Pressan - 07.01.1993, Page 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. )ANÚAR 1993
19
ndanfarið hefur mátt sjá auglýs-
ingar frá Heimsklúbbi Ingólfs Guð-
brandssonar þar sem auglýstar eru ótrú-
lega ódýrar Brasilíu-
ferðir. Verðið á þeim
hefur vakið furðu
margra enda kosta þær
innan við 100.000 krón-
ur. Skýringin á þessu er
meðal annars sú að
Andri Már Ingólfs-
son hefur náð góðum samningum í
tengslum við Kanaríeyjaflugið, en flogið
er þaðan til Brasih'u. A Kanaríeyjum þarf
Andri Már hins vegar enn að glíma við
fortíðarvanda Veraldar og mun ekki fá
neina gistingu þar fýrir farþega klúbbsins
nema greiða fyrirfram. Hótelstjórar, sem
töpuðu milljónum á Veraldargjaldþrot-
inu, æda ekki að brenna sig á sama hlutn-
um affur...
s
V^Jú breyting á veðhæfni fiskiskipa sem
hinar nýju BIS- bankareglur kveða á um
getur haft víðtæk áhrif á bókhaldsuppgjör
lánastofnana. Úr því Landsbankinn þarf
að fara að flokka þessi veð sem áhættulán
hvað verður þá um aðrar lánastofnanir?
Þar má meðal annars telja lán Fiskveiða-
sjóðs, sem er með útistandandi lán á
hverju einasta fiskiskipi á landinu. Lögum
samkvæmt á Fiskveiðasjóður að hafa 1.
veðrétt, sem einmitt hefur verið talinn
góður og gildur síðan kvótinn fór að telj-
ast þar með...
Undanfarið hafa verið staddir hér á
landi sölumenn frá Tælandi sem bjóða
fyrirtækjum upp á ódýr klæðskeravið-
skipti. Hafa þeir vakið athygli fyrirtækja
sem notast við starfsmannaklæðnað og
þá getur verið um töluverðar upphæðir
að ræða. Bjóðast þeir til að taka snið af
starfsmönnum og sauma úti í Tælandi
fyrir brot af því verði sem annars tíðk-
ast...
A
JL Jl þriðjudagskvöld komust Selfyss-
ingar í fyrsta skipti í úrslit í bikarkeppni
HSÍ eftir ffækilegan sigur á KA-mönnum.
Er það enn ein skraut-
fjöðrin í hatt Einars
Þorvarðarsonar þjálf-
ara, en í fyrra datt liðið
út í fyrstu umferð. Mik-
ið lið stuðningsmanna
flaug með liðinu norður
til Akureyrar og var
komið suður aftur eftir miðnætti. Var þá
hálfgerð móttökuathöfn við veitingastað-
inn Inghól og flugeldum skotíð þar á loft
klukkan tvö eftir miðnætti...
i nýlegri skýrslu sem Wolfgang Edel-
stein frá Max Planck-stofnuninni í
Þýskalandi gerði um félagsvísindadeild
Háskólans er til þess tekið hversu sjaldan
er vitnað í íslenska félagsvísindamenn í
erlendum fagtímaritum. Þetta kom þeim,
sem til þekkja, ekki á óvart, enda hefúr
ff æðimennska við deildina einkum beinst
að íslenskum viðfangsefnum sem vekja
eðlilega lítinn áhuga erlendis. í skýrslunni
má hins vegar lesa að sá sem langoftast
var vitnað tQ erlendis var Erlendur Har-
aldsson, prófessor í sálarfræði, enda er
hann ötull við ritstörf á sérsviði sínu, dul-
sálarffæði. Hann nýtur þess líka að það er
tiltölulega fámennur hópur fræðimanna í
heiminum sem fæst við rannsóknir á dul-
rænum fyrirbærum og svo náttúrlega
hins, að þessi fræðigrein virðir engin
venjuleg landamæri...
Stjörnu snakK
TALAÐU VIÐ OKKUR UM
BÍLASPRAUTUN
LARÉTTINGAR
Auöbrekku 14. sími 64 2141
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og
eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í
sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1993 og er þá miðað við að
vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 vísitala 1.109
1. janúar 1986 vísitala 1.527
1. janúar 1987 vísitala 1.761
1. janúar 1988 vísitala 2.192
1. janúar 1989 vísitala 2.629
1. janúar 1990 vísitala 3.277
1. janúar 1991 vísitala 3.586
1. janúar 1992 vísitala 3.835
1. janúar 1993 vísitala 3.894
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar
1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar
hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs
sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
K'Zh \ /.
_s \v >
DANSSKÓLIHERMANNS RAGNARS
FAXAFENI14, NÚTÍÐ, 108 REYKJAVÍK
_SÍMI: 687480 & 687580
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi.
Við höfun fengið til okkar franskan gestakennara
Houry Kouiders en hann hefur unn sem
danshöfundur og dansari við söngleiki,
sjónvarpsþætti, óperur og starfað við leikhús í París
eins go Folies Bergeres, Moulin Rouge, Casino de
Paris svo eitthvað sé nefnt.
Við munum vera með flokka fyrir börn, unglinga og
fullorðna í Jazz, modern, rock og „showdansi“ þar
sem Houry Kouiders dansari og danshöfundur mun
leggja línurnar og kenna ásamt Henny.
Tilvalið tækifæri fyrir leikara, söngvara og dansara
og annað sviðsfólk til að öðlast öryggi og þjálfun.
Innritun í þessa hópa er daglega frá kl. 16-19 í síma
68 75 80 og 68 74 80 og spyrjið um Henny eða
Hermann Ragnar.
Kennsla er í Gerðubergi, Breiðholti og Fjörgyn,
Grafarvogi.