Pressan - 17.12.1992, Qupperneq 32
32
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. DESEMBER 1992
L í F I Ð E F T I R
V I N N U
KLASSÍKIN
mmaiMMMi
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands heldur jólatónleika.
Flutt verða eftirtöld verk:
iÞættir úr Hnotubrjótnum
eftir Pjotr Tsjajkovskíj, Sigfried Idyll eft-
ir Richard Wagner, Brandenborgar-
konsert nr. 3, Aría úr Jólaóratoríunni
eftir Johann Sebastian Bach og jóla-
sálmar og jólalög eftir ýmsa höfunda.
Einsöngvari er Tómas Tómasson
bassasöngvari og tekur Skólakór Kárs-
ness þátt í tónleikunum. Hljómsveitar-
stjóri er Hákon Leifsson, sem í fyrsta
sinn stjórnar opinberum tónleikum
hjá SÍ. Langholtskirkja kl. 20.
FOSTUDAGUR
• Jólatónleikar Kórs Langholts-
kirkju Kór Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar heldur árlega
jólatónleika sína. Fluttir verða ýmsir
jólasöngvar. Sú nýbreytni verður nú
höfð á, að tónleikarnir verða endur-
teknir á sunnudag. Langholtskirkja kl.
23.
• Ljósvíkingar Hópur listamanna
les upp úr Ijóðabókum og flytur hug-
Ijúfa tónlist. Meðal flytjenda eru Einar
Kárason, Ólafur Gunnarsson, Sveinn
Óskar Siqurðsson, Þórarinn Eldjárn,
Kristín Omarsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Rúnar Óskarsson. List-
húsið Laugardal kl. 20.30.
LAUGARDAGUR
• Ljósvíkingar Dagskráin frá því á
föstudag endurtekin á Selfossi. Sel-
fosskirkja kl. 20.30.
• Tónskóli Sigursveins heldur
nemendatónleika sína. Norrœna húsið
kl. 15.
• Tónlistarfélag Vestur-Húnvetn-
inga heldur tónleika. Fram koma Sig-
urður Halldórsson sellóleikari og Daní-
el Þorsteinsson píanóleikari. Vertshús,
Hvammstanga.
SUNNUDAGUR
• Barnaheill Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Hörður Áskelsson organisti
halda tónleika til styrktar Barnaheillum
og rennur allur ágóði til þeirrar starf-
semi. Einsöngvari er Kristján Jóhanns-
son óperusöngvari. Tónlistarflutning-
ur er í höndum Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Hallgrímskirkja.
• Jólatónleikar Kórs Langholts-
kirkju frá því á föstudag endurteknir.
Langholtskirkja kl. 17.
• Ljósvíkingar lesa upp úr Ijóðabók-
um oq flytja hugljúfa tónlist fyrir
heimafolk á Hellu. Laufafelli, Hellu kl.
20.30.
LEIKHUS
My Fair Lady Þetta
^ -^fræga söng- og leikverk eft-
ir Alan Jay Lerner og Fre-
derick Loewe verður frum-
sýnt á annan dag jóla. Með
aðalhlutverk fara Jóhann Sigurðarson
og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir en
leikstjórn er í höndum Stefáns Bald-
urssonar. Þjóðleikhúsið kl. 20.
• Stræti. Þessi sýning er gott dæmi
um það hve stílfærður og stór leikur
fer vel á sviði, segir Lárus Ymir Óskars-
son í leikdómi. Næsta sýning sunnu-
daginn 27. desember. Þjóðleikhúsið,
Smíðaverkstœði, kl. 20.
• Ríta gengur menntaveginn Fyr-
ir þá leikhúsgesti sem ekki eru að elt-
ast við nýjungar, heldur qömlu góðu
leikhússkemmtunina, skrifar Lárus Ým-
ir. Næsta sýning sunnudaginn 27. des-
ember. Þjóðleikhúsið, litla svið, kl.
20.30.
• Dýrin í Hálsaskógi Hlutverkaskip-
an var að því leyti sérkennileg að
Mikki refur hefði komist tvöfaldur fyrir
inni í Lilla klifurmús, svo vitnað sé í
leikdóm Lárusar Ýmis. Næsta sýning
þriðjudaginn 29. desember. Þjóðleik-
húsiðkl. 13.
• Hræðileg hamingja. Ég mæli
með þessari sýningu vegna leikritsins,
skemmtilegs leikrýmis og listar leikar-
ans, sem þarna er iðkuð af lífi og sál,
segir Lárus Ýmir. Næsta sýning er
þriðjudaginn 29. desember. Hafnar-
húsið kl. 20.30.
• Ronja ræningjadóttir. Leikverk
eftir þekktri sögu barnabókahöfundar-
ins ástsæla Astrid Lindgren. Frumsýn-
ing á annan dag jóla. Borgarleikhúsið
kl. 15.
• Heima hjá ömmu. Margt er ágætt
um þessa sýningu að segja. Þó er eins
og flest sé þar í einhverju meðallagi,
skrifar Lárus Ýmir. Næsta sýning
sunnudaginn 27. desember. Borgar-
leikhúsið kl. 20.
• Platanov. Sýningin á Platanov er
þétt og vel leikin og skemmtileg, svo
enn sé vitnað í leikdóm Lárusar Ymis.
Næsta sýning þriðjudaginn 29. des-
ember. Borgarleikhúsið, litla svið kl.
17.
• Vanja frændi. Vanja geldur sam-
flotsins við Platanov, eða svo segir
Lárus Ýmir. Næsta sýning þriðjudag-
inn 29. desember. Borgarleikhúsið,
litla svið kl. 20.
• Lucia di Lammermoor. Sigrún
Hjálmtýsdóttir er stjarnan sem skín
skært á íslensku óperufestingunni.
Næsta svning sunnudaginn 27. des-
ember. Islenska óperan kl. 20.
• Hræðileg hamingja Ég mæli
með þessari sýningu vegna leikritsins,
skemmtilegs leikrýmis og listar leikar-
ans, sem þarna er iðkuð af lífi og sál,
skrifar Lárus Ýmir. Næsta sýning
þriðjudaginn 29. desember. Alþýðu-
leikhúsið, Hafnarhúsinu kl. 20.30.
MYNDLIST
Lítil verk íslenskra
I myndlistarmanna verða
*sýnd á myndlistarsýningu
Isem opnuð verður í List-
'munahúsinu á laugardag. Á
sýningunni verða tæplega hundrað
verk eftir eftirtalda listamenn: Ásu Ól-
afsdóttur, Eyjólf Einarsson, Guðrúnu
Einarsdóttur, Gunnar Örn Gunnarsson,
Huldu Hákon, Hring Jóhannesson, Jó-
hannes Geir Jónsson, Jón Axel Björns-
son, Jón Óskar, Magnús Kjartansson,
Magnús Tómasson, Sigríði Ásgeirs-
dóttur, Sigurð Örlygsson og Willem
Labey. Opið virka daga kl. 12-18 og
um helgar kl. 14-18. Lokað á mánu-
dögum.
• Sigurjón Sigurðsson hefur opn-
að sýningu á málverkum sínum í Perl-
unni, 1. hæð.
• Kirsten Ortwed & Jan Sven-
ungsson sýna verk sín í Nýlistasafn-
inu. Listamennirnir, sem eru frá Dan-
mörku og Svíþjóð, eru vel þekktir í
hinum norræna listaheimi og koma
sýningarnar frá Norrænu listamiðstöð-
inni Sveaborg í Helsinki.
• Svala Sigurleifsdóttir opnar svn-
ingu á verkum sínum í Slunkaríki á ísa-
firði á laugardag. Verkin á sýningunni
eru svart/hvítar Ijósmyndir, stækkaðar
og litaðar með olíulitum. Hvert verk
samanstendur af fleiri en einni Ijós-
mynd.
• Harpa Björnsdóttir sýnir verk sín í
Galleríi Sævars Karls. Myndverk sýn-
ingarinnar eru að hluta til trúarleg.
Opið á verslunartíma.
• Barnamyndir - í Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á myndum úr
samkeppni sem haldin var í tengslum
við sýninguna Orðalist Guðbergs
Bergssonar. Einnig eru sýndar myndir
úr listsmiðju barna í Gerðubergi,
Gagni og gaman. Opið mánudaga til
fimmtudaga kl 10-22, föstudaga kl.
10-16 og laugardaga kl. 13-16.
• Peter Bishop sem á heiðurinn af
sköpun Jóa í RafVeituauglýsingunum,
sýnir gáskafullar teikningar í setustofu
Nýlistasafnsins. Opiðkl. 14-18.
• Álafoss-listamennirnir hafa opn-
að sýningu á verkum sínum á vinnu-
stofum sínum í Álafosshúsinu í Mos-
fellsbæ. Sýningin stendur yfir fram að
jólum.
• Japanskar tréristur er myndhefð
sem af mörgum er talin eitt helsta
framlag Japana til heimslistasögunn-
ar. Meðal annars eru á sýningunni í
Mokka verk eftir suma af stórsnilling-
um japanskrar prentmyndahefðar.
SÝNINGAR
Í# Desembervaka, menn-
ingarveisla á vegum Gilfé-
lagsins, stendur nú yfir í
Grófargili á Akureyri. Um 65
listamenn af öllu landinu
taka þátt í desembervökunni og sýna
verk sín. Dagarnir 21. og 22. desember
verða sérstakir markaðsdagar, haldnir í
tengslum við menningarveisluna.
• Finnsk glerlist Sýningin spannar
70 ár í glerlist Finna og eiga allir helstu
glerlistamenn þeirra muni á henni.
Fjölbreytt og söguleg sýning ( Nor-
ræna húsinu. í anddyri er sýning á
Ijóðum, bókum og myndum fyrir börn
eftir finnska höfunda. Opiðkl. 14-19..
Spessi & Steingrímur Eyfjörð sýna
Ijósmyndir af mátunarklefum á veggj-
um Café Splitt.
Sigurgeir Sigurjónsson sýnir lands-
lagsljósmyndir í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hann hefur nýverið gefið út bók með
Ijósmyndum sínum.
• Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur
í tilefni 90 ára afmælisins opnað sýn-
ingu í Hafnarborg, listamiðstöð Hafn-
arfjarðar. Á sýningunni gefur að líta
gamla muni sem varðveist hafa úr
sögu sparisjóðsins, s.s. handskrifuð
skjöl, peninga og vélar. Opið alla daga
nema þriðjudaga kl. 12-18..
• Loftur Atli sýnir Ijósmyndir í Gallerí
G 15. Opið á verslunartíma til jóla..
Tommi 09
Jenni í bfó
Tommi og Jenni, velþekktir félag-
ar úr teiknimyndaseríum sjón-
varpsins, láta ekki deigan síga
þrátt fyrir að hafa náð fimmtugs-
aldri og birtast nú í fyrsta sinn á
hvíta tjaldinu. Þeir félagar eru
kunnir fyrir að vera heldur litlir
vinir, svo vægt sé til orða tekið, en
aðstæður haga því svo að þeir
snúa við blaðinu, taka höndum
saman og vinna sameiginlega
gegn óvinum sem á vegi þeirra
verða. „Ég meina það,“ segja
krakkarnir. „Frábært," hrópa for-
eldramir.
Ýmis vandkvæði vora á gerð
myndarinnar og þóttu nokkrar
breytingar nauðsynlegar. Var sag-
an meðal annars lagfærð ögn og
nokkrum fi'gúram bætt við íil að
gera hana fyllri og skemmtilegri
fyrir væntanlega áhorfendur.
Stærsta breytingin fólst þó í því að
gefa félögum okkar málið, en
hingað til hefur það skort með
öllu. Myndin hefur verið talsett á
íslensku og fellur það í hlut Arnar
Árnasonar að fara með rödd
Tomma. Sigrún Edda Björnsdóttir
sér um Jenna litla.
yfvaðgera Bar-
þjónar umjóíin?
Friðrik Weisshappel á Bíó-
barnum
I„Ég vinn auðvitað
aila dagana sem
opiðer.jafnvel á
gamlárskvöld, en á
heilugustu frídög-
unum, til dæmis á aðfanga-
dag_, ætla ég að borða rjúpurn-
arfiértnar mömmu og drekka
ógrynnin öll af rauðvíni með. Á
jóladag bregð ég mér svo til
tengdaforeldra minna í Kefla-
vík í heitan pott og hef það
gott, en þar sem þetta eru
fyrstu jólin okkar saman skap-
aðist nokkurtogstreita um hjá
foreldrum hvors okkar við ætt-
um að eyða aðfangadags-
kvöldinu. Ég reyni svo auðvit-
að að lesa góðar bækur eins
og Heimskra manna ráð, ef
einhverjum dytti í hug að gefa
mér hana íjólagjöf."
Viddi á Glaumbar
„Fyrirfjórum árumi
upplifði ég ífyrstal
skipti jól sem mérj
líkaði; mjög rólegl
ogfalleg jól og*
mikla samkennd. Það eru
fyrstu og einu alvöru jólin sem
ég hef upplifað. Maður þarf
a. nefnilega
-
rosa-
lega
—Jpr mikinn
^ tíma til
að halda
jól. Öll orkan
fer í að hafa
þetta sem glæsilegast en
glæsileikinn hverfur vegna
þess að jólin eru erfið í með-
ferð og dýr. Þetta er eins og að
kaupa sjöþúsund króna nauta-
steik sem maður hefur í raun
og veru ekki efni á. Fyrir vikið
verður steikin ekki góð, þar
sem maður sér svo eftir því að
hafa keypt hana. Maður nýtur
ekki matarins ef maður hefur
ekki efni á honum. Annars ætla
ég að reyna að hafa það sem
best yfir hátíðisdagana en svo
er mikil vinna framundan."
Jói á Café Romance
i„Ég ætla að nota
Itækifærið til að
|slappa afífaðmi
Ifjölskyldunnar í
3Keflavík, hjá
mömmu og pabba. En það
verður aðeins tveggja daga frí
frá vinnu, á aðfangadag og
jóladag, því annar í jólum er
laugardagur og þá verður
væntanlega nóg að gera á
barnum. Síðan kemurfjögurra
daga frí í kringum áramótin,
þar sem ekki verður opið fyrr
en á nýárskvöld. Að venju
verður borðuð sósa með rjúpu
— ekki rjúpa með sósu — og
brúnuðum kartöflum á að-
fangadagskvöld."
Tommi og Jenni ífyrsta sinn á
hvíta tjaldinu annan íjólum í
Regnboganum. Ýmislegt drífur á
daga þeirra.
Hvað á að gera um áramótin?
GAMLÁRSKVÖLD
í Tunglinu verður mikið lagt upp úr
gamlárskvöldinu og fullt af óvæntum
uppákomum. Gleðisveitin Júpíters
verður aðalhljómsveit kvöldsins, en þeir
eru að mæta aftur eftir nokkurra mán-
aða hlé með splunkunýtt prógramm. Á
Hótel íslandi spila tvær eðalhljóm-
sveitir, Nýdönsk og Jet Black Joe, og
má búast við að aðalgrúppíspíurnar
verði þar. Lokað verður á ömmu Lú
þetta kvöldið. í Súlnasal Hótels Sögu
verður dansleikur með knöllum,
kampavíni og húllumhæi. Óli Haralds
ætlar að ögra bragðlaukum gesta í Ing-
ólfskaffi og liðið verður skreytt með
höttum og ýmsum öðru nýársglingri.
Kvennaflagarinn Bogomil Font trallar
fyrir viðstadda og freyðivínið mun
flæða. Miðar verða seldir í forsölu! Á
Tveimur vinum verður lifandi tónlist. Á
Berlín verður haldin ein mesta sumar-
gleði ársins en þar á bæ voru áramótin
haldin hátíðleg í haust... og nýársgleð-
in tíu dögum síðar. Því er von á hvers
kyns súmarglensi og þeir sem mæta í
stuttbuxum fá óvæntan glaðning. Á
Hressó verður mikið um sprell og spé,
flugeldasýning og þvílíkt hafarí. í Sjall-
anum skemmta Skriðjöklar og er fólk
beðið að taka með sér hesta og hnakka.
1000 andlit sýna sitt rétta á Þotunni í
Keflavík. í Casablanca verður auk disk-
óteks slegið á fjórar bongótrommur og
spilað á saxófón. Meðan á gleðinni
stendúr verður boðið upp á kampavín
og jarðarber.
NÝÁRSKVÖLD
Á Hótel fslandi verður valin forsíðu-
stúlka Vikunnar. Átta krúttibollur
keppa um titilinn. Meðan gestir snæða
fjögurra rétta málsverð spilar píanistinn
Edda Erlendsdóttir argentínska tónlist
ásamt níu manna Njómsveit. Skemmti-
atriði verða af ýmsu tagi og gestum er
gert að mæta í sínu fínasta pússi. Sálin
hans Jóns míns spilar það sem eftir er
kvölds. Það var þegar uppselt á Ömmu
Lú fyrir þremur vikum og nöfn fimmtíu
manna og kvenna hafa verið sett á bið-
lista. Þar verður á boðstólum fjögurra
rétta glæsimálsverður og háttvirtur
utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hanni-
balsson, verður veislustjóri. Heiðar
Jónsson heldur ræður kvöldsins. Bubbi
Morthens syngur Kúbusöngva og sex
manna hljómsveit sendir fólk svo dans-
andi inn í nóttina. Fagnað verður nýju
ári í Súlnasal Hótels Sögu með mat,
drykk og skemmtidagskrá. Ingólfskaffi
verður opið eins og venjulega. Tveir
vinir hafa ráðið til sín spaugarana í
Sniglabandinu til að halda fólki vak-
andi og það stendur til að halda nýárs-
fagnað á Berlín en það hefur ekki feng-
ist staðfest. Hressómenn ætla að hvíla
sig á fyrsta degi nýs árs. Svartur pipar
verður í Sjallanum.
2. JANÚAR
Síðan skein sól er á Hótel íslandi fyrir
þá sem enn hafa orku og úthald í
skemmtanir. Bogomil Font bregður sér
á Tvo vini og haldið verður barnaball
hjá þeim fýrir sunnan í Þotunni. Þrefalt
húrra fyrir að muna eftir pollunum.
Stjórnin gleður
stóra fólkið að
kvöldi.
Topplistamenn í IMýló
Aðstandendur Nýlistasafnsins eru öflugir um þessar mundir og hefur nú verið
opnuð sýning tveggja listamanna frá Norðurlöndunum sem báðir eru sagðir
fremstir meðal jafninga. Annars vegar er um að ræða hina dönsku Kirsten Ort-
wed, sem fyrir áratug sló í gegn víða um Evrópu, en þá hafði hún verið þekkt
fyrir verk sín heimafyrir um árabil. Hún vinnur mikið með vax og brons og
þykir hugmyndaríkur skúlptúristí sem
spannar breitt svið. Kirsten er skörp og þyk-
ir oftar en ekki hitta naglann á höfuðið í
listsköpun sinni. Hins vegar er um að ræða
Jan Svenungsson, ungan sænskan lista-
mann sem var við nám í listaskóla í París.
Hann vinnur mildð með ljósmyndir en
málar líka og er einn eftirtektarverðastí
listamaður sinnar kynslóðar.
Sýningin stendur ffam á nýárið.
B I O B O R G I N
Aleinn heima 2 - Týndur í New
York Home Alone 2 - Lost in New
York ★★★★ Frábaer skemmtun.
Spyrjið bara börnin. Pað er helst að
þeim leiðist yfir boðskap jólanna í
gervi útigöngukonu. Þau tryllast
hins vegar af fögnuði yfir öllu því
dóti sem lendir é hausnum é bóf-
unum.
Sálarskipti Prelude to a Kiss ★★
Alec Baldwin lendir í þeim ósköp-
um að gamall maður kyssir kon-
una hans löngum kossi og skiptir
um líkama við hana á meðan.
Friðhelgin rofin Unlawful Entry
★★ Þetta gæti verið Höndin sem
vöggunni ruggar II.
O H O L L I N
Systragervi SisterAct ★★
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast ★★★ Ótrúlega fögur mynd
og fjarska óhugnanleg þegar það
á við.
Systragervi SisterAct ★★
Kúlnahríð Rapid Fire ★★ Hefnd
sonar Bruce Lee.
Grínistinn This is my life ★★
Hugljúf mynd og stundum eilítið
fyndin.
Borg gleðinnar City of Joy ★★★
Myndin kemur óhugnaði fátækra-
hverfanna í Kalkútta vel til skila en
sagan mætti hins vegar vera ris-
meiri.
Blade Runner ★★ Litlu breytt frá
frummyndinni og ekkert til bóta.
Beethoven ★★
Leitin mikla ★★
Burknagil, síðasti regnskógurinn
★★
Dýragrafreiturinn 2 Pet Sematary
Two ★ Hryllingur. Góður fyrir þá
sem geta ekki lifað án gæsahúðar.
Hákon Hákonsen ★★ Norsk æv-
intýramynd. Því miður ekki miklu
betri en það hljómar. Aðdáendur
Ævintýrabókanna fá þó eitthvað
við sitt hæfi og skiptir þá engu
þótt mörg ár séu liðin síðan síðasta
bókin var lögð til hliðar.
Dingo ★★★ Þetta er mynd fyrir
djassara. Þeir kætast. Aðrir ekki. Og
þó. Semí-djassistar gætu endan-
lega frelsast.
Ottó Otto der Liebesfilm ★ Otto
Waalkes virðist vera svo fljótur að
búa til myndir að engar líkur eru á
að eftirspurn eftir honum vaxi á
milli myndanna.
Boomerang ★ Myndin sem átti að
draga úr hraðri niðurleið Eddies
Murphy af stjörnuhimninum. Hann
stendur sig þokkaiega en getur
samt litlu bjargað.
Forboðin ást Ju Dou ★★★★
Meistaraverk. Óvenjustílhrein
mynd þar sem hvert smáatriði er
mikilvægur þáttur í magnaðri
heild.
Svo á jörðu sem á himni ★★★.
Háskaleikir Patriot Games ★★
Smásmugulegheit eru helsti kostur
reyfara eftir Tom Clancy. Þegar þau
vantar verður söguþráðurinn helsti
fátæklegur.
LAUGARASBIO
The Babe ★★★ Hrífandi mynd
um einfeldning sem bjó yfir ein-
stökum hæfileikum í hafnabolta.
John Goodman er eins og skapað-
ur í hlutvekið.
Lifandi tengdur Live Wire ★
Mynd fyrir myndbandamarkað
sem einhverra hluta vegna hefur
fengið forsýningu í bíó.
Tálbeitan Deep Cover ★★ Nokk-
uð smart mynd með meira af
spennu en ofbeldi. En spennan og
sagan renna út í sandinn eins og
tálbeitutrixið hjá fíkniefnalögregl-
unni.
Miðjarðarhafið Mediterraneo
★★★ Myndin sem hrifsaði verð-
launin af Börnum náttúrunnar —
eins og segir í auglýsingunni. Það
þarf mikinn þjóðernissinna til að
finnast það ósanngjarnt.
Á réttri bylgjulengd Stay Tuned
Leikmaðurinn The Player
★★★★ í senn þriller, gamanmynd
og háðsádeila. Algjört möst — líka
til að sjá 65 stórar og litlar stjörnur
leika sjálfar sig.
Sódóma Reykjavík ★★★
Homo Faber ★★★★
Henry, nærmynd af fjöldamorð-
ingja ★★
Prinsessan og durtarnir ★★★
Fuglastríðið í Lumbruskógi
★★★
STJORNUBIO
Meðleigjandi óskast Single White
Female ★★★ Spennandi, eilítið
smart og ágætlega óhugnanleg.
Helsti gallinn við myndina er sá að
önnur bíó hafa tekið margar svip-
aðar myndir til sýningar þótt þessi
hafi verið frumsýnd fyrr í útlönd-
um. íslenskir áhorfendur hafa því
séð eftirgerðirnar á undan.
í sérflokki A League of their Own
★★★
Bitur máni Bitter Mooti ★★★
Meinlega erótísk og oft kvikindis-
lega fyndin sápuópera. Mikið tal,
strandferðaskip og allt sem prýða
má góða og gamaldags sögu.
Börn náttúrunnar ★★★
S O G U B
Aleinn heima 2 - Týndur í New
York Home Alone 2 - Lost in New
York ★★★★
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast icirír Ótrúlega fögur mynd
og fjarska óhugnanleg þegar það á
við. Hún sannar að því lygilegri
sem sagan og umbúnaðurinn eru
því auðveldara á áhorfandinn með
að lifa sig inn í verkið.
i