Pressan - 29.10.1992, Síða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992
27
Bubbi í tólfár
Hér er listi yfir stórar hljóm-
plötur Bubba. Auk alls þessa
hefur hann gefið út helling af
litlum plötum, sungið á safn-
plötum og kvikmyndaplötum og
komið fram sem gestur á plöt-
um annarra. Flestar plöturnar
hafa verið (endur)útgefnar á
geisiaplötum og eru því fáanleg-
ar í dag.
ísbjarnarblús
Iðunn 1980
★ ★★
Frumraunin, platan sem kom Bubba-
æðinu af stað. Slorugir
vísnasöngvar, en gúanórokkið í gerj-
un.
Utanvarðsmenn
Geislavirkir
Steinar 1980
★★★★
Gúanórokkið orðið
fullgerjað, kraftmikið
rokk og rólegri reggílög. Mögnuð
spregging í ríkjandi Lummulédeyðu
og upphafið að fjörugum rokktíma.
Plágan
Steinar 1981
★★★
Bubbi sóló á ný þótt undirspilið sé
Utangarðs. Fínir punktar.
Utangarðsmenn
í upphafi skyldi endinn skoða
Steinar 1981
★★
Misjafnir segulbandsbútar dregnir
fram í sviðsljósið.
Egó
Breyttir tímar
Steinar 1982
★★★
Gúanórokkið fær á sig .nýbylgju'blæ.
Stórir strákar, Sieg Heil og aðrir svip-
aðir rokkarar gera þetta að góðri
plötu.
Egó
í mynd
Steinar 1983
★★
Nýbylgjurokkið farið að þynnast. Dóp-
neyslan farin að segja til sín.
Fingraför
Steinar 1983
★★
Megas stingur inn
kollinum í hinu
-* ógleymanlega Fatla-
leyti frekar slöpp plata.
fóli. Að öðru
Egó
Egó
Steinar 1984
★
Bubbi nær botninum enda kominn
hálfa leið til tunglsins. Lapþunnt
rokkglundur.
Ný spor
Safarí 1984
★ ★
Bubbi réttir aðeins úr kútnum en er
þó ekki mjög sannfærandi.
Das Kapital
Lili Mariene
Gramm 1984
★ ★★
Bubbi snýr sér aftur að gúanórokkinu.
Góðir sprettir en ekki mikil nýsköpun.
Kona
Gramm 1985
★★★★
Ljóðrænn Bubbi upp á sitt besta.
Blús fyrir Rikka
Gramm 1986
★★★
Tvöfaldur Bubbi einn með kassagítar-
inn og munnhörpuna. Dálítið einhæft
en svona vilja margir hafa Bubba.
Frelsi til sölu
Gramm 1986
★ ★★
Bubbi í fylgd með
tæknivaeddum Svfum.
Frábært popp en
dauðir kaflar inn á milli.
Dögun
Gramm 1987
★ ★★★
Söluhæsti Bubbinn til þessa. Einn af
hápunktunum. Pottþétt plata.
Bubbi & Megas
Bláir draumar
Gramm 1988
★★★
Bubbi og Megas leggja í púkk. Djass-
að og blúsað en það er eins og þeir
beri of mikla virðingu hvor fyrir öðr-
um til að gammurinn fái að geisa al-
mennilega.
Serbian Flower
Mistlur 1988
★ ★★
Bubbi á ensku fyrir tortryggna Skand-
inava. Brot af plötunum Frelsi og
Dögun.
Nóttin langa
Geisii 1989
★ ★★
Stöðnunar fer að
gæta i .nútíma'
Bubbastflnum. Hljóm-
borðskuklið hans Hilmars Arnar er
þreytandi til lengdar.
Söguraf landi
Steinar 1990
★ ★★
Þéttur Bubbi en ekki pottþéttur.
GCD
GCD
Steinar 1991
★ ★★★
Kóngurinn og keisar-
inn í ham. Guanórokk
sameinast keflvfsku
stuðrokki frá Rúnari Júl í frábærri rokk-
heild. Stuðplata sumarsins i fyrra.
Ég er
Steinar 1991
★★★
Bubbi á rólegu dóli á Púlsinum, einn
og í góðum félagsskap atvinnu-
manna. Fyrsta heila tónleikaplatan og
heldur betur kominn tími á eina slíka.
Gunnar Hjdlmarsson
forystumenn landsins skuli ekki á
þessurn síðustu og verstu tímum
reyna að hughreysta fólk, í stað
þess að tönnlast á því að hér sé allt
að fara til íjandans. „Það er nógu
slæmt samt. Okkur bráðvantar
leiðtoga á fslandi sem getur
þjappað þjóðinni saman og barið í
hana jákvæðni. Ég hef ekki mikið
álit á stjórnmálamönnum okkar,
var áður mjög róttækur vinstri-
maður en er nú búinn að missa
trúna á öllum. Það er vont karma
að vera pólitíkus, þetta fólk hlýtur
að hafa gert eitthvað slæmt í fyrra
lífi. Annars er eitt lag tileinkað
þeim á plötunni minni, Þing-
mannagœla.“
Æfir þú þig í því að vera já-
kvœður?
„Ég hef ofsatrú á jákvæðni,
enda líður mér betur þannig og ég
er handviss um að fólk lifir lengur
ef það er jákvætt. Ég h't í spegil á
hverjum degi og segi við sjálfan
mig: Mikið svakalega þykir mér
vænt um þig Bubbi. Þetta hefur
ekkert með egóisma eða sjálfs-
dýrkun að gera, enda er ég fyrir
löngu dottinn út af kjötmarkaðin-
um. Manni líður bara ekki vel
nema maður sé ánægður og sáttur
við sjálfan sig.“
Er boxið hluti afþvfí
„Já, það er ekki nóg að rækta
sig andlega ef líkaminn er ekki í
lagi. Ég boxa og æfi lyftingar sex
daga í viku og geng út sem nýr
maður í hvert sinn. Eg hef reyndar
alltaf hugsað um að þjálfa skrokk-
inn á mér og það hefiir haldið mér
gangandi. Þegar ég fór í meðferð-
ina 1985 var mér sagt að ef ég
hefði ekki stundað íþróttir allt
mitt líf væri ég dauður eftir allt
eitrið sem ég lét ofan í mig. Þeim
leist ekkert á mig og sögðu blákalt
að ég væri heill upp að hálsi.“
Svo virðist sem ekki síst eldri
konur hrífist afþér ogþví sem þú
ert að gera. Stangast það á við
ímynd þína?
„Nei, mér þykir vænt um það,
enda er ég ekki með neinn ákveð-
inn hóp í huga þegar ég sem lögin
mín. Það hljóta að vera grimm ör-
lög að semja tónlist sem höfðar til
dæmis eingöngu til unglinga og
missa þá svo úr höndum sér þegar
þeir fullorðnast. Ég veit að ég
höfða til mjög breiðs hóps af fólki,
fékk til dæmis bréf um daginn frá
87 ára konu sem hefur stúderað
mig. Það gladdi mig mikið. Ætli
skýringin á þessu sé ekki fyrst og
fremst sú að ég syng um fólkið í
landinu. Ég held líka að menn
kunni að meta það að ég þykist
ekki vera neinn annar en ég er. Er
bara Bubbi.“
Þó breyttur, frá því sem áður
var?
„Já, ég hef breyst. Núna veit ég
hvenær ég á að bera grímuna og
hvenær ekki. Áður tók ég hana
aldrei niður. Ég var til dæmis
sjúklega hræddur við konur og
það gat verið mér kvöl og pína að
sofa hjá, þrátt fyrir mikla löngun,
því konur gátu fellt grímuna og þá
var ég berskjaldaður. Núna er ég
sáttur við sjálfan mig og auðvitað
breytist maður við að verða ham-
ingjusamur og eignast barn. Það
þyngdist í mér hjartað þegar
strákurinn fæddist, fyrir þremur
árum. Hann fyllir mig ólýsanlegri
gleði og ég er afskaplega ánægður
með að hafa eignast barn á „efri
árum“. Þótt mér líði að sjálfsögðu
eins og ungum manni finnst mér
ég þó stundum vera hundgamall,
af því að ég hef lifað svo hratt.“
Nýirstraumar t tslenskri popp-
tónlist?
„Mér finnst margt mjög gott
sem yngri hljómsveitirnar eru að
gera. Jet Black Joe til dæmis; ég tel
að Páll Rósinkranz sé einn magn-
aðasti söngvari sem við eigum.
Mér finnst samt að þeir og aðrar
hljómsveitir hér eigi að leggja
meiri rækt við málið okkar. Það er
ekkert tungumál eins flott í rokk-
tónlist og íslenskan. Eins hef ég
taisvert gaman af Kolrössu krók-
ríðandi, Nýdanskri og Todmobile.
Tindurinn í íslenskri músíkflóru
er þó Megas, sem hefur verið mér
eins og faðir og bróðir, en hann er
í mínum huga hafinn yfir gagn-
rýni.“
Lestu mikið afljóðum?
„Ég hef alltaf verið ljóðafíkill.
Hef lengi stúderað ljóðlist og lagði
mikið á mig til að læra bragfræð-
ina fyrir nokkrum árum, þar sem
ég naut aðstoðar vina minna Meg-
asar og Silju Aðalsteinsdóttur.
Núna er ég að vinna ljóðabálk um
æsku mína sem er ekki rímaður,
en stuðlaður, undir áhrifum forn-
yrðislags. Kannski verður úr því
plata.
Við fslendingar eigum mörg
góð skáld. Þó held ég mest upp á
Einar Benediktsson, en bæði Ijóð
hans og ævi heilla mig. Svo les ég
mikið effir Jóhann Sigurjónsson
og Sigfus Daðason. Af yngri skáld-
unum held ég mest upp á Sigfus
Bjartmarsson, svo er Gyrðir Elías-
son býsna góður.
Annars kann ég góða uppskrift
að ljóðalestri. Eitt ljóð fyrir svefh-
inn og annað þegar maður fer á
fætur. Þá er ágætt að taka ljóða-
bók með sér inn á bað.“