Pressan - 29.10.1992, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992
11
Dró sér sex milljónir frá
Félagi leikara:
Fjárdráttur
Helga Rúnars
Magnússonar
hjá RLR
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú
haft kæru Félags íslenskra leikara á hend-
ur Helga Rúnari Magnússyni, lögfræð-
ingi og fyrrum ffamkvæmdastjóra félags-
ins, í nær sjö mánuði, án niðurstöðu.
Liggur þó fyrir bein viðurkenning Helga
Rúnars á því að hafa dregið sér um sex
milljónir króna úr sjóðum félagsins.
Hin beina viðurkenning felst í því að
Helgi Rúnar endurgreiddi félaginu um-
rædda peninga þegar fjárdrátturinn varð
ljós. Neyddist hann til að segja af sér sem
framkvæmdastjóri félagsins, en fjárdrátt-
urinn mun hafa staðið yfir um nokkurra
ára skeið. Effir að í ljós kom hvers lags var
var Helgi Rúnar kallaður fyrir stjóm fé-
lagsins, þar sem hann viðurkenndi að
hafa tekið peningana og í kjölfarið endur-
greiddi hann þá með skuldabréfi. Pening-
arnir voru teknir af lífeyrissjóðs- og fé-
lagsgjöldum leikara.
Helgi Rúnar hefur rekið lögmannsstofu
á Seltjamamesi og stundað umfangsmikil
fasteignaviðskipti, en PRESSAN greindi á
síðasta ári frá umdeildum kaupum eins af
hlutafélögum Helga Rúnars á fasteign
annars hlutafélags hans á nauðungarupp-
boði, en það var Ópal-húsið við Skipholt.
Áður en til uppboðs kom höfðu Helgi
Rúnar og félagar gengið frá tíu ára þing-
lýstum leigusamningi um eignina.
Samkvæmt heimildum blaðsins hefur
mál Helga Rúnars meira og minna legið í
salti hjá RLR og enginn frá félagi leikara
verið kallaður til skýrslutöku.
Náttúruverndarráð
Rannsakar
náttúruröskun
umhverfis
Silfurstjörnuna
Núpsmýri í öxarfirði, þar sem fiskeld-
isstöðin Silfurstjarnan er staðsett, hefur
verið að þoma upp að undanfömu og eru
kenningar á lofti um að fiskeldisstöðin sé
með vatnsdælingu sinni völd að þessum
breytingum. Guðrún Jónsdóttir hjá Nátt-
úmvemdarráði fór á vettvang síðasdiðið
sumar og kannaði aðstæður. Sagði hún í
samtali við PRESSUNA að hún hefði get-
að staðfest að Núpsmýri væri þurrari en
áður. Hún gæti þó á þessari stundu ekki
dæmt um það hver skýringin væri, eti
ynni að rannsókn málsins.
„ýmsir halda fram að mýrin sé að
þoma upp af völdum vatnsdælingar fisk-
eldisstöðvarinnar,“ sagði Guðrún. „önn-
ur hugsanleg skýring er sú að úrkoma
hefur verið mjög lítil á þessum slóðum;
síðasti vetur var snjólítill og þarsíðasta
sumar mjög þurrt. Ég bíð nú eftir gögnum
frá Orkustofnun, Hollustuvemd ríkisins
og fleiri aðilum, sem hafa yfir að ráða
upplýsingum um vatnsdælingu fiskeldis-
stöðvarinnar og úrkomu- og rennslis-
mælingum á svæðinu. Ef ástæða verður til
að ætla að fyrirtækið geti átt þátt í þessari
uppþornun Núpsmýrar mun ég kanna
málið nánar.“
Guðrún segir það vafalaust koma til
með að hafa áhrif á lífríki svæðisins ef
þomun mýrarinnar heldur áfram. „Mýrin
mundi þá breytast í háifgerðan móa,
gróðurfar mundi smám saman breytast
og fuglalíf sjálfsagt líka.“
FLÍSAR
CM
nn
305:
201 lítra
kælir, 104
lítra frystir
Verb: 68.200
Tilbo&sverb: 54.560
\_M355:247 lítra kælir,
104 lítra frystir
Ver&: 70.550
Tilboðsver&: 56.440
CM345 :201 lítra kælir,
144 lítra frystir
Ver& 72.950
Tilbo&sverð: 58.360
*o
^ M50:50 lítra
frystihólf. (-18 C)
Verð 32.800
Tilbo&sver& 26.240
C 225:225 lítra
kæliskápur m/ frystihólfi
Verð 33.900
Tilboðsver&:
27.120
á kynningarveiti
Þvíekki aö nýta tækifærib og
endurnýja ísskápinn, nú
þegar vi5 kynnum betri
kaup en ábur hafa þekkst á
svibi heimilistækja.
Calex kæliskáparnir eru
traustir og endingargóbir á
hreint ótrúlegu verbi.
Þab á eftir aö koma þér á
óvart hvílíkir gæbagripir bíba
þín hjá okkur.
C275:275 lítra kæli-
skápur m/. frystihólfi
Ver& 35.590
Tilbo&sverð: 28.472
VERSLUNIK
munXl.
HLJOMBÆR
HVERFISCÖTU 103: SÍMI2S999
Stórhöf&a 17, við Gullinhru
sfmí 67 48 44
^3: