Pressan - 07.01.1993, Side 24

Pressan - 07.01.1993, Side 24
24 ___________FIMMTUDAGUR PRESSAN 7.JANÚAR 1993_ LEIKHÚS MYNDLIST KLASSÍK MYNDLIST • lan Hamilton Finlay, skoskur lista- maður sem hlotið hefur alþjóðlega frægð sem Ijóðskáld, mynd- listarmaður og skrúðgarða- hönnuður, sýnir verk sín á Kjarvalsstöðum á menningar- hátíðinni SKOTTlS, skosk-ís- lenskum menningardögum. Á sýningunni, sem hefst á laugardag, gefur að líta myndverk Finlays, nokkra ne- onskúlptúra og litskyggnur af Stonypath- garðinum í Lan- arkshire, einu af mikilvægustu samtímalistaverkum Evrópu. Hefst laugardag kl. 16. • Inga Svala Þórsdóttir og Olga Bergmann sýna verk sín í Gallerí 11. Inga Svala sýn- ir skúlptúrverk en Olga mál- verk. Hefur hún tileinkað sér gamla tækni, svonefnt egg tempura, og eru öll verkin máluð á tré. • Bandarísk utangarðslist í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Sýningin, sem heitir öðru nafni „Outsider USA", er skipulögð af Thord Thordem- an og hefur verið sett upp viða um Norðurlönd. Héðan fer sýningin til meginlands Evrópu. Hefst laugardag. • Afmælissýning Nýlista- safnsins, sem á 15 ára af- mæli um þessar mundir. Sex listamenn sýna verk sín í boði safnsins; Aðalheiður Elva Jónsdóttir, Elsa D. Gísladóttir, Pétur Örn Friðriksson, Ólöf Nordal, Ragna Hermanns- dóttir og Ingileif Thorlacius. Hefst laugardag. • Jóhann Jónsson frá Vest- mannaeyjum sýnir vatnslita- myndir sínar í Lóuhreiðri við Laugaveg. Opið virka daga kl. 9-18 oglaugardagakl. 10-14. • Ásmundur Sveinsson. í Ásmundarsafni setndur yfir sýningin Bókmenntirnar i list Asmundar Sveinssonar. Opið alladagakl. 10-16. • Lítil verk íslenskra mynd- listarmanna eru sýnd á mynd- listarsýningu i Listmunahús- inu. Á sýningunni eru tæp- lega hundrað verk eftir eftir- talda listamenn: Ásu Ólafs- dóttur, Eyjólf Einarsson, Guð- rúnu Einarsdóttur, Gunnar Örn Gunnarsson, Huldu Hákon, Hring Jóhannesson, Jóhannes Geir-Jónsson, Jón Axel Björnsson, Jón Óskar, Magnús Kjartansson, Magnús Tómasson, Sigríði Ásgeirs- dóttur, Sigurð Örlygsson og Willem Labey. Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18. Lokað i mánudög- um. • Sigurjón Sigurðsson sýnir málverk sín í Perlunni, 1. hæð. Síðasta sýningarhelgi. • Peter Bishop sýnir grín- aktugar teikningar (setustofu Nýlistasafnsins. Opið kl. 14-18. • Japanskar tréristur eru myndhefð sem af mörgum er talin eitt helsta framlag Jap- ana til heimslistasögunnar. Meðal annars eru á sýning- unni í Mokka verk eftir suma af stórsnillingum japanskrar prentmyndahefðar. Síðasta sýningarhclgi. SÝNINGAR • Víkin og Viðey, sýning ( Nýhöfn á fornleifum frá land- námi til siðaskipta í Reykjavik, á vegum Árbæjarsafns. • Sigurgeir Sigurjónsson sýnir landslagsljósmyndir ( Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann hefur nýverið gefið út bók með Ijósmyndum sínum. • Lækningaminjasafn sem sýnir áhöld og tæki sem tengjast sögu læknisfræðinn- ar á Islandi, í Nesstofusafni við Neströð á Seltjarnarnesi. HVERNIG Á AÐ FJALLA UM MENNIN GUNA? f desembermánuði flæddu yfir landsmenn bókapistlar og menn- ingarrýni í fjölmiðlum, svo ríflega að það gekk fram af venjulegu fólki. Flóðbylgja þessi heyrir ekki til nýmæla en getur verið skrambi leiðigjörn sé ekki sæmilega að henni staðið. Heilmikil umræða fór þó fram um umfjöllunina sem slíka og voru uppi ólíkar skoðanir um ágæti hennar. PRESSAN innti þrjá rithöfimda, Ólaf Gunnarsson, Guðmund Andra Thorsson og Friðriku Benónýs, um menning- arlega umræðu hérlendis. Fara spurningar og svör hér á eftir. 1. Að magninu slepptu, er op- inber urnræða um menningu og listir nógu góð? Guðmundur Andri; „Um- ræðan um það hvort umræðan sé nógu mikil er að minnsta kosti al- veg nógu mikil. Umræða um listir snýst eiginlega ekki um neitt ann- að en það. Og svo hitt að það vanti peninga. Hins vegar gerist nánast aldrei að maður heyri opinberlega skemmtilegt fólk tala um eitthvað annað en þessa endalausu um- ræðu.“ Ólafur: „Nei, hún er ekki nægilega vönduð og ekki nógu fagmannlega unnin.“ Friðrika: „Það er svo afstætt hvað er nógu gott. Sjálf hef ég ver- ið blaðamaður, gagnrýnandi og rithöfundur og því setið öllum megin borðsins. Það hefur alltaf farið í taugarnar á mér að lista- menn hafa haft ótakmarkaðan að- gang að fjölmiðlum í auglýsinga- skyni. Þeir telja sig hafa þann rétt og verða móðgaðir og fúlir segi maður sem blaðamaður að það ÓlafurGunnarsson sem þeir hafi fram að færa sé ekki nægilega gott til að um það sé fjallað. Umræðan ber því oft keim af auglýsinga- og yfirborðs- mennsku." 2. Hverjir eru gallamir og hverjir eru kostimir? Guðmundur Andri: „Það er einhver ótti við annars vegar dýpt og hins vegar léttleika sem skilar sér í þessu brúnaþunga tíðinda- leysi. Það hafa til skamms tíma verið of áberandi menn sem eru einhvern veginn ibyggnir yfir engu — svona „ég-hygg- að-hik- laust-megi-segja-menn. Þeir eru afurðir þess þegar stjórnmála- flokkamir stjómuðu hér gagnrýni eins og öðru og eru sennilega að deyja út. Menningarumfjöll- un hefúr smám saman víkk- að með óháðum miðlum og það er komið ffam fólk sem telur sig hafa öðrum skyld- um að gegna en búa til þjóð- skáld.“ Ólafur: „Kostirnir eru þeir að við njótum fámennis og fáum umljöllun um bæk- urnar. Erlendis er það víst svo að þar er maður í fúllri vinnu nokkra daga vikunn- ar við að opna bókaböggla. Aðeins lítill hluti ritverka fær gagnrýni og afganginum er einfaldlega skóflað á fom- sölur. Gallinn hér er hins vegar sá að gagnrýnin sem birtist er oft hroðvirknislega unnin. Þeir sem starfið stunda mættu til dæmis fylgjast betur með því sem er að gerast erlendis og uppgötva þar með sérstöðu íslands. Við eig- um marga listamenn sem stand- ast samanburð og höfum ekkert til að skammast oldcar fyrir.“ Friðrika: „Gallarnir eru fyrst og ffemst þeir að engin skýr mörk era á milli auglýsingamennsku og umfjöllunar. Að mínum dómi var það hræðilegt af PRESSUNNI að skella viðtölum við höfúnda sam- an við gagnrýni. Þá fer þetta að verða ískyggilega augljóst.“ 3. Fá íslenskar bókmenntir þá gagnrýni sem þær eiga skilið? Guðmundur Andri: „Ég veit það ekki. Sumt af henni er svolítið loðmullulegt og til marks um það hvað íslendingar eiga bágt með að fjalla um hugmyndir. Hún á ekki endilega að vera „hörð“ eða „væg“, þarf ekki einu sinni alltaf að vera sanngjörn. Hún verður hins vegar að vera greindarleg. Það ætti að vera leiðarljós gagn- rýnendum þegar þeir setjast niður til að skrifa: Eg vil að fólki finnist ég svo greind(ur).“ Ólafur: „Það er stöðugt til vandræða að flestallar bækur era gefnar út á síðustu mánuðum árs- ins í einni kös. Mér finnst því að oft fái þær fagmannlegri umfjöll- un eftir áramót þegar tíminn er rýmri og má í því sambandi nefna tímarit Máls og menningar." Friðrika: „Oftast nær. Það er þó einn hvimleiður ávani gagn- rýnenda sem færst hefúr í aukana með árunum en hann er sá að setja samasemmerki á milli gagn- rýni og niðurrifsstarfsemi. Niður- rifsstarfsemi er að slá sjálfan sig til Friðrika Benónýs riddara með því að vera ofsa- lega harður og töff. Frum- skilyrðið er að ganga út ffá forsendum bókmenntanna sjálfra. Það er alltaf leiðinlegt að lesa dóma þar sem gagnrýn- andi segir rithöfundinum hvernig bók hann hefði átt að skrifa í stað þess að fjalla um bókina sjálfa. Svo er hreint og beint ógnvekjandi að jafnvel sá sem sér um neytendasíðuna skrifi um bókmenntir eins og tíðkaðist á DV fyrir þessi jól. Þar var enginn faglegur grundvöllur lagður að gagnrýni." 4. Taka rithöfúndar næg- an þátt í þessari umræðu sjálfir, eða er hún ef til vill hlutverk annarra? Guðmundur Andri: „Nei. Mér fmnst of algengt að sjá höf- unda víkjast undan þvf að tala um nokkurn skapaðan hlut með alíbí- inu „Mitt er að yrkja, ykkar að skilja“. Umræða höfunda um bókmenntir er of mörkuð hags- munum í brauðstriti, sem ég býst við að sé óhjákvæmilegt. Það er þá þeim mun brýnna að þeir séu ekki að skipta sér af umfjöllun gagnrýnenda, sætti sig við að rætt sé um það sem þeir senda ffá sér.“ Ólafún „Það er aldrei gott að taka þátt í gagnrýnni umræðu um eigið verk, það er erfitt og ef til vifl tilgangslaust. Gagnrýnandi á að segja hvað honum sjálfum finnst og ef rithöfundur setur sig í þau spor er eins og hann sé að halda stjórnarfúnd um ágæti verka sinna.“ Friðrika: „Mér finnst rithöf- undarnir fá of mikið sjálfdæmi um hveiju þeir vilja koma á ffam- færi. Þeir vora til dæmis fáránlegir og jafnframt neyðarlegir bóka- kynningarþættirnir tveir sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu fyrir jólin þar sem hóað var sam- an hópi af rithöfundum sem klöppuðu hver öðrum á bakið.“ 5. Geturðu nefiit dæmi um umfjöllun síðustu mánaða sem var góð og jafnframt um einhverja sem var vond? Guðmundur Andri: „Bóka- blað PRESSUNNAR var jafn líf- legt og skemmtilegt og bókablað Moggans var dauðyflislegt. Það sama var upp á teningnum í sjón- varpinu. Þeir hjá Stöð 2 gerðu frísklega og fagmannlega kynn- Guðmundur Andri Thorsson mgarþætti á jóiabókunum, meðan ríkissjónvarpið varð sér enn eitt árið til skammar í sinni umfjöll- un.“ Ólafún „Nei, á hvorugan veg- inn get ég það. Almennt má hins vegar segja að jákvætt er þegar gagnrýnendur leyfa sér að vera ekki svo stórir með sig sjálfir að þeir þori að hrífast af öðrum en dauðum mönnum. Þeir verða að segja meiningu sína og verða jafn- framt að vera færir um að sleppa fram af sér beislinu, ekki aðeins þegar þeir eru reiðir, heldur líka þegar þeir era glaðir.“ Friðrika: „Sjónvarpsþættirnir vora fyrir neðan allar hellur. Einn- ig fannst mér sárt að sjá umfjöllun Kolbrúnar Bergþórsdóttur, sem er að mörgu leyti mjög góður gagn- rýnandi, um bók Trausta Steins- sonar. f dómnum kvaðst hún hafa hætt lestri á blaðsíðu fjörutíu. Engu að síður skrifaði hún gagn- rýni. Ekki veit ég um hvað hún var að skrifa fyrst hún las ekki bókina. Dæmi um mjög vel unna og góða gagnrýni voru hins vegar dómar Jóns Halls Stefánssonar í PRESS- UNNI um nýjustu bækur Þor- steins ffá Hamri og Gyrðis Elías- sonar, en auk þess að fjalla um feril þeirra kristallaðist þekking hans á rithöfundunum í dómun- um. Maður verður að bera þá virðingu íyrir sjálfúm sér að skrifa ekki eingöngu um eitthvað sem manni dettur fyrst í hug. Einkenni bókmenntakynningar Stöðvar 2 var hraðsuða; stutt, knappt og töff.“ Ljóðskáld, myndlistarmað- ur og skrúðgarðahönnuður Nú um helgina verður opnuð sýning á verkum eins þekktasta listamanns Skota, Ians Hamilton Finlay. Hann hóf feril sinn sem ljóðskáld og rithöfundur. Finlay var einn þeirra fyrstu sem hófu að vinna myndrænt með ljóð, „konkretpóesíverk", og var brautryðjandi á því sviði í Evr- ópu. Út frá rituðum orðum sín- um hefúr hann unnið þrívíð verk og prentuð af ýmsu tagi, en hann málar hins vegar aldrei. Alþjóðlega frægð hefur hann ekki síst hlotið fyrir sérstakt við- fangsefni sitt og listrænt undur, skrúðgarðinn „Litlu Spörtú'. Þar heldur hann sig öllum stundum en ekki allir hljóta það happ að fá inngöngu í hann, því Finlay þennan má nefnilega telja til örg- ustu sérviskupúka. Al- menningur þarf að fara eftir töluverðum króka- leiðum til að fá aðgang að garðinum og era kvenfé- lög til dæmis í litlu uppá- haldi hjá honum. Sérviska hans veldur því einnig að hann fylgir verkum sínum aldrei úr hlaði og kýs að nota óhefðbundnar leiðir til samskipta við umheim- inn. Til að koma hug- myndum sínum á fram- færi má segja að hann tali í gegnum listaverkin svo og íjölmiðlana, en árið 1961 hleypti hann af stokkunum sérstöku útgáfúfyrir- tæki, „Wild Hawthom“, sem hef- sýningar á Kjarvalsstöðum um helg- ina, en þarfereinn kunnasti listamaður Bretlandseyja sem jafnframt hefur hlotið mikla alþjóðlega frægð. ur fram- leitt meira en 800 verka hans. Þar á meðal má nefna póstkort, ljóð, tímarit, bæklinga og jafnvel hlífar fyrir sultukrukkur. Tveir fýrirlestrar verða haldnir um listamanninn; annar á sunn- dag en hinn síðar í mánuðmum.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.