Pressan - 29.10.1992, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. OKTÓBER 1992
35
Hilmar Örn
Hilmarsson
tónlistarmaður
„Þetta er hjá Hilmari Emi og
Gunnu Siggu. Við getum ekki
tekið símann eins og er, en ef
þú vilt þá skildu eftir skilaboð
og við munum hafa samband
eins fljótt og auðið er.“
Samband ungra sjálfstæðismanna og Skífan
hafa tekið höndum saman — ekkiþó gengið i eina
sæng — heldur standa þau sameiginlega að út-
gáfu á geislaplötu með úrvali afræðum Ólafs
Thors, sem margir minnast sem mesta íslensks
ræðuskörungs sem uppi hefur verið.
„Ég hef trú á þvi að margir vilji eignast þennan
disk. Þetta er mikil heimild; Ólafur var skemmti-
legur ræðumaður og einn mesti stjórnmálamaður
sem uppi hefur verið, og svo má nota diskinn til
að læra afhonum ræðutækni. Það eru enn margir
á lífi sem „upplifðu" Ólaf Thors og að auki er
þetta órjúfanlega tengt menningu okkar," sagði
Birgir Gunnlaugsson hjá Skifunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem ræðugeisladiskur er
gefinn út hérlendis. Um erað ræða útvarpsræður
Ólafs, en Rikisútvarpið geymir allt útsendingar-
efni á snældum.
Eru þetta góðar upptökur?
„Já, gæðin verða mjög mikil. Allt dósahljóð
verður afmáð, — þetta verður fyrsta flokks.
Áætluð útgáfa disksins er um mánaðamót nóv-
ember/desember.
Heyrst hefur að í kvöld muni Megas spila tuttugu ára lög svo og
splunkuný sem ekki eru enn komin á plötu, og allt þar á milli.
„Þetta verða rokk and ról-tón-
leikar, það verður mikið fjör. Gera
eitthvað af mér? Áttu við að
stökkva upp á svalir, klæða mig úr
eða hoppa?“ sagði Megas að-
spurður um tónleikana sem verða
í Islensku óperunni í kvöld,
fimmtudagskvöld, klukkan níu,
þar sem hann kemur fram í íyrsta
sinn með stórhljómsveit. Hana
skipa Guðlaugur Ottósson, Har-
aldur Þorsteinsson, Jóhann Hjör-
leifsson og Hörður Bragason.
„Ég mun fyrst og fremst leika
lög af nýju plötunni minni, Þrír
blóðdropar, en einnig mun ég rifja
upp gamla tíma og spila splunku-
ný lög sem ekki eru á nýju plöt-
unni.“
Heyrst hefur að Megas sé rétt
að ljúka við að semja þessi
splunkunýju lög fýrir tónleikana í
kvöld.
Þess má til gamans geta að
bærinn logar af illdeilum vegna
textanna á nýju plötunni hans, þar
sem hann syngur meðal annars
um þrifalegar, þröngar og þrettán
og örlagaglettur.
Mörgum konum til
mikillar gleði og feðr-
um ungra leggjafagurra
stúlkna til gífurlegs léttis
eru síðpilsin aftur komin
í móð. Á ljósvakanum
hljóma nú auglýsingar ffá
hverri tískubúðinni á fætur
annarri um það hver hafi
upp á ódýrustu pilsin að
bjóða.
Með tilkomu síðpilsanna
ríkir mikil gleði í herbúðum
þeirra kvenna sem ekki gátu
leyft sér að ganga í stuttum pils-
um sökum ófagurra leggja. Þá
gleðjast feður fallegra stúlkna
óskaplega yfir því að nú geta for-
vitnir karlar ekki lengur horft upp
í eggjastokkana á litlu prinsessun-
um þeirra. Læknar taka og ffegn-
unum fangnandi, því síðum
klæðnaði fylgir minni hætta á
móðurlífs- og blöðrubólgu, sem
hrjáir ungar stúlkur mjög þegar
tískan segir að pils eigi að vera
stutt.
En það er annað og meira sem
helst í hendur við missíða pilsa-
tísku. Það er sjálft efnahags-
ástandið. Það má í raun og veru
teikna einfalt pilsalínurit til að
sýna svart á hvítu hve vel þetta
helst í hendur. Eftir fýrra stríð, í
kringum 1920, var velmegun og
bjartsýni ríkti í áratug eða svo.
Það var í fýrsta sinn í sögunni sem
pilsin náðu næstum því upp að
hnjám. Þetta var hið svokallaða
Charleston-tímabil, eitt áhuga-
verðasta djammtímabilið í sög-
unni að margra dómi. Um eða
upp úr 1930 fara pilsin aftur síkk-
andi. Það þarf ekld miklar gáfur til
Mismunandi
mynsturfrá
að geta sér til um í hvaða horf
efnahagslífið var komið á þeim
tíma. Kreppan mikla var skolíin á.
Síðan hafa sveiflurnar verið upp
og niður og nokkurn veginn í
samræmi við efnahag. Um og upp
úr 1980 kom uppsveifla í efnhags-
lífið og því fyigdi einnig mikil
uppsveifla í pilsatískunni. Og hef-
ur einhver heyrt eitthvert kreppu-
tal nýverið? Ef ekki þá er sú
manneskja líklega af öðrum
heimi. Og það þarf ekki að fara
mörgum orðum um núverandi
pUsasídd.
28 ára tískudrós úr Reykjavík er
afar fegin því að síðu pilsin eru
aftur að komast í tísku. Hún hefur
ástæðu til að fagna því henni hef-
ur aldrei liðið vel í stuttu pilsi.
„Ástæðan er einfaldlega sú að ég
er með ljótt ör á vinstri fæti eftir
bílslys. Áð auki er ég ekki með
fegurstu leggi í heimi. Af þessum
ástæðum geng ég einfaldlega ekki
í stuttum pUsum þótt mér finnist
þau glæsUeg á sumum konum. Á
Þessi tíska réð
ríkjum á sjötta
áratugnum og
hefur sjálfsagt náð
rétt í hœlana á
olíukreppunni
1973. Þá urðu
pilsin dragsíð.
þeim tímum sem pflsin hafa verið
stutt hef ég bara haldið mig við
buxumar. Nú finnst mér hins veg-
ar gaman að geta brugðið mér í
sítt pUs.“
Nýkomnar eru á markað hér bækur sem geta hjálpað okkur
við að flikka upp á gömlu húsgögnin sem við höfum sankað
að okkur. Hugmyndin er að vísu ekki islensk en það skiptir
ekki máli, því Islendingar eiga sér litla sem enga hefð í hús-
gagnaskreytingum. Bækurnar sem hér um ræðir eru einfald-
ar, svo einfaldar að versti rati gæti tekið sér pensil í hönd og
gert upp eldgömul húsgögn. Inni í bókunum er smjörpappír
með mismunandi mynstrum á, kalkipappir er lagður undir
smjörpappirinn og hann síðan á húsgögnin. Svo er bara
teiknað eftir línunum beint á húsgögnin. Og hver og einn
getur málað í uppáhaldslitunum sinum. Til eru bækur með
mynstrum frá mismunandi löndum, til dæmis Mexikó,
Skandinaviulöndum, íRibbons og Bow-stíl, amerískum og
fleirum.
Bækurnar eru i það minnsta sniðugar fyrir þá sem eiga ekki
mikinn pening en vilja samt búa i þokkalega líflegu um-
hverfi, að ekkisé talað um fyrirþá sem þrá að hafa eitthvað
fyrirstafni.
B I O B O R G I N
Systragervi Sister Act ★★ Whoopi
Goldberg í felum í nunnuklaustri.
Það er visst áfall þegar kemur í Ijós
að syngjandi nunnurnar eru
fyndnari en hún.
Hinir vægðarlausu Unforgiven
★★★★ Cnnt Eastwood er vernd-
ari hins vestræna heims — að
minnsta kosti þess villta. Þegar
engum dettur lengur í hug að
bjóða upp á vestra kemur hann
með þetta meistarastykki.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg þrátt fyrir augljósa
hnökra.
B I O H O L L I N
Systragervi Sister Act ★★ Nunn-
urnar eru fyndnari en Whoöpi
Goldberg. Að öðru leyti sannar
myndin hversu slæm blanda gam-
ansemi og tilfinningasemi getur
orðið í amerískum bíómyndum.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að
fara út fyrir fylkismörk Kaliforníu.
Rush ★★ Fíknó eru líka bóhemar
og fikta við eiturlyfjaneyslu. Dálítið
skemmtilega hrá og stundum trú-
verðug mynd. En aðalpersónurnar
ná ekki að lifna við.
Alien 3 ★★★★ Meistaralegur
lokaþáttur þessarar trílógíu, gerir
Batman-veröldina að hálfgerðu
Lególandi.
Seinheppni kylfingurinn ★★
Golfarar ættu að geta öskrað úr
hlátri, en varla aðrir.
Fyrir strákana For the Boys ★★
Bette Midler fer fiarskalega vel
með músíkina. En.allt verður frekar
útþynnt þegar henni sleppir.
Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★
Yfirleitt hugljúf, en nornin er býsna
hræðileg og hefur valdið mörgum
börnum andvökunóttum.
Frambjóðandinn Bob Roberts
★★ Tim Robbins, gulldrengurinn í
Hollywood, leikstýrir og leikur
hægrisinnaðan lýðskrumara, þjóð-
lagasöngvara sem er eins konar
and-Dylan, frambjóðanda sem er
eins konar sambland af Ross Perot
og Jósef Göbbels. Myndinni er ætl-
að að vera háðsádeila og kannski
er hún tímabær rétt fyrir forseta-
kosningar í Bandaríkjunum; gallinn
er sá að satíran verður fljótt einhæf
og myndin einfaldlega ekki nógu
fyndin.
Tvídrangar Twin Peaks, Fire Walk
With Me ★★ David Lynch hefur
verið að missa flugið og er hættur
að koma á óvart. Ljóðræni fjar-
stæðustíllinn hans er orðinn klisja.
Háskaleikir Patriot Games ★★
Stundum æsileg, en oftar stirð-
busaleg. Fátt kemur á óvart; smá-
smugulegheit eru helsti kostur
reyfara eftir Tom Clancy, þegar þau
vantar verður söguþráðurinn helsti
fátæklegur.
Sódóma Reykjavík ★★★ ímynd-
aðir undirheimar Reykjavíkur eru
uppfullir af skemmtilegum kjánum
og aulahúmor.
Svo á jörðu sem á himni ★★★ í
heildina séð glæsileg kvikmynd og
átakanleg. Varla hefur sést betri
leikur í íslenskri bíómynd en hjá
Álfrúnu litlu örnólfsdóttur.
Steiktir grænir tómatar Fried
green tomatoes ★★★ Konumynd;
um konur og fyrir konur. Góðir eig-
inmenn láta undan og fara með.
IMIMlllMai.]
Eitraða Ivy Poison Ivy ★ Drew
Barrymore vinnur sín stærstu afrek
í slúðurdálkum tímaritanna. í bíó
þarf hún að leika, en það ferst
henni ekki eins vel. Mynd sem
byggð er í kringum Drew hlýtur
því að mistakast.
Lygakvendið Housesitter ★★ Góð
hugmynd, en Goldie Hawn og Ste-
ve Martin eru eins og grínsjálfsalar.
Ferðin til Vesturheims Far and
Awav ★★★ Rómantísk stórmynd,
ákafíega gamaldags en oft stór-
skemmtileg.
■li-liHMIII
Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa-
legir og hlægilegir smákrimmar í
höfuðborginni.
Hvítir sandar. White Sands ★
Mickey Rourke er orðinn vöru-
merki á vondum myndum.
Prinsessan og durtarnir ★★★
Myndin er tal- og hljóðsett af mik-
illi kostgæfni og ekkert til sparað.
Ógnareðli Basic Instinct ★★
Markaðsfræðingarnir fá báðar j
stjörnurnar.
Lostæti Delicatessen ★★★★
Hugguleg mynd um mannát.
Henry, nærmynd af fjöldamorð-
ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi-
legri morðingi en Hannibal Lecter.
STJORNUBIO
Bitur máni Bittcr Mooti ★ ★★
Meinlega erótísk og oft kvikindis-
lega fyndin sápuópera. Samt er
spurning hversu alvarlega maður á
að taka þessa mynd. Það bregður
fyrir meistaratöktum en kannski er
Polanski löngu hættur að búast við
því að maður taki hann hátíðlega.
Ofursveitin Universal Soldier ★★
Mynd um karlmenni, fyrir stráka
sem kannski pína kærusturnar
með.
Börn náttúrunnar ★★★ Rómað-
asta íslenska blómyndin.
S O G U B
Lygakvendið Housesitter ★★
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt.
Hvítir geta ekki troðið White
Men Can't Jump ★★★ Leikkonan
Rosie Perez stelur senunni.
Tveir á toppnum 3 Lethal Wea-
pon 3 ★★ Minni hasar og minna
grín en í fyrri myndum.