Pressan - 19.05.1993, Side 13

Pressan - 19.05.1993, Side 13
S K OÐ A N I R Miðvikudagurinn 19. maí 1993 PRESSAN ? 3 STJÓRNMÁL Dýr hagsmunagœsla Lénsveldi í Ijósvakanum? Hagsmunagæsla er sterkur atvinnuvegur á íslandi, enda hafa nokkur hundruð manna fulla atvinnu af henni. At- vinnurekendur, verkalýðs- hreyfing og bændur, svo ein- hverjir séu nefndir, hafa allir í sinni þjónustu íjölda fólks sem gerir ekkert annað en að gætá hágsmuna umbjóðenda sinna, og yfirleitt á kostnað okkar hinna. Vinnuveitendasamband ís- lands sér um atvinnurekendur og starfsmenn þess annast „hagsmuni" fyrirtækja, ekki síst þegar kemur að miðstýrð- um kjarasamningum við verkalýðshreyfinguna. Þeir taka þann kaleik frá stjórn- endum fyrirtækja að þurfa sjálfir að eiga beint við starfs- menn sína um kaup og kjör sem taka tillit til ágætis hvers og eins og afkomu fyrirtækis- ins á hverjum tíma. Verka- lýðshreyfingin er sama marki brennd og losar launþega undan þeirri kvöð að miða kröfur sínar við afkomu fýrir- tækisins sem þeir starfa hjá. Þannig taka samtök atvinnu- rekenda og launþega mið af meðalmennskunni, enda lítill munur á þeim fyrir utan að atvinnurekendur eru frjálsir að því að vera í félagi, en verkalýðshreyfingin þvingar umbjóðendur sína til aðildar og skattleggur þá að auki. Afleiðing hagsmunagæslu sem þessarar er að skussunum í atvinnurekstri er gert kleift að halda áfram rekstri fyrir- tækja sinna á kostnað annarra og lötum starfsmanni eru tryggð sömu eða sambærileg laun og dugnaðarforkinum. Niðurstaðan er sú að verð vöru og þjónustu verður of hátt og arðgreiðslur til eigenda vel rekinna fýrirtækja eru étn- ar upp af þeim sem eru illa rekin. Og til að kóróna allt saman geta þessir tveir aðilar sem koma saman nær árlega til að semja um kaup og kjör ekki sinnt starfi sínu án þess að draga þriðja aðilann inn í og gera kröfúr á hendur hon- um. Það má þó sjá að breytinga er að vænta. Á síðustu árum hafa launamenn farið að efast um réttmæti þess að þeir séu þvingaðir til aðildar að verka- lýðsfélagi. Foringjarnir hafa þurft að standa frammi fyrir erfiðum spumingum sem þeir hafa fram til þessa reynt að FJÖLMIÐLAR forðast að svara. Sömu sögu er að segja um atvinnurek- endur. Áður tóku fýrirtæki þátt í starfi ýmissa hagsmuna- samtaka atvinnulífsins, allt ffá VSl til Verslunarráðs, frá Kaupmannasamtökunum til Útflutningsráðs. En á síðustu misserum hafa foringjar þess- ara samtaka þurft'að berjast fýrir að halda félagsmönnum, sem sjá orðið lítinn hag í þátt- töku. Skemmst er að minnast herferðar Verslunarráðs, til að halda og kannski einnig að fá ný fyrirtæki til liðs við sig, og samruna samtaka iðnaðarins. Því er spáð að miðstýrðir kjarasamningar, eins og tíðk- ast nú, heyri sögunni til upp úr aldamótum og að ábyrgðin verði færð inn á vinnustaðina til stjórnenda og starfsmanna. Og ffóðlegt verður að fýlgjast með því hvernig þeir sem hafa lifibrauð af kjarasamningum bregðast við. En þó svo virðist sem hags- munagæsla atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar taki breytingum á næstu árum og færist frá launuðum starfs- mönnum VSÍ, sem hafa lítið komið nærri rekstri fýrirtækja, og launuðum starfsmönnum verkalýðshreyfingar, sem eru annaðhvort háskólagengnir eða hafa ekki dýft hendinni í kalt vatn í áratugi, þá blómstra önnur hagsmunasamtök og . engin eins og samtök bænda, sem eru meira eða minna fjár- mögnuð af opinberu fé, — okkar peningum. (Við erum þannig látin borga fýrir bar- áttu sem hreinlega beinist gegn okkur sjálfúm.) Það eru tvær stéttir á íslandi sem hafa alla tíð haft ráðherra í forsvari fyrir sig og skiptir engu hver hann hefur verið eða frá hvaða stjórnmála- flokki. Allir landbúnaðarráð- herrar og sjávarútvegsráðherr- ar hafa af einhverjum undar- legum ástæðum talið sig sér- staka talsmenn og verndara bænda og útgerðarmanna. Þannig hefiir alla tíð farið vel á með Kristjáni Ragnarssyni, formanni LlU, og sjávarút- vegsráðherra, óháð því hvort hann heitir Halldór Ásgríms- son, Þorsteinn Pálsson, Stein- grímur Hermannsson eða Matthías Bjarnason. Og bændur hafa alla tíð hrifist af ráðherrum landbúnaðar enda átt þar hauka í horni — Pálmi Jónsson, Jón Helgason og „Á meðati ráðherra stendur í vegifyrir innflutningi geta bændur selt sitt kjöt og við neyðumst til að kaupa kjúkling í stað kalkúns á hcerra verði en ella. Er nemafurða þótt bœndur séu almennt sammála um að Halldór hafi staðið sig vel?“ Halldór Blöndal hafa allir staðið dyggan vörð um hags- muni bænda. Nýjasta dæmið er þegar Halldór Blöndal neit-' aði Hagkaup um leyfi til að flytja inn soðinn kalkún og er það í annað sinn á skömmum tíma sem hann gerir það. Ástæðan: Ráðherrann telur að ffamboð sé nægt af fúglakjöti, en bætir síðan við í samtali við Morgunblaðið að sér sé ekki fullkomlega kunnugt um hvort nóg sé til af kalkún: „Það eru auðvitað ekki til allar kjöttegundir veraldar hér á landi...“ segir ráðherra. Og á meðan ráðherra stendur í vegi fýrir innflutningi geta bændur selt sitt kjöt og við neyðumst til að kaupa kjúkling í stað kalkúns á hærra verði en ella. Er nema furða þótt bændur séu almennt sammála um að Halldór hafi staðið sig vel? Það er því rétt sem Jón Ás- bergsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir í viðtali við Morgunblaðið: „Hins vegar er landbúnaðarráðherrann ef- laust í því hlutverki að gæta hagsmuna bændastéttarinnar og telur sig verða að gera það með oddi og egg.“ Það er kominn tími til að svipuð þróun verði í hags- munagæslu hins opinbera og virðist eiga sér stað á almenn- um vinnumarkaði. Fyrsta skrefið er að leggja niður öll atvinnuvegaráðuneytin og koma á fót einu atvinnumála- ráðuneyti og við gætum borð- að kalkún um næstu jól án þess að létta budduna of mik- ið. Um þessar mundir er verið að taka ákvarðanir um endur- varp á dagskrá erlendra sjón- varpsstöðva og er talið að það geti hafist strax í haust. Ein af pukurnefndum stjórnarflokk- anna ætlar svo að skila tillög- um að nýjum útvarpslögum í haust. Stefnumótunin kemur á eftir ákvörðununum. Dæmigerð íslensk fýrirhyggja. Það er fagnaðarefni ef öll- um almenningi gefst kostur á því gegn viðráðanlegu gjaldi að sjá evrópskar og bandarísk- ar sjónvarpsstöðvar og nor- ræna fréttarás. Við sem höf- um kynnst slíkum möguleik- um erlendis hlökkum til að komast í beint samband við heiminn á ný. Hitt er augljóst að um framkvæmdina og formið á þessum útsendingum hljóta að rísa deiiur. Það var mikið slys að tilboði Pósts og síma um miðjan sl. áratug um boð- veitur sveitarfélaga skyldi ekki verða tekið. Ennþá virðist það vera skynsamlegasta framtíð- arleiðin að leggja í jörð veitu- kerfi fýrir myndir og hvers- kyns skilaboð til heimilanna og frá þeim. Hið opinbera á að sjá til þess að hvert heimili geti tengst boðveitu eins og rafveitu og hitaveitu. Öllum innlendum aðilum ætti svo að vera frjálst að taka á móti og senda efni inn á boðveituna samkvæmt lögmálum al- mennra viðskipta. Nú virðist hins vegar sem ekki verði stefnt að slíkum kosti, en treyst á örbylgjukerf- ið að minnsta kosti næsta ára- tuginn. Og þá kemur að því að hið opinbera fer að úthluta kvótum á þessa takmörkuðu auðlind og útnefna ljósvaka- greifa. Svo virðist sem Stöð 2 geri ráð fýrir að fá allt tíðni- sviðið að léni undir endurvarp erlendra stöðva. Að því er auðsæilega ákveðið hagræði, en óneitanlega fúllmikill ein- okunarbragur. Það leiðir síðan hugann að því hverskonar fýrirtæki Stöð 2 er að verða. Tími upphafsins og ævintýrisins sem setti Verslunarbankann á hausinn er liðinn, björgunaraffek bar- áttumanna í viðskiptalífinu er að baki og fulltrúar ráðsettra viðskiptahagsmuna sestir í stjórn félagsins með Heklu- bróður og einkavin forsætis- ráðherra í formannssætinu. Það er ekki bara á Ríkissjón- varpinu sem Sjálfstæðisflokk- urinn og einkavinir forsætis- ráðherra hreiðra um sig. Nú þegar rætt er um að pukumefndin sem minnst var á í upphafi muni leggja það til að einhverjir hlutar Ríkisút- varpsins verði einkavina- væddir hlýtur það líka að vera á sínum stað að hefja umræð- ur um eignarhald á ljósvaka- miðlum sem byggja rekstur sinn á einhverskonar léni ffá ríkinu. Væri ekki eðlilegt að gera það að skilyrði fyrir „kvótaúthlutun“ í ljósvakan- um að viðkomandi fyrirtæki séu almenningshlutafélög þar sem enginn einn aðili megi eiga meira en sem nemur 5 prósentum hlutafjár? Hér vantar stefnumótun. Hún kemur sjálfsagt frá Al- þingi þegar búið verður að taka allar þær ákvarðanir sem marka munu stefnuna næsta áratuginn. Lýðræðið tekur oft á sig langan krók.__________ Höfundur er framkvæmdastjóri fll- þýðubandalagsins. „Tími upphafsins og œvintýrisins sem setti Verslunarbankann á hausinn er liðinn, björgunarafrek bar- áttumanna í viðskipta- lífinu er að baki ogfull- trúar ráðsettra við- skiptahagsmuna sestir í stjórn félagsins með Heklubróður og einka- vin forsœtisráðherra í formannssœtinu. Það er ekki bara á Ríkissjón- varpinu sem Sjálfstœð- isflokkurinn og einka- vinir forsœtisráðherra hreiðra um sig. “ LifirMogginn í œvintýralandi? „Mogginn hefur nefnilega alveg bœrilegt fréttamat — hann hittir bara ekki á rétt land. “ Ég hef stundum undrað mig á því hve lítið ég veit í raun um Mð í Reykjavík þótt ég eigi að heita íbúi hér. Þrátt fyrir augljósa smæð borgar- innar hefur það ekki komið í veg fýrir að furðulegir, fram- andi og á köflum ógnvekjandi menningarafkimar spretti hér upp. Og þótt maður að sjálf- sögðu gjama vilji skilja og átta sig á öllu sem hér gerist er það útilokað. Lífið í borginni verð- ur seint útskýrt til hlítar vegna þess meðal annars að hver upplifir borgina með sínum hætti. Þetta rifjast upp fyrir mér þegar rennt er yfir „blað allra landsmanna"; Morgunblaðið. Stundum finnst mér nefnilega að Mogginn lifi í einhvers konar ævintýralandi og sé umhugað um að ota því landi að lesendum sínum. Fréttir af atburðum og framferði sem koma ekki heim og saman við þessa ævintýralandsímynd líða því framhjá stóm og vök- ulu auga Moggans. Mogginn hefúr nefnilega al- veg bærilegt fréttamat — hann hittir bara ekki á rétt land. Mogginn hefúr áhuga á að skrifa um spillingu og mis- tök stjórnmálamanna, fjár- svik, þvergirðingshátt kerfis- ins, bissnessflopp forstjór- anna, glæpi og þjóðfélags- hörmungar,- — en bara ef þetta gerist í útlöndum. Hér heima eru alvarlegri hlutir sem kalla á; Hof allra lista á Korpúlfsstöðum, Sægreifa- átök og stólaskipti ríkisstjóm- ar, svo fáein dæmi séu tekin úr leiðaraopnu nýverið. Nýjasta dæmið um þessa þversögn má sjá í umfjöllun um tiltekinn hlut í ferðaheim- inum, svokallaða dvalarréttar- samninga. Hér á íslandi höf- um við nýlegt og ljóslifandi dæmi um slíka viðskiptahætti, sem svo sannarlega orka tví- mælis, hjá fyrirtækinu Fram- tíðarferðum. Þrátt fyrir það kýs Mogginn að skrifa um þetta mál í útlöndum eins og það sé jafúlíklegt til að skella á okkur og sandstormur í Sa- hara. Þetta gerist þó að heim- ildir séu fýrir því að Mogginn hafi einmitt kannað þetta mál, en að því er virðist bara fýrir sig, svo Moggamenn verði ekki síðar staðnir að því að hafa hampað fyrirtækinu á röngum forsendum, þegar og ef spilaborgin hrynur. Hverju eru lesendur nær við svona hugsunarhátt? Annað nýlegt dæmi um þetta fjarlæga fréttamat Moggans er umfjöllunin um bruðl við Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Að sjálfsögðu blöskraði Moggan- um vitleysan og birti sam- viskusamlega fjölmargar greinar um íburðinn og sukk- ið. Gott ef leiðarahöfúndur sá ekki ástæðu til að koma með umvandanir. En að Mogginn sæi áberandi og skýra hlið- stæðu hér heima — nei það var af og frá. Þess í stað fór margumrædd leiðaraopna undir vangaveltur og ályktanir eftir sólkonung íslenska bankakerfisins eins og allt væri eins og það ætti að vera í ævintýralandi Morgunblaðs- ins._________________________ Sigurður Már Jónsson f Á UPPLEIÐ TÓMflS Á. TÓMASSON HOTELEIGANDI Tommi slær út alla pilsfalda- kapítalista í hugmynda- auðgi: hverjum öörum hefði dottið í hug kaupa Borgina af borginni, eyða alltof mikl- um peningum í innréttingar, og fé svo peninga fyrir skuldunum með einokunar- viðskiptum við borgina? SIGHVATUR BJÖRGVINSSON HEILBRIGÐISRAÐHERRA Það þurfti að vísu að fara alla leið til OECD í París, en loks fundust einhverjir sem eru ánægðir með breyting- arnar í heilbrigðiskerfinu — enda reikna þeir með því að verða aldrei veikir á íslandi. ÁGÚST EINARSSON FORMAÐUR BANKARAÐS SEÐLA- BANKANS Hann ákvað að auglýsa stöðu Seðlabankastjóra og setja þar með Jón Sigurðs- son í óendanlega vandræða- lega stöðu. Og vekja í leið- inni vonir um að einhver annar fái djobbið. i Á NIÐUR- LEIÐ HALLDOR BLÖNDAL IANDBUNAÐARRAÐHERRA Silkihúfan Víkverji er búin að slá hann til riddara landsbyggðarinnar. Halldór hlýtur að velta fyrir sér hvaða synda hann sé að gjalda. GARÐAR CORTES OPERUSTJORI Hann hélt að Svíarnir þyldu það sem íslenzkt óperufólk þoldi ekkl. Svíarnir sýndu norræna samstöðu og ráku hann. GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON VERKALYÐSFORINGI Hann hélt að hann gæti stöðvað samningaviðræður með þyngdlnni einnl saman. ASÍ og VSÍ skutu honum hlns vegar til hliðar eins og korktappa.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.