Pressan - 29.10.1992, Page 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992
bílskúrssteik
„Ástœðan fyrir gagnrýni
Kaupmannasamtakanna var
að þeirra sögn ótti um að kröf-
um um hreinlœti vœri ekki full-
nœgt í Kolaportinu og að þarna
vœri um afturför í sölumálum
að rœða. Þetta settu þeirfram,
þráttfyrir að heilbrigðisyfirvöld
hefðu gefið samþykki sitt fyrir
sölunni. Og hvað kemur það
kaupmannasamtökum við hvar
og hvenœr bœtidur og neytend-
ur eiga viðskipti? Ef neytendur
vilja kaupa frosið kjöt í plast-
pakkningutn í Kolaportinu
frekar en úr kjötborðum versl-
ana, þar sem alls kyns ópökk-
uðu kjöti œgir saman, þá er það
þeirra mál. Kaupmannasatn-
tökunum kemurþað ekki frekar
við en hvort fólk kaupir sér
tniða í stúku eða stœði þegar
þaðferá völlinn
Glúmur Jón Björnsson í DV
Guðni Þorgeirsson, skrif-
stofustjóri Kaupmannasam-
taka Islands: „Kaupmenn eru
skikkaðir til að gæta ýtrasta
hreinlætis við sölu á matvælum
og hefur verið reynt að fara að
fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda
í þeim efnum og verið kostað til
þess ómældu fé. Rétt er að heil-
brigðisyfirvöld gáfu samþykki
sitt fyrir umræddri sölu í Kola-
portinu. Það breytir þó engu um
að Kaupmannasamtökin eru al-
gjörlega mótfallin því að kjöt sé
selt þar, enda um bílageymslu
að ræða og útilokað að húsnæð-
ið standist hreinlætiskröfúr. Það
er alveg hreint ótrúlegt að þetta
skuli vera leyft. Ég spyr bara,
hvað verður það næst? Megum
við eiga von á að menn fari brátt
að selja kjöt í kjöllurum húsa og
bílskúrum út um allan bæ?“
Allir á
H VALVEIÐAR
„Nú œtti tvímælalaust t.d. að
minnka síldarstofninn í
200-300 þúsund tonn. Reytta
að minnka kolmunnastofninn
(samnorrœnt verkefni?) Og —
ekki bara „hejja hvalveiðar“
með þessu sífellda kjaftœði,
fundahöldum og blaðatnanna-
funduni, heldur hefja hvalveið-
ar í alvöru og sleppa öllu kjaft-
æðinu því það skilar engum
gjaldeyri til að borga skulda-
súpu þjóðarinnar! Úrelda
mætti nú þegar ólöglegar reglu-
gerðir sjávarútvegsins sem tak-
tnarka hvalveiðar. Samkvæmt
69. gr. stjórnarskrár lýðveldisins
tná „engin bönd leggja á at-
vinnufrelsi manna netna al-
mannaheill krefji og þarf laga-
boð til“. Lagaboð þýðir að Al-
þingi geti sett lög um málefnið
en ekkiframselt lögboðið hlut-
verk sitt til ráðuneytisins með
löggjöf um reglugerðarútgáfu
utn takmörkun atvinnufrelsis
eftir geðþótta ráðherra hverju
sinniK
Kristinn Pétursson í Morgunblaðinu
Magnús H. Skarphéðins-
son, talsmaður Hvalavinafé-
lags íslands: „Mikið dæma-
laust gleður það mig þegar hval-
veiðisinnar (eða sjálfstæðis-
menn) eru svona gjörsamlega
úti að aka eins og Kristinn hefur
að undanförnu verið í hvalamál-
inu, og reyndar flestöllu sem
varðar sjávarútveginn eins og sjá
hefur mátt í greinum hans í
Mogganum nú nýverið sem fyrr.
Það er eins og hann sé nýkom-
inn frá öðrum hnetti og hafi ver-
ið þar lengi. A.m.k. allan tímann
síðan hvalveiðiumræðan fór af
stað. Við hvalavinir þurfum ekki
að hafa áhyggjur af vinum vor-
um í úthafinu meðan sprelligos-
ar á borð við þennan fyrrverandi
þingmann sjálfstæðisflokksins fá
að leika lausum hala í Morgun-
blaðinu. Áfram Kristinn! Ut af
með dómarann!“
Hörður
Sigurgestsson
forstjóri Eimskips
B E S T
Hörður er eldklár ná-
ungi, með klárari
mönnum sem maður
hittir, það er alveg
Ijóst. Hann er einn af
þeim sem eiga mjög
auðvelt með að gera
flókna hluti einfalda;
útskýra hlutina fyrir
fólki og setja mál sitt
skýrt fram.
V E R S T
Það má segja að Hörður
sé stundum hrokafull-
ur. Og hann er lélegur
bilstjóri.
ATKVÆÐAÚT-
GERÐ
„Hann segir það líka rangt
að úrelda verði rúmmetra á
móti þeim rúmmetrum sem
fara til að koma vinnslu fyrir
utn borð ífrystitogurum. Sjálfur
fór hann ásamt einhverjum
Brjánslœkjarmönnum með
einn eða tvo ónýta spýtubáta og
keypti sér frystitogara í staðinn.
Menn erufarnir að tala heldur
betur í gegnum sjálfa sig. Það
eru nógir um það að ráðast að
frystiskipaútgerðinni þótt for-
maður Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands
blandi sér ekki íþann hóp. Þeir
sem eru í útgerð frystiskipanna
hafa allt of lengi setið þegjandi
undir alls kyns ásökunum og
það hefur skaðað okkur. En
Guðjón er kominn í bullandi
pólitík, hann œtlar sér á Alþing
sem ég vona hins vegar að verði
aldrei. Hann á að hœtta sem
formaður, segja af sér strax og
snúa sér að atkvœðaveiðum al-
farið."
Þorsteinn Vilhelmsson í DV
Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Farmanna- og
fiskimannasambands ís-
lands: „Ég vil byrja á að taka
það fram, að Þorsteinn misskilur
hluta af því sem ég var að segja.
Ég var m.a. að benda á að mér
finnst vera mótsögn í því, að sú
aðferð að fækka atvinnutækifær-
um í landinu skuli vera inn-
byggð í úreldingarreglurnar.
Einnig vakti ég athygli á því að ef
einhver skip í fiskiflotanum hafa
burði til að stækka auðlindina,
þá eru það einmitt stóru frysti-
skipin. Þetta var það sem ég vildi
benda á og ef Þorsteinn telur það
vera atkvæðaveiðar þá er það
hans mál. Ég lít á þetta sem
hagsmunamál fyrir aðra sjó-
menn, ekki bara fyrir Þorstein,
svo þeir hafi líka möguleika á að
starfa við atvinnugrein sína.“
F Y R S T
F R E M S T
ÖRN HELGASON
er sálfræðingur sem búsettur hefur verið í Noregi undan-
farin ár. Hann hefur rannsakað ferð þeirra Jóns Leifs,
Guðmundar Kamban og Kristjáns Albertssonar til Þýska-
lands fyrir stríð þar sem þeir fóru þess á leit við Friedrich
Christian, prins frá Schaumburg-Lippe, að hann gerðist
kóngur yfir íslandi.
Vildu gera
nasistaprins að
kúngi á íslandi
örn hefúr haft ívið meira fyrir
stafni en að vinna hjá norska rík-
inu í Florö skammt frá Bergen.
Hann hefúr verið að rannsaka tvö
íslensk ævintýri sem birtast í bók
hans sem kemur út fyrir jólin og
nefnist Kóng viljum við hafa.
Annað þeirra er tengt því þegar
þrír þjóðkunnir menn; Jón Leifs,
Guðmundur Kamban og Kristján
Albertsson, lögðu leið sína til
gamallar hallar í miðborg Berlín-
ar, Prinz Leopold Palais, sem voru
höfuðstöðvar upplýsinga- og
áróðursmála dr. Josefs Göbbels.
Erindi þeirra var að leggja boð
fyrir embættismenn og fá að ræða
við prins Friedrich Christian frá
Schaumburg-Lippe og biðja hann
að gerast konungur yfir Islandi.
Þeir sögðust vera sendiboðar
áhrifamikilla afla á Islandi. Prins-
inn hafði vægast sagt mikinn
áhuga og gerði tilkall til konung-
dómsins aUt til ársins 1972 og stóð
í sífelldum bréfaskriftum við ís-
lenska ríkið. íslensk stjórnvöld
voru hins vegar heldur pennalöt
og margir embættismenn gerðu
sér upp veikindi er hann heim-
sótti Island árið 1972.
Merkilegasti flöturinn á þessu
sérstæða máli er hins vegar sá að
þegar örn Helgason og norskur
sagnfræðingur, Sverre Hartman
að nafni, óskuðu eftir því við
utanríkisráðuneytið að fá að sjá
gögnin um konungsmálin var
svarið: „Þau eru ekki til.“ Þrátt
fyrir þetta svar má draga þá álykt-
un af skrifum Þórs Whitehead í
bókinni, Stríð fyrir ströndum, að
hann hafi komist yfir þessi gögn.
„Þau eru til,“ segir Örn Helgason,
Prinsinn sem þeir Jón Leifs, Guðmundur Kamban og Kristján Al-
bertsson vildu fá sem konung yfir (slandi var náinn vinur Hitlers og
starfsmaður í upplýsinga- og áróðursmálaráðuneyti Dr. Josefs Göb-
bels.
Örn Helgason, höfundur bókarinnar Kóng viljum við hafa, kom að
lokuðum dyrum í íslenska utanríkisráðuneytinu.
höfundur bókarinnar
„Mér vitanlega hefur aðeins tví-
vegis verið minnst á þetta mál á
Islandi. Það var í grein sem ég
skrifaði sjálfur í Bókaorminn og í
neðanmálsgrein í bókinni hans
Þórs Whitehead. En í minni bók
styðst ég meðal annars við bækur
prinsins og einkabréf frá honum
sem ég hef í fórum mínum,
samtöl og fleira.“
Nú var prinsinn yfirlýstur
nasisti, hvað var það sem
vakti fyrir mönnunum
þremur?
„Það er rétt að hann var
nasisti að hugsjón og var í
vinfengi við Hitler og Göb-
bels. Hann gekk í nasista-
flokkinn löngu áður en hann
tók völdin í Þýskalandi. En
prinsinn var aldrei háttséttur
hjá Göbbels. Hann var ffekar
skrautfjöður vegna þess hve
hann var af fínum ættum.
Schaumburg-Lippe-ættin átti
ættir að rekja til allra helstu
konunga álfimnar. Það vakti
alls ekld fyrir íslensku mönn-
unum að koma á neinum
nasisma heldur komast í
tengsl við fjársterkan aðila sem
hefði sambönd víða um Evrópu
og gera hann að kóngi á íslandi.
Menn trúðu því á þessum tíma að
Þjóðverjar mundu ná heimsyfir-
ráðum.“
Segir þú frá því í bókinni hver
þessi áhrifamiklu öfl eru á bak
við þá Jón, Guðmund og Krist-
ján?
„Nei, það verða aðrir að gera.
Það er enn stóra spumingin hvort
þessir þrír menn hafi hafi áhrifa-
mikla menn á bak við sig. En það
kemur margt forvitnilegt fram í
bókinni.“
Þú talar um tvö ævintýri,
hverju tengist hitt?
„Það tengist ásökunum á hend-
ur Guðbrandi Jónssyni, starfs-
manni þýska sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn, og Einari Árnasyni,
ráðherra íslands, árið 1920 er þeir
.voru sakaðir um að hafa viljað
steypa Danakonungi af stóli og fá
þess í stað einn af sonum Vil-
hjálms Þýskalandskeisara sem
konung á Islandi. Fréttin um þetta
komst í hámæli í blaðinu Journal
de Polange í Varsjá árið 1920.“
Hvaðan komu þessar ásakan-
ir?
„Þær komu frá Jóni Dúasyni
sem tók við af Guðbrandi. Jón
gerði það með þeim hætti að
brjóta upp skrifborð Guðbrands
og koma gögnum hans í hendur
bresku leyniþjónustunnar."
Á RÖNGUNNI
Þrátt fyrir að þess sé sjaldan getið eru sagnfræðingar almennt sammála
um að Lambini og synireigi heiðurinn af gólfinu í sixtínsku kapellunni.
TVÍFARAR
Skyldi það vera tilviljun að Bjarni Einarsson,
varaforstjóri Byggðastofnunar, ersvona mikið á
móti EES? Nei, það er ekki tilviljun. Það er nóg
að líta á myndina afPhilippe Séguin til að sjá að
svo er ekki. Philippeþessi var helsti baráttumað-
ur Frakka gegn Maastricht ogfór hamförum. Al-
veg eins og Bjarni gegn öllu þvísem evrópskt er.
Báðir hafa þeirþetta þykka, þungbrýnda and-
evrópusamvinnu-yfirbragð. Og ef einhvern lang-
ar til að vita hvernig herrar Evrópu munu líta út
í Brussel framtíðarinnar, þá erþað ekki eins og
þeirBjarni ogPhilippe.