar verið svo um nokkurt skeið. I staðinn fyrir brennivín í kóki með hraði biðja menn nú galvaskir um kaffi og líkjör og njóta þess að sötra herlegheitin yfirvegaðir. Einn er sá lí- kjör sem í áraljöld hefur haft algjöra yfirburði hvað vinsældir varðar — nefni- lega hinn eini og sanni Grand Marnier. Samkvæmt upplýsing- um ÁTVR er Grand Marnier lang- eftirsóttasta líkjörstegundin, en það sem af er þessu ári hafa alls selst um 10.500 flöskur. Sá líkjör sem næstur kemur í sölu er Ka- hlua og þar á eftir fylgja gamal- kunnar tegundir; Baileýs Original Irish Cream, Tia Maria og Cointr- eau. Aðrar tegundir eru einnig vinsælar þótt þær seljist töluvert minna, s.s. DOM Bénédictine, Amaretto di Saronno og Irish Mist. Að sögn Gísla Hafliða Guð- mundssonar, veitingastjóra á Kaffi Óperu og Café Romance, hefur Grand Marnier algjöra sér- stöðu í líkjöraflórunni. „Hann hef- ur verið langvinsælastur hér á landi frá því menn muna og á vafalaust eftir að vera það lengi enn. Milli 50 og 60 prósent af öll- um lflcjör sem við seljum er Grand Marnier og það virðast allir vera jafnhrifnir af honum, konur sem karlar.“ Gísli segir nýjan ítalskan líkjör, Galliano, reyndar hafa verið að sækja töluvert á í sumar og því séu ekki allir Islendingar íhaldssamir í víndrykkju. „Galliano er mikið í tísku núna og vinsælt að drekka hann út í kaffi með þeyttum rjóma. Þó að margir séu hrifnir af þessum ljúfa drykk er hann ekkert í líkingu við „þann stóra“, sem verður áfram á toppnum og ber svo sannarlega nafn með rentu.“ Rrafn iiinnlaugf Gunniaugsson kvikmyndaleiRstjóri „Thisis Filmautomaticans- weringmachine. Hrafn Gunn- laugsson is not in the office at the moinent, but please leave a message and we will callyou as soon aspossible. Thankyou veiy much. “ B I O B O R G I N Veggfoður ★ ★★ Fjörug og skemmtileg þrátt fyrir augljósa hnökra. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Minni hasar og minna grín en í fyrri myndum en meira af tilraunum til dramatíkur. Fyrirboðinn 4 Omen IV ®Ekkert umfram það sem sést hefur í fyrri myndum en margt verr gert. Takið því frekar fyrstu myndina á mynd- bandaleigu en fara á þessa. Miklagljúfur Grand Canyon ★★ Nokkurs konar Big Chill níunda ára- tugarins. Ef til vill er það áratugn- um að kenna, en Grand Canyoh stenst engan samanburð við for- vera sinn. Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára. Vinnie frændi My Cousin Vinnie ★ ★★ Fyndin grínmynd. Er hægt að biðja um meira um mitt sumar? Joe Pesci er mun skemmtilegri í þessari mynd en þriðja hluta Let- hal Weapon. Höndin sem vöggunni rugg- ar The Hand that Rocks the Cradle ★★★ Hörkuspenna og óhugnað- ur. HASKOLABIO Ástríðuglæpir Love Crimes ★★ Enn einn erótíski tryllirinn. Miðað við framleiðslu Hollywood á myndum um smáskrítna kynlífsóra eru þeir inni í dag; hvað sem allri eyðni líður. Þessi mynd hefur þó hvorki kitlandi óra né titrandi spennu. Hvort tveggja er flatt. Falinn fjársjóður Pay Dirt ★★ Dálítið dellukennt grín og því mið- ur deliukennd spenna einnig. Nokkrir góðir smásprettir leikar- anna ná ekki að halda myndinni á floti. Hún sekkur eins og steinn í lokin. Bara þú Only You ★ Það eru að- eins unglingar sem fara í bíó á sumrin. Þá er góður tími til að sýna myndir sem ekki er hægt að bjóða öðrum hópum. Veröld Waynes Wayne's World ★★ í flokki mynda sem gera út á geðveikan húmör. Gallinn er að húmörinn er ekki nógu geðveikur og of sjaldan fyndinn. Steiktir grænir tómatar Fried green tomatoes ★★★ Konumynd; um konur og fyrir konur. Góðir eig- inmenn láta undan og fara með. Hringferð til Palm Springs Ro- und Trip to Heaven ©Allt að því óbærileg leiðindi. Beethoven ★★ Ágæt mynd fyrir fjölskyldur þar sem börnin eru á aldrinum sjö til tólfára. Stoppaðu eða mamma hleypir af Stop! Or My Mom Will Shoot ★ Sylvester Stallone slær hér út flestar af sínum verstu myndum og verður það að teljast afrek mið- að við það sem hann hefur boðið áhorfendum upp á síðastliðin misseri. R E G N B O G Ógnareðli Basic Instinct ★★ Markaðsfræðingarnir fá bæðar stjörnurnar. Annað við myndina er ómerkilegt. Léttlynda Rósa ★★★Ljúfsaga um vergjarna stúlku. Kolstakkur ★★★★ Mögnuð mynd; hæg, seiðandi og falleg. Besta myndin í bænum. Lostæti Delicatessen ★★★★ Hugguleg mynd um mannát. Homo Faber ★★★★ Mynd sem allir verða að sjá. Sjálfsagt hafa allir sem vilja sjá hana þegar farið í Regnbogann. Það bíó fær sérstaka viðurkenningu fyrir að hafá aðeins tekið eina nýja mynd upp á und- anförnum vikum og þá mynd sem var sýnd í bíóinu fyrjr fáeinum mánuðum. Náttfarar Sleepwalkers ★★ Það er orðið langt síðan tekist hefur að búa til almennilega mynd eftir sögu Stephens King. Þessi tilraun er með því skárra af afurðum síð- ustu ára. Hún mun gleðja hörð- ustu unnendur hrollvekja. Hnefaleikakappinn Gladiator ★ Smart ofbeldi fyrir þá sem hafa smekk fyrir slíku. Sætir strákar fyrir stelpurnar. Óður til hafsins The Prince ofTi- des ★★★ Nick Nolte heldur myndinni á floti. Börn náttúrunnar ★★★ Róm- aðasta íslenska bíómyndin. S O G U B Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg unglingamynd en ef til vill ekki stórkostlegt kvikmynda- verk. Tveir á toppnum 3 Lethal Wea- pon 3 ★★ Söluhæsta myndin vest- anhafs það sem af er sumri. Sannar að ekki fara alltaf saman gæfa og gjörvileiki.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.