Pressan


Pressan - 29.10.1992, Qupperneq 10

Pressan - 29.10.1992, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992 HELGI Seljan, fyrrverandi alþingis- maður, hefur verið lengi burtu úr þjóðmálaumræðunni, eins og kom í ljós þegar Friðrik Sophusson tilkynnti einkavæð- ingu áfengisverslana ríkisins. Helgi sagði þetta gert fyrir „gróðaöflin", en það orð hefur ekki heyrst síðan einhvern tíma á ffamsóknaráratugnum. Þetta er eins og daufur ómur aftan úr fortíðinni, svo úrelt að það virðist meira að segja horf- ið úr orðaforða Steinríms Her- mannssonar og er hann þó fá- breyttari en flestra annarra. Það ætti einhver að benda Helga á að stærsta gróðaaflið í landinu er FRIÐRIK Sophusson sjálfur, best klæddi skattakóngur Vesturlanda. Það er hann sem er að rýja fólk inn að skinninu með því að hafa verðið á áfengi svo hátt að venjulegt fólk verður að drekka billegan brennsann eða jafhvel drekka ekki neitt í kreppunni. Ef tillaga Friðriks verður til þess að kaupmenn geti boðið okkur bjórdósina á skikkan- legu verði, þá eru meiri kjara- bætur ekki skjótfundnari ann- ars staðar. Og nú er spumingin hvort Helgi ber fyrir brjósti hag launafólks eða hálaunamanna á borð við DAVÍÐ Oddsson, sem hefur vel efni á að kaupa þessi örfáu glös sem hann þó sötrar yfir árið. Davíð tókst það sama á Stöð 2 í vik- unni og Steingrími Hermanns- syni tókst í vikunni þar áður. Steingrímur talaði um drykkjuskapinn í Davið án þess að gera’ða og Davíð talaði um drykkjuskapinn í Jónasi Kristjánssyni án þess að gera’ða. Jónas vildi hins vegar ekkert tala um drykkjuskap, hvorki sinn né Davíðs, enda er hann löngu búinn að gera’ða. Þjóðin hefur verið svo upptek- in af brennivíni þessa vikuna að meira að segja helstu fréttir af Kirkjuþingi em deilur um hverjir kunna best að kenna fólki að hætta að drekka og Ágústsson, forstöðumaður Samhjálpar, verður að bera af sér opinberlega að særingar séu notaðar hjá söfnuði hans tilj að ná vínandanum úr fólki. Óli segir að svoleiðis hugmyndir séu komnar ffá Þórarni Tyrfmgssyni og kompaníi í SAÁ, af því að þeir vilji meiri peninga frá Friðriki Sophus- syni og eru þá flestir hættir að skilja hver er góði kallinn og hver vondi kallinn íþessari brennivínsafferu. Ertu fylgjandi veru varnarliösins á Keflarvíkurflugvelli? Hér eru abeirts sýndir þeir sem tóku afstööu. Oákveönir voru 14,3% Skoðanakönnun Skáís fyrir PRESSUNA Meirhluti fylgjandi veru varnarliðsins Niðurstöður í skoðanakönnun um afstöðu fólks til veru varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli benda til lítilla breytinga, þrátt fyrir endalok kalds stríðs og breytta heimsmynd. Sextíu pró- sent þeirra, sem afstöðu tóku, voru henni fylgjandi, en fjörutíu prósent andvíg. I könnun Skáís, sem gerð var fyrir fjórum vikum, var spurt: Ertu fylgjandi eða andvígur veru varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli? Urtakið var 505 manns. Af þeim voru 262 fylgjandi veru hersins eða tæp 52 prósent, 171 var andvígur eða tæp 34 prósent og 72 óákveðnir, rúm 14 prósent. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 60.5 prósent að herinn væri, en 39.5 prósent' að hann færi. Þessar niðurstöður eru keim- líkar niðurstöðum úr könnunum sem Ólafur Þ. Harðarson, dósent í stjórnmálafræði, gerði 1983 og 1987. f hinni fyrri, frá 1983, voru 54 prósent hlynnt veru varnar- liðsins, 15 prósent töldu hana ekki skipta máli og 30 prósent voru andvíg. Fjórum árum síðar var 41 prósent hlynnt, 33 prósent andvíg, en 26 prósent töldu þetta engu máli skipta. Af þeim sem voru hlynntir eða andvígir voru niðurstöðurnar þessar: Árið 1983 voru 64 prósent með, 36 prósent á móti; árið 1987 voru 55 prósent með, 45 prósent andvíg. Á fundi Samtaka herstöðva- andstæðinga um síðustu helgi var samþykkt sú stefna að ekki skipti lengur mestu máli að herinn færi strax, heldur að brottför hans væri með skipulegum hætti þannig að sem minnst röskun yrði á atvinnulífi á Suðurnesjum. VIKUBLAÐI Búið að ráða þekktan Qölmiðlamann sem ritstjóra en deilt um hver á að kippa í spottana af hálfu flokksins. sýknuð Siðanefnd Blaðamannafé- lags fslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri PRESSUNNAR, hafi ekki brot- ið siðareglur blaðamanna þeg- ar hann skrifaði í ritstjórnar- grein þá skoðun sína að þeir læknar sem sæti eiga í Lækna- ráði íslands virtust ekki „telja það frumskyldu sína að ieiða hið sanna í ljós“. Ólafiir Ólafs- son landlæknir kærði þessi ákveðnu ummæli úr leiðara er fjallaði um samtryggingu lækna gagnvart rannsóknum á mistökum þeirra í starfi og framgöngu læknaráða spítal- anna og Læknaráðs íslands í þessum málum. Siðanefndin vísar til þess að þessi ummæli, eins og önnur sem sett eru fram í forystu- greinum blaða, falli undir 5. grein siðareglna blaðamanna. I’ henni segir meðal annars; „Siðareglur þessar setja ekki hömlur á tjáningarffelsi blaða- manna sem skrifa undir fullu nafni afmarkaða þætti í fjöl- miðlum, til dæmis gagnrýni, þar sem persónulegar skoðanir höfundar eru í fyrirrúmi." PBÍSSAN/KÞÁ Alþýðubandalagsmenn eru þegar farnir að deila um stjórn á væntanlegu vikublaði sínu, sem gert er ráð fyrir að komi út um miðjan nóvember. Búið er að ráða ritstjóra, en deilan snýst um hvernig stjórn blaðsins verður endanlega háttað. Þar hafa mynd- ast kunnuglegir flokkadrættir á milli stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar og Svavars Gestssonar. Málið var rætt á ffamkvæmda- stjórnarfundi flokksins í fyrradag og aftur á þingflokksfundi í gær. Þar fékkst ekki niðurstaða og helst er reiknað með að málið verði af- greitt síðar, þegar reynsla er kom- in á útgáfuna og séð hvert fram- haldið verður. Það er flokkurinn sem gefur blaðið út, en deilan snýst um hversu mikla stjórn hann á að hafa á blaðinu og þar með flokksformaðurinn, Ólafur Ragnar. Hans menn ráða ferðinni að þessu sinni, en þeir sem stóðu að útgáfu Þjóðviljans á sínum tíma, „Svavarsmenn“, vilja gjama tryggja sín áhrif. Hugmyndir hafa verið uppi um sérstaka blaðstjóm og jafnvel stofnun hlutafélags um útgáfuna, þótt margir sem töpuðu persónulega fé á útgáfu Þjóðvilj- ans vilji fara varlega í það. Svavari finnst sitt fólk eiga að vera með í ráðum, Ólafur Ragnar vill ráða ferðinni á Vikublaðinu. þrátt fyrir reynsluna af Þjóðviljanum. Undirbúningur hefur að mestu verið í höndum Einars Karls Haraldssonar framkvæmda- stjóra, en undanfamar vikur hefur Olafur Þórðarson, tónlistar- og útvarpsmaður, unnið að söfnun áskrifta fyrir blaðið. Farið er fram á þrjá mánuði fyrirfram, þrjú þús- und krónur, og hafa þegar á fjórða hundrað manns greitt þá upphæð. Þess er vænst að upp úr mánaða- mótunum komist sá fjöldi jafnvel í eitt þúsund. Blaðið á að heita „Vikublaðið“, koma út einu sinni í viku og vera 12-16 síður að stærð. Tekin hefur verið ákvörðun um ritstjóra og var það að sögn gert með „fagmennskusjónarmið“ í huga — ekki valinn pólitískur blaðamaður úr öðrum arminum. Nýi ritstjórinn er vel þekktur fjöl- miðlamaður, en nafn hans verður ekki látið uppi þar til honum hef- ur gefist færi á að ganga frá sínum málum á núverandi vinnustað. PRESSAN Gunnlaugur Magnússon á Hólmavík Fékk lán vegna hákarla- verkunar en reisir gistlhús f sumar lánaði Byggðastofnun Gunnlaugi Magnússyni, hákarla- verkanda á Hólmavík, fimm millj- ónir króna, en í umsókn Gunn- laugs kom ffarn að það væri vegna byggingar húsnæðis undir há- karlavinnslu. Gunnlaugur hefur á skömmum tíma reist stálgrindar- byggingu, sem nú er að verða fok- held, en samkvæmt öruggum heimildum PRESSUNNAR er ætlunin að reka þar gistihús. Teikningar að innra skipulagi hússins gera ráð fyrir tíu gistiher- bergjum, en sjálfur vill Gunnlaug- ur hvorki segja af né á um fram- tíðarnotkun hússins. Fyrir liggur að umsókn um lán var send útibúi Byggðastofnunar á fsafirði með þeim rökstuðningi að lánið yrði notað til að reisa húsnæði undir hákarlavinnsluna og til að efla hana. Þar sem forstöðumaður úti- búsins á fsafirði, Aðabteinn Ósk- arsson, er sonur annars hákarla- verkanda þótti rétt að senda um- sóknina suður til Reykjavíkur. Þar fékk hún jákvæðar viðtökur og Gunnlaugur fékk fimm milljónir króna til að moða úr. Gunnlaugur lét hendur standa fram úr ermum og reisti á skömmum tíma veglegt stálgrind- arhús, sem nú er nær fokhelt. Heimildamenn sem PRESSAN ræddi við voru hins vegar ekki í vafa um til hverra hluta húsnæðið væri ætlað og liggja fyrir teikning- ar um það, sem fyrr segir. Sömu menn voru á hinn bóginn sam- mála um mikla þörf á gistirými á svæðinu, enda útlit fyrir að Hótel Matthildur eigi ekki eftir að starfa miklu lengur. Gunnlaugur Magnússon vildi sjálfur hvorki játa því né neita að hann væri að reisa gistihús fyrir féð sem hann fékk að láni hjá Byggðastofnun. „Ég er að reisa skemmu undir hákarlavinnslu. Það er ætlunin að vinna þar há- karl, en hitt er annað að ég veit ekki hvað ég geri í ffamtíðinni. Ef mér dettur eitthvað sniðugt í hug Byggðastofnun: Lánaði Gunnlaugi Magnússyni á Hólmavikfimm milljónir króna vegna húsnæðis undir hákarlavinnslu. Notaði féð til að reisa gistihús. læt ég verða af því. Ég vil ekkert segja af eða á hvort ég er að reisa gistiheimili eða hótel, ég er ekki með plön um eitt né neitt. Kannski kemur eitthvað upp sem vit er í. Þarna verður hákarla- vinnsla frá og með næstu helgi, en hvort það breytist verður að koma í ljós,“ sagði Gunnlaugur. Hann vildi ekkert tjá sig um til- vist áðurnefhdra teikninga. Friðrik Þór Guomundsson KOMMABHIB BYRJABIR M rífastumBM^H

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.