Pressan - 17.12.1992, Side 34
Nær ómögulegt að
fá rjúpur
GERVIRJÚPUR ÚR
KJÖTFARSI SELDflR
Á 400 KRÓIUUR
STYKKIÐ
„Auðvitað smakkast þessar
gervirjúpur ekki eins og al-
vörurjúpur. Þær eru hins
vegar ótrúlegar svipaðar í
laginu," - segir Bárður
Jónsson kjötkaupmaður.
„Ég er ekki að neyða þessar
rjúpur upp á neinn en það er
spurning hvort ekki sé betra
að hafa eitthvað sem líkist
rjúpum á borðum en að hafa
ekki neitt," - segir Bárður
kjötkaupmaður Jónsson.
Nýstofnuð hagsmunasamtök barna
MÓTMÆLA HÆKKUIU MEÐLAGS
„I gegnum tíðina hefur sú hefð
skapast að forræðislausir feður
okkar hafa gefið okkur stærstu og
verðmætustu pakkana. Með
hækkun meðlagsins teljum við
því að verið sé að fórna meiri
hagsmunum fyrir minni," - segir
Kári Páll formaður samtakanna.
50. tbl 3. árgangur
GULA PRESSAN
Fimmtudagur 17. desember
„Við ætlum í mál," segir Burkni Hjaltason, einn höfunda skýrsl-
unnar. „Við erum hins vegar ekki alveg búin að gera upp við okk-
ur hverjum við stefnum. Þó er Ijóst að Ketill Larsen sleppur ekki
og heldur ekki umsjónarmenn Stundarinnar okkar undanfarin
tuttugu og fimm ár."
Samsæri foreldra og kaup-
manna til að hafa áhrifá
hegðun barna, halda þeim
niðri og móta þau I með-
færilegt form, - segir I nýút-
kominni skýrslu nemenda-
félags Melaskóla.
„Hvernig heldur þú að
okkur h'ði? Auðvitað trúðum
við foreldrum okkar. Auðvit-
að trúðum við kennurunum.
Þegar maður er barn er það
manns hald og traust að þetta
fólk fari ekki á bak við mann.
Og þegar maður áttar sig á
því er maður sleginn. Annað
væri óeðlilegt," sagði Burkni
Hjaltason, formaður nem-
endafélags Melaskóla, á
blaðamannafundi í gær, en
þar lagði nefnd á vegum
nemendafélagsins fram
skýrslu undir nafninu; „Lygi
tuttugustu aldarinnar“.
f skýrslunni er rakið hvernig
hugmyndinni um jólasveininn
hefur verið haldið að æsku
landsins til að fá hana til að sýna
af sér hegðun sem foreldrar og
kennarar telja æskilega.
„Ég held að þessi hegðun sé
alls ekki sú sem æskileg er fyrir
þroska okkar og uppeldi," sagði
Burkni á fundinum. „Það getur
ekki talist æskilegt að börn fari
að sofa þegar þau eru ekki syfj-
uð, séu stillt þegar þau þurfa út-
rás eða dundi sér inni hjá sér
þegar þau þyrstir í félagsskap.“
í skýrslunni er rakið hvernig
sumir foreldrar hafa lagt á sig
ótrúlegt erfiði til að viðhalda trú
barna sinna á jólasveininn. Til
dæmis er sagt frá móður í Breið-
holtinu sem seig niður af þaki
blokkarinnar til að skilja eftir
fótspor á gluggakistu við her-
bergi sonar síns. Sá drengur var
orðinn þrettán ára þegar hann
áttaði sig á að móðir hans hafði
logið að honum alla tíð.
„Þið getið rétt ímyndað ykkur
hvernig honum varð við,“ sagði
Burkni á fimdinum. „Hann glat-
aði öllu trausti á annað fólk. Ef
að líkum lætur mun það taka
hann mörg ár að öðlast aftur
það traust sern honum er nauð-
synlegt til að geta lifað frjáls í
samfélagi við annað fólk.“
Ríkisstjórnin kaupir vaxmyndir af ráðherrunum
ALDREI ÆTLUI\III\I AÐ
SETJA ÞESSAR MYAIDIR
í ÞJÚÐMINJASAFNIÐ
- segir Davíð Oddsson. Samkvæmt heimildum GP var ráðgert
að setja vaxmyndirnar niður á þing svo ráðherrarnir gætu
lagtsig meðan stjórnarandstaðan héldi uppi málþófi.
Enn vandræði með víðómsútsendingar Ríkissjónvarpsins
HELGIE. HELGASON
VIRKAR EKKI í STERÍO
í hvert sinn sem Helgi birtistá skjánum þegar sent er út með
víðómi sjást aðeins misjafnir kaflar á skjánum.
Hinrik Karls-
son tækni-
maðurhorfir
gáttaður á
sjónvarps-
myndina
sem birtist í
hvert sinn
sem reynt er
að senda út
fréttir Helga
E. Helgason-
ar I steríó.
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR
Ung hjón í Breiðholti
HAFA VERIfl í HAS8VÍMU í FIMM
ÁR Áhl ÞESS Afl VITA AF ÞVÍ
Máluðu nýju
íbúðina sína
með málningu
frá málningar-
fötusmyglurun-
um.
„Mérfannst þessir
kögglar I máln-
ingunni einkenni-
legiren hrærði þá
samt saman við. Það var ekki fyrr en málningarfötumálið kom fyrir
héraðsdóm að ég áttaði mig á hvað hafði gerst og hvers vegna
mér hefur fundist svona margt fyndið á undanförnum árum," segir
Finnur Úlfarsson, sem málaði íbúðina sfna með hassblandaðri
málningu.
Sveitarstjórnin á Flateyri
EINAR
ODDUR
SELDUR
„Vonum aðþetta kenni útgerðar-
mönnum að versla ekki með kvót-
ann,“-segirí samþykkt sveitar-
„Ég veit ekkert hvert þeir
seldu mig. Þeir vildu ekki
segja mér það," - sagði Ein-
ar Oddur Kristjánsson, for-
stjóri Hjálms, þegar hann
Stjórnar. var keyrður út á flugvöll á
Flateyri í gær.
Lygi tuttugustu aldarinnar
JOLASVEINNINN
ER EKKITIL
Framlag þitt skilar árangri
HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
- með þinni hjálp
Gíróseðlar liggja frammi
í bönkum og sparisjóðum
i
I