Pressan - 07.01.1993, Qupperneq 27
V E I
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. JANÚAR 1993
27
BARROKK
TINGAHÚS BARIR BÍÓ
Bara grínmynd
★★★
• Drykkjumaður PRESSUNN-
AR átti ágæt jól og áramót,
enda veislur á hverju kvöldi
með tilheyrandi áfengis-
neyslu. Þrátt fyrir að heit-
strengingar um áramót séu
honum lítt að skapi hét hann
þó sjálfum sér því að drekka
meira af góðu og dýru kon-
íaki á því ári, sem nú er að
hefjast, en hann hefurgert
fram til þessa. Ástæða þessa
er sú að hann eyddi notalegri
kvöldstund í góðra vina hópi
á Hótel Holti, þar sem er
vægast sagt undursamlegt
úrval af dásemdarkoníaki.
Það spillti ekki heldur fyrir að
þjónninn, sem bar veigarnar í
drykkjumanninn og vini
hans, hafði yfir mikilli kunn-
áttu á eðalvínum þessum að
búa og svalaði því líka fróð-
leiksþorsta þeirra. Annars
verður almennt og yfirleitt að
hrósa Hótel Holti fyrir ein-
staklega vel búinn bar. Að
minnsta kosti saknaði
drykkjumaðurinn engrar
sortar og það sem meira var:
voru gnægðirnar. En allt um
það, að orgíu þessari lokinni
hefði verið antíklímax að fara
á hvaða bar sem var, svo
strikið var tekið á Barrokk við
Laugaveg. Drykkjumaðurinn
hafði reyndar komið þangað
skömmu eftir að hann var
opnaður, en síðan hafði stað-
urinn allt að því horfið hon-
um úr minni, því yfirleitt er
nóg að halda sig á milli Aðal-
strætis og Klapparstígs til að
svala áfengisfíkninni. En Bar-
rokk sveik ekki. Stemmningin
er kyrrlát og raffíneruð án
þess að vera stíf eða hátíðleg.
Innréttingin gerir sitt fyrir
staðinn, þá ekki síst veggflúr-
ið. Þá sakar heldur ekki að
þjónustuliðið leggur sig í sér-
staka framkróka um stima-
mýkt. Það er til dæmis hægt
að fá alveg sérstakt kikk út úr
því að hóa í Hjalta Úrsus
dyravörð til þess eins að biðja
hann að fara með yfirhafnirn-
ar í fatahengið fyrir mann. Lif-
andi tónlist setur einnig svip
á Barrokk, en yfir Ijúfum pí-
anóleik voru sungnar klass-
ískar dægurflugur af alls kyns
toga. Hins vegar má segja að
áfengisúrvalið á Barrokk gæti
hæglega verið betra. Þá er
ekki úr vegi að minnast á síg-
arettuúrvalið, sem var bein-
línis hlægilegt. Gestir gátu
valið milli Winston Light og
miiljón tegunda af mentol-
taði. Það er alls ekki nógu
gott hjá stað, sem vill sérstak-
lega leggja upp úrglæsileika
og góðri þjónustu.
Það er sérstakt kikk
að senda Hjalta
Úrsus ífatahengið
KARLAKÓRINN HEKLA
EFTIR GUÐNÝJU HALLDÓRS-
DÓTTUR
HÁSKÓLABfÓI
★
@Karlakórinn Hekla er
vond og örugglega
versta íslenska myndin
sem frumsýnd var á síðasta ári.
Frameftir mynd má hafa gaman
af henni (eins og það má hafa
gaman af flestöllu með góðum
vilja). En eftir að karlakórinn fer
utan dettur allur botn úr mynd-
inni. Áhorfandinn tapar áttum
og tímaskyni og því miður virðist
leikstjórinn bæði hafa tapað
kímnigáfunni og stjórn á verk-
efninu.
Þessi utanferð er einn grautur.
Persónur takar örlagaríkar
ákvarðanir einhvers staðar á
milli atriða. Áhorfendum líður
eins og utanveltu, eins og per-
sónurnar séu að leyna þá ein-
hverju. Það sem virðist vera eftir-
miðdagsstund í Svíþjóð líður á
sama tíma og nokkrir dagar í
Þýskalandi. Fólk helst í hendur
og gengur úr kvölddrykkju og
beint út í sumarblíðuna daginn
eftir. Svona má endalaust telja
upp endemis klúður sem ger-
samlega kafsiglir það sem hugs-
anlega gat eitthvað orðið í fýrri
helmingnum.
Það sorglegasta við þessa
mynd er að það skín af henni að
aðstandendur hennar líta á hana
sem „bara“ gamanmynd; eins-
konar löggulíf fyrir lítinn heima-
markað. Þeir virðast hins vegar
ekki skynja markað sem fólk og
því hafa áhorfendur ekkert sér-
staklega gaman af. Karlakórinn
er „bara“ vond mynd.
Hugmyndin að baki karla-
kórnum er ágæt og hljómar sjálf-
sagt vel í tíu setninga útdrætti.
Gallinn er sá að handritshöfund-
ur hefur engu bætt við þennan
útdrátt. Kórfélögum eru ekki út-
veguð sérstök persónueinkenni.
Einn brandari er yfirleitt látinn
nægja hverju atriði og oft verður
það til þess að búið er að teygja
svo á honum að áhorfandinn sér
hann fyrir þá loks hann kemur.
Aðalleikararnir þrír; Egill,
Garðar og Ragnhildur, eiga hrós
skilið fyrir að hafa bjargað sér frá
þeim dauða sem handritshöf-
undurinn brallaði þeim. Sama
má segja um Sigurð Sigurjóns-
son, sem bjargar sér á því að
leika Dodda á þrítugsaldri. Um
aðra leikara er fátt hægt að segja,
enda hafa þeir flestir fátt að segja.
Ég sé ekkert sérstaklega eftir
því skattfé sem fór í að styrkja
þessa mynd. Ég sé heldur ekkert
eftir 800-kallinum sem ég borg-
„Aðalleikararnir
þrír; Egill, Garðar og
Ragnhildur, eiga
hrós skiliðfyrir að
hafa bjargað sérfrá
þeim dauða sem
handritshöfundur-
inn brallaðiþeim. “
aði inn á hana né þeim tveimur
tímum sem ég eyddi í hana. En
ég get ekki gert að því að ég sé
eftir þeim tíma og vinnu sem þeir
ágætu kraftar sem koma fram í
myndinni eyddu í hana.
Kvikmyndasjóður Islands er
ekki auðugri en svo að hann get-
ur einungis komið vinnslu á
tveimur myndum í gang á ári
hverju. Það eru hins vegar miklu
fleiri kvikmyndahöfundar um
hituna. Eftir að hafa séð Karla-
kórinn Heklu er það ekki svo
ýkja sorglegt. Aðstandendur
hennar hefðu að ósekju mátt
bíða mun lengur eftir startinu og
nýta tímann til að búa til handrit
sem er boðlegt leikurum og
áhorfendum.
Gunnar Smári Egilsson
Það besta & uersta frá
Vikublaðið Entertainment hefur
birt niðurstöður sínar um bestu
og verstu kvikmyndir sem fram-
leiddar voru vestanhafs á síðasta
ári. Valið stóð um 50 myndir og
voru gagnrýnendur blaðsins
fengnir til að leggja mat sitt á af-
rakstur kvikmyndaársins. Að auki
setti blaðið saman ýmsa aðra lista:
yfir besta/versta sjónvarpsefnið,
bestu/verstu bækurnar, vinsæl-
ustu súperstjörnurnar...
BESTU
KVIKMYNDIRNAR
1. The Player. Hulunni svipt af
gervitilveru Hollywoodstjarn-
anna. Þykir ffábærlega meinfýnd-
in afþreying.
2. Glengarry Glen Ross. Sjaldan
kviknar líf þegar vinsæl leikrit eru
fest á filmu, en undantekningin
sannar regluna.
3. The Best Intentions. Handrit
Ingmars Bergman um ástir for-
eldra sinna er tilfinningaþrungið
og snUldarlegt í meðförum leik-
stjórans, BUle August. íslendingar
sáu sjónvarpsþættina.
4. Malcolm X.
SpUce Lee segir
söguna á sinn
hátt, án upp-
hafhingar, án
niðurlægingar.
Ervæntanleg.
5. The Crying Game. Róman-
ú'sk spennumynd af bestu sort.
NeU Jordan tekur upp þráðinn
þar sem ffá var horfið árið 1986,
þegar hann gerði Monu Lisu.
6. Howards End. Að þessu sinni
hefur „A Room with a View“-
genginu tekist að brjóta sig út úr
glansímyndum og skapað raun-
sanna kvikmynd eftir sögu E.M.
Forster. Hún hreyfir við fóUd.
7. Reservoir Dogs. Kemst
óþægilega beint að efninu.
8. The Last of
the Mohicans.
Blóðugur víg-
vöUur indíána
og hermanna
er snUldarlega
útfærður hjá
Mannfred Mann og myndin nær
að halda manni föngnum aUan
tímann. Halda mætti að Daniel
Day-Lewis hefði stokkið út úr
mannkynssögubókunum.
9. American Dream. Kvikmynd
um ameríska verkamanninn er
ekki algeng. Ótrúlegt að hún skuli
hafa náð vinsældum. Segir meira
um þarlent þjóðfélag en margt
annað.
10. A Few
Good Men.
Gamaldags af-
þreying með
ósviknum
HoUywood-
stjörnum. Sýn-
ir að þrátt fyrir Player lifír draum-
urinn enn. Áhorfandinn kemstað
því að Tom Cruise getur leUdð.
VERSTU
KVIKMYNDIRNAR
1.1492:
Conquest of
Paradise. Gér-
ard Depardieu
uppgötvar
„hinn Nýja
heim“ í hlut-
verki Kristófers Kólumbusar.
ÁRÖNGUNNI
MYNDIN SEM VARÐ
FLOPP EN ÁTTIAÐ SLÁ í
GEGN Alien3
MYNDIN SEM SLÓI
GEGN OG EKKERT
HAFÐI Lethal Weapon 3
MYNDIN SEM BEÐIÐ ER
EFTIR MEÐ EFTIRVÆNT-
INGU Wayne’s World 2
MYNDIN SEM VIÐ ÓTT-
UMST AÐ VERÐISÝND
Beethoven snýr aftur
Ridley Scott fer heldur betur flatt á
þessari, leiðinlegri en flest það
sem leiðinlegt er.
2. The Bodyguard. Það gerist
einfaldlega ekkert á mUli þeirra.
Whitney Houston og Kevin
Costner tekst aldrei að komast svo
langt ffá stjörnuímyndinni að þau
nái því að leika.
3. Preldue to a Kiss. Alec Bald-
win gengur að eiga Meg Ryan en
kemst snemma að því að hún,
vegna einhvers töffamáttar, breyt-
ist í aldraðan niann fyrir augun-
um á honum. Ekki nægir það til
að ástin dvíni. Ef eitthvað þessu
líkt hefur komið fyrir þig er
möguleiki að þér fmnist hún ein-
hvers virði.
4. Cool World. Teiknimynda-
höfundur sogast ofan í eigið sköp-
unarverk. Myndin er enn leiðin-
legri en aðalpersónan. Þá er nú
betra að halda sig við „Heavy Met-
al“.
5. Hoffa. Betur hefði farið á því
að grafa handritið með jarðnesk-
um leifum Hoffa en að gera heila
kvUcmynd eftir því. Frammistaða
Jacks Nicholson er hörmuleg.
SENUÞJÓFAR
Michelle Pfeiffer í Batman Re-
turns. Mjá!
Wes Studi í Síðasta Móhíkanan-
um. Hann leikur hinn hefhigjarna,
dáleiðandi Magua.
Judy Davis í Husbands and Wi-
ves.
BESTA
SJÓNVARPSEFNIÐ
Meðal þess sem kosið var besta
sjónvarpsefnið og við íslendingar
könnumst við má nefna: Rose-
anne, fituhlunkahúmor, The
Simpsons, hæfilega subbulegur
verkamannahúmor fyrir alla ald-
urshópa, Late Night With Dav-
id Letterman, sem reyndist tví-
fari Hannesar Hólmsteins Giss-
urasonar og Hallgrímur Thorst
hefur stælt svo snilldarlega, og
síðast en ekki síst Cheers, ævar-
andi pubbagrín. Beverly Hills,
90210 er besti ruslþátturinn og
annar er við það að staðna en það
er Melrose Place sem Stöð 2 er
að taka til sýningar.
VERSTA
SJÓNVARPSEFNIÐ
Quantum Leap var álitið fjórða
versta sjónvarpsefnið sem hægt
var að horfa á. Ekkert er þreyttara
en ferðalög í tíma. L.A. Law þóttu
eitt sinn prýðisþættir en hafa
heldur betur misst flugið. Hljóta
fimmta sætið.
FÓRNARLÖMB í
SPENNUMYNDUMÁ
SÍÐASTA ÁRI: UPPAR
The Hand that Rocks the
Cradle
Single White Female
Unlawful Entry
Consenting Adults
SKEMMTIKRAFTAR
ÁTOPPNUM
1. Saturday Night Life. Tekur
púlsinn.
2. Whoopi Goldberg. Stjörnu-
leikkona, full af orku.
3. Jerry Seinfeld. Enginn venju-
legur maður.
4. Spike Lee. Segir makalausar
sögur.
5. Garth Brooks. Sveitasöngvar-
inn sem sat í efsta sæti popplist-
ans.
6. Sharon Stone. Nýjasta mega-
stjaman.
7. Joshua Band & John Falsey.
Snillingar í gerð sjónvarpsþátta.
8. Madonna. Er nokkuð hægt að
segja?
9. Vanessa Williams. Fyrrum
fegurðardrottning finnur sig í
poppbransanum.
10. Red Hot Chili Peppers. Brú-
aði bilið milli þungarokks og dæg-
urlaga.
11. Terry McMillan. Metsölurit-
höfundur vestanhafs.
12. Clint Eastwood. Enn á ný
ógleymaniegur kúreki.
Lífvörðurinn The Bodyguard
★ Ef strákarnir gætu ekki
horft á Whitney Houston og
stelpurnar á Costner mundu
sjálfsagt allir sofna. Þetta er
sorglega vond mynd.
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Aloite 2 -
Lost in New York •k-k-k-k
Frábær skemmtun. Spyrjið
bara börnin.
Jólasaga Prúðuleikaranna
The Muppet Christmas Carol
-k-kk Prúðuleikurunum og
ekki síst Michael Caine tekst
að blása enn nýju lífi í þessa
sögu en það er varla fyrir
hvern sem er að horfa á hana
eftir jólahátíðina.
Friðhelgin rofin Unlawful
Entry kk
Fríða og dýrið The Beauty
and the Beast irk-k
Eilífðardrykkurinn Death
Becomes Her kk Svört kó-
medía sem leikstjórinn Ro-
bert Zemeckis hefur blandað
svo svarta að hún verður
furðulítið skemmtileg.
Jólasaga Prúðuleikaranna
The Muppet Christmas Carol
kkk
Systragervi Sister Act kk
Leitin mikla kk
Burknagil, síðasti regn-
skógurinn kk
Karlakórinn Hekla ★ Versta
íslenska rhyndin frá síðasta
ári. Aðstandendur hafa ætlað
að búa til „bara gamanmynd"
en uppskáru „bara vonda
mynd". Aðalleikararnir halda
hins vegar lífi þrátt fyrir ætlan
handritshöfundarins.
Howard’s End ★★★★ Frá-
bær mynd; kvikindisleg, svört
og djúp. Sigur fyrir leikstjór-
ann Ivory, handritshöfundinn
Jhabvala.
Dýragrafreiturinn 2 Pet Se-
matary Two k Hryllingur.
Hákon Hákonsen ★★
Ottó Otto der Liebesfilm k
Boomerang ★
Svo á jörðu sem á himni
★★★
Háskaleikir Patriot Games
kk .
Eilífðardrykkurinn Death
Becomes Her kk
The Babe ★★★
Tálbeitan Deep Cover kk
REGNBOGINN
Síðasti móhíkaninn The
Last of the Mohicans ★★★
Myndin hefst á sögukennslu
en lifnar heldur betur við.
Daniel Day Lewis er rosaflott-
ur.
Miðjarðarhafið Mediterr-
aneo kkk
Tommi og Jenni ★★★ Enn
ein teiknimyndin með ís-
lensku tali frá þeim Regn-
bogamönnum. Eini gallinn
við þessa er að það fer helst
til of vel á með þeim Tomma
og Jenna.
Á réttri bylgjulengd Stay
Tunedk
Leikmaðurinn The Player
kkkk
Sódóma Reykjavík ★★★
Prinsessan og durtarnir
★★★
Fuglastríðið í Lumbruskógi
★★★
Meðleigjandi óskast Single
White Female kkk Spenn-
andi, eilítið smart og ágæt-
lega óhugnanleg.
í sérflokki A League of their
Own kkk Ágætlega
skemmtileg og Ijúf mynd. ,
Síðustu fimmtán mínúturnar |
eru hins vegar óbærilega
væmnarog leiðinlegar.
Bitur máni Bitter Moon
kkk
Börn náttúrunnar ★★★
Lífvörðurinn Tlie Bodyguard
k
Aleinn heima 2 - Týndur í |
New York Home Alone 2 -
Lost in New York kkkk
Burknagii - Siðasti regn-
skógurinn kk